Réttur - 01.10.1933, Side 21
legu þróunar frá augum meirihluta verkalýðsins og
hinna vinnandi stétta svo þær sjáandi og vitandi vits
geti barist gegn fasismanum og auðvaldinu og ráðið
niðurlögum hvort tveggja í tíma. En hlutverk Fram-
sóknar og krataforingjanna er samt enganveginn tak-
markað við blekkingarnar einar saman. Þeir sýna líka
æfingu sína í því að halda blekkingarblæjunni í ann-
ari hendinni og öxi fasismanis í hinni — og skulum við
nú athuga þá afstöðu þeirra nánar.
„Eina örugga baráttan gegn nazismanum er
að uppræta byltingarstefnu E. O. úr landi“.
(J. J. bls. 48).
Jónas Ifrá Hriflu skoðar sig ásamt foringjum Al-
þýðuflokksins sem postula og verndara lýðræðisins á
íslandi og telur sig vilja berjaist gegn fasismanum. En
hann telur fasismann stafa af framgangi kommúnism-
ans, vera sprottinn upp af ótta burgeisastéttarinnar
við verklýðsbyltinguna og sosialismann. Ráðið til að
berjast gegn fasismanum sé því að firra burgeisastétt-
ina öllum ótta við kommúnismann, sem sé uppræta
hann með öllu! Þá geti burgeisastéttin verið róleg og
þurfi ekki að grípa til fasismans!
Svo furðuleg er rökvísi þessa manns, sem talinn er
einn helsti og gáfaðaisti stjórnmálamaður íslands!
Auðvaldsskipulagið engist sundur og saman í hel-
greipum kreppunnar og ytfirstéttin finnur dauðadæmt
skipidag sitt riða, finnur og sér að sósialisminn sannar
yfirburði sína yfir skipulag hennar með uppbygging-
unni í Sovétríkjunum og grípur því tilódulbúinsofbeld-
is faisismans til að halda verkalýðnum niðri, til að
reyna að uppræta kommúnismann. „Aðalhlutverk fas-
ismans er eyðilegging hins byltingarsinnaða braut-
ryðjendaflokks verkalýðsins, þ. e. hins kommúnist-
iska hluta verkalýðsins og forystuliðs hans“, segir í
istefnuskrá Alþjóðasambands kommúnista. Það ráð,
sem Jónas frá Hriflu — og með honum kratabrodd-
213