Tíminn - 07.10.1995, Blaðsíða 18

Tíminn - 07.10.1995, Blaðsíða 18
18 ffifmiiin Laugardagur 7. október 1995 Jón Þórbarson bóndi í Árbœ í Reykhólahreppi Fæddur 2. júní 1911 Dáinn 24. september 1995 Það er kvöð ellinnar að hverfa af vettvangi athafna og bíða sinna ör- laga. Og það er einnig kvöð jafnaldr- anna að horfa á bak vina og félaga. Um lokin þarf enginn að velkjast í vafa; þó bregður okkur alltaf þegar einhver hverfur úr hópnum, sér- staklega ef sá hinn sami fer af skynd- ingu. Þá ryðjast minningarnar fram í hugann og æviferill hins horfna rifjast upp. Sú kynslóð, sem nú er sem óðast að kveðja, átti þá hugsjón að þoka málefnum og afkomu landsmanna til betri vegar og búa í haginn fyrir næstu kynslóð. Þessi kynslóð þekkti í reynd fátæktina, jafnvel skortinn á frumstæðustu þörfum, erfiði og frumstæð áhöld til allra hluta. Hún hefur lifað meiri breytingar á hálfri öld en gengnar kynslóðir frá upp- hafi byggöar í landinu. Mörgum hefur tekist að hagnýta þær sér til gæfu og farsældar, en jafnframt að varðveita kjarnann úr þjóöararfin- um. Úr hópi þeirra var Jón Þórðarson. Hann ólst upp við þröngan kost í stórum systkinahópi. Á þeim tíma var það lífsnauðsyn að elstu systkin- in færu að heiman strax og þau höfðu krafta til að vinna fyrir sér, og þegar sá tími kom að þau fengju ein- hverja greiöslu gekk hún til heimil- isins, oft í matföngum eða öðrum nauðþurftum. Þannig hófst ferill Jóns til átaka við iífsbaráttuna. Vegna fjölhæfni sinnar og atorku varð hann einkar eftirsóttur til starfa. Með sparsemi tókst honum fljótlega að afla sér smávegis efnahagslegrar kjölfestu. Jón fæddist á Hjöllum í Þorska- firði 2. júní 1911. Hann fluttist með foreldrum sínum að Hallsteinsnesi þegar hann var tveggja ára og ólst þar upp. Um tíu ára aldur fór hann til dval- t MINNING ar í Hvallátur a.m.k. á veturna, en mun hafa dvalið heima eitthvað á sumrin fyrst í stað. í Hvallátrum bjuggu Ólína Jónsdóttir og Ólafur Bergsveinsson og þeirra börn. Það heimili var rómað fyrir rausn og myndarskap. Athafnalíf var þar mjög fjölbreytt: skipasmíðar, land- búnaður, umhirða hlunninda og að sjálfsögöu öll meðferð og stjórnun opinna báta. Þetta margþætta starfs- svið varð jafn fjölhæfum manni og Jóni ómetanlegur skóli og þjálfun til undirbúnings ævistarfinu. Jón var viðloðandi Hvallátur fram um tví- tugsaldur. Þá fór að losna um hann. Hann réri þónokkrar vetrarvertíðir, að mig minnir í Grindavík. 1935 gerðist hann vinnumaður hjá prestshjónunum á Stað á Reykja- nesi, þeim Ólínu Snæbjörnsdóttur og séra Jóni Þorvaldssyni, og síðar hjá Snæbirni syni þeirra og Unni Guömundsdóttur konu hans eða samtals níu ár. Jón kvæntist 1944 eftirlifandi konu sinni, Elísabetu Ingibjörgu Guðmundsdóttur frá Kinnarstöð- um. Þá höfðu mál skipast á þann veg að prestssetriö á Stað var lagt niður og flutt að Reykhólum. Var þá hjáleigan Brandsstaðir sameinuð Stað og eigninni síðan skipt að jöfnu í tvö ábýli, Stað og Árbæ. Ár- bæ fylgdu engin hús og afar lítið tún. Jón hófst nú handa og byggði lítinn timburskúr við íbúðarhúsið á Stað, en hafði auk þess umráð yfir einu herbergi í Staðarhúsinu. Árið 1949 byrjaði hann ab byggja íbúðar- hús í Arbæ og flutti í það árið eftir. Síðan komu peningshúsin og rækt- unin. Eftir að Þórður sonur hans giftist og stofnaði heimili var búinu breytt í félagsbú og er Guðlaug dótt- ir Jóns einnig abili að félagsbúinu, en hún hefur ávallt átt þar heima og sinnt búinu með ekki síðri atorku og umhyggju en þeir feðgar. Nú er Ár- bær með allra best uppbyggðu og umgengnu býlum hreppsins og þó víðar væri leitað. Og enn er