Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 4
4 18. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Ferðabox
Pacific 600190 x 63 x 39 cm340 L54.900.-
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
18°
11°
14°
9°
9°
12°
12°
12°
7°
7°
21°
14°
16°
26°
3°
15°
18°
4°
7 14
12
8
9
7 13
15
97
Á MORGUN
3-13 m/s stífastur vestan til
FÖSTUDAGUR
3-13 m/s stífastur
vestan til
6
7
8
6
8
8
6
8
8
6
4
5
5
5
5
4
5
5
5
3
5 7
MILT FRAM YFIR
HELGI
Eindregin hlýindi
verða á landinu fram
á sunnudag. Dálítil
úrkoma verður í dag
sunnan og vestan til
en frá síðdeginu í dag
til sunnudags verður
yfi rleitt úrkomulítið
á landinu síst þó á
Vestfjörðum. Bjart og
fallegt veður verður
hins vegar á Norður-
og Austurlandi næstu
daga. Hægur vindur
verður á landinu en á
sunnudag má reyndar
búast við strekkingi.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
FÉLAGSMÁL Kaup á vændi verða gerð
refsiverð fyrir komandi kosningar,
að sögn félagsmálaráðherra. Það
sama gildir um nektardans, sem til
stendur að banna með öllu. Þetta
er meðal þess sem fram kemur í
aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar
gegn mansali sem samþykkt var á
ríkisstjórnarfundi í gær.
„Mansal er eitt viðurstyggileg-
asta form alþjóðlegrar og skipu-
lagðrar glæpastarfsemi sem um
getur í heiminum í dag og ábati
glæpamanna jafnast aðeins á
við gróðann af fíkniefnasölu
og ólöglegri vopnasölu,“ sagði
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
félagsmálaráðherra við kynningu
áætlunarinnar í gær.
Með lagabreytingu árið 2007 var
vændi gert löglegt svo fremi sem
þriðji aðili hagnist ekki á því. Atli
Gíslason talaði síðan fyrir frum-
varpi um bann við kaupum á vændi
á þingi í gær. Að því standa nokkr-
ir stjórnarþingmenn auk kvenna
úr Framsóknarflokki.
„Í þessu máli má segja að fulln-
aðarsigur hafi áunnist í áralangri
baráttu fjölda kvennasamtaka og
annarra félagasamtaka – og ekki
síst þingmanna, sem hafa oft lagt
fram á Alþingi frumvörp í þessu
skyni. Ég er ein þeirra og þess
vegna er dagurinn í dag mér sér-
stakur gleðidagur,“ sagði Ásta
Ragnheiður þegar hún ræddi um
þá ákvörðun að fara svokallaða
sænska leið í málinu.
Þá hefur allsherjarnefnd einnig
til umræðu frumvarp þess efnis að
fella úr lögum undanþáguheimild
frá banni við nektardansi, þannig
að allur nektardans verði eftirleið-
is bannaður á Íslandi. Ásta Ragn-
heiður á von á að bæði frumvörpin
verði afgreidd sem lög fyrir kosn-
ingar.
Guðrún Jónsdóttir, talskona
Stíga móta, átti sæti í starfshópn-
um sem vann áætlunina. Hún segir
um mikinn og táknrænan sigur að
ræða. „Loksins erum við komin
með verkfæri til að taka á þessum
málum á Íslandi og það er pólitískt
þor í þessari áætlun sem við fögn-
um ákaflega,“ segir hún.
Ásgeir Davíðsson, sem rekur
nektardansstaðinn Goldfinger,
segist ekki búast við að þurfa að
loka staðnum út af þessu. Fram
að þessu hafi einungis þeir starfs-
menn hans dansað naktir sem það
hafi viljað, en nú þurfi bara að
tryggja að þeir séu í nærfötum.
stigur@frettabladid.is
Nektardans og vændi
bannað fyrir kjördag
Stefnt er að því að gera kaup á vændi refsiverð og leggja blátt bann við öllum
nektardansi fyrir komandi kosningar. Félagsmálaráðherra kynnti í gær aðgerða-
áætlun gegn mansali. „Mikill og táknrænn sigur“ segir talskona Stígamóta.
