Tíminn - 16.12.1995, Qupperneq 1
Verií tímanlega
meí jólapóstinn
79. árgangur
Megas um nýjan þjóösöng:
„Sá gamli ókei"
„Þjóðskáldinu" Megasi finnst lítil
ástæða til breytinga á íslenska
þjóbsöngnum nema byltingin
verbi ab veruleika.
-Nú stendur til aö flytja frumvarp
á Alþingi um breytingar á þjóö-
söngnum. Hvernig líst þér á þaö?
Allt sem gerist á Alþingi er út úr
kú. Þetta er bara tóm della.
-Viltu hafa gamla þjóösönginn
áfram.
Nei það er ekki það. Það er bara
um leið og einhver kemur með
frumvarp á Alþingi um einhvern
hlut þá er þab orbið einhvers konar
skrípó. Skilurðu?
-Nei ekki alveg, vildirðu frekar
bera svona hugmynd undir þjóðar-
atkvæði?
Nei alls ekki. Ég vil bara algjört
kaos. Ráðamenn landsins eru það
alömurlegasta sem þrífst á þessu
landi í dag.
-Finnst þér núverandi þjóðsöng-
ur ekkert tyrfinn?
Mér finnst hann alveg ókei. Ég
ber virðingu fyrir honum.
-Hvað með stemmningu á lands-
leikjum. Ferðu sjálfur á landsleiki?
Nei.
-En finnst þér ástæða til að koma
af stað umræðu um nýjan þjóð-
söng?
Ja, þegar byltingin verður er
kannski kominn tími til að gera
eitthvað í þessum málum. -BÞ
Hér féll maöurinn niöur af þaki List-
hússins. Tímamynd: S
Lögreglan í Reykjavík:
Maður féll
afhúsþaki
Maður slasaðist á höföi og fæti
þegar hann féll af þaki tveggja
hæða Listhússins í Laugardal rétt
fyrir klukkan ellefu í gærmorgun.
Maðurinn var að setja upp ör-
bylgjuloftnet á þaki hússins, þeg-
ar honum skrikaði fótur og féll á
hliðarhýsi nokkuð og þaöan nið-
ur á gangstétt. Maðurinn slasaðist
ekki alvarlega og slapp í raun bet-
ur en á horfðist. Hann var fluttur
á slysadeild Borgarspítalans. -PS
Laugardagur 16. desember 1995 238. tölublað 1995
//
Normansþinur sem ekki hrynur":
Sala á jólatrjám er nú hafin á flestum stööum og segir
Kristinn Einarsson, sölustjóri hjá Blómaval í Reykjavík, aö segja mœtti aö hún hafi fariö á fullt á fimmtudag. Hann segir landsmenn nú kaupa jólatrén
seinna en áöurog láti kaupmenn íraun geyma þau fyrirsig. Þaö er Normansþinur„sem ekki hrynur", sem er vinsœlastur. Kristinn segir veröbreytingu
litla á jólatrjám frá því ífyrra, en þá litlu hœkkun sem oröiö hafi megi rekja til veröbreytinga erlendis frá. TímamyndBG
Hugmyndir um aö fœkka um allt oð 80 manns á ríkisspítulum í sparnaöarskyni. Sjúkraliöar:
Gíslataka um jólatímann
Kristín Á. Gu&mundsdóttir
formaður Sjúkaliðafélags ís-
lands segir að framkomnar
hugmyndir um nauðsyn
þess að fækka um allt að 80
manns á ríkisspítulunum í
sparnaðarskyni, séu afar
ósmekklegar þótt þær
hljómi kunnuglega frá sama
fíma í fyrra. Hún telur að
með þessu sé forusta ríkis-
spítala að hóta fjárveitingar-
valdinu með því að nota
starfsfólkið sem gísla í tafli
um peninga og völd um jóla-
tímann.
