Tíminn - 07.10.1995, Page 18
18
ffifmiiin
Laugardagur 7. október 1995
Jón Þórbarson
bóndi í Árbœ í Reykhólahreppi
Fæddur 2. júní 1911
Dáinn 24. september 1995
Það er kvöð ellinnar að hverfa af
vettvangi athafna og bíða sinna ör-
laga. Og það er einnig kvöð jafnaldr-
anna að horfa á bak vina og félaga.
Um lokin þarf enginn að velkjast í
vafa; þó bregður okkur alltaf þegar
einhver hverfur úr hópnum, sér-
staklega ef sá hinn sami fer af skynd-
ingu. Þá ryðjast minningarnar fram
í hugann og æviferill hins horfna
rifjast upp.
Sú kynslóð, sem nú er sem óðast
að kveðja, átti þá hugsjón að þoka
málefnum og afkomu landsmanna
til betri vegar og búa í haginn fyrir
næstu kynslóð. Þessi kynslóð þekkti
í reynd fátæktina, jafnvel skortinn á
frumstæðustu þörfum, erfiði og
frumstæð áhöld til allra hluta. Hún
hefur lifað meiri breytingar á hálfri
öld en gengnar kynslóðir frá upp-
hafi byggöar í landinu. Mörgum
hefur tekist að hagnýta þær sér til
gæfu og farsældar, en jafnframt að
varðveita kjarnann úr þjóöararfin-
um.
Úr hópi þeirra var Jón Þórðarson.
Hann ólst upp við þröngan kost í
stórum systkinahópi. Á þeim tíma
var það lífsnauðsyn að elstu systkin-
in færu að heiman strax og þau
höfðu krafta til að vinna fyrir sér, og
þegar sá tími kom að þau fengju ein-
hverja greiöslu gekk hún til heimil-
isins, oft í matföngum eða öðrum
nauðþurftum.
Þannig hófst ferill Jóns til átaka
við iífsbaráttuna. Vegna fjölhæfni
sinnar og atorku varð hann einkar
eftirsóttur til starfa. Með sparsemi
tókst honum fljótlega að afla sér
smávegis efnahagslegrar kjölfestu.
Jón fæddist á Hjöllum í Þorska-
firði 2. júní 1911. Hann fluttist með
foreldrum sínum að Hallsteinsnesi
þegar hann var tveggja ára og ólst
þar upp.
Um tíu ára aldur fór hann til dval-
t MINNING
ar í Hvallátur a.m.k. á veturna, en
mun hafa dvalið heima eitthvað á
sumrin fyrst í stað. í Hvallátrum
bjuggu Ólína Jónsdóttir og Ólafur
Bergsveinsson og þeirra börn. Það
heimili var rómað fyrir rausn og
myndarskap. Athafnalíf var þar
mjög fjölbreytt: skipasmíðar, land-
búnaður, umhirða hlunninda og að
sjálfsögöu öll meðferð og stjórnun
opinna báta. Þetta margþætta starfs-
svið varð jafn fjölhæfum manni og
Jóni ómetanlegur skóli og þjálfun til
undirbúnings ævistarfinu. Jón var
viðloðandi Hvallátur fram um tví-
tugsaldur. Þá fór að losna um hann.
Hann réri þónokkrar vetrarvertíðir,
að mig minnir í Grindavík. 1935
gerðist hann vinnumaður hjá
prestshjónunum á Stað á Reykja-
nesi, þeim Ólínu Snæbjörnsdóttur
og séra Jóni Þorvaldssyni, og síðar
hjá Snæbirni syni þeirra og Unni
Guömundsdóttur konu hans eða
samtals níu ár.
