Tíminn - 07.10.1995, Blaðsíða 9
Laugardagur 7. október 1995
9
Karpaö á Alþingi um frestun á gildistöku lyfjalaga. Forsœtisráöherra segir aö allir hafi vitaö
affrestuninni síöastliöiö vor. Tveir ungir lyfjafrceöingar sem treystu á lagabókstafinn:
Misstu vinnuna og
hafa lagt allt sitt undir
Róbert Melax, lyfjafrcebingur og stofnandi Lyfju oð Lágmúla 5 ásamt Inga Gubjónssyni: húsnœbib stendurautt
og ónotab, þar sem til stendur ab fresta gildistöku ársgamalla lyfjalaga. Tímamynd cs
Lög frá Alþingi frá í júní í
fyrra uröu til þess aö tveir
ungir lyfjafræöingar hófu
undirbúning aö stofnun Iyfja-
búöarinnar Lyfju. Þetta eru
þeir Róbert Melax og Ingi
Guöjónsson, sem störfuöu hjá
Pharmaco hf., stærsta lyfja-
heildsala landsins. Traust
þeirra á lagabókstafnum ætlar
aö reynast þeim dýrt. Þeir
hafa lagt allt undir til aö setja
á stofn Iyfjabúöina Lyfju aö
Lágmúla 5 í Reykjavík. Og
báöir hafa misst vinnuna.
Nú er hart deilt, meöal annars
á Alþingi, um þaö hvort laga-
bókstafurinn blífi, eöa hvort
hægt sé að fresta gildistöku laga
eins og Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigöisráöherra vill að gert
verði.
Ingibjörg lagöi fram frumvarp
á Alþingi um frestun á gildis-
töku lyfjalaga til 1. júlí 1996.
Samkomulag varð um aö fresta
afgreiðslu frumvarpsins til
haustþingsins, sem nú hefur
veriö gert.
Kratar gerbu hríb
ab Ingibjörgu
Össur Skarphéoinsson, for-
maður heilbrigöis- og trygg-
inganefndar Alþingis, talaöi sig
heitan um málið á Alþingi í
fyrradag og taldi aö ríkissjóður
væri hér að baka sér skaðabóta-
skyldu. Hann vitnaði í Sigurð
Líndal lagaprófessor, máli sínu
til stuðnings, en hann hefur
gagnrýnt að gildistöku laga frá
Alþingi sé frestað. Hann telur að
borgarar verði að geta treyst lög-
um. Tveir aðrir þingmenn krata
— fyrrum heilbrigðisráðherr-
arnir Sighvatur Björgvinsson,
höfundur frumvarpsins á sínum
tíma, og Guðmundur Árni Stef-
ánsson — geröu líka talsverða
hríð að Ingibjörgu í þingsölum.
Ingibjörg svaraöi fyrir sig og
útskýrði sín sjónarmið. Undir
þau tók Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra. Hann sagði að á síð-
asta vori hefði það legið fyrir á
Alþingi að þar var meirihluti
fyrir því að fresta gildistöku
lagaákvæðanna.
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra segir að hún
hafi engar grundvallarbreyting-
ar boðað á lyfjalögunum. Full
ástæða sé til að fara varlega. Búa
þurfi svo um hnútana að ekki
þurfi að breyta lögunum marg-
oft, en beðið er eftir hver áhrif
EES-samningsins á lyfsölumál
verða hér á landi.
Töldu frestun ekki
koma til greina
„Við fylgdumst með gangi
mála síðastliðið vor. Þar kom
fram frestunartillaga, sem ekki
náði fram að ganga á Alþingi.
Þegar sú var orðin niðurstaðan,
töldum við okkur geta hafið
starfsemi í góðri trú," sagði Ró-
bert Melax lyfjafræðingur í sam-
tali við Tímann. „Við töldum
fráleitt að þessu yrði frestað
nokkrum dögum fyrir gildis-
töku. Síöan kemur annað í ljós,
þegar við auglýsum," sagði Ró-
bert.
Róbert sagði aö orðrómur
væri á kreiki um að nota ætti
tímann, sem næst með frestun-
inni, til að breyta lögunum.
