Tíminn - 11.11.1995, Page 6
6
Laugardagur 11. nóvember 1995
María Guömundsdóttir; Ijósmyndafyrirsœta
og tískuljósmyndari, segir í viötali viö Tímann
aö nú sé hún eins og fuglinn frjáls eftir aö hafa
rifjaö upp œvi sína í bókarsmíöi meö Ingólfi
Margeirssyni
María Guðmundsdóttir, andlitið sem prýddi tískutímarit vestan hafs og austan á annan ára-
tug. Hér eru þau María og Ingólfur Margeirsson, sem skráði sögu Maríu. Tímamynd cs
Úr síldarævin-
týri á Ströndum
íheimalþjóð-
legra glaumgosa
„Ég held ab uppruni minn hafi
hjálpab mér til ab lifa í útlandinu.
Þab hefur aldrei verib mér til tra-
fala ab koma frá Djúpuvík á
Ströndum, þab er öbru nœr,"
sagbi María Gubmundsdóttir í
samtali vib Tímann núna í vik-
unni. Þab fer vart á milli mála ab
María upplifbi œskuna á Strönd-
um afar sterkt og þangab segir
hún ab hugur sinn leiti oft. Síbur
til Reykjavíkur. „Reykjavík er
öbruvísi en Djúpavík. Ég leita ekki
beint til Reykjavíkur í huganum,
frekar til œttingja og vina sem
þar búa, en mest hugsa ég norbur
til Djúpuvíkur," sagbi María í
stuttu spjalli vib Tímann.
María er 53 ára gömul í dag. Hún ber
þann aldur vel, eins og vænta má. Hún
mætir blaðamanni og ljósmyndara með
brosi á vör, tildurslaus og án allrar til-
gerðar. Hún segir að bókin hennar og
Ingólfs hafi unnist vel og gefið henni
kærkomið tilefni til að líta yfir farinn
veg og gera upp við fortíðina.
Frá draugabæ til Parísar
með viðkomu í Reykjavík
María Guðmundsdóttir kom til
Reykjavíkur sem unglingur, .þegar
Djúpavík var nánast orðin að draugabæ
— síldin var horfin og mikið mannlíf
með. María virðist samkvæmt bók
hennar ekki hafa unað sér nema í með-
allagi í borginni, þrátt fyrir góða vini og
kunningja sem hún eignaðist brátt.
María varð kunn fyrir íþróttamennsku,
handbolta og spjótkast, dálítið stráksleg
í töktum, en vinsæl og skemmtileg. Og
svo einn daginn árið 1961 gerðist það
aö henni var boðið að vera með í Feg-
urðarsamkeppni íslands. Þar sigraði
hún, aðeins 19 ára aö aldri. Það var þó
ekki beinlínis upphafið að ferli hennar
sem ljósmyndafyrirsætu. Það gerðist fyr-
ir tilviljun — eða voru það örlögin? — á
hárgreiðslustofu í París 1962.
Frægb, frami og
hamingja
Fyrr í vikunni tyllti heimskonan Mar-
ía sér niður á skerið okkar í einn dag, áð-
ur en hún hélt áfram för sinni frá París
til Bandaríkjanna. Strandastúlkan María
Guðmundsdóttir, sem hafði upplifað
ótrúlegt síldarævintýri og óvenjulegt
mannlíf í Djúpuvík sem barn og ung-
lingur, gerðist eftirsótt fyrirsæta og
heimskona í París og New York um ára-
bil. í erli þess starfs og í hinum lokaða
heimi þar sem heimstískan er sköpuð
lifði hún og hrærðist sem þátttakandi
og gerir raunar enn. Því starfi hlaut að
ljúka og þá tók annað við. María og Ing-
ólfur Margeirsson sátu við í allt sumar
hér heima og ytra og rifjuðu upp.
Avöxtur þess samstarfs er myndarleg
bók, sem komin er á markaöinn, María
— konan bak við goðsögnina.
í þeirri bók má lesa að frægö og frami
þýðir ekki endilega mikil hamingja. í
bókinni má lesa um hrottafengna árás í
New York, það er rætt um tómleikann,
kvíðann, skyndiástirnar, áfengi og fíkni-
efni, sjálfsmorðstilraun, einsemd og
óöryggi. Frægð og frami kosta sitt.
Ríka og fræga fólkiö —
fólk eins og ég og þú
— / bókinni þinni má lesa að þú hefur
verið samvistum við ýmsa þekktustu
glaumgosa sjöunda áratugarins, þotuliðið
svonefhda. Er lífið íþeim hópum ekki frem-
ur innantómt líf?
„Þetta er frekar svona eins og ég hafi-
fengið að kíkja inn í ýmsa heima, feng-
iö að taka þátt í ýmsum hlutum mis-
munandi þjóðfélagshópa. En þarna fest-
ist ég aldrei. Þaö er oft talað um að ríkt
fólk, fólk með alls konar titla, sé öðru-
vxsi fólk. Auðvitaö er þetta bara fólk eins
og ég og þú, meö sínar sorgir og sína
gleði og sína baráttu. Sá ríki þarf að berj-
ast fyrir annaö en sá fátæki. í þessum
ríka heimi eru margs konar manngeröir.
Ég segi ekki að ég hafi viljað dvelja lengi
í þessum hópi. En ég get ekki tekið und-
ir að þessi heimur sé innantómur með
öllu. Ég var tvítug, þegar ég kynntist
þessu fólki og lífi þess. Auðvitað var
þetta framandi fyrir mér, en ég var svo
ung og var fljót að aölaga mig nýjum
hlutum," segir María.
