Réttur - 01.10.1933, Qupperneq 16
henni nægja ekki gúmmíkylfurnar, þá ætlar Jónas
sér að drekkja réttlátri reiði verkalýðsins í vatni frá
Ihinum margumræddu vatnsbílum, sem Hitler kvað
hafa notað í Þýzkalandi með góðum árangri, að því
er J. J. isegir í þingræðu. En burgeisastéttin hyggur
jafnframt á beittari vopn.
II. Leið auðvaldsins eða leið verkalýðsins.
„í því liggur munurinn á flokki, sem vill þró-
un, og flokki, sem vill byltingu, að hinn Ifyr-
nefndi styður fátækari stéttirnar til að verða
eigendur atvinnutækjanna með friðsamlegri
þróun, en kommúnistar með byltingu, sem þeir
þó vita, að þeir geta eingöngu talað um.“
(J. J. bls. 16.).
Við höfum nú athugað þessa „friðsamlegu þróun“
og séð hvernig hún er aðferðin til þess að innleiða og
efla drottnun bankaauðvaldsins yfir alþýðu, sumpart
með beinlínis gróða af vinnulaunum verkamanna í
samfélagi við útgerðarauðvaldið, sumpart með gróð-
anum í formi vaxta og afborgana alf ,,samvinnu“- og
,,sjálfseignar“-fyrirtækjum bláfátækra sjómanna og
bænda, sem reynt er að blekkja til að halda að þeir
séu „eigendur atvinnutækjanna.“ Við höfum séð
hvernig þeir flokkar, sem vilja „þróun“, hafa „stutt“
fátækari stéttirnar til að verða enn þá fátækari og
jafnhliða ,,stutt“ Kveldúlf og Alliance til að verða
eigendur enn þá fleiri togara, „,stutt“ þessi sömu auð-
Ifélög til að verða drottnandi allrar fiskverzlunar í
landinu, ,,stutt“ bankana til að ná veð-valdinu yfir
50% allra jarða og bændabýla á íslandi — og síðan
„stutt“ þá með ótakmörkuðum ábyrgðum og „kreppu-
lánasjóðum“ á kostnað alþýðu. Og kói'ónan á þessum
„stuðningi“ var að ,,styðja“ þá ríku með fé þeirra fá-
tæku til að koma upp stéttarher fyrir auðvald landsins
208