Tíminn - 07.01.1995, Qupperneq 19
Laugardagur 7. janúar 1995
19
Theódór Sigurjón Norbkvist
ísafirbi
Þegar ég frétti ótímabært andlát
Theódórs, fannst mér að hann
ætti skilið að ég sendi honum
kveðju, þegar hann verður flutt-
ur síðasta spölinn.
Ekki get ég sagt, að við The-
ódór værum neinir samferöa-
menn, en lengi býr aö fyrstu
gerð. Faðir hans var sjómaður
og á þeim árum, sem hann var
að alast upp, var algengt að sjó-
mannskonur færu í kaupavinnu
á sumrin með börn sín, væri
þess kostur. Ása móðir hans var
tvö sumur kaupakona í Norður-
firði með tvö yngstu börnin,
Theódór og Evu. Norðurfjarðar-
bærinn er aðeins steinsnar frá
Steinstúni, sem var mitt æsku-
heimili. Þannig lágu leiðir okkar
fyrst saman.
Ekki fór hjá því, að kynni
tækjust með börnum af ná-
grannabæjum. Okkur sveita-
börnunum fannst að sjálfsögðu
fengur að þessum nýju leikfé-
lögum. Þeim fylgdi framandleg-
ur blær, sem ekki var þekktur á
afskekktum sveitabæjum. Er
ekki að orðlengja það, að við
urðum miklir mátar þessi sumur
sem leiðir lágu saman. Hann var
góður leikfélagi og hafði til að
bera bestu kosti góðs leikfélaga,
hann var áræbinn strákur og sí-
fellt glaðvær. Fyrir rúmum
fimmtíu árum var sjálfsagt ætl-
ast til ab tíu eða ellefu ára göm-
ul börn tækju þátt bæði í leik og
starfi. Ég býst samt við að
minna hafi orðiö af starfinu,
enda nóg tilefni til allskyns
leikja. Við fundum ab sjálf-
sögðu upp á öllu því, sem hraust
börn eiga að geta fundið uppá,
við óðum í sjónum og lækjum,
sigldum skipum og svo mætti
lengi telja. Síðan skildu leiðir,
en ég minnist Theódórs sem
hins glaða og djarfa leikfélaga.
Líklega hafa jaessi sumur hans
í Árneshreppi orðið þess vald-
andi ab hann sem fulltíba mað-
ur taldi sig eiga aftur erindi í Ár-
neshrepp. Þegar hann var sjálf-
ur farinn að stjórna fyrirtækjum
á ísafirði, hugleiddi hann mikið
á hvern hátt hann gæti aöstoö-
að við atvinnuuppbyggingu í
Árneshreppi. Nokkrum sinnum
kom hann hingaö þeirra erinda
og þá lágu leiðir okkar aftur
saman. Það var sameiginleg nið-
urstaða hans og heimamanna
ab hér væri ekki hægt um vik,
svo málið féll niður. Þetta sýndi
t MINNING
samt, að hann hafbi ekki gleymt
sumrunum sínum í Norðurfiröi,
og eitt sumar var hann líka á
Munaðarnesi hér í sveit.
Enn er ógetið frændsemi okk-
ar. Við vorum bábir fjórði ætt-
liður frá Jónasi Jónssyni frá
Litlu-Ávík, sem bar viðurnefnið
„Barna-Jónas", átti enda tuttugu
og eitt barn. Jónasar þessa er að-
eins getið í sögunni vegna þess,
að hann var einn þeirra sem
gerðust liðsmenn Jörundar
hundadagakonungs og launaði
þar frelsi sitt, Er það önnur saga,
en kemur samt upp í hugann
við nýlega sýningu á leikriti um
Jörund.
Fyrir nokkrum árum dró The-
ódór sig út úr erli fyrirtækja-
reksturs og gerðist sjómaður, og
þar fréttist síöast af honum.
Þó segja mætti að kynni okkar
væru ekki mikil, var þar spunn-
inn þráður sem mér fannst aldr-
ei slitna, og ég er þakklátur hon-
um fyrir þann áhuga, sem hann
sýndi okkur hér í sveitinni. Mér
fannst að að leiðarlokum ætti
hann inni hjá mér nokkur fá-
tækleg kveöjuorð.
Ég kynntist aldrei fjölskyldu
Theódórs, en nú syrgja hann
eftirlifandi eiginkona, uppkom-
in börn, tengdabörn og barna-
börn.
Ég og kona mín sendum
þeim, aö leiðarlokum, okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Gunnsteinn Gíslason,
Norðurfirði
Hringadróttinssaga, 2. bindi
Annað bindi Hringadróttinssögu
eftir Tolkien er komiö út hjá
Fjölvaútgáfunni í þýðingu Þor-
steins Thorarensen, en ljóðin
eru í þýðingu Geirs heitins Krist-
jánssonar.
