Fréttablaðið - 18.03.2009, Page 2
2 18. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
129.500kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, frítt fyrir golfsettið í flug,
gisting á Hótel Villaitana í 7 nætur með
morgunverði, 6 dagar af ótakmörkuðu
golfi og íslensk fararstjórn.
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Real
de Faula
Verð á mann í tvíbýli:
Fararstjóri: Björn Eysteinsson
Villaitana á Spáni
Golfferð
25. apríl – 2. maí
Berið ykkur saman við Birgi Leif, Magnús Lár.og Stefán Stef.,þeir kepptu á þessum velli í
Protour-hi5 í síðustu viku!
SAMFÉLAGSMÁL Kaffihúsið Kaffirót hefur allt frá
opnun, sem var í janúar í fyrra, veitt heimilislausum
súpu á virkum dögum en nú hefur hún ekki fengist í
þrjár vikur.
Kaffihúsið fékk súpuna gefins frá matstofu sem
nú hefur verið lokað. „Við höfum því bara boðið upp
á brauð með smjöri og síðan kaffisopa,“ segir Stefán
Björnsson sem er annar þeirra sem rekur kaffihúsið.
„Það er reyndar ekki nógu gott því brauðið fer ekk-
ert of vel ofan í þá sem ekki hafa fengið neitt í langan
tíma. Súpan er því alveg tilvalin þar sem hún yljar
mönnum líka svo nú leita ég að einhverjum sem getur
hlaupið í skarðið með súpu á liðið.“ En er þetta þá til
marks um erfiðari tíma fyrir heimilislausa? „Þessi
hópur er þannig að hann finnur hvorki fyrir góðær-
inu né kreppunni,“ segir Stefán. „Nú þegar krepp-
ir að veitir fólk náunganum og þörfum hans meiri
athygli en í góðærinu má enginn vera að því að rétta
hjálparhönd.“ En þeir sem þiggja súpuna hafa einn-
ig rétt veitingamönnunum hjálparhönd því nokkr-
ir þeirra aðstoðuðu við innréttinguna á sínum tíma.
Reykjavíkurborg styrkir einnig þetta framtak kaffi-
hússins með því að rukka það ekki um húsaleigu. - jse
Kaffihús sem bauð heimilislausum súpu fær hana ekki lengur:
Súpulaust hjá heimilislausum
SITUR Í SÚPUNNI Það er þurr botninn á súpuskálinni. Stefán
og kollegar hans á Kaffirót hafa ekki getað boðið heimilislaus-
um súpu í þrjár vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Vilhjálmur, eru menn bara
grand á því?
„Já, hver vill vera grandalaus?“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verka-
lýðsfélags Akraness, skorar á stjórn HB
Granda að láta launahækkanir standa
en þeim var frestað fram í júní og þykir
Vilhjálmi það óskiljanlegt í ljósi þess
að eigendur fá nú 150 milljóna króna
arðgreiðslur.
FÓLK Alls fæddust 4.835 börn
hérlendis í fyrra, 2.470 dreng-
ir og 2.365 stúlkur, samkvæmt
tölum Hagstofu Íslands. Það eru
275 fleiri börn en ári áður, en þá
fæddust hér 4.560 börn. Aðeins
tvisvar í sögu Íslands hafa fleiri
lifandi fædd börn komið í heim-
inn á einu ári, árin 1960 og 1959.
Árið 1960 fæddust 4.916 börn og
árið 1959 fæddust 4.837.
Margir af fjölmennustu fæð-
ingarárgöngum Íslands eru frá
árunum 1957 til 1966. Fyrir utan
það tímabil eru það bara árin
2008 og 1990 sem eru í hópi tíu
fjölmennustu fæðingarárganga
Íslands, en árið 1990 fæddust
4.768 börn. - shá
Sprenging í fæðingum 2008:
Sjaldan fæðst
fleiri börn
NÝR ÍSLENDINGUR Árgangurinn 2008 er
sá þriðji stærsti sem skrár eru til um.
VIÐSKIPTI Bandaríski bankinn JP
Morgan og Seðlabankinn lögðu
til að innlán yrðu færð úr gömlu
bönkunum yfir í nýja eftir banka-
hrunið í fyrrahaust.
Sú leið var ekki valin. Viðmæl-
endur Markaðarins telja Fjár-
málaeftirlitið, sem stóð frammi
fyrir mörgum kostum, hafa valið
dýra og erfiða leið við endurreisn
bankanna.