byggt og endurbætt á þeim stað. Vonandi á það slys ekki eftir að henda íslensk- an landbúnað, aö mörg býli á borð við Árbæ hljóti þau örlög ab fara í auðn vegna ímyndunar um stundar- hagnað og sókn eftir hismi. Auk áðurnefndra bama þeirra El- ísabetar og Jóns er Valdemar. Hann býr á Reykhólum ásamt fjölskyldu sinni og hefur lengst af verið starfs- maður í Þörungaverksmiöjunni. Fyrir allnokkrum árum dró Jón sig með öllu út úr rekstri búsins, enda þótt hann héldi áfram að taka til hendi eftir getu og þörfum. Nú var hann ekki eins bundinn og áöur og átti því auðveldara með ab snúa sér að öðrum hugðarefnum. Hann kom sér upp smíðaaðstöðu og fór að smíba ýmsa smámuni. Eftirlíkingar hans af gömlum húsmunum hafa vakið athygli og farið víða. Líka fékkst hann við dúnhreinsun. Nú gafst honum tími til að veita sér þann munað, sem hann mun lengi hafa þráð, en það var að ferðast og kynnast fólki og umhverfi. Jón var að eðlisfari mjög félagslyndur og átti auðvelt með að kynnast fólki. Jafn- vel á mesta annatíma hans í lífsbar- áttunni tók hann virkan þátt í fé- lagslífi sveitarinnar. Hann fylgdist vel með landsmálum. Var virkur stuðningsmaður Framsóknarflokks- ins. Kirkjurækinn og áhugasamur um málefni kirkjunnar. Var meðal annars lengi í sóknarnefnd. Jón var mjög áhugasamur um stofnun dval- arheimilis aldraðra á Reykhólum, tók virkan þátt í skógrækt og fleira mætti til nefna. Jón var gæfunnar maður. Hann sigraðist á erfiðleikum æskuáranna og striti frumbyggjans. Átti trausta og umhyggjusama konu. Börn þeirra hafa hlotið seigluna og verk- hyggnina í arf og uppeldið mótað tryggð þeirra við sveitina og rækt við fornar dyggðir. Jón minn, miklu dagsverki er lok- ið. Árbær er þess fagurt minnis- merki. Saga þín er saga þeirra manna sem gjarnan hafa verið kenndir vib aldamótin. Mennina sem trúbu á framtíð lands og þjóðar, gerðu miklar kröfur til sín og von- uðu að ókomnar kynslóðir nytu verka þeirra. Þér leiö ekki vel ef þú skuldaðir. Þitt stef var að standa við allar skuldbindingar. Þab tókst þér meb ágætum. Þú hefur kvatt með sviplegum hætti. Örlagadísirnar voru þér á margan hátt hliðhollar. Sú spurning leitar því á hugann hvort svo hafi ekki enn verið. Allra ósk hefði verið sú að þú mættir njóta ævikvöldsins enn um skeiö í sama mæli og und- anfarin ár. En hefðu það orðið örlög þín að lifa ósjálfbjarga og vansæll um lengri tíma, er niðurstaðan þá ekki sú að þetta sé betri kostur? Ég vil ljúka þessum fánýtu orðum mínum meb þakklæti til þín fyrir samfylgdina. Fjölskyldan hér á Hell- isbraut 20 vottar konu þinni, börn- um og öörum ættingjum og vinum innilega samúð sína. jens Guömundsson, Reykhólum Horfinn er úr hópnum mikill heið- ursmaður, þar sem Jón bóndi Þórð- arson í Árbæ er ekki lengur á meðal okkar. Mér er söknuður og eftirsjá að honum og minnist hans með mikilli virbingu og þakklæti fyrir samleið- arsporin, sem við áttum. Ætíð var Jón glaöur og fagnandi þegar hann hitti fólk og hafði áhuga fyrir því að vita eitthvað um samferðamenn sína. Fólkið í sveitinni átti hug hans og hjarta og hann gerði sér far um að kynnast því og sýna því vináttu sína og gestrisni. Þegar ég kom til prests- starfa að Reykhólum vorið 1986, þá kynntist ég fljótt heimilisfólkinu í Árbæ og lagði þangað gjarnan leið mína. Hvenær sem komið var þangab, voru móttökurnar ætíð þær sömu, gott viðmót heimilismanna og gest- DAGBOK ið er á skrifstofu félagsins, s. 5528812, til 10. október. IVAAAJUVAJtA/UVJUUI Lauqardaqur 7 október 280. dagur ársins - 85 dagar eftir. 