í fyrra kom út 1. bindi „Föru-
neyti Hringsins", en 2. bindi er
framhald af því og nefnist
„Tveggjatuma tal". Alls verður
verkið þrjú bindi og er áætlað að
lokabindiö, seni nefnist „Hilmir
snýr heim", komi út ab ári liðnu.
Tolkien er viðurkenndur einn
mesti sagnameistari sem uppi
hefur verið. Hann skapar í bók-
um sínum nýjan hugarheim,
byggir upp ný tungumál Álfa,
Dverga og Orka og finnur þeim
stað í ímynduðum heimi, sem
menn þykjast þó finna samlík-
ingar við í núverunni.
Hið nýútkomna bindi hefst í
vonleysi, þar sem Föruneyti
hringsins tvístrast. Hringberinn
Fróði leggur af stað inn í Myrkra-
landib Mordor. Bókin skiptist í
tvo meginhluta, annar gerist á
vesturslób og segir frá barátt-
unni viö svikarann Sarúman og
kemur þar mjög við sögu Trjá-
skeggur, sem er einskonar kon-
ungur skóganna.
í seinni hlutanum er fjallað
um einmanalega ferb Hringber-
ans Fróða um auönir Mordors,
en hann kemst aö samkomulagi
við hinn illvíga Gollri um leið-
sögn um landið, en Gollrir, sem
ásælist Hringinn, undirbýr
svikabrögð. Margt hefur áunnist,
en á sama tíma undirbýr myrkra-
konungurinn Sauron lokaatlögu
ab hinum vestræna heimi.
2. bindi Hringadróttinssögu,
Tveggjaturna tal, er 370 bls.
Verb kr. 3.680.
DAGBOK
Lauqardaqur
7
janúar
7. daqur ársins - 358 dagar eftir.
I. vlka
Sólris kl. 11.11
sólarlag kl. 15.57
Dagurinn lengist
um 4 mínútur.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Bridskeppni, tvímenningur, kl. 13
og félagsvist kl. 14 í dag í Risinu.
Dansaö í Gobheimum kl. 20 í
kvöld.
Ferðafélag íslands
Sunnudagsferðin 8. janúar kl.
13: Heiömörk-Skógarhlíöarkriki
Mætið í fyrstu sunnudagsgöngu
ársins. Stutt og auðveld ganga um
skemmtilegt útivistarsvæði. Verð
700 kr., frítt fyrir börn með full-
orðnum. Brottför frá BSÍ, austan-
megin (stansað við Mörkina 6).
Heimkoma upp úr kl. 16.
Ferðafélagið hefur gefið út rit
um sögu Fjallvegafélagsins. Fæst á
skrifstofunni.
Gleðilegt ferbaár.
Fyrirlestur í Hafnarborg:
Táknfræbi og tákn í
myndlist
Fyrirlestur dr. Gunnars Krist-
jánssonar um táknfræbi og tákn í
myndlist verður í Hafnarborg,
lista- og menningarstofnun Hafn-
arfjarðar, mánudaginn 9. janúar
kl. 20. Að fyrirlestrinum loknum
verða samræður um viöfangsefn-
ib í kaffistofunni fram eftir
kvöldi.
Þetta er annar af fjórum fyrir-
lestrum dr. Gunnars í Hafnarborg
í vetur um myndlist í trúar- og
trúarheimspekilegu ljósi. Fyrir-
lestrarnir og samræburnar í kjöl-
farið eru liður í undirbúningi fyr-
irhugaðrar samsýningar mynd-
listarfólks næsta vor og því eru
allir þeir myndlistarmenn, sem
hafa hug á að vera með á samsýn-
ingunni, hvattir til að mæta á fyr-
irlesturinn.
Frá Söngsmibjunni
Söngsmiðjan er söngskóli sem
vill gefa sem flestum tækifæri til
ab læra að syngja, laglausum sem
lagvísum. Haldin eru námskeið
fyrir fólk á öllum aldri, byrjendur
og lengra komna (engar kröfur
um ab fólk geti sungið, bara að
það langi til þess). Fólk getur val-
ið um ýmsar leiöir til náms eftir
getu, áhuga og hæfileikum. Starf-
rækt er einsöngvaradeild í Söng-
smiðjunni, sem er klassísk söng-
deild, en einnig er boðið upp á
kennslu fyrir þá sem vilja leggja
fyrir sig abrar tegundir tónlistar.
Sem fyrr stendur mikið til hjá
Söngsmiðjunni á vorönn '95.