Aðgerðaáætlunin er í 25 liðum.
Nokkrir þeirra eru:
■ Fullgilding alþjóðlegra samninga
gegn skipulagðri glæpastarfsemi,
mansali og vernd barna gegn
kynferðislegri misnotkun.
■ Stofnun sérfræðiteyma sem haldi
utan um mansalsmál og komi
fórnarlömbum þeirra til aðstoðar.
■ Fórnarlömb mansals fái tíma-
bundið dvalarleyfi, skjól og
fjárhagslega og félagslega aðstoð
á meðan þau gera upp hug sinn
um framtíðardvalarstað og sam-
starf við lögreglu.
■ Þolendum mansals verði tryggð
örugg endurkoma til heimalands
og endurhæfing.
■ Komið verði á fót sérhæfðum
lögregluteymum um mansal,
verklagsreglur lögreglu endur-
skoðaðar og heimildir til forvirkra
rannsóknarheimilda endurskoð-
aðar.
■ Vitnavernd og nafnleynd fórnar-
lamba.
■ Fræðsluherferð beint að kaup-
endum vændis, kláms og annarr-
ar kynlífsþjónustu.
■ Tryggt að kaup fulltrúa íslenskra
stjórnvalda á kynlífsþjónustu
verði ekki liðin.
NOKKRIR ÞÆTTIR ÁÆTLUNARINNAR
Á SÚLUSTAÐ Nektardans og vændiskaup verða líkast til ólögleg einhvern tíma í
næsta mánuði eða svo. NORDICPHOTOS / AFP
VINNUMARKAÐUR Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra segir að tillaga stjórnar HB
Granda um að greiða út arð sé siðlaus. „Það
er siðlaus ákvörðun í svona árferði eins og
við erum í að skammta sjálfum sér arð-
greiðslur á sama tíma og launafólk er látið
skera niður,“ segir hún.
Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin
hafi enga sérstaka aðkomu að málinu aðra
en þá að þetta veki furðu og sé siðlaust með
öllu.
Forystumenn verkalýðshreyfingarinn-
ar hafa sagt arðgreiðslurnar hleypa frestun
á endurskoðun kjarasamninga fram í júní í
uppnám en forystumenn Starfsgreinasam-
bandsins og Samtaka atvinnulífsins komust
að samkomulagi um frestunina nýlega.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verka-
lýðsfélags Akraness, segir að „mikil und-
iralda“ sé í samfélaginu út af þessu máli.
Miðstjórnarfundur verður hjá ASÍ í dag og
segist Vilhjálmur búast við að arðgreiðslur
HB Granda verði þar til umræðu.
„Ég vil láta kanna lagalegar forsendur
fyrir því hvort hægt sé að rifta samkomu-
lagi um frestun á endurskoðun kjarasamn-
inga. Það er ekki hægt að eigendur fyrir-
tækja greiði út arð á sama tíma og launafólk
er látið fresta kjarasamningum,“ segir hann
og bendir á að landsbyggðarfélögin sex sem
hafi verið á móti frestun kjarasamninga
hafi bent á að sum fyrirtæki gætu staðið við
samningana. Það hafi nú komið í ljós.
„Við megum þakka fyrir að búið er að
afnema búsáhaldabyltinguna og skila bús-
áhöldunum í Þjóðminjasafnið. Ég held að
hver Íslendingur sjái að arðgreiðsla er væg-
ast sagt óheppileg.“ - ghs
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra um tillögu stjórnar HB Granda:
Tillaga HB Granda um arðgreiðslu siðlaus
VEÐUR Fimm hús voru rýmd í
Bolungarvík um hádegi í gær
vegna snjóflóðahættu. Veður-
stofan lýsti yfir hættustigi undir
fjallinu Traðarhyrnu í samráði
við lögreglustjórann á Vestfjörð-
um. Rýming húsa í gær var við
Ljósaland 2, Traðarland 18, 21,
22 og Tröð. Húsin eru fyrir neðan
Traðargil þar sem er verið að
setja upp snjóflóðavarnargarð,
sem ekki er tilbúinn.
