Tíminn - 16.12.1995, Page 3

Tíminn - 16.12.1995, Page 3
Laugardagur 16. desember 1995 tmnz.—^avf.ftr 3 Rjúpan lækkar í verði frá í fyrra Rjúpur fyrir jólin eru for- gangsmál á matsebli jólanna hjá fjölmörgum fjölskyld- um. I ár viröist nægilegt framboö af rjúpunni, þrátt fyrir litla veiöi aö undan- förnu. Veröiö er óvenju lágt miöab vib veröiö fyrir fimm árum og reyndar lægra en í fyrra. Veröiö er á bilinu frá 650 til 700 krónur almennt. „Viö seljum rjúpuna á 700 krónur, útvegum þeim viö- skiptavinum sem þess óska. Annars viröast margir vilja brölta upp á fjöll og skjóta," sagði Margrét Guðmundsdótt- ir hjá KEA á Býggðavegi á Ak- ureyri í gær. í Mosfellsbænum býður Nóatún upp á rjúpuna á 650 krónur. Júlíus Jónsson kaup- maður sagðist geta gert öllum sínum viðskiptavinum úr- lausn. Hann ætti nú von á skyttum sem reyndu aö þrúkka upp verðið. Hann mundi tæplega sinna slíku, 650 krónur væri jólaverðið í ár. Júlíus sagði að rjúpan hefði hækkað um 100 krónur frá í fyrra, en fyrir nokkrum árum var stykkið komið í 1.000 krónur, þegar veiðin var í lág- marki. Júlíus sagði að lítið hefði veiðst síðustu tvær vik- ur, snjólaust í byggð og skyggni lélegt og dagsbirtu nyti stutt. -]BP i n uui i lyi iu. o\j Afrek rábherranna sjast ekki 1 fjarlaga- frumvarpinu Forystugrein Tímanns var til umræöu á Alþingi í gær þeg- ar þingmenn deildu um hvar spara skyldi í rekstri ríkissjóös og ræddu afrek stjórnar og stjórnarand- stööu. Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Sunnlendinga og fulltrúi Alþýðubandalagsins í fjárlaganefnd, tók Tímann sér í hönd, las hluta forystugrein- ar blaðsins og kvað skoðanir málgangs formanns fjárveit- ingarnefndar Alþingis, sem jafnframt er ritstjóri Tímanns, lýsa öðrum vinnubrögðum en viöhöfö væru hjá meirihluta nefndarinnar. í forystugrein- inni væri afrekum ráðherra á þessu kjörtímabili lýst og þá einkum ráðherra Framsóknar- flokksins á meðan kyrrstaða og lognmolla er sögð hafa ein- kennt ráðherra Sjálfstæðis- flokksins. Þó muni þeim fara líkt og Birni úr Mörk, þegar virkilega hvessi, og standi þétt að baki Kára. Margrét sagði að þau afrek framsóknarráðherr- anna, sem Tíminn lýsti í for- ystugrein sinni, komi ekki fram í fjárlagafrumvarpinu. -ÞI Fólk ekki fariö aö átta sig á aö jólin nálgast? Mild veðrátta seinkar jólapóstösinni Jóiapóstösin er eitthvaö aö aukast ekki bara góö tíö sem geri þaö aö því að toppurinn verði á mánudag- nú aö sögn Heimis Sigtryggsson- ar, stöövarstjóra hjá Pósti og síma en hann býst viö aö hápunktur- inn verbi nk. mánudag. Heimir er ekki frá því aö fólk sé seinna á ferö nú en oft ábur. „Ætli þab sé verkum ab fólk er seinna á ferb- inni." „Þab er nú oft þannig aö fólk verslar, skrifar á pakka og jólakort um helgar og kemur svo á mánu- degi og póstar. Þannig aö ég á von á inn," sagöi Heimir. Af frímerkjasölu aö dæma er fólk aö senda heföbundiö magn af jóla- kortum og -bögglum til vina og ætt- ingja og síöastliöin ár. -LÓA Hafnarbótasjóöur skertur um 27,7 milljónir kr. þrátt fyrir tjóniö í fárviörinu í haust. Vita- og hafnarmálastjóri: Vib rétt höldum sjó I ljósi þess ab mikib tjón varb á hafnarmannvirkjum í október sl. vekur nokkra athygli ab skv. breytingum á fjárlögum er gert ráb fyrir aö heildarframlag til vita- og hafnarmála standi í stab og framlag Hafnarbóta- sjóbs lækkar umtalsvert. Skýr- ingarnar mun ab nokkru leyti vera ab finna í tilfærslum innan liöarins. Vita- og hafnarmálastjóri sagöi í samtali viö Tímann aö Hafnar- bótasjóöur hafi verið þokkalega stæöur fyrir og næöi að bæta þaö tjón sem honum væri þegar ætlaö og vel það. Hann hefði þó vissu- lega kosið aö fá meira fé, en hart hafi verið sótt að lækkun framlags til vita- og hafnarmála og því líti hann á niöurstöðuna sem ákveð- inn varnarsigur. „Auðvitað heföi maður viljað meira og viö gerðum tillögur um meira. Þaö eru nokkrar fram- kvæmdir sem við teljum brýnar sem verður að fresta eins og t.d. í Vogunum. Ýmislegt fór illa í fár- viðrinu í október sem verður að geyma í einhver ár að bæta," sagði Hermann Guöjónsson, vita- og hafnarmálastjóri í gær. Hann sagöi þó ekkert benda til þess