Unglingarnir taka hippatímabilið
fyrir, en eldri nemendur flytja
perlur úr ýmsum frægum söng-
leikjum. Þá hefur starfsemi sína
„Sönghópur Söngsmiðjunnar",
sem syngur tónlist af ýmsum
toga, s.s. gospel-, popp-, söng-
leikja- og klassíska tónlist. Börnin
ferðast um heiminn með farfugl-
unum í söng, leik og hreyfingu og
heimsækja ýmsa skemmtilega
stabi í heiminum.
Skólastjóri Söngsmiðjunnar er
Esther Helga Guðmundsdóttir.
Skólinn er að Skipholti 25,
Reykjavík, og síminn er 612455
(fax 612456).
ÁRNAÐ HEILLA
Páll jónsson.
60 ára afmæli
Mánudaginn 9. janúar verður
Páll Jónsson sparisjóðsstjóri
sextugur.
Hann hefur verib sparisjóbs-
stjóri frá 1974.
Páll var í bæjarstjórn Keflavík-
ur 1966-1974 fyrir Framsóknar-
flokkinn. Hann er í fjölmörgum
stjórnum og ráðum á vegum
sparisjóðanna.
Eiginkona hans er Margrét
Jakobsdóttir. Þau eru erlendis
um þessar mundir.
TIL HAMINGJU
Þann 15. október 1994 voru
gefin saman í Garðakirkju af
Hafliða Kristinssyni, þau Jó-
hanna Eldborg Hilmarsdóttir
og Guömundur Gunnarsson.
Þau eru til heimilis að Laugateig
2, Reykjavík.
Ljósm.st. MYND, Hafnarfirdl
Fréttir af bókum
Stóra
flugu-
hnýtinga-
bókin
Fjölvaútgáfan sendir nú frá sér
Stóm fluguhnýtingabókina eftir
Jacqueline Wakeford í þýðingu
Friðjóns Árnasonar. Áður hafa
komið út hér á landi nokkrar
bækur með upptalningum og
myndum af ólíkum fluguteg-
undum, en þessi bók er óvenju-
leg fyrir það að hún lýsir efni,
tækjum og tækni vib hnýting-
una ítarlega, bæði gerð vot-
flugna og. þurrflugna. Þá eru
sérstakir þættir um stél, búka,
kraga, skegg, vængi og síðan
um óvenjulegar abferðir, lökk-
un, þyngingu, kjalflugur, sam-
hangandi flugur og þríkrækjur
og ótal margt fleira.
Til skýringar öllum þessum
þáttum, stig fyrir stig, fylgja
hvorki meira né minna en 350
ljósmyndir í fullum litum. í
bókarlok koma svo miklir listar
yfir ólíkar flugugerðir og þar á
meðal yfir 100 íslenskar teg-
undir, m.a. eftir Kristján Gísla-
son sem sýnir útgáfunni þann
sóma að birta hér í fyrsta skipti
þrjár nýjar flugur. Þar á eftir
koma orðaskýringar bæði á
ensku og íslensku, heimilda-
skrár og atriðisorðaskrár, en út-
gáfan telur að Fribjón Árnason
hafi unnið sérstakt afrek með
hæfilega aölögunarkenndri ís-
lenskun á hugtökum og á text-
anum í heild.
Stóra fluguhnýtingabókin er
150 bls., litprentuð. Verð kr.
3.280. ■
Geisladiskar
Ný gospelplata:
Miriam
Nú er komin á markaðinn gosp-
eltónlist á geislaplötu og
snældu sem ber nafnið Miriam.
Það er söngkonan Miriam Ósk-
arsdóttir ásamt fjölda lands-
þekktra hljóðfæraleikara sem
flytja 12 fjölbreytt og skemmti-
leg lög. Meðal hljóðfæraleikara
má nefna Gunnlaug Briem, Jó-
hann Ásmundsson, Friðrik
Karlsson, Kristin Svavarsson,
Óskar Einarsson, Jóhann Hjör-
leifsson og Pál Pálsson.
Skemmtilegar bakradda- og
blásaraútsetningar setja svip
sinn á þessa plötu og þar koma
við sögu 25 manna kór og hóp-
ur bakraddasöngvara auk
margra blásara. Útsetningar
annaðist Óskar Einarsson og
upptöku og hljóðblöndun Tóm-
as Tómasson.
Þessi útgáfa hefur að geyma
gömul gospel-lög og sálma, sem
hér eru færðir í nýjan búning,
auk nokkurra nýrri laga.
Þetta er frumraun Miriam á
plötu, en söngur hefur engu ab
síður verib hluti af starfi hennar
sem foringi í Hjálpræðishern-
um, þar af 8 ár í Panama.
Útgáfan er í tilefni af 100 ára
afmæli Hjálpræðishersins á ís-
landi á næsta ári og ber þess vott *
ab þrátt fyrir háan aldur ber
hreyfingin aldur sinn vel. Allur
ágóði rennur til hjálparstarfs
Hjálpræbishersins á íslandi. ■