Jón kvæntist 1944 eftirlifandi
konu sinni, Elísabetu Ingibjörgu
Guðmundsdóttur frá Kinnarstöð-
um. Þá höfðu mál skipast á þann
veg að prestssetriö á Stað var lagt
niður og flutt að Reykhólum. Var þá
hjáleigan Brandsstaðir sameinuð
Stað og eigninni síðan skipt að
jöfnu í tvö ábýli, Stað og Árbæ. Ár-
bæ fylgdu engin hús og afar lítið
tún. Jón hófst nú handa og byggði
lítinn timburskúr við íbúðarhúsið á
Stað, en hafði auk þess umráð yfir
einu herbergi í Staðarhúsinu. Árið
1949 byrjaði hann ab byggja íbúðar-
hús í Arbæ og flutti í það árið eftir.
Síðan komu peningshúsin og rækt-
unin. Eftir að Þórður sonur hans
giftist og stofnaði heimili var búinu
breytt í félagsbú og er Guðlaug dótt-
ir Jóns einnig abili að félagsbúinu,
en hún hefur ávallt átt þar heima og
sinnt búinu með ekki síðri atorku og
umhyggju en þeir feðgar. Nú er Ár-
bær með allra best uppbyggðu og
umgengnu býlum hreppsins og þó
víðar væri leitað. Og enn er byggt og
endurbætt á þeim stað. Vonandi á
það slys ekki eftir að henda íslensk-
an landbúnað, aö mörg býli á borð
við Árbæ hljóti þau örlög ab fara í
auðn vegna ímyndunar um stundar-
hagnað og sókn eftir hismi.
Auk áðurnefndra bama þeirra El-
ísabetar og Jóns er Valdemar. Hann
býr á Reykhólum ásamt fjölskyldu
sinni og hefur lengst af verið starfs-
maður í Þörungaverksmiöjunni.
Fyrir allnokkrum árum dró Jón sig
með öllu út úr rekstri búsins, enda
þótt hann héldi áfram að taka til
hendi eftir getu og þörfum. Nú var
hann ekki eins bundinn og áöur og
átti því auðveldara með ab snúa sér
að öðrum hugðarefnum. Hann kom
sér upp smíðaaðstöðu og fór að
smíba ýmsa smámuni. Eftirlíkingar
hans af gömlum húsmunum hafa
vakið athygli og farið víða. Líka
fékkst hann við dúnhreinsun. Nú
gafst honum tími til að veita sér
þann munað, sem hann mun lengi
hafa þráð, en það var að ferðast og
kynnast fólki og umhverfi. Jón var
að eðlisfari mjög félagslyndur og átti
auðvelt með að kynnast fólki. Jafn-
vel á mesta annatíma hans í lífsbar-
áttunni tók hann virkan þátt í fé-
lagslífi sveitarinnar. Hann fylgdist
vel með landsmálum. Var virkur
stuðningsmaður Framsóknarflokks-
ins. Kirkjurækinn og áhugasamur
um málefni kirkjunnar. Var meðal
annars lengi í sóknarnefnd. Jón var
mjög áhugasamur um stofnun dval-
arheimilis aldraðra á Reykhólum,
tók virkan þátt í skógrækt og fleira
mætti til nefna.
Jón var gæfunnar maður. Hann
sigraðist á erfiðleikum æskuáranna
og striti frumbyggjans. Átti trausta
og umhyggjusama konu. Börn
þeirra hafa hlotið seigluna og verk-
hyggnina í arf og uppeldið mótað
tryggð þeirra við sveitina og rækt
við fornar dyggðir.
Jón minn, miklu dagsverki er lok-
ið. Árbær er þess fagurt minnis-
merki. Saga þín er saga þeirra
manna sem gjarnan hafa verið
kenndir vib aldamótin. Mennina
sem trúbu á framtíð lands og þjóðar,
gerðu miklar kröfur til sín og von-
uðu að ókomnar kynslóðir nytu
verka þeirra. Þér leiö ekki vel ef þú
skuldaðir. Þitt stef var að standa við
allar skuldbindingar. Þab tókst þér
meb ágætum.
