Réttur


Réttur - 01.10.1933, Page 3

Réttur - 01.10.1933, Page 3
þegar verzlunarauðmagnið og síðan iðnaðarauðmagn- ið er hið ráðandi auðmagn og kaupmannastéttin og iðnrekendastéttin, aðalyfirstjett auðvaldsskipulagsins. Undir lok 19. aldarinnar tekur þessi stefna víðasthvar út í heimi að víkja fyrir hringavaldinu, samtökum þeim, sem iðnaðarauðmagnið og bankarnir mjmda og stjórna. Renna þessir tveir þættir auðmagnsins, iðn- aðar- og banka-auðmagnið, þá meir og meir isaman og mynda það, sem við köllum fjármálaauðvald (Finanskapital). Hér á íslandi gerist þessi þróun ekki fyrri en á síð- ustu 10 árum svo verulega muni um. Kaupmanna- stéttin, sem áður var voldugasta stéttin í landinu, hefir orðið að láta í minni pokann, fyrst fyrir hinu uppvaxandi togaraauðvaldi og síðan bankaauðvald- inu. Þessi tvö síðarnefndu öfl eru orðin drottnandi öfl í íslenzka auðvaldinu og runnin saman eins áþreifan- lega og óskað verður. Erlendis birtist samruni banka- og iðnaðarauðmagnsins í því að bankarnir gefa út hlutabréfin í stóriðjufyrirtækjunum og eiga oft meiri- hluta þeirra sjálfir. Hér lána bankarnir togaraútgerð- inni stórfé, án þess meira að segja að tryggja sér nokkurn aukagróða, þegar vel gengur. Landsbankinn hefir lánað Kveldúlfi 4)4 milj., en innstæðufé lands- manna í honum er um 25 milj. og ríkið stendur í ótakmarkaðri ábyrgð fyrir hann. Þannig er drottnun og hagnýting stórútgerðarmanna á sparifé lands- manna, lánstrausti ríkisins og auðmagni bankans tryggt. Þetta kallar J. J. að beita „fullkomnu lýðræð- isskipulagi" í bankamálum og gera Landsbankann að „þjóðbanka“. Bankaauðvaldið hefir náð hámarki valds síns á tveim síðustu árum. Það hefir fyrirskipað og stjórn- að myndun „Fisksölusambandsins“. Þar með fær Kveldúlfur og Alliance völdin yfir mestöllum fiskút- flutningi landsins og bankarnir nota síðan peninga- vald sitt — spariféð og lánstraust ríkisins — til að 195

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.