Tíminn - 07.01.1995, Blaðsíða 2
2
mmz---z.--
1s9r8 roPfWWr
Laugardagur 7. janúar 1995
Eftir 5 óro fjarveru frá Alþingi stefnir Kristín Halldórsdóttir ab nýju
aö þingstörfum - framboösmál Kvennalista í uppnámi. Kristín í viö-
tali viö Tímann um Kvennalistann / gœr:
„Viö erum ekki
aö missa flugiö"
Kristín Halldórsdóttir er til-
búin í slaginn fyrir Kvenna-
listann í Reykjaneskjör-
dæmi. Helgu Sigurjónsdótt-
ur, bæjarfulltrúa Kvennalist-
ans í Kópavogi hefur verib
hafnab á dramatískan hátt
af stallsystrum sínum á
Kvennaiistanum. Helga
hlaut flest atkvæbi í mis-
lukkubu forvali Kvennalist-
ans en þab dugbi henni
skammt. Efnt verbur til nýs
forvals og þá er talib ab
Kristín muni fá 1. sæti list-
ans og freista þess ab ná
kjöri sem alþingismabur.
Kristín var ekki meb í fyrra
forvalinu en tekur þátt í
næstu tilraun.
Síbast sat Kristín á Alþingi
1989 og vék þá fyrir Önnu
Ólafsdóttur Björnsson. Töl-
ubu þá margir um vonda
innáskiptingu.
Mislukkaö forval -
kallaö á Kristínu
Uppstillingarnefndir
Kvennalistans hafa átt vib
nokkur vandamál ab stríba í
störfum sínum ab undan-
förnu, einkanlega þó í Reykja-
neskjördæmmi. Fáir félagar
hafa mætt til forvals á fram-
bjóbendum, reyndar svo fáir
ab þau hafa varla reynst mark-
tæk, hvorki á Reykjanesi né í
Reykjavík. Fjölmargar konur
hafa skorab á Kristínu Hall-
dórsdóttur ab koma fram á
völlinn og gefa kost á sér. Við
þessu hefur Kristín orðið. „Ég
hef orðið viö þessari áskorun.
Ég ætlaði ekki að gera þetta, en
það virðist mikill vilji fyrir því
að ég gefi kost á mér", sagði
Kristín í gær.
Á fimmtudagskvöldiö héldu
Kvennalistakonur fund um
uppstillinguna í Reykjanes-
kjördæmi þar sem töluverð
átök voru um framboðið. Á
fundinum lagði uppstillingar-
nefnd fram tillögu sína um
skipan efstu kvenna á listan-
um. Sú tillaga var aldrei borin
fram, enda ákveðið áður að
efna til nýs forvals.
Ekki foringi - en
skipuleggjandi
Kristín Halldórsdóttir var
almennt talin foringi Kvenna-
listans á sinni tíð. Hún hafnar
þeirri nafnbót, enda þótt hún
hafi nú um árabil unnið fyrir
Kvennalistann sem einskonar
skipuleggjandi bak viö tjöldin
og í launuðu starfi fyrir sam-
tökin.
„Ekki vil ég nú kalla mig
það. En ég sat á þingi fyrir
þetta kjördæmi í 6 ár og hef
náttúrlega unnið hérna áfram
í þessari baráttu," sagði hún í
gær í samtali við Tímann.
Kristín segir að það hafi ver-
ið tvær hliðar á þeirri aðgerð
að skipta henni út fyrir Önnu
Ólafsdóttur Björnsson. Þessi
skipting hafi verið í samræmi
viö yfirlýsta ákvörðun
Kvennalistans um að skipta á
miðju kjörtímabili.
Ferskar á þing fyrir
þreyttar
En er innáskiptingaregla að
hœtti handboltamanna ekki
haepin?
„Nei, nei. Það finnst mér
ekki. Við höfum ekki sagt skil-
ið við þá skoðun okkar að full-
trúar eigi að verða eilífir í starf-
inu. Heldur sé það góð vinnu-
regla að skipta um, og það
henti til dæmis konum vel,
auk þess sem það er endurnýj-
andi fyrir Alþingi og stjórn-
málabaráttuna. Fólk kemur
með dýrmæta reynslu utan úr
þjóðfélaginu inn á þingið,"
sagði Kristín og hafnaði þeirri
kenningu að hún hafi bókstaf-
lega verið rekin út af þingi.
Hins vegar viðurkennir
Kristín að það hafi reynst
rangt að skipta um þingmenn
á miöju kjörtímabili eins og
gert var, og nú sé talið heppi-
legra að skipta um fulltrúa
eins og aðrir flokkar gera.
Niöurnegldir flokks-
foringjar
Er Kvennálistinn að missa
flugið?
„Nei, finnst þér það? Flugið
getur verið misjafnlega hátt.
