Tíminn - 11.11.1995, Page 13
Laugardagur 11. nóvember 1995
mmmm
13
+
Neöri hluta núverandi tjaldsvœöis á Akureyri veröur lokaö í sumar vegna fyrirhugaöra framkvœmda á sundlaugarsvœöinu:
Hluti t j aldsvæðis á Akur-
ey ri undir fj ölskyldugarb
Eftir næsta sumar verbur nebri
hluta núverandi tjaldsvæbis á
Akureyri lokað, þ.e.a.s. þess
hluta sem er neöan Þórunnar-
strætis, um er ab ræba elsta
hluta tjaldsvæðisins. Þetta er
gert vegna fyrirhugabra fram-
kvæmda við Sundlaug Akur-
eyrar, en þá er gert ráð fyrir ab
annar áfangi vib breytingar á
sundlaugaraðstöðu og fjöl-
skyldugarðinum hefjist. Þar er
um að ræða byggingu nýrrar
25 metra iaugar, auk búnings-
aðstöðu sem verbur samtengd
núverandi aðstöðu. Þetta er
hluti af viðamikilli áætlun, en
framkvæmdahrabi fer þó eftir
því sem fjárhagur bæjarsjóðs
leyfir, en á næstu árum er gert
ráð fyrir aö á bilinu 150-180
milljónum verbi varib til þess-
ara framkvæmda.
Gísli Bragi Hjartarson, bæjar-
fulltrúi og formaöur fram-
kvæmdanefndar, segir að gerð
hafi verið áætlun um uppbygg-
ingu sundlaugaraðstööu og fjöl-
skyldugarðs og hljóðar hún upp
á 350-360 milljónir króna. Hann
segir það ljóst að bærinn geti
ekki sett slíkar fjárhæðir í þessar
framkvæmdir og því hafi verib
farið út í aö athuga á hvaba
tímapunkti hægt væri aö staldra
við og meta stöðuna að nýju og í
Ijós hafi komið að með því að
setja í þetta verkefni á bilinu 50-
60 milljónir á ári næstu þrjú ár,
væri aðstaðan með þeim hætti
að hægt væri að gera það.
Á þessum þremur árum er gert
ráð fyrir að reisa nýbyggingu
sem hýsa á búningsaðstöðu fyrir
konur, ný laug verði byggð og að
búningsklefarnir verði sam-
tengdir gamla íþróttahúsinu, en
það er gert til að auka nýtingu
þeirra búningsklefa sem þar eru
fyrir hendi. Búningskleíar fyrir
karla verða í gömlu bygging-
unni. Þá er gert ráö fyrir að gert
verði andyri á nýjum staö og að
inngangur verði í framtíðinni að
sunnan, frá íþróttahöllinni. Þá
verður fjölskyldugarðurinn
stækkaöur og verður þar sem
tjaldsvæðið austan Þórunnar-
strætis er nú og mun hann ná að
íþróttahöllinni.
Þegar þessu er lokið verður
staldrað við og aðrar fram-
kvæmdir látnar bíöa betri tíma.
Hins vegar samkvæmt framtíðar-
áætlunum verður gamla laugin
gerð upp, henni verður skipt í
barnalaug og 25 metra laug,
heitir pottar verða gerðir og
byggingin þar sem búningsklef-
arnir eru nú veröur öll gerð upp.
Þrátt fyrir að neðri hluta nú-
verandi tjaldsvæðis verði lokað
verður framtíðartjaldsvæöi áfram
ofan Þórunnarstrætis. Byggt
verður hús fyrir tjaldverði,
þvotta- og sturtuaðstöðu, en nú
eru þar fyrir tvö salernishús, eitt
fyrir hvort kyn. Þá eru fyrirhug-
aöar lagfæringar á svæðinu sjálfu
og að yfirborðið verði lagað, en
það rúmar á bilinu 400-500
manns. Það er samkvæmt heim-
ildum Tímans engan veginn nóg
og er þörfin fyrir um 700-1000
gesti og því er engan veginn
nægilegt rými á tjaldsvæbinu vib
Þórunnarstræti, eftir ab búið ab
er ab loka neðra svæðinu.
Því fyrirhugað ab gera tjald-
svæbi inn vib Kjarnaskóg, í sam-
vinnu við skátafélögin og tengja
það útivistarmiðstöð sem félögin
hyggjast reisa vib Hamra, en
þetta er talsvert utan göngufæris
frá mibbæ Akureyrar. Þetta er
þegar á teikniborðinu, en það
eru ekki allir á eitt sáttir um þess-
ar hugmyndir og telja viðkom-
andi að slíkt svæði verbi ekki ab-
gengilegt fyrir þá sem vilja heim-
sækja Akureyri og gista í tjaldi.
Gísli Bragi segir það rétt ab
uppi séu gagnrýnisraddir vegna
þessa. „Þetta er fyrst og fremst
fyrir þá sem eru á bílum og vilja
gjarnan vera í friði fyrir skarkala
bæjarins. Fólk er að sækja ýmis-
legt. Sumir vilja vera í tengslum
vib bæjarlífiö og aðrir vilja vera
dálítið út úr, því það hefur oft
fylgt gömlu tjaldsvæðunum dá-
lítiö ónæði, sem hefur jú gefið
þeim dálítinn sjarma, en fjöl-
skyldufólk sem vill gjarnan vera
í ró og næði hefur ekki fengið
það á svæðinu inn í bænum."
-PS
sb®-'' ■ m ■■■
■
hcimn? noi ég skrapp i smú göngutúr
S§--"-S*s-.
Maxon 450 I -Léttur og nettur hvar sem er
Lítill farsími fyrir NMT farsimakerfið • Vegur aðeins 375g með stærri rafhlöðunni
62 skammvalsminni fyrir númer og nöfn • Endurval • Tímamæling
59.850 kr. stgr.
hvenær? svona um kvöldm?.tarleytiö
Benefon Delta -Langdrægur og traustur
Léttur og meðfærilegur NMT handfarslmi, vegur aðeins 350 gr • Einfaldur í notkun • Ýmiss
aukabúnaður fáanlegur • Skammvalsminni fyrir 99 númer og nöfn • Innbyggt boðtæki
99.980 kr. stgr.
1
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeild Ármúla 27, sími 550 6680 /-Söludeild Kringlunni, sími 550 6690 / Þjónustumiðstöð í Kirkjustræti, sími 550 6670 / póst- og símstöðvum um land allt.