4 0.vlka Sólris kl. 07.52 sólarlag kl. 18.38 Dagurinn styttist um 6 mínutur Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Sunnudagur: Brids, tví- menningur, kl. 13 og félags- vist kl. 14 í Risinu. Dansað í Goðheimum kl. 20. Skrásetning í söngnámskeið- Gjábakki, Fannborg 8 Mánudaginn 9. október er námskeið í keramik kl. 09.30. Byrjað verður að spila lomber kl. 13. Námskeið í ensku fyrir byrjendur kl. 13.30 og nám- skeið í tréskurði kl. 15.15. Hvað gerðist á kvennaráðstefnunni í Kína? Þær, sem sjálfar sáu og heyrðu, koma á fund í Korn- hlöðunni og skýra frá reynslu sinni í dag kl. 14.00. Allir velkomnir. Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna. Opið hús hjá MG- félaginu MG-félag íslands hefur opið Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug vib analát oq útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdafobur og afa séra Jóns Einarssonar prófasts, Saurbæ á Hvalfjarbarströnd Guð blessi ykkur öll. Hugrún Cubjónsdóttir Sigríbur Munda Jónsdóttir Cubjón Ólafur jónsson Kristín Huld Haraldsdóttir jóney jónsdóttir Cunnlaugur Abalbjarnarson Einar Kristján jónsson Dagný jónsdóttir Hrafnkell Oddi Cubjónsson Erla Gunnlaugsdóttir hús í dag, laugardag, í kaffi- húsinu Súfistanum, Strand- götu 9, Hafnarfirði, kl. • 14. MG-félag íslands er félag fólks með Myasthenia gravis (vöbv- aslensfár) sjúkdóminn. Háskólafyrirlestur Dr. Wilhelm Friese prófessor flytur opinberan fyrirlestur í boði heimspekideildar Há- skóla íslands mánudaginn 9. okt. kl. 17.15 í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn nefnist: „The Essence of Halldór Laxness' Novels" og verður fluttur á ensku. Wilhelm Friese var prófessor í norrænum fræðum við há- skólann í Túbingen 1973-89. Hann hefur samið yfirlitsrit um norrænar bókmenntir tuttugustu aldar, sem kom út 1971, og ritað fjölda greina um sautjándu aldar bók- menntir á Norðurlöndum, svo og um skáldverk Halldórs Lax- ness. Fyrirlesturinn er öllum op- inn. Félag um 18. aldar fræði efnir til málþings undir yfir- skriftinni „Ættfræði og rann- sóknir". Málþingið verður haldið í stofu 101 í Odda kl. 13 í dag. Listaklúbbur Leikhúskjallar- ans: Djass í íslenskum bókmenntum Mánudaginn 9. október verður dagskrá í Listaklúbbi Leikhúskjallarans sem ber yfir- skriftina „Djass í íslenskum bókmenntum". Vernharður Linnet mun lesa kafla úr íslenskum bókmennt- um þar sem djassinn kemur beint við sögu og síöan munu Tómas R. Einarsson á bassa, Þórir Baldursson á píanó og Guðmundur R. Einarsson á trommur og básúnu leika þann djass sem um er rætt. Það er Vernharður sem hefur umsjón með dagskránni, sem hefst kl. 21. Húsib er opnað kl. 20.15. Akureyrsk uppskera í Hafnarfirði: Sex við Hamarinn í dag, laugardag, opnar í sýningarsalnum Við Hamar- inn í Hafnarfirði samsýning sex myndlistarmanna. Þau eru Aöalheiður S. Eysteinsdóttir, Dagný Sif Einarsdóttir, Jón Laxdal, Laufey M. Pálsdóttir, Ólöf Sigurðardóttir og Sigurdís Arnardóttir. Aðalheiður, Dagný og Sigur- dís stundubu myndlistarnám við Myndlistarskólann á Akur- eyri og útskrifuðust þaðan vor- in 1993 og '94. Laufey stund- abi einnig nám við Myndlist- arskólann á Akureyri, en út- skrifabist ásamt Ólöfu frá Myndlistar- og handíöaskóla íslands vorið 1989. Jón Laxdal hefur gefið út ljóðabækur og kennt listasögu vib Myndlist- arskólann á Akureyri. Þau hafa öll tekið þátt í myndlistarlíf- inu á Akureyri á undanförnum árum og haldið sýningar bæði þar og annars staðar. Sýningin verður opnuð við Hamarinn í dag kl. 16 og er opin alla daga nema mánu- daga frá kl. 14 til 18. risni með afbrigðum. Jón hafði ekki einasta áhuga fyrir samferðamönnum sínum, heldur einnig landinu sínu