Þú hefur kvatt með sviplegum
hætti. Örlagadísirnar voru þér á
margan hátt hliðhollar. Sú spurning
leitar því á hugann hvort svo hafi
ekki enn verið. Allra ósk hefði verið
sú að þú mættir njóta ævikvöldsins
enn um skeiö í sama mæli og und-
anfarin ár. En hefðu það orðið örlög
þín að lifa ósjálfbjarga og vansæll
um lengri tíma, er niðurstaðan þá
ekki sú að þetta sé betri kostur?
Ég vil ljúka þessum fánýtu orðum
mínum meb þakklæti til þín fyrir
samfylgdina. Fjölskyldan hér á Hell-
isbraut 20 vottar konu þinni, börn-
um og öörum ættingjum og vinum
innilega samúð sína.
jens Guömundsson,
Reykhólum
Horfinn er úr hópnum mikill heið-
ursmaður, þar sem Jón bóndi Þórð-
arson í Árbæ er ekki lengur á meðal
okkar.
Mér er söknuður og eftirsjá að
honum og minnist hans með mikilli
virbingu og þakklæti fyrir samleið-
arsporin, sem við áttum. Ætíð var
Jón glaöur og fagnandi þegar hann
hitti fólk og hafði áhuga fyrir því að
vita eitthvað um samferðamenn
sína.
Fólkið í sveitinni átti hug hans og
hjarta og hann gerði sér far um að
kynnast því og sýna því vináttu sína
og gestrisni. Þegar ég kom til prests-
starfa að Reykhólum vorið 1986, þá
kynntist ég fljótt heimilisfólkinu í
Árbæ og lagði þangað gjarnan leið
mína.
Hvenær sem komið var þangab,
voru móttökurnar ætíð þær sömu,
gott viðmót heimilismanna og gest-
DAGBOK
ið er á skrifstofu félagsins, s.
5528812, til 10. október.
IVAAAJUVAJtA/UVJUUI
Lauqardaqur
7
október
280. dagur ársins - 85 dagar eftir.
4 0.vlka
Sólris kl. 07.52
sólarlag kl. 18.38
Dagurinn styttist um
6 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Sunnudagur: Brids, tví-
menningur, kl. 13 og félags-
vist kl. 14 í Risinu.
Dansað í Goðheimum kl.
20.
Skrásetning í söngnámskeið-
Gjábakki, Fannborg 8
Mánudaginn 9. október er
námskeið í keramik kl. 09.30.
Byrjað verður að spila lomber
kl. 13. Námskeið í ensku fyrir
byrjendur kl. 13.30 og nám-
skeið í tréskurði kl. 15.15.
Hvað gerðist á
kvennaráðstefnunni í
Kína?
Þær, sem sjálfar sáu og
heyrðu, koma á fund í Korn-
hlöðunni og skýra frá reynslu
sinni í dag kl. 14.00.
Allir velkomnir. Menningar-
og friðarsamtök íslenskra
kvenna.
Opið hús hjá MG-
félaginu
MG-félag íslands hefur opið
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og vinarhug vib analát oq útför
eiginmanns mins, föður okkar, tengdafobur og
afa
séra Jóns Einarssonar
prófasts, Saurbæ
á Hvalfjarbarströnd
Guð blessi ykkur öll.
Hugrún Cubjónsdóttir
Sigríbur Munda Jónsdóttir
Cubjón Ólafur jónsson Kristín Huld Haraldsdóttir
jóney jónsdóttir Cunnlaugur Abalbjarnarson
Einar Kristján jónsson Dagný jónsdóttir
Hrafnkell Oddi Cubjónsson
Erla Gunnlaugsdóttir
hús í dag, laugardag, í kaffi-
húsinu Súfistanum, Strand-
götu 9, Hafnarfirði, kl. • 14.
MG-félag íslands er félag fólks
með Myasthenia gravis (vöbv-
aslensfár) sjúkdóminn.
Háskólafyrirlestur
Dr. Wilhelm Friese prófessor
flytur opinberan fyrirlestur í
boði heimspekideildar Há-
skóla íslands mánudaginn 9.
okt. kl. 17.15 í stofu 101 í
Odda.
