Tíminn - 16.03.1996, Blaðsíða 17
Laugardagur 16. mars 1996
17
----------------•'
fVI cö sínu nefl
í þættinum í dag verður barnalag sem stundum hefur verið
sungið í barnatímum sjónvarpsins, þá reyndar undir örlítið
öðrum texta. Þetta er lagið „Puff the Magic Dragon", sem er eft-
ir Lipton og Yarrow. Fyrir margt löngu flutti söngflokkurinn
Fiðrildið þetta lag á barnaplötu í útsetningu Hannesar Jóns
Hannessonar og er hér notast við íslenska textann, sem þar var
sunginn og gerður var af Hinriki Bjarnasyni.
Góða söngskemmtun!
BREKI GALDRADREKI
G Hm C G
Breki galdradreki bjó út með sjó
C G C D7
og þokumökkur þakti hann í því landi Singaló.
G Hm C G
Bjössi litli Bárðar Breka unni heitt,
C G C D7 G
kom til hans með bönd og blöð í bunkum yfirleitt.
Viðlag:
G Hm C G
Ó, Breki galdradreki bjó út með sjó
C G C D7
og þökumökkur þakti hann í því landi Singaló.
G Hm C G
Ó, Breki galdradreki bjó út með sjó
C G C D7 G
og þokumökkur þakti hann í því landi Singaló.
Um höfin sjö þeir sigldu á seglum knúðri jakt.
Efst á sporöi dreka stóð hann Bjössi hverja vakt.
Hjá soldánum í subri þeir sátu veislur oft,
en sjóræningjar sukku í mar vib að sjá í drekahvoft.
G
Ö, Breki galdradreki...
Einlægt lifir drekinn, en ekki strákur smár.
Lituðum væng og vænum sterti þeim víkja aörar þrár.
Og kvöld eitt kom svo að því að kunninginn ei sást
og garg hjá Breka galdradreka gersamlega brást.
Sem drífa hrundi hreistrib og hryggur dreki grét.
An síns einkavinar allan kjark úr dreka dró
og gamli Breki galdradreki er gleymdur út með sjó.
Ó, Breki galdradreki ...
Aösendar greinar
sem birtast eiga í blaöinu þurfa aö vera tölvusettar og
vistaöar á diskling sem texti, hvort sem er í DOS eöa
Macintosh umhverfi. Vélrit-
aöar eöa skrifaöar greinar
geta þurft aö bíöa birtingar
vegna anna viö innslátt.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Námsvist í Rússlandi
skólaárið 1996- 97
Rússnesk stjórnvöld munu væntanlega veita einum ís-
lendingi skólavist og styrk til háskólanáms í Rússlandi
námsárið 1996-97.
Umsóknum skal komiö til menntamálarábuneytisins,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 12. apríl nk. á sér-
stökum eybublöðum sem þar fást. Umsóknum fylgi
stabfest afrit prófskírteina ásamt mebmælum.
Menntamálarábuneytib,
15. mars 1996
1/2 tsk. paprika
2 dl rjómi
Bankið kótiletturnar og
steikið á pönnu á báðum hlið-
um við meðalhita. Hellið
mestu af feitinni af pönnunni.
Stráib salti, pipar, papriku og
rifnum ostinum yfir kótilet-
turnar. Hellið rjómanum á og
látið krauma í 10 mín., eða þar
til osturinn er bráðnaður. Sósa
myndast af rjómanum og ost-
inum. Berið soðnar kartöflur
og hrásalat með kjötréttinum.
/
Av'Cuotaíaía.
200 gr smjör
200 gr sykur
4egg
300 gr hveiti
1 tsk. lyftiduft
50 gr gróft saxaðar möndlur
125 gr rúsínur
100 gr súkkat
10 þurrkaöar apríkósur, sax-
abar
15 kokkteilber
Rifib hýði utan af 1 sítrónu
og 1 appelsínu
Smjör og sykur er hrært vel
saman þar til ljóst og létt.
Eggjunum bætt út í einu í
senn, hrært vel á milli. Hveiti
og lyftidufti blandað saman
og sett út í hræruna. Þá er
smávegis hveiti stráð yfir fyll-
inguna og henni blandað sam-
an við deigið. Deigið er svo
sett í vel smurt form, aflangt
eða hringlaga. Bakað vib 175° í
ca. 1-1 1/2 klst. Prufið með
prjóni. Þetta er drjúg og góð
kaka, sem geymist vel.