„Það er eins og að koma eigi í
veg fyrir að eðlilegt frelsi verði í
lyfsölu í landinu. Markmið lag-
anna er eðlilegt frelsi. En ef
svona verður að málum staðið,
þá opnum við aldrei Lyfju í Lág-
múlanum," sagði Róbert.
Mál sem hægt á ab
vera ab leysa
Róbert segir að þessi mál eigi
að vera hægt að leysa.
„Alþingi sker úr um þetta.
Helstu rök fyrir frestun eru þau
að skoða þurfi áhrif af EES-
samningnum. Það er rétt að
fresta verðkaflanum í lyfjalög-
unum og skoða þarmeð áhrif af
EES. En smásöludreifing og EES
eru tveir óskyldir hlutir. EES
fjallar um alla þætti lyfjamark-
aðarins nema smásöludreifing-
una. Það er því ákaflega einfalt
mál að fresta verðkaflanum en
ekki smásöludreifingarkaflan-
um," sagði Róbert.
Róbert Melax segir það mis-
skilning þegar ráðherra kvebst
óttast auglýsingaherferö apó-
teka vegna lausasölulyfja. Málið
Á morgun, sunnudaginn 8.
október, efna vísnasöngkonan
Anna Pálína Árnadóttir, pí-
anóleikarinn Gunnar Gunn-
arsson og kontrabassaleikar-
inn Jón Rafnsson til tónleika í
Kaffileikhúsinu í Hlabvarpan-
um undir yfirskriftinni Haust-
vísa í Hlaðvarpanum. Á efnis-
skránni verða frönsk, norræn
og íslensk ljóö og lög sem eiga
þab sameiginlegt ab fjalla um
ástina, haustib og lífib sjálft í
allri sinni dýrb.
Anna Pálína Árnadóttir hefur
á undanförnum árum getið sér
gott orð fyrir flutning á vísna-
tónlist bæði hérlendis og á
Norðurlöndum. Hún stundaöi
væri einfalt, lausasölulyf væru
alls ekki auglýst, enda þótt það
væri leyfilegt. Og hann sæi ekki
ab nein breyting yrði þar á.
Þriggja alda einok-
un apótekara
„Ég vona þab svo sannarlega
að alþingismenn skoði þetta í
víðara samhengi. Þetta snýst
um eitt atriði. Þab er hvort á að
veita apótekurum áframhald-
andi einokun eða ekki. Sú ein-
okun hefur nú staðið í 300 ár.
Ég hef ekki trú á því að þaö sé
það sem alþingismenn vilja,"
sagði Róbert. Hann sagði að
upplýsingastreymi til þing-
manna og almennings heföi til
þessa eingöngu verib frá apótek-
urum. Ástæðan væri sú að lyfja-
fræðingar væru yfirleitt undir-
menn apóteka eða viðskiptavin-
ir þeirra eins og í sínu tilfelli.
Þarafleiðandi hefðu lyfjafræð-
ingar í raun aldrei mátt hafa
skoðun á þessu máli. Komið
hefði fyrir að mönnum hefði
verið sagt upp vegna skoðana
sinna á lyfsölueinokuninni.
„Það, sem gerst hefur núna, er
söngnám í Tónlistarskóla FÍH
og hjá einkakennurum, m.a.
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Elsu
Waage. Fyrr á þessu ári hlaut
hún styrk, sem veittur er ungum
norrænum listamönnum, til að
stunda nám í söng og túlkun
hjá hinum þekkta sænska
söngvara og kennara Torsten
Föllinger.
Anna Pálína hefur sent frá sér
tvær geislaplötur: „Á einu máli"
ásamt Aðalsteini Ásberg Sigurbs-
syni og „Von og vísa" ásamt
Gunnari Gunnarssyni.
Gunnar Gunnarsson og Jón
Rafnsson hafa starfað saman
um árabil í djasstríóinu „Skipað
þeim" frá Akureyri, en báðir
að stéttarfélag lyfjafræðinga
hefur tekið afstöðu í málinu og
mótab sína stefnu. Hún er sú að
ríkja skuli algjört frelsi, þannig
að allir lyfjafræðingar, sem þess
óska, geti opnað apótek, upp-
fylli þeir vissar kröfur, og að það
verði engar takmarkanir á fjölda
lyfjabúða. Takmörkunin verður
þá atvinnumarkaður lyfjafræð-
inga og hversu margir treysta
sér til þess að vera í þessari sam-
keppni, sem auðvitað er eðlileg-
ur hlutur," sagði Róbert Melax.