í bókinni um Maríu er greint frá ýms-
um náungum úr iðjuleysisliði Parísar,
sem María kynntist þegar hún gat sinnt
hinu ljúfa lífi stórborgarinnar. Þar eru
nöfn eins og Rubirosa, Gunther Sachs,
Edward Kennedy og fleiri og fleiri ríkir
og dáðir einstaklingar, sem hafa fyllt
kjaftadálka dagblaðanna.
„Það var í rauninni óraunveruleg til-
finning að bíða eftir að sjá fyrstu for-
síðumyndina af sér í Jardin du Monde,"
segir María. Hún segir frá því skemmti-
lega í bókinni hvernig bún beið eftir að
blaðasalinn í götunni opnaði morgun
einn. „Þessi sérstaka berskjaldaða og
sakleysislega tilfinning hvarf síöan með
tímanum, þetta er vinna eins og margt
annað og nýnæmið hvarf," segir María.
Þrítug fyrirsæta er orðin gömul. María
starfaði óvenju lengi eða í 14 ár. María
segir að ýmislegt komi til að fyrirsætur
„lifa" stutt, meðal annars nýjar og sí-
breytilegar kröfur markaöarins og eins
vegna þess að auglýsendum og öðrum
finnst fyrirsætan hreinlega orðin ofnot-
uð.
„Ég var ekki bitur þegar ég varð að
hætta aö sitja fyrir. En auðvitað vaknaði
þá sú óþægilega spurning hvað ég ætti
að taka mér fyrir hendur. í rauninni var
ég búin að fá leið á starfinu, ég var búin
að vera lengur í þessu en ég hafði áhuga
á," segir María.
Það sem við tók, var ljósmyndun.
María skipti um hlutverk og tók við
starfi sem hún hafði kynnst vel í gegn-
um árin. María segist yfirleitt ekki vera
sama hörkutólið sem ljósmyndari og
sumir þeirra ljósmyndara sem hún vann
með á ferli sínum. En hún geri vissar
kröfur til fyrirsætna sem hún myndar.
Þekkt andlit án nafna
„Það ganga ýmsar sögur um það að ég
sé alveg fjallrík, en ég gef ekkert út á
það," segir María og hlær þegar spurt er
um tekjuhliðar fyrirsætustarfsins. Hún
segist ekki fylgjast með alls konar sögu-
sögnum sem um sig hafi gengið. Það er
þó alveg ljóst að María var geysivinsæl
sem ljósmyndafyrirsæta, allt frá fyrstu
stundu, og þær eru mun betur launaðar
en sýningarstúlkurnar, eða voru það á
þessum árum.
Tískublöð, sem birtu myndir af Maríu,
birtu ekki nöfn módela, en það eru þau
farin að gera í dag. María hlaut því ekki
nafnfrægð eins og fólk í hennar fagi ger-
ir í dag.
„Við vorum þekkt andlit án nafna.
Núna í dag er þessu öðruvísi farið,"
sagði María.
Gifting og börn voru ekki
á dagskrá
— Manni dettur í hug hvort þú hafir
hugleitt hvemig lífþitt hefði orðið sem hús-
móðir með karl og marga krakka?
„Gifting var einhvern veginn ekki
áhugamál mitt, svo einkennilegt sem
það má nú vera, og þarafleiðandi ekki
börn. Það má vera að þetta komi til út af
minni frumbernsku, ættleiðingu sem
orkaöi mjög sterkt á mig. Maður getur
ímyndað sér eitt og annað, en veit auð-
vitað ekki hvernig slíkt líf hefði orðið.
Örugglega hefði það orðið allt öðruvísi,
kannski ekki svona viðburðaríkt, maður
veit það þó ekki fyrir víst. Sem betur fer,
segi ég nú," sagði María.
Kjörbarn — þungbær
vitneskja
María var kjörbarn foreldra sinna,
Guömundar Guðjónssonar, verksmiðju-
stjóra í Djúpuvík, og konu hans, Ragn-
heiðar Hansen. Hún var orðin stálpuð,
þegar hún fékk að vita óvænt frá utan-
aðkomandi að hún væri kjörbarn. Þessi
vitneskja varð Maríu þungbær um lang-
an tíma.
„Það vöknuðu margar spurningar í
huga mér, til dæmis um það hvers
vegna móðir mín hefði yfirgefiö mig,
hvers vegna hún hefði ekki viljað eiga
mig. Hún átti mig með breskum manni,
sem fór úr landi áður en ég fæddist. Ég
veit nafnið hans, það frétti ég bara ný-
lega. Það skeði svo mikið á þessu ári sem
við Ingólfur unnum að bókinni, ég
komst aö endapunkti í mörgum málum
og það var til góðs fyrir mig. Faðir minn
er sagður hafa Iátist í stríðinu, hann var
skotinn niður í orrustuflugvél yfir Norð-
ur-Afríku. Annars er það svo skrítið að
þetta allt skipti mig ekki miklu máli. Ég
hef þessa vitneskju frá móður minni og
eins eftirlifandi eiginmanni konunnar
sem ól mig, Laufeyjar, sem giftist til Am-
eríku," segir María.
Líflb hefur leikið
mig vel
„Þessi bókarsmíð með Ingólfi hefur
gert mér mikið gagn. Nú líður mér eins
og fuglinn frjáls og ekkert er eftir annað
en góöar minningar, ég hef hreinsað til
í ýmsum skúmaskotum hugans. Mér
finnst lífið hafa leikið mig vel. Margt
hefði ég ekki viljaö upplifa, en úr því
maður þarf að upplifa ýmsa óþægilega
reynslu, þá er það skrítið að finna
hversu miklu sterkari maður kemur út
úr uppbyggingunni, ef maður er svo
lánsamur að maður nær að vinna úr
vandanum," sagði María Guðmunds-
dóttir að lokum. ■