Ástæða rýmingarinnar er
vegna skyndilegra hlýinda. Þetta
er í fjórða sinn á stuttum tíma
sem íbúarnir þurfa að flýja hús
sín. - shá
Hús rýmd í Bolungarvík:
Hláka veldur
snjóflóðahættu
VIÐ TRAÐARLAND Flest hús eru rýmd við
götuna Traðarland í Bolungarvík.
MYND/BIRGIR
FRAKKLAND, AP Áform Nicolas
Sarkozy Frakklandsforseta um
að láta Frakka ganga á ný til liðs
við herstjórn-
arkerfi NATO,
sem þeir hafa
staðið utan við í
43 ár, fara mjög
fyrir brjóstið á
sumum fulltrú-
um á Frakk-
landsþingi.
Þingmenn á
báðum vængj-
um stjórnmálanna óttast að þetta
skref grafi undan sjálfstæði
Frakka sem kjarnorkuvopna-
vædds herveldis. Svo mjög mis-
líkar þeim að þeir báru upp van-
trauststillögu á ríkisstjórnina af
þessu tilefni í gær.
Tillagan var felld, en hún var
til merkis um hve mjög sumum
Frökkum þykir stefnan á fulla
þátttöku í samstarfinu innan
NATO særa þjóðarstoltið. - aa
Frakkland og NATO:
Vantrausts-
tillaga á þingi
NICOLAS SARKOZY
Klamydía algeng á Íslandi
Samtals greindust 1.834 klamydíutil-
felli á árinu 2008 og er það svipaður
fjöldi og síðastliðin ár. Sýkingin var
algengust meðal fólks á aldrinum
15–29 ára og greindist oftar hjá
konum en körlum. Árið 2008 greind-
ust hlutfallslega flest tilfelli á Íslandi
samanborið við aðrar Evrópuþjóðir.
HEILBRIGÐISMÁL
26 með lekanda
Alls greindust 26 einstaklingar með
lekanda á árinu 2008 samkvæmt
jákvæðum ræktunum á sýkladeild
Landspítalans. Þar af voru 12 konur
og 14 karlar, á aldrinum 19 til 63
ára. Árið 2005 fór að bera á fjölgun
lekandatilfella. Það ár greindust 19
einstaklingar með lekanda en flest
hafa tilfellin orðið 31, árið 2006.
BRETLAND, AP Ný skoðanakönnun
sýnir að Íhaldsflokkurinn í Bret-
landi hefur nú um tíu prósentu-
stiga forskot á Verkamannaflokk-
inn, en það er minni munur en
mældist í síðasta mánuði.
Samkvæmt könnun Ipsos MORI-
stofnunarinnar segjast nú 42 pró-
sent Breta styðja Íhaldsflokkinn
en 32 prósent Verkamannaflokk-
inn. Í hliðstæðri könnun í febrúar
mældist Íhaldsflokkurinn með 20
prósenta forskot á stjórnarflokk-
inn núverandi.
Ánægja með störf Gord ons
Brown mælist líka meiri nú en síð-
ustu mánuði; nú segist þriðjung-
ur sáttur við störf hans en í lok
síðasta árs var aðeins rétt rúmur
fjórðungur á þeirri skoðun. - aa
Könnun í Bretlandi:
Forskot Íhalds-
flokks enn mikið
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
VILHJÁLMUR
BIRGISSON
GENGIÐ 17.03.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
182,9372
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,77 115,31
161,71 162,49
149,28 150,12
20,022 20,140
16,90 17,00
13,589 13,669
1,1628 1,1696
169,67 170,69
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR