Tíminn - 07.01.1995, Síða 9
Laugardagur 7. janúar 1995
9
Skóladagheimili Austurbœjarskólans lagt niöur og forstöbukonan hœtt:
Friöur skapast í kjölfar brott-
hvarfs skólastjórahjónanna
Eftir mikiö fjaörafok í kring-
um starfsemi í Austurbæjar-
skóla og skóladagheimilis
sem rekiö var í skólanum,
viröist nú hafa skapast friöur
í kringum starfiö. Lykillinn
aö þeim friöi viröist vera
brotthvarf skólastjórans og
eiginkonu hans sem var for-
stööukona skóladagheimil-
ins. Skóladagheimiliö hefur
nú veriö lagt niöur og starf-
semin færö undir heilsdags-
skóla, en skólastjórinn hefur
fengiö leyfi vegna veikinda.
Samkvæmt heimildum Tím-
ans er taliö nánast öruggt aö
hann muni ekki koma til
starfa í skólanum aö nýju,
enda sé samþykkt sú sem
foreldrar barna í skólanum
og meginþorri kennara
geröu, um aö þeir og nem-
endur muni ekki sækja skól-
ann ef skólastjórinn snúi aft-
ur, enn í fullu gildi.
Nú um áramótin var skóla-
dagheimili í Austurbæjarskóla
lagt niöur og starfsemi þess
færö undir heilsdagsskóla.
Reyndar hafði verið ákveðið
áður að þetta yrði gert, en í
framhaldi af þeirri umræðu
sem undanfarið hefur verið
um starfssemi skóladagheimil-
isins, forstöðukonu þess og
skólastjóra Austurbæjarskóla,
var ákveðið að flýta þessum
breytingum.
Á fimmtudagskvöld var
haldinn fundur meö starfandi
skólastjóra Austurbæjarskól-
ans, Guðmundi Sighvatssyni,
fulltrúa skólaskrifstofu Reykja-
víkur og foreldrum þeirra
barna sem áður voru á skóla-
dagheimilinu, þar sem þetta
var kynnt og farið var yfir
stöðu mála og hvernig unnið
yrði í framtíðinni að því að
bæta skólastarfið. Að sögn
Maríönnu Traustadóttur, sem
er foreldri barns í fyrrum
skóladagheimli og situr einnig
í foreldraráði Austurbæjar-
skóla, er lausn í málinu nú
fundin, sem allir aðilar geti
sætt sig við. Nú líti menn
björtum augum á framtíðina
og lögð veröi áhersla á það nú
að móta stefnuna og þar muni
foreldrar taka virkan þátt í
ásamt skólastjórn.
Við þessar breytingar,
þ.e.a.s. við lokun skóladag-
heimilis, var það tryggt að
hagur barnanna myndi í engu
raskast og sú þjónusta sem þau
hafa fengið hingað til verði
jafnvel betri. Starfið muni
verða markvissara, auk þess
sem það sé fóstrumenntaður
starfsmaður sem sér um heils-
dagsskólann, sem ekki var fyr-
ir hendi í skóladagheimilinu.
Guðmundur Sighvatsson,
starfandi skólastjóri, segir að
nú muni verða farið yfir stöð-
una í samstarfi við fræðsluyfir-
völd í Reykjavík og leitað leiða
til að „rétta skútuna af" og
sigla henni í örugga höfn. ■
Framleiösla og sala búvara í nóvember:
Sala á kjöti jókst um
7,3% á milli ára
Kjötsala var í heild mun meiri í
nóvembermánuöi en á sama
tíma í fyrra og munar þar mestu
um gífurlega söluaukningu á
svínakjöti. I heild var söluaukn-
ing á kjöti um 7,2%, en ef miö-
aö er viö tólf síöustu mánuöi er
söluaukningin 2%. Hvaö fram-
léiðslu varöar jókst hún um
1,8% í nóvember miöaö viö
sama mánuö í fyrra, en minnk-
abi hins vegar um 1,9% ef mib-
ab er vib tólf mánaba tímabil.