Fyrirlesturinn nefnist: „The
Essence of Halldór Laxness'
Novels" og verður fluttur á
ensku.
Wilhelm Friese var prófessor
í norrænum fræðum við há-
skólann í Túbingen 1973-89.
Hann hefur samið yfirlitsrit
um norrænar bókmenntir
tuttugustu aldar, sem kom út
1971, og ritað fjölda greina
um sautjándu aldar bók-
menntir á Norðurlöndum, svo
og um skáldverk Halldórs Lax-
ness.
Fyrirlesturinn er öllum op-
inn.
Félag um 18. aldar
fræði
efnir til málþings undir yfir-
skriftinni „Ættfræði og rann-
sóknir". Málþingið verður
haldið í stofu 101 í Odda kl. 13
í dag.
Listaklúbbur Leikhúskjallar-
ans:
Djass í íslenskum
bókmenntum
Mánudaginn 9. október
verður dagskrá í Listaklúbbi
Leikhúskjallarans sem ber yfir-
skriftina „Djass í íslenskum
bókmenntum".
Vernharður Linnet mun lesa
kafla úr íslenskum bókmennt-
um þar sem djassinn kemur
beint við sögu og síöan munu
Tómas R. Einarsson á bassa,
Þórir Baldursson á píanó og
Guðmundur R. Einarsson á
trommur og básúnu leika
þann djass sem um er rætt.
Það er Vernharður sem hefur
umsjón með dagskránni, sem
hefst kl. 21. Húsib er opnað kl.
20.15.
Akureyrsk uppskera í
Hafnarfirði:
Sex við Hamarinn
í dag, laugardag, opnar í
sýningarsalnum Við Hamar-
inn í Hafnarfirði samsýning
sex myndlistarmanna. Þau eru
Aöalheiður S. Eysteinsdóttir,
Dagný Sif Einarsdóttir, Jón
Laxdal, Laufey M. Pálsdóttir,
Ólöf Sigurðardóttir og Sigurdís
Arnardóttir.
Aðalheiður, Dagný og Sigur-
dís stundubu myndlistarnám
við Myndlistarskólann á Akur-
eyri og útskrifuðust þaðan vor-
in 1993 og '94. Laufey stund-
abi einnig nám við Myndlist-
arskólann á Akureyri, en út-
skrifabist ásamt Ólöfu frá
Myndlistar- og handíöaskóla
íslands vorið 1989. Jón Laxdal
hefur gefið út ljóðabækur og
kennt listasögu vib Myndlist-
arskólann á Akureyri. Þau hafa
öll tekið þátt í myndlistarlíf-
inu á Akureyri á undanförnum
árum og haldið sýningar bæði
þar og annars staðar.
Sýningin verður opnuð við
Hamarinn í dag kl. 16 og er
opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 14 til 18.
risni með afbrigðum.
Jón hafði ekki einasta áhuga fyrir
samferðamönnum sínum, heldur
einnig landinu sínu og lífi sveit-
anna.
í bók Jóns Kr. Guðmundssonar,
bónda og fræðimanns á Skáldsstöð-
um í Reykhólahreppi, sem ber heit-
ið: „Skyggir skuld fyrir sjón" og er
sagnabrot og ábúendatal úr Geiradal
og Reykhólasveit í Austur- Barða-
strandarsýslu, segir frá því, að árið
1949 hafi Jón Þórðarson frá Hlíð
reist nýbýlið Árbæ. Það stendur í
gamla Staðartúninu skammt fyrir
vestan Staðará. Fylgir býlinu hálfur
staöurinn með erfðafestuábúð.
Hlunnindum skipta ábúendur jafnt
á milli sín, svo sem dún og öðru
eyjagagni, sel og hrognkelsum.