Fuglarnir fljúga með ýmsu
móti og það þarf að skipta um
hæð. Og svona er pólitíkin þó
við séum töluvert öðru vísi en
heföbundnir flokkar. En um
okkur gilda sömu lögmál og
aðrar stjórnmálahreyfingar að
skoðanakannanir eru allavega,
stundum ánægjulegar og á
öðrum tímum lakari. En við
erum semsagt ekki að missa
flugiö, öðru nær."
Er ekki erfitt fyrir Kvennalist-
ans að lifa við það að vera án
foringja?
„Það hefur kosti og galla.
Ekki eru þeir nú alltaf svo
hamingjusamir sem búa við
þessa niðurnegldu foringja
sína. Þeim finnst þeir kúgaðir
og aldrei fá neinu að ráða.
Þetta er öðru vísi hjá okkur og
gengur bara vel og engin
ástæða til breytinga."
En Kvennalistinn er í vand-
rceðum og getur varla komið
saman framboðslistum?
„Ekki aldeilis. Við erum ekki
í neinum vandræðum umfram
aðra flokka. Það er margir enn
að boða prófkjör. Við birtum
Kristín Halldórsdóttir, hellir sér í virka stjórnmálaþátttöku eftir 5-6 ára frí.
okkar lista síðast seinni part
febrúar eða í byrjun mars. Við
höfum nógan tíma til stefnu."
jóhanna heggur í
alla
Er fóhanna að stríða Kvenna-
listanum?
„Hún hefur auðvitað áhrif á
fylgi okkar, og raunar allra
flokka. Nýjasta skoðanakönn-
un sýnir að Sjálfstæðisflokkur-
inn missir 6 þingmenn en
Kvennalistinn einn. Kannski
munar okkur meira um þann
missi en Sjálfstæðisflokkinn,
ég veit það ekki. En framboð
Jóhónnu hlýtur að hafa áhrif á
alla flokka, en það er erfitt að
ráða í stöðuna eins og hún er
núna, en ég vil ekki segja neitt
slæmt um það mál, kjósendur
munu ráða."
Árangur Kvennalist-
ans í áratug
Það er talað um lítinn pólitísk-
an árangur afmeira en áratugar
löngu starfi Kvennalistans, einn-
ig um tímaskekkju og fleira.
Hverju er til að svara?
„Árangurinn hefur verið að
sýna sig meira og meira í auk-
inni þátttöku kvenna á öllum
sviðum. Það hefur mikil áhrif
það fordæmi sem Kvennalist-
inn er. Sjáðu bara að þegar val-
inn er maður ársins, þá eru
það fjórar konur sem eru í
efstu sætunum, það segir vissa
sögu. Hlutur Kvennalistans
hefur líka verið mjög ráðandi í
samstarfi sem hefur skapast í
sveitarstjórnarmálum víða, til
dæmis á Seltjarnarnesi og auð-
vitað í Reykjavík. Án reynslu
og sjónarmiða okkar hefði R-
listinn varla orðiö til eða náð
þeim árangri sem náðist."
Þú sérð vuentanlega ekki fyrir
þér að Kvennalistinn sé að líða
undir lok enda þótt aðrir stjórn-
málaflokkar tefli fram konum
meira og minna á listum sínum
og þið séuð oft minntar á að ykk-
ar tími sé liðinn?
„Já, þú segir að konur séu
meira og minna á framboðs-
listum. Eg segi reyndar að það
sé aðallega minna. Við værum
nú ansi lítilþægar ef okkur
þætti þetta nógur árangur.
Mér sýnist að af öllum þeim
fjölda lista sem eru komnir
fram séu ekki nema tveir eða
þrír Iistar leiddir af konum og
víða er ágætum konum hafn-
að í flokkunum. Annars er
þetta ekki spurning um að
fjölga konum í stjórnmálum,
heldur spurning um að sjónar-
mið kvenna og hagsmunir séu
virtir," sagði Kristín Halldórs-
dóttir að lokum. ■
Svipast um eftir
manni frá Hellu
Lögreglan í Rangárvallasýslu
hóf í gær ab svipast um eftir
38 ára gömlum manni frá
Hellu, Hinrik Grétarssyni.
Hinrik fór ab heiman frá
sér á Hellu um kl. 15.00
á þribjudag síbastlibinn og
var ferbinni heitib til
Reykjavíkur. Hann ætlabi
ab koma til síns heima
um kvöldib og vitab er ab
hann komst á áfangastab, en
síban hefur ekki spurst til
hans.
Hinrik er 1,80 metrar á hæð,
grannur með skollitað hár og
blá augu. Hann var íklæddur
grænum gallabuxum, brúnum
ullarjakka með leðurbrydding-
um og svörtum skóm. Hinrik
ekur um á ljósbrúnum
Chevrolet Monza, árgerð
1988, með skráningarnúmerið
JV-289. Þeir serri hafa orðið
varir við ferðir mannsins eru
beðnir um að hafa samband
við lögregluna í Rangárvalla-
sýslu. ■