Skoðaskababóta-
kröfu
Róbert segir að fleiri og fleiri
lögfræðingar segi þeim félögum
að það sé gefið mál að þarna
myndist skaðabótaskylda,
vegna þess ab þarna sé búið að
gera ráðstafanir á gildandi lög-
um.
,;Ef við stöndum uppi, félag-
arnir, í lok ársins, atvinnulausir
og búnir að gera fjárfestingar,
húsnæðislausir og allslausir, þá
skoðum við þab að sjálfsögðu/'
sagði Róbert Melax að lokum.
-JBP
hafa þeir leikið jöfnum höndum
djass og sígilda tónlist.
„Haustvísa í Hlabvarpan-
um" verður aðeins flutt í þetta
Gunnar
Rafn Jóns-
son sýnir í
Heklu-
salnum
Nýr og glæsilegur sýningarsalur
hefur verib tekinn í notkun á Ak-
ureyri. Nefnist salurinn Heklusal-
urinn og er rekinn af Gallerí Allra-
Handa. Nafn salarins er dregib af
fataverksmibj-
unni Heklu, en
hann er í þeim
húsaky nnum
sem verksmibj-
an starfabi í á
Gleráreyrum og
var á sinni tíb
notabur sem
mötuneyti
sta rfsmanna
Sambandsverk-
smibjanna. Á síbastlibnu vori var
efnt til nokkurra sýninga í saln-
um, þótt hann væri ekki ab fullu
frágenginn til sýningahalds, en ab
undanförnu hefur verib unnib ab
naubsynlegum endurbótum. Var
salurinn formlega tekinn í notk-
un síbastlibinn föstudag þegar
Gunnar Rafn Jónsson, yfirlæknir
á Húsavík og myndlistarmabur,
opnabi þar sýningu á 63 vatnslita-
myndum.
Gunnar Rafn, sem er sérfræbingur
í skurðlækningum, hefur stundab
myndlist jafnframt læknisstarfi um
alllangt skeið. Segja má ab honum
sé meðhöndlun pentskúfsins í blóð
borin, því hann er sonur Jóns Krist-
inssonar, bónda í Lambey í Fljóts-
hlíð, en hann er löngu kunnur fyrir
myndlist sína. Gunnar Rafn nam
myndlist hjá Einari Helgasyni á Ak-
ureyri og síðar Arthur Harrington í
Bandaríkjunum, en er að öbru leyti
sjálfmenntaður í því fagi. í mynd-
unum, sem hann sýnir í Heklusaln-
um, beitir hann pentskúfnum af
mikilli nákvæmni og natni og nær
víða að framkalla sterkar og tilfinn-
ingaríkar stemmningar. Ljósaskipt-
in eru einkennandi í mörgum
mynda hans og mætti kalla sýning-
una sem heild „Landslag í ljósa-
skiptum". Með nákvæmni í vaii og
meðferð lita tekst honum að spinna
andrúmsloft ljósaskiptanna fram í
landslagsmyndum sínum, hvort
sem hann velur þeim tímaskeið um
morgunstund, miðdegi eöa náttmál.
Ljós og skuggar skiptast hvarvetna á
og skapa þær andstæður í myndun-
um sem aðeins má finna í mun dags
og nætur. Gunnar Rafn glímir oftast
vib íslenskt landslag og í nokkrum
mynda hans bregður sænskri skóg-
arstemmingu fyrir, en hann starfar
að hluta sem læknir í Svíþjóð jafn-
framt starfi sínu á Húsavík. Hvort
sem hann yrkir meb litum um skóga
Svíþjóðar eöa fjöll og dali íslends
birtist sama viðmótib hvarvetna í
myndum hans. Vibmót andstæðn-
anna - hins bjarta og dimma, hins
ræba og óræba. ÞI
eina skipti. Tónleikarnir hefjast
kl. 21.00, en húsiö opnar kl.
20.00. Miðaverð er kr. 700.
■
Haustvísa í Hlabvarpanum
Þau koma fram íHlabvarpanum. F.v. jón Rafnsson, Anna Pálína Árna-
dóttir og Gunnar Gunnarsson.
Gunnar Rafn