að öryggi væri ógnað vegna þessa. „Við erum ekki búin að sjá fram á hvernig viö leysum ýmis mál. Það er ljóst aö viö gerum ekki meir en rétt halda sjó," sagbi Hermann ennfremur. Breytingartillögurnar á mála- flokknum gera m.a. ráð fyrir að framlög til hafnarmannvirkja hækki um 54,6 kr., lendingarbæt- ur lækki um 3 m.kr., ferjubryggj- ur viö ísafjarðardjúp lækki uum 19 m.kr. og framlag Hafnarbóta- sjóös lækki um 27,6 kr. -BÞ Óánœgja hjá skólastjórum í Reykjavík vegna kjaramála er varöa heilsdagsskólann: Skólabörn á götunni um áramót? Mikil óánægja hefur verib hjá skólastjórum í Reykjavík meb þau laun sem borgin úrskurb- aöi þeim einhliöa greibslur fyr- ir ab starfrækja heilsdagsskól- ann í október sl. Áöur hafbi ekki náöst samkomulag viö þá um kjör. Skólastjórar sögbu upp samningum sínum og munu starfslok þeirra taka gildi um áramótin. Þetta kemur fram í Kennara- blaðinu en þar er jafnframt bent á aö skólastjórar við heilsdags- skólann í Reykjavík hafi marg- sinnis bent á síaukin verkefni í tengslum viö starfsemi hans og þeir krefjist að fá metna til launa þá auknu ábyrgð og stjórnun sem fylgi heilsdagsskólanum. Að sögn Eiríks Jónssonar, for- manns Kennarasambands ís- lands, hefur verið boðab til fund- ar nk. mánudag en fram að þessu hefur lítið verið gert til ab Ieysa deiluna. Skólastjórarnir sögöu upp samningum sínum 31. októ- ber sl. og ef ekki semst um verður heilsdagsskólanum lokað um áramótin og fjöldi skólabarna sem hefur verið í gæslu utan venjulegs skólatíma gæti því nánast oröið á götunni. Sigrún Magnúsdóttir, formað- ur Skólamálaráðs Reykjavíkur, sagði í gær að veriö væri að vinna aö lausn málsins en þaö væri ekki kjörinna fulltrúa fagnefnd- anna aö hafa meö mannaráðn- ingar að gera, heldur samninga- nefndar borgarinnar. Málið hefði byrjað klaufalega, samningur hefði verið gerður í fyrra við Kennarasambandið sem væri þeirra samningsaðili og gilti hann til 31. ágúst. Handvömm hjá Skólaskrifstofu hefði oröið til þess að skólastjórar fengu í sept- ember ekki greidda þá 20 yfir- vinnutíma sem samið haföi verið um og hefði það hleypt illu bióði í skólastjóra og gert allar samnin- gaumleitanir torveldari en ella. Skömmu áður hafi verið sam- þykkt að létta á skólastjórunum vegna þessarar starfsemi og borg- in hafði boöist til að ráöa sér- staka umsjónarmenn í skólana og breyta gjaldtöku þannig að bankinn sæi um innheimtur í staö skólastjóranna sjálfra. „Þetta töldum viö aö myndi létta það mikið á starfinu að sanngjarnt væri aö borga sömu upphæð og í fyrra en skólastjórar voru því andvígir." Nokkrir fundir voru haldnir í kjölfarib og skv. heimildum Tím- ans var skólastjórum bobið að fá 8-10 yfirvinnutíma aukalega en þeir vildu fá meira. „Starfs- mannastjóri, Jón G. Kristinsson, Iét Skólaskrifstofu þá senda skólastjórum bréf um að þetta væri tilbob borgarinnar. Skóla- stjórum fannst tilboðið einhliða en þab er ekki alveg rétt, þetta var náttúrlega eftir ákveðnar samningaumleitanir." Sigrún vildi ekki tjá sig um hvort hún teldi kröfur skólastjór- anna réttmætar, vinna þeirra hefði óvefengjanlega aukist mik- ið meb tilkomu heilsdagsskólans en það hefði verið reynt ab koma á móts við þá meb ýmsum hætti. „Tilboðiö var ásættanlegt að mínu mati og ég hugsa ab skóla- stjórar hefðu sætt sig við það ef ekki hefði komið til þessi klaufa- skapur í september." Aðspurö hvort starfsemi heils- dagsskólans legðist sjálfkrafa niður ef skólastjórar hættu um áramótin segist Sigrún ekki vera viss um þab. „Sveitarfélagib er meb heilsdagsskólann þótt starf- semi fari fram innan skólahús- næðis. íþrótta- og tómstundaráð rekur t.d sína starfsemi í skólum og hugsanlega gætum við ráðið ákveðna menn til að sjá um þetta. Það eru sveitarfélögin sem eiga húsnæðið og okkur er heim- ilt að ráðstafa því en í samvinnu viö skólastjórnendur. Þetta gæti orðið prófmál fyrir dómstólum en ég vona svo sannarlega að svo verði ekki." Þorsteinn Sæberg, skólastjóri Árbæjarskólans, hefur farið fyrir hópi skólastjóra í Reykjavík um þessi mál. Ekki nábist í hann vegna málsins í gær. -BÞ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.