Tíminn - 11.11.1995, Side 19
Laugardagur 11. nóvember 1995
Wímimi
19
DACBÓK
lUUWUUWVJVAJVAJUUI
Lauqardaqur
nóvember
X
315. dagur ársins - 50 dagar eftir.
45. vlka
Sólris kl. 09.41
sólarlag kl. 16.41
Dagurinn styttist um
6 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrennl
Brids, jólamótið, hefst kl. 13
sunnudag. Spilað veröur 5
sunnudaga í Risinu. 12 verð-
laun verða veitt 17. des.
Félagsvist kl. 14 sunnudag í
Risinu og dansað í Goðheimum
kl. 20.
Söngvaka í Risinu mánudag
13. nóv. kl. 20.30. Stjórnandi
Kristín Tómasdóttir og undir-
leik annast Sigurbjörg Hólm-
grímsdóttir.
Fjölskylduhelgi í
Gjábakka
Um þessa helgi verður „fjöl-
skylduhelgi" í Gjábakka, en
Gjábakki er eins og flestir vita
félags- og tómstundamiðstöð
eldri borgara í Kópavogi.
í dag, laugardag, byrjar dag-
skráin kl. 14. Meðal efnis á dag-
skránni má nefna að Kristinn
Hallsson syngur einsöng viö
undirleik Jónasar Ingimundar-
sonar, Nafnlausi leikhópurinn
fer með gamanmál, ungir nem-
endur í Tónlistarskóla Kópavogs
skemmta með ljúfum tónum
o.fl.
Aðgangseyrir er enginn og all-
ir hjartanlega velkomnir meðan
húsrúm leyfir, en kaffi og kökur
veröa seldar.
Á morgun, sunnudag, verður
lagt af stað frá Gjábakka kl.
10.45 í „fjölskyldugöngu" eldri
borgara. Gengið veröur í ná-
grenni Sunnuhlíðar þar sem
„verðmæti" hafa verið falin. „Sá
á fund sem fyrstur finnur".
Umsjón með göngunni hefur
Margrét Bjarnadóttir.
Eldri borgarar eru hvattir til
að fjölmenna og bjóða fjöl-
skyldum sínum þátttöku í þess-
um „heilsubótarleik".
Safnaöarfélag Áskirkju
Félagsfundur verður í Safnað-
arfélagi Áskirkju þriðjudaginn
14. nóvember kl. 20.30. Spiluð
verður félagsvist.
Villingaholtskirkja í
Flóa
Messa á morgun, sunnudag,
kl. 13.30. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og aðstandenda
þeirra. Barnaguðsþjónusta eftir
messu og síöan fundur með
fermingarbörnum og aðstand-
endum. Munið að messur í Vill-
ingaholtskirkju verða hér eftir
að jafnaði 2. sunnudag hvers
mánaðar. Kristinn Ágúst Frið-
finnsson.
Tvö útiiistaverk sett
upp í Reykjavík
Nýlega kom Garðyrkjudeild
Reykjavíkur fyrir tveimur úti-
listaverkum í Reykjavík. Annars
vegar Konu og bami eftir Tove
Olafsson, sem komið var fyrir
við Fæðingarheimili Reykjavík-
ur, og hinsvegar verkinu Barn
og fiskur eftir Ásmund Sveins-
son, sem sett var upp við Laug-
arnesskólann í Reykjavík. Verk-
in höföu áður verið steypt í
steypu og voru orðin illa farin af
völdum veðmnar. Til að ráða
bót á því var afráðið að steypa
verkin í brons til að gera þau
varanlegri og þeim komið fyrir á
sínum uppmnalegu stöðum.
Dagskrá á Kjarvalsstöðum:
í minningu Einars
Sveinssonar
Mánudagskvöldið 13. nóvem-
ber kl. 20 verður dagskrá á Kjar-
valsstöðum í tengslum við yfir-
litssýningu á verkum Einars
Sveinssonar, arkitekts og húsa-
meistara Reykjavíkur (1906-
1973). Flutt verða fjögur stutt
erindi um starf og listsköpun
Einars. Erindin flytja: Aðal-
steinn Richter arkitekt, Einar B.
Pálsson prófessor, Pétur H. Ár-
mannsson arkitekt og Þorgeir
Ólafsson listfræðingur.
Dagskráin er hluti af sameig-
inlegri fyrirlestraröð vetrarins
um byggingarlist og hönnun,
sem Arkitektafélag íslands,
Byggingarlistardeild Listasafns
Reykjavíkur og Norræna húsið
standa að í sameiningu. Að-
gangur er ókeypis og öllum
heimill.
Tökum lagiö meb Kór
Langholtskirkju
í vikunni mun Kór Langholts-
kirkju halda óvenjulega tón-
ieika í Langholtskirkju, Loga-
landi og Aratungu. Fyrstu tón-
leikarnir verða á miðvikudags-
kvöldið 15. nóvember kl. 20.30
í Langholtskirkju í Reykjavík.
Laugardaginn 18. nóv. að Loga-
landi í Borgarfirði kl. 15 og í
Aratungu í Biskupstungum á
sunnudag kl. 21.
Á efnisskránni verða ættjarð-
arlög, sígild kórverk, negrasálm-
ar og syrpa af lögum eftir Sigfús
Halldórsson. Nokkrir einsöngv-
arar úr hópi kórfélaga munu
einnig koma fram. Síðast, en
ekki síst, verður fjöldasöngur
þar sem sungin verða lög úr „ís-
lenskum ættjaröarlögum" (1. og
2. hefti). Þeir, sem eiga heftin,
ættu því að taka þau með.
Aðgangseyrir er 1200 kr. fyrir
fullorðna og hálfvirði fyrir börn
og ellilífeyrisþega.
Þjóbleikhúsib:
Nýjasta leikrit Arthurs
Miller frumsýnt
Bandaríska leikskáldið Arthur
Miller varð áttræður þann 17.
október, en ekki verður ráöið að
sköpunarkraftur hans hafi farið
dvinandi með aldrinum. Þvert á
móti, því nýjasta leikrit hans,
Glerbrot, er þaö sjöunda sem
hann sendir frá sér á síðustu tíu
árum.
Þjóðleikhúsið hefur nú frum-
sýnt Glerbrot, í þýöingu Birgis
Sigurðssonar og leikstjórn Þór-
hildar Þorleifsdóttur. Höfundur
leikmyndar og búninga er Sigur-
jón Jóhannsson. Leikendur eru
Guðrún S. Gísladóttir, Sigurður
Sigurjónsson, Arnar Jónsson,
Ragnheiður Steindórsdóttir,
Lilja Gubrún Þorvaldsdóttir og
Helgi Skúlason.
Glerbrot gerist í Brooklyn 1938
hjá bandarískum hjónum af
gyðingaættum. Eiginmaðurinn
leitar til læknis vegna þess að
eiginkonan hefur af óþekktum
orsökum misst allan þrótt í fót-
unum. Læknirinn kemst að því
að konan er mjög örvæntingar-
full vegna frétta um ómannúð-
lega meðferb á gybingum í
Þýskalandi. Þar með er þó ekki
öll sagan sögð, orsaka lömunar-
innar gæti verið ab leita í henn-
ar eigin lífi. Eins og Miller er
einkar lagið, tengjast hér átök í
einkalífi vib átök í samfélaginu
og persónulegt siðferði tengist
við almennt siðferði.
í Listaklúbbi Leikhúskjallar-
ans verbur dagskrá helguð Art-
hur Miller á mánudagskvöldið
kl. 21. Hávar Sigurjónsson, leik-
listarráðunautur Þjóðleikhúss-
ins, mun fjalla um Miller og
verk hans, leikararnir Jón Sigur-
björnsson og Þóra Friðriksdóttir
leiklesa leikritið „Ég man ekki
neitt" í þýbingu Árna Ibsen og
leikstjórn Péturs Einarssonar.