/
Au'OxÚamiat
2 epli
2 appelsínur
2 perur
1 greipaldin
75 gr hnetur, saxaðar gróft
2 msk. hunang
2 msk. sítrónusafi
1 msk. vatn
1/4 tsk. kanill
1/4 tsk. múskat
1/4 tsk. engifer
Skrælið appelsínurnar og
greipaldinið, skerið burtu
hvítuna úr berkinum og skerið
þá í smábita. Eplin og perurn-
ar skræld, kjarnar fjarlægðir og
ávextirnir skornir í bita eða
báta. Blandið ávöxtum og
muldum hnetunum í skál.
Hunangi, sítrónusafa, vatni og
kryddi blandað saman og sett
út í salatskálina. Látib bíða í
minnst 1 klst. áður en salatið
er borið fram. Gott er að bera
þeyttan rjóma eba ís með.
Classúr (sykurbráb) yfir
kökur er hrærður af
flörsykri og heitu vatni, þá
verður hann gijáandi. Notið
ekki of mikib vatn, hann
verbur auðveldlega of
þunnur og þá þarf mikið af
flórsykri til að hann verbi
mátulega þykkur og þá er-
um við komin með allt of
mikinn glassúr.
við smyrjum
glassúr yfir kökur, er
gott að dýfa hnífnum ofan í
sjóbheitt vatn. Þá verbur
glassúrinn sléttur.
l<jg Giassúr verður ekki fal-
legur tekinn úr frysti.
Þess vegna er best ab taka
kökuna út og smyrja glass-
úrnum á, ábur en kakan er
borin fram.
Þab má frysta allar kök-
ur að undanskildum
marengs.
/Confeítíaía
4 eggjahvítur
125 gr sykur
150 gr muldar möndlur
1 msk. hveiti
1/2 tsk. lyftiduft
Krem yfir kökutta:
4 eggjarauöur
100 gr sykur
1 dl rjómi
125 gr smjör
1 tsk. vanillusykur
Eggjahvíturnar stífþeyttar,
sykrinum bætt út í smátt og
smátt í einu og þeytt áfram.
Muldum möndlunum, hveiti
og lyftidufti blandað saman
við. Marengsinn settur á bök-
unarpappírsklædda plötu,
teiknaður hringur og deiginu
smurt á hann (ca. 1/2 sm
þykkt). Bakaö vib 150° í ca. 1
klst.
Kremið: Eggjarauður, sykur
og rjómi hitað saman í potti,
hrært í á meöan það er aö
þykkna. Hafið vægan hita.
Smjöri og vanillusykri bætt út
í. Hrærið þetta vel saman. Tak-
ið svo pottinn af. Látib mar-
engsbotninn á kökufat. Hellið
kreminu yfir. Berib kökuna
fram kalda.
/Cóti/dtur í emna-
da^matinn
6 lambakótilettur
Smjörlíki til að steikja úr
1 tsk. salt og pipar
1 dl rifinn ostur
SUNNUDAGSEFTIRRÉTTUR:
S/tnónu^nófnae
5 eggjarauður
150 gr sykur
1 1/2 dl sítrónusafi
2 tsk. rasp utan af sítrónu
6 matarlímsblöb
1/2 dl sjóbandi vatn
5 eggjahvítur
2 1/2 dl rjómi (1 peli)
Skraut:
Rasp utan af sítrónu
Eggjarauður og sykur þeytt
saman létt og ljóst. Sítrónusaf-
anum og sítrónuraspinu bætt
út í smátt og smátt í einu.
Matarlímsblöðin lögð í kalt
vatn í ca. 5 mín. Tekin upp úr
vatninu og hrærð saman vib
sjóðandi vatnið þar til þaö er
bráðnab. Sett út í eggjahrær-
una í mjórri bunu og hrært í á
meðan. Eggjahvíturnar stíf-
þeyttar og blandað út í hrær-
una. Sett í kæliskáp. Rjóminn
þeyttur og borinn í sérskál
með fromasinum. Skreytt með
sítrónuhýðisstrimlum.