og lífi sveit- anna. í bók Jóns Kr. Guðmundssonar, bónda og fræðimanns á Skáldsstöð- um í Reykhólahreppi, sem ber heit- ið: „Skyggir skuld fyrir sjón" og er sagnabrot og ábúendatal úr Geiradal og Reykhólasveit í Austur- Barða- strandarsýslu, segir frá því, að árið 1949 hafi Jón Þórðarson frá Hlíð reist nýbýlið Árbæ. Það stendur í gamla Staðartúninu skammt fyrir vestan Staðará. Fylgir býlinu hálfur staöurinn með erfðafestuábúð. Hlunnindum skipta ábúendur jafnt á milli sín, svo sem dún og öðru eyjagagni, sel og hrognkelsum. Á þessari lýsingu má best sjá, hver breyting hefur orðið á nytjum manna á verðmætum hafs og lands, því að þær nytjar, sem að framan eru taldar, héldu í rauninni lífinu í fólkinu á fyrri tímum. Þórður, sonur Jóns, og Ása Björg Stefánsdóttir, kona hans, hafa búið í Árbæ í sambýli frá árinu 1973. Þannig er Árbær orðinn veglegur staöur, sem sér fyrir afkomu tveggja fjölskyldna, þrátt fyrir sífelldan sam- drátt í landbúnaði, sem virðist stefna í það að leggja landið að mestu leyti í eyði. Vonandi verður svo þó ekki, því að mér býður í grun, að mörgum mundi finnast ísland snauðara með hrörlegum kotum, þar sem fólkið væri á förum. Jón í Árbæ hefur alla tíð verið mikill eljumaður. Hann var léttur á sér og skjótur til verka. Enda sýnir það best heimilið hans og býlið, að þar hefur ekki verið slegið slöku við. Viðhald allt á gripahúsum og íbúðarhúsi er svo sem best verður á kosið og sannkallað augnayndi að líta heim að Árbæ og Stað, svo staö- arlegt sem þar er. Auk þess að vera myndarlegur bóndi, þá var Jón einstaklega hagur á tré. Hann fékkst ávallt mikið við smíðar og renndi fallega gripi, sem hann gaf vinum og vandamönnum. Kirkjumaður var Jón góður og gleði var af því aö sjá hann og konu hans, Elísabetu Ingibjörgu Guð- mundsdóttur, prýöa kirkjubekkina í Reykhólakirkju. Einn er sá gripur, sem Jón smíðaöi og minnir ávallt á hann í Reykhóla- kirkju, en það er ræðupúlt haglega gert, sem hann smíðaði og gaf kirkj- unni. j lítillæti sínu vildi Jón aö ég gæti þess lítt, að hann hefði gefið kirkjunni þennan haglega smíðis- gúp. Einnig smíðaði hann samkvæmt minni beiðni annað ræðupúlt, sem hann gaf til Barmahlíbar, sem er dvalarheimili aldraðra á Reykhól- um. Þessa minnist ég við fráfall Jóns, því að það sýnir svo vel hug hans til kirkjunnar og rausnarskap hans í hvívetna. Samræður okkar Jóns í sundlaug- inni á Reykhólum eru mér minnis- stæðar. Hann lagði oft leið sína þangaö og var þá ætíð hrókur alls fagnaðar og manna ræðnastur, hvort sem um var aö ræða heima- menn eða gestkomandi. Jón hafði yndi af ferðalögum og fór gjarnan meö vinum sínum í ferð- ir um landið. Hann naut íslenskrar náttúru og elskaöi landið sitt. Meb Jóni, vini mínum, er svo sannarlega genginn góður drengur í þess orðs fyllstu merkingu. Ég mun ávallt minnast hans sem eins af mínum bestu kunningjum og sóknarbörnum, að öllum öðrum ólöstuðum. En dagurinn er á enda, ekki verð- ur því haggaö. Það var mikil glebi í svip Jóns, þegar hann sagði mér frá því, að hann væri með ágæta sjón, eftir ab augnlæknir hafði fjarlægt augastein- ana úr honum og þannig bætt hon- um sjón, sem var orðin léleg. Hann gat eftir það ekib bíl og farið allra sinna ferða. Ég kveð hann meö söknuði og virðingu og mun ávallt minnast hans sem hins besta í hópi vina minna. Hann gekk götuna svo sannarlega með mikilli prýði og mættu aörir taka líf hans sér til fyrirmyndar. Guð blessi minningu hans og gefi kon- unni hans og börnum styrk og bless- un í sárum harmi. Bragi Benediktsson, Reykhólum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.