Einnig mun Þórhildur Þorleifs-
dóttir leikstjóri fjalla um sýn-
ingu Þjóðleikhússins á Glerbrot-
um og tveir leikarar úr sýning-
unni, þau Arnar Jónsson og
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
leika atribi úr henni.
ARNAÐ HEILLA
50 ára afmæli
Jón Sœmundur Kristinssön frá
Brautarhóli, Biskupstungum,
Árvegi 8, Selfossi, verbur fimm-
tugur 13. nóvember n.k. Hann
tekur á móti gestum í félags-
heimilinu Aratungu, Biskups-
tungum, sunnudaginn 12. nóv.
frá kl. 16.
Sigurbur Sigurjónsson í hlutverki sínu í Glerbrotum.
Fréttir í vikulok
Ódýrara bensín á markabinn
Orkan hf. hóf um síðustu helgi bensínsölu á þremur útsölu-
stöðum, á Seltjarnarnesi, í Kópavogi og á Akureyri. Miklar bið-
raðir mynduðust við nýju bensínstöðvarnar, enda var bensín-
lítrinn þar seldur á tæplega 4 krónum lægra verði en hin olíu-
félögin bjóða upp á.
Frá fréttamannafundi þar sem stœkkun álversins var tilkynnt.
Álverib í Straumsvík stækkab
Iðnaðarráðherra og svissneska álfyrirtækið Alusuisse-Lonza
tilkynntu á mánudaginn að framkvæmdir við nýjan kerskála
ísal hf. í Straumsvík muni hefjast brátt, og muni þær kosta 14
milljarða króna. Finnur Ingólfsson iðnaðarráöherra sagði
stækkun álversins verða vítamínsprautu fyrir efnahagslífið í
landinu. „Þetta er langstærsta fjárfesting hér á landi frá því ál-
vérið var byggt árið 1966," sagbi Finnur.
Aukin einkaneysla abalskýring auk-
ins hagvaxtar
Seðlabankinn spáir því að landsframleiðsla aukist um 3,2% á
þessu ári. Meginaflið á bak við þennan hagvöxt segir Seðla-
bankinn vera vöxt einkaneyslu, sem er um 4,5% á þessu ári. Og
þar sem aukning einkaneyslunnar skýrist að meginhluta af
auknum innflutningi, séu innlend eftirspurnaráhrif takmörk-
uð og þar með innlend atvinnusköpunaráhrif einnig.
Seblabankastjórarnir Birgir ísleifur Gunnarsson og Steingrímur Her-
mannsson kynna nýju myntina og nýja sebilinn.
Ný mynt og nýir seblar
Á miðvikudag kom í umferð ný 100 króna mynd og nýr
2000 króna seðill. Andlitsmynd af Jóhannesi S. Kjarval er fram-
an á seðlinum og einnig eru á honum myndir sem tengjast
verkum hans. Með þessari útgáfu er stefnt aö aukinni hag-
kvæmni auk lipurra greiðslukerfis.
Raforkuvinnsla á Nesjavöllum undir-
búin
Undirbúningur að hugsanlegri raforkuvinnslu á Nesjavöll-
um er langt kominn. Stefnt er að því að ljúka öllum undirbún-
ingi þannig að unnt verði ab hefja vinnslu með skömmum fyr-
irvara, komi frekari stóriðja til hér á landi. Talið er að hægt sé
að virkja tvisvar sinnum 30 megavött á Nesjavöllum. Slík virkj-
un yrði fjárfesting upp á 3,5 milljarða.
Gerir heyrnarlausum kleift ab nota
síma
Félagsmálaráðherra veitti á miðvikudag Viggó Benediktssyni
uppfinningamanni 500.000 kr. viðurkenningu til að þróa enn-
frekar Tjárita, tæki sem m.a. mun gera heyrnarlausum kleift ab
tala í síma. Tjáritinn hefur verið í þróun í tvö ár og er létt rit-
tölva sem hægt er að tengja margvíslegum aukabúnaði, s.s.
tölvum og síma. Hann er léttur og meðfærilegur og auðvelt að
hafa hann meðferðis milli heimilis og skóla og á ferðalögum.