Á þessari lýsingu má best sjá, hver
breyting hefur orðið á nytjum
manna á verðmætum hafs og lands,
því að þær nytjar, sem að framan
eru taldar, héldu í rauninni lífinu í
fólkinu á fyrri tímum.
Þórður, sonur Jóns, og Ása Björg
Stefánsdóttir, kona hans, hafa búið í
Árbæ í sambýli frá árinu 1973.
Þannig er Árbær orðinn veglegur
staöur, sem sér fyrir afkomu tveggja
fjölskyldna, þrátt fyrir sífelldan sam-
drátt í landbúnaði, sem virðist
stefna í það að leggja landið að
mestu leyti í eyði. Vonandi verður
svo þó ekki, því að mér býður í grun,
að mörgum mundi finnast ísland
snauðara með hrörlegum kotum,
þar sem fólkið væri á förum.
Jón í Árbæ hefur alla tíð verið
mikill eljumaður. Hann var léttur á
sér og skjótur til verka. Enda sýnir
það best heimilið hans og býlið, að
þar hefur ekki verið slegið slöku við.
Viðhald allt á gripahúsum og
íbúðarhúsi er svo sem best verður á
kosið og sannkallað augnayndi að
líta heim að Árbæ og Stað, svo staö-
arlegt sem þar er.
Auk þess að vera myndarlegur
bóndi, þá var Jón einstaklega hagur
á tré. Hann fékkst ávallt mikið við
smíðar og renndi fallega gripi, sem
hann gaf vinum og vandamönnum.
Kirkjumaður var Jón góður og
gleði var af því aö sjá hann og konu
hans, Elísabetu Ingibjörgu Guð-
mundsdóttur, prýöa kirkjubekkina í
Reykhólakirkju.
Einn er sá gripur, sem Jón smíðaöi
og minnir ávallt á hann í Reykhóla-
kirkju, en það er ræðupúlt haglega
gert, sem hann smíðaði og gaf kirkj-
unni. j lítillæti sínu vildi Jón aö ég
gæti þess lítt, að hann hefði gefið
kirkjunni þennan haglega smíðis-
gúp.
Einnig smíðaði hann samkvæmt
minni beiðni annað ræðupúlt, sem
hann gaf til Barmahlíbar, sem er
dvalarheimili aldraðra á Reykhól-
um.
Þessa minnist ég við fráfall Jóns,
því að það sýnir svo vel hug hans til
kirkjunnar og rausnarskap hans í
hvívetna.
Samræður okkar Jóns í sundlaug-
inni á Reykhólum eru mér minnis-
stæðar. Hann lagði oft leið sína
þangaö og var þá ætíð hrókur alls
fagnaðar og manna ræðnastur,
hvort sem um var aö ræða heima-
menn eða gestkomandi.
Jón hafði yndi af ferðalögum og
fór gjarnan meö vinum sínum í ferð-
ir um landið. Hann naut íslenskrar
náttúru og elskaöi landið sitt.
Meb Jóni, vini mínum, er svo
sannarlega genginn góður drengur í
þess orðs fyllstu merkingu.
Ég mun ávallt minnast hans sem
eins af mínum bestu kunningjum og
sóknarbörnum, að öllum öðrum
ólöstuðum.
En dagurinn er á enda, ekki verð-
ur því haggaö.
Það var mikil glebi í svip Jóns,
þegar hann sagði mér frá því, að
hann væri með ágæta sjón, eftir ab
augnlæknir hafði fjarlægt augastein-
ana úr honum og þannig bætt hon-
um sjón, sem var orðin léleg. Hann
gat eftir það ekib bíl og farið allra
sinna ferða.
Ég kveð hann meö söknuði og
virðingu og mun ávallt minnast
hans sem hins besta í hópi vina
minna.
Hann gekk götuna svo sannarlega
með mikilli prýði og mættu aörir
taka líf hans sér til fyrirmyndar. Guð
blessi minningu hans og gefi kon-
unni hans og börnum styrk og bless-
un í sárum harmi.
Bragi Benediktsson,
Reykhólum