Sala svínakjöts jókst um
49,2% í nóvember á milli ára og
um 18,8% ef miöað er við tólf
mánaða tímabil. í nóvember
seldist um 4,6% meira af kinda-
kjöti en í fyrra, 1,4% meira af
nautakjöti og 6,8% meira af
Ungmennafélag Selfoss:
Ingólfur útnefndur
íþróttamabur ársins
Ingólfur Snorrason karate-
maöur var á dögunum kjör-
inn íþróttamaöur Ungmenna-
félags Selfoss fyrir áriö 1994.
Hann náöi góðum árangri í
grein sinni á árinu og náöi
m.a. titli Noröurlandameist-
ara í sinni grein.
Árvisst er að verðlaunahátíð
UMF Selfoss sé haldin að kvöldi
30. desember. Þar eru veitt verð-
laun og viðurkenningar til þess
íþróttafólks sem keppir undir
merkjum félagsins og hefur náð
framúrskarandi árangri á árinu.
I öðru sæti í kjöri íþrótta-
manns UMF Selfoss varö Vé-
steinn Hafsteinsson kringlu-
kastari, Sigurlín Garðarsdóttir
sundkona varð í því þriðja, Sig-
urjón Bjarnason handknatt-
leiksmaður lenti í fjórða sætinu,
Silja Hrund Einarsdóttir fim-
leikastúlka náði fimmta sæti,
Gylfi Þorkelsson körfubolta-
maður því sjötta og í því sjö-
unda varð Ómar Valdimarsson
knattspyrnumaður. Fengu þesir
verðlaunahafar góð verðlaun frá
ýmsum fyrirtækjura á Selfossi.
Þann 22. janúar mun Selfoss-
bær útnefna íþróttamann Sel-
foss. Það er annaö árið sem sú
útnefning fer fram, en til
skamms tíma var íþróttamaður
UMF Selfoss jafnframt tilnefnd-
ur til þess titils af bæjaryfirvöld-
um. En eftir því sem íþróttafé-
lögum á Selfossi hefur fjölgað
og breiddin í íþróttalífi aukist
keppa ekki alir undir merkjum
ungmennafélagsins og því voru
viöurkenningar félagsins og
bæjarins skildar í sundur.
-SRS, Selfossi.
Ingólfur Snorrasón karatemaöur
hefur náb góbum árangri í íþrótta-
grein sinni og var því útnefndur
íþróttamabur UMF Selfoss.
hrossakjöti. Hins vegar dróst
sala á alifuglakjöti saman um
31%. Ef miðaö er við tólf mán-
aða tímabil jókst sala á nauta-
kjöti um 1,6%, en dróst saman
um 5,8% á alifuglakjöti, 2,1% á
hrossakjöti og 2,1% á kinda-
kjöti.
Framleiðsla á kindakjöti í nóv-
ember jókst um 145% á milli
ára, en það skal tekið fram að
inni í þeirri tölu er einnig kjöt
sem lagt er til umsýslu og flutt
skal á erlenda markaöi. Fram-
leiðsla á nautakjöti var um 28%
meiri en í sama mánuði í fyrra
og svínakjöti 10%. Framleiðsla á
hrossakjöti dróst hins vegar
saman um 20% á milli ára og á
alifuglakjöti um 27%. Hins veg-
ar, ef miðað er við tólf mánaða
tímabil, dróst framleiðsla á ali-
fuglakjöti saman um 9% og á
kindakjöti um 7%, en jókst um
2,8% á nautakjöti, 12,8% á
svínakjöti og 4,3% á hrossa-
kjöti.Framleiðsla á mjólk dróst
saman í nóvember um 5,6%, ef
miðað er viö sama mánuð í
fyrra, en er hins vegar um 2,7%
meiri ef miöað er við tólf mán-
aða tímabil. Sala á mjólkurvör-
um, umreiknuðum í lítra, jókst
um 4,3% í nóvember og um
2,7% á tólf mánaða tímabili.
Sala á eggjum dróst saman um
18,4% í nóvember og framleiðsl-
an um 8,5%, en ef miðað er viö
tólf mánaða tímabil dróst fram-
leiöslan saman um 1,9%, meðan
salan dróst saman um 1,8%. ■