Nýleg viðbót við tillögurnar
mæla með því að ráðgjafarfyrir-
tæki verði ráðið sem hafi víðtæka
reynslu af því að finna eignir
sem einræðisherrar hafa stungið
undan. Kroll Associates er nefnt
sem dæmi en fyrirtækið hafði upp
á földum eigum Saddam Huss-
eins eftir að honum var steypt af
valdastóli. - jab / Sjá Markaðinn
FME valdi dýra leið:
Mælt með leit að
undanskotum
VIÐSKIPTI Þrír einstakling-
ar sem Sigurður Einarsson,
fyrrverandi forstjóri Kaup-
þings, nefndi í Fréttablaðinu
í gær vegna leka á trúnaðar-
gögnum úr Kaupþingi, vilja
ekki kannast við að vera fórn-
arlömb slíks trúnaðarbrests.
„Þetta er að minnsta kosti
ekki rétt gagnvart mér,“
segir Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, alþingismaður og
varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins. Upplýsingar um fjárfestingarfélag Kristj-
áns Arasonar, eiginmanns Þorgerðar, hafa orðið
umfjöllunarefni fjölmiðla. Kristján var einn fram-
kvæmdastjóra hjá Kaupþingi og einn þeirra starfs-
manna sem tók lán í Kaupþingi til kaupa á hlutabréf-
um í bankanum sjálfum.
Björn Ingi Hrafnsson, rit-
stjóri vefritsins Pressunn-
ar og fyrrverandi ritstjóri
Markaðarins á Fréttablaðinu,
segist ekkert vilja tjá sig um
fullyrðingar Sigurðar. Fjallað
hefur verið í fjölmiðlum um
málefni Caramba sem er fjár-
festingarfélag Björns Inga og
eiginkonu hans. Félagið átti
hlutabréf í Existu, aðaleig-
anda Kaupþings.
Einnig hefur verið rætt um fjárhag Lúðvíks Berg-
vinssonar, formanns þingflokks Samfylkingarinnar.
„Ég hef aldrei átt viðskipti við Kaupþing. Umræða
af þessum toga hlýtur að undirstrika að rannsókn á
þessu bankahruni verði hraðað,“ segir Lúðvík. - gar
Meint fórnarlömb leka á gögnum úr Kaupþingi staðfesta ekki sögu bankastjóra:
Á ekki við um mig segir Þorgerður
BJÖRN INGI
HRAFNSSON
LÚÐVÍK BERG-
VINSSON
ÞORGERÐUR
KATRÍN GUNN-
ARSDÓTTIR
Jóhanna svarar í vikunni
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra sagðist á blaðamannafundi í
gær gefa svar um formannsframboð í
Samfylkingunni síðar í vikunni.
STJÓRNMÁL
SAMGÖNGUMÁL Sprunga kom í
rúðu flugstjórnarklefa Boeing
737-700 þotu Iceland Express í
gær og ákvað flugstjóri vélarinn-
ar að lenda á Gatwick-flugvelli í
London í öryggisskyni. Vélin var
á leið til Tenerife með Íslendinga
í vetrarfrí. Þeir voru komnir á
áfangastað í gærkvöldi en seink-
unin var fjórir og hálfur tími.
Andrés Jónsson, upplýsinga-
fulltrúi IE, segir að engin hætta
hafi verið á ferð en ákvörðun hafi
verið tekin um að lenda í Lond-
on og skipta um vél. Alls voru 140
farþegar um borð. - shá
Þota Iceland Express:
Lenti sökum
sprungu í rúðu
Nestismjólk ókeypis
Hreppsnefnd Hrunamannahrepps
hefur samþykkt að svokölluð „nestis-
mjólk“ verði ókeypis til loka skólaárs-
ins í grunnskólanum. „Mjólkurbúið
hefur komið upp sérstökum „maskín-
um“ í skólunum til þess að hvetja til
mjólkurdrykkju og er það vel,“ segir í
fréttabréfi hreppsins.
SKÓLAR
VIÐSKIPTI Ólafur Þór Hauksson,
sérstakur saksóknari um banka-
hrunið, hefur tekið til rannsóknar
starfsemi fimm lífeyrissjóða sem
allir hafa verið í umsjá Landsbank-
ans. Grunur leikur á um að stjórn-
endur þeirra hafi á fyrri hluta árs
2008 fjárfest umfram heimildir í
tilteknum félögum.
