Réttur - 01.06.1946, Blaðsíða 35
RÉTTUR
115
milljónum hollenzkra gyllina (rúmlega 2000 millj. ísl.
krónur), en samanlagt fjármagn hennar mun þó vera
miklu meira.
Strax eftir sameininguna voru teknir upp samningar
um samstarf jafnvel við stærsta feitihringinn í Ameríku,
Procter, Gamble & Company, sem á 19 verksmiðjur í
Bandaríkjunum, er framleiða sápu, feiti, kerti og smjör-
líki fyrir 180 milljónir dollara á ári. 39% af öllu smjör-
líki Bandaríkjanna er framleitt af þessu fyrirtæki, sem
Morganhringurinn á allmikið í. Ekki er vitað með vissu
um árangurinn af þessum viðræðum. Þó að eitthvert
lauslegt samstarf kunni að eiga sér stað, hefur hingað
til að minnsta kosti ekki verið um að ræða neinn sam-
runa.
Alveg án tillits til þess, hve sambandið við ameríska
hringinn kann að vera mikilvægt, má fullyrða, að 90%
af smjörlíkisframleiðslu Evrópu séu í höndum brezk-
hollenzka hringsins. Auðmagn það, sem hringurinn ræð-
ur yfir, gerir honum kleift að ráða smjörlíkisverðinu á
þeim mörkuðum, þar sem einokunaraðstöðu verður við
komið. f þeim löndum Evrópu, þar sem öflug neytenda-
samtök verka sem mótvægi, á brezk-hollenzki hringur-
inn hins vegar örðugt með að koma á einokunar-
verði, t .d. í Englandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og
víðar. Naumast er hægt að draga það í efa, að aðstaða
til að koma á einokunarverði á smjörlíki hafi verið eitt
aðalmarkmiðið með myndun hringsins. Alls staðar þar,
sem hringurinn lætur til sín taka, rekur hann víðtæka
og kostnaðarsama auglýsingastarfsemi. Auglýsingaút-
gjöld Margarine Unie árið 1928 námu þannig meira en
30 milljónum króna. Þessi auglýsingastarfsemi stendur
í nánu sambandi við tæknilegar umbætur hringsins á
sviði framleiðslu og dreifingar. Með kerfisbundinni aug-
lýsingastarfsemi kynnir hann hinar auðkenndu vörur
sínar og leitast með því móti við að lækka smásölugróð-