Hún vekur einnig athygli á
því að það enn sé ekki vitað
hvort þarna sé um að ræða
fækkun á 80 sóknarstarfsmönn-
um eða læknum, því þar sé tölu-
verður munur á í rekstarkostn-
aði með tilliti til launa. Hún
segir að framkomnar hótanir
skapi mikla óvissu meðal starfs-
fólks til viðbótar við það mikla
álag sem er á starfsfólkinu.
Asta Möller formaður Hjúkr-
unarfélags íslands segir að félag-
ið muni leita eftir upplýsingum
um það hvort framkomnar hug-
myndir um fækkun starfsfólks á
ríldsspítulunum eigi við hjúkr-
unarfræðinga. Félagið hefur
hinsvegar lagt á það þunga
áherslu að ef hjúkrunarfræðing-
um sé sagt upp eða aðrar breyt-
ingar verði á þeirra ráðningar-
samningum, þá sé það gert með
lögbundnum fyrirvara. Auk þess
eiga hjúkrunarfræðingar rétt á
biðlaunum í ákveðinn tíma séu
stöður þeirra lagðar niður.
Formaður Hjúkrunarfélagsins
bendir ennfremur á að víða sé
enn skortur á hjúkrunarfræð-
ingum, auk þess sem stéttin sé
fremur ung og því mikið um
barnsburðarleyfi. Þegar deildum
hefur verið lokað, þá hefur
hjúkrunarfræðingum einatt
verið boðið störf á öðrum.
-grh
Samtök fiskvinnslustööva telja aö hráefnisverö botnfiskvinnslu sé orö-
iö ofhátt og veröi því aö lœkka. Stefnir í 8,5% halla:
Hráefnisverð getur leitt
til átaka hér og þar
Arnar Sigurmundsson for-
maður Samtaka fiskvinnslu-
stöðva telur einsýnt að það
verði að nást fram einhver
lækkun á hráefnisveröi hefð-
bundinnar botnfiskvinnslu
á næsta ári, ef ekki á illa að
fara fyrir rekstrinum. Hann
segir þessa nauðsyn mis-
munandi mikla eftir fyrir-
tækjum og því gæti það
hugsanlega haft í för með sér
einhver staðbundin átök. En
hráefnisverð hefðbundinnar
vinnslu er komið uppí 64%
og í saltfiski allt uppí 70%.
Spáö er allt að 8,5% halla á
hefðbundinni vinnslu í árs-
lok.
Formaður Samtaka fisk-
vinnslustöðva segist því hafa
miklu meiri áhyggjur af afkomu
greinarinnar en hugsanlegum
átökum á vinnumarkaði þrátt
fyrir afstöðu fimm stærstu
verkalýðsfélaga innan Verka-
mannasambandsins sem hafa
sagt upp sínum kjarasamning-
um og hótaö aðgerðum. Hann
telur einsýnt að það verði erfitt
fyrir félögin að sannfæra sitt
fólk um að fara í eitthvert
„stríð" á nokkrum stöðum á
landinu vegna samstöðuleysis
innan VMSI og hvað þá ef litið
er til annarra sérsambanda inn-
an ASÍ í því sambandi.
Þótt afkoman í fiskvinnslu sé
afar misjöfn eftir greinum er
viðbúið að mörg hefðbundin
frystihús muni eiga í einhverj-
um erfiðleikum með að hefja
starfsemi á ný eftir heföbundið
stopp í ársbyrjun. Ef að líkum
lætur þá munu einhverjir eiga
erfitt um vik vib að sannfæra
viðskiptabanka sína um ágæti
áframhaldandi reksturs. Þá bæt-
ir það ekki úr skák að hækkun
tryggingagjalds hefur í för með
sér allt að 50 milljón króna
kostnabarauka fyrir vinnsluna
til viðbótar þeim ríflega 70
milljónum sem atvinnugrein-
inni er gert að greiða í þróunar-
sjóbsgjald.
-grh