Sjóðirnir sem um ræðir eru
Íslenski lífeyrissjóðurinn, Lífeyr-
issjóður Tannlæknafélags Íslands,
Eftirlaunasjóður FÍA, Kjölur líf-
eyrissjóður og Lífeyrissjóður Eim-
skipafélags Íslands, sem nú hefur
runnið inn í Kjöl.
Fjármálaeftirlitið vísaði mál-
inu til sérstaks saksóknara eftir
að hafa haft það til skoðunar í
talsverðan tíma, samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins. Ólafur Þór
segir að rannsóknin beinist að
„framkvæmdastjórum og stjórn-
um sjóðanna“.
Lög kveða á um að lífeyrissjóð-
ir megi ekki fjárfesta um of í sama
fyrirtækinu til að ekki myndist
of mikil áhætta. Grunur er um
að þessi lög hafi verið brotin. Í
fréttum Stöðvar 2 í gær sagði að
umframfjárfestingarnar næmu
hundruðum milljóna. Meðal ann-
ars er talið að töluvert hafi verið
fjárfest umfram heimildir í félög-
um tengdum Landsbankanum og
eigendum bankans.
Framkvæmdastjórum og stjórn-
um sjóðanna hefur nú verið vikið
frá og tilsjónarmenn skipaðir til að
stýra þeim.
Sami maður, Davíð Harðar-
son, var framkvæmdastjóri allra
fimm sjóðanna bróðurpart síðasta
árs, sem rannsóknin nær til. Davíð
hætti störfum í
Landsbankan-
um á föstudag-
inn var. Hann
þvertekur fyrir
að brotthvarf
hans úr bankan-
um tengist rann-
sókninni.
„Þetta lítur
klárlega út eins
og ég sé að
hætta út af því en ég vissi hins
vegar ekki af rannsókninni fyrr
en í fjölmiðlum í dag,“ segir Davíð.
Honum hafi ekki verið sagt upp
störfum heldur hætt sjálfviljugur.
Hann segist ekki vita nákvæmlega
um hvað rannsóknin snýst en seg-
ist ekki telja sig hafa gert nokkuð
rangt við stjórn sjóðanna.
Ólafur Þór segir of snemmt að
fullyrða um hvort sjóðfélagar
hafi orðið fyrir tjóni vegna hinna
meintu brota eða hvort eitthvað
þessu líkt eigi mögulega við um
aðra lífeyrissjóði eða innan ann-
arra banka.
Viðurlög við brotum gegn lögum
um lífeyrissjóði geta numið sekt-
um eða fangelsi allt að einu ári.
stigur@frettabladid.is
Sami maður stýrði
öllum sjóðunum
Lífeyrissjóðirnir fimm sem sérstakur saksóknari hefur tekið til rannsóknar lutu
allir stjórn sama manns í Landsbankanum. Hann lét af störfum á föstudaginn
síðasta en þvertekur fyrir að brotthvarf sitt úr bankanum tengist rannsókninni.
ÓLAFUR ÞÓR
HAUKSSON
LANDSBANKINN Daníel Harðarson stýrði öllum sjóðunum sem nú eru til rannsóknar
en telur sig ekki hafa gert neitt rangt. Tilviljun sé að hann hafi hætt í bankanum
örfáum dögum áður en opinber rannsókn hófst á störfum hans. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Yfirtekur 33,4% í Sjóvá
Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki
hf. gekk í gær að 33,4 prósent hlut í
tryggingafélaginu Sjóvá-Almennum
tryggingum sem veðsettur var félag-
inu. Daglegur rekstur félagsins mun
ekki verða fyrir áhrifum vegna þessa,
segir í tilkynningu.
VIÐSKIPTI
LÖGREGLUMÁL Lögregla handtók
í gær tvo karlmenn sem staðn-
ir voru að bruggi í iðnaðarhús-
næði við Stórhöfða. Ölgerðinni
var lokað síðdegis og hald lagt á
um 300 lítra af gambra auk eim-
ingartækja og annarra tóla til
ölgerðar sem í húsinu fundust.
Mennirnir sem handteknir
voru hafa komið við sögu lög-
reglu áður. Þeir voru yfirheyrðir
undir kvöld og játuðu báðir sök.
Þeim var sleppt að því loknu og
telst málið upplýst að sögn varð-
stjóra.
Gambri er gulleitt heimabrugg
með allt að fimmtán prósenta
áfengisinnihaldi. - sh
300 lítrar af gambra fundust:
Tveir bruggarar
teknir höndum
SPURNING DAGSINS