Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 8
8 18. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
Heimilisbókhald
Viðtöl við starfsfólk Sparisjóðsins
Hefðbundin Greiðsluþjónusta
Netgreiðsluþjónusta
Komdu við á næsta afgreiðslustað Sparisjóðsins og fáðu frekari
ráðgjöf um þín fjármál.
A
T
A
R
N
A
Komdu í heimsókn
og gerðu góð kaup.
Skoðið tilboðin á
heimasíðu okkar,
www.sminor.is.
Tæki færi
í mars
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
1. Hvað heitir forstjóri HB
Granda?
2. Forseti hvaða lands vill öll
hjálparsamtök úr landi?
3. Hvað heitir veitingastaður-
inn sem var opnaður nýlega í
Glæsibæ?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 26
Auglýsingasími
– Mest lesið
AUSTURRÍKI, AP Elisabeth Fritzl, sem faðir hennar
hélt fanginni í gluggalausri kjallaraholu í 24 ár og
gat með henni sjö börn, gaf vitnisburð sinn í rétt-
arhaldinu yfir föðurnum á myndbandsupptöku
sem spiluð var fyrir kviðdóm í dómsalnum í Sankt
Pölt en í Austurríki í gær.
Hinn 73 ára gamli Josef Fritzl, sem sætir ákæru
fyrir barnsmorð, frelsissviptingu, að hneppa mann-
eskju í þrældóm, sifjaspell og nauðgun, fylgd-
ist grannt með vitnisburði dótturinnar og svaraði
spurningum saksóknara, kviðdóms og dómara, að
því er talsmaður dómsins, Franz Cutka, greindi frá.
Sjálft réttarhaldið var lokað fjölmiðlum.
Þeir sem viðstaddir voru réttarhald gærdagsins
fengu líka að sjá myndbandsupptöku af vitnisburði
Haraldar Fritzl, bróður Elisabeth, að því er Cutka
greindi frá.
Fritzl hefur aðeins játað á sig hluta ákæruatrið-
anna, en verði hann sakfelldur á hann ævilangt
fangelsi yfir höfði sér. Búist er við að dómur falli
jafnvel strax á fimmtudag í þessu sérstæða máli
sem heimsbyggðin hefur fylgst grannt með allt frá
því það kom fyrst upp fyrir tæpu ári. - aa
SÝNDI ANDLITIÐ Fritzl huldi ekki andlitið er hann var leiddur í
dómsal í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Réttarhaldið í máli Josefs Fritzl hélt áfram í Austurríki í gær:
Hlýtt á vitnisburð dótturinnar
VEISTU SVARIÐ?
EFNAHAGSMÁL „Skoðanir sjóðsins
endurspegla einungis tæknilega
greiningu og eru ekki af stjórn-
málalegum toga,“ segir talsmaður
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í svari
við fyrirspurn Fréttablaðsins
vegna ummæla Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar að Mark Flanag-
an, fulltrúi AGS, hafi í raun verið
að bakka upp ríkjandi stjórnvöld
sem styðji ekki hugmyndir Fram-
sóknarflokksins um flata 20 pró-
senta niðurfellingu skulda.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
ítrekar að slík aðgerð yrði mjög
dýr bönkum og ríkissjóði, auk
þess sem nýleg greining Seðla-
banka sýni að stór hópur fólks,
sem þyrfti ekki aðstoð myndi
hagnast á niðurfellingunni. - ss
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn:
Er ekki í pólitík
FJÖLMIÐLAR „Ég er mjög ánægður
með myndirnar í ár; mynd ársins
og í raun alla myndaröðina hans
Kristins Ingvarssonar sem var
einnig verðlaunuð,“ segir Pjetur
Sigurðsson, ljósmyndari Frétta-
blaðsins, sem vann til verðlauna
fyrir fréttamynd ársins á sýningu
Blaðaljósmyndarafélags Íslands.
Pjetur á eina mynd á sýning-
unni. „Þegar ég kom á sýning-
una tók forsetinn [Ólafur Ragn-
ar Grímsson] mig tali og spurði
hvort það væri ekki allt fullt af
myndum eftir mig,“ segir Pjet-
ur. „Ég sagði honum að það væri
reyndar bara ein. Hann hló því
mikið þegar hann veitti mér verð-
launin fyrir þá mynd andartaki
síðar.“
Sýningin er í Gerðarsafni og
stendur til 3. maí næstkomandi
en þeir sem ekki komast í Gerðar-
safn geta séð verðlaunamyndirnar
á vefnum pressphoto.is. - jse
Ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands í Gerðarsafni í Kópavogi:
Verðlaunamyndir sýndar
MYND ÁRSINS Myndin var hluti mynd-
raðar ársins. MYND/ KRISTINN INGVARSSON
VERÐLAUN
Nafn Flokkur Miðill
Kristinn Ingvarsson mynd ársins/myndaröð Morgunblaðið
Pjetur Sigurðsson fréttamynd Fréttablaðið
Golli íþróttamynd/ Morgunblaðið
skoplegasta mynd/
mynd úr daglegu lífi
Júlíus Sigurjónsson portrettmynd ársins Morgunblaðið
Vera Pálsdóttir tímaritamynd/umhverfismynd Birtíngur
Guðmundur R. Guðmundsson þjóðleg mynd Morgunblaðið
NEYTENDAMÁL Neytendastofa hefur
beint þeim tilmælum til Símans að
fyrirtækið stöðvi auglýsingar sínar
sem birtar hafa verið undir yfir-
skriftinni „Aðgerðaráætlun Sím-
ans fyrir fólkið og fyrirtækin“.
Þórunn Anna Árnadóttir, sviðs-
stjóri neytendaréttarsviðs, segir
ástæðuna vera þá að Nova, Og fjar-
skipti og Vodafone hafi kvartað
yfir henni og því sé mælst til þess
að birting auglýsinganna verði
stöðvuð meðan á meðferð málsins
stendur.
Kvartað er vegna nokkurra
atriða. Nova segir auglýsinguna
villandi því fullyrt sé að Síminn
bjóði upp á lægsta mínútuverðið en
það standist ekki, að þeirra mati.
Upphafsgjaldsins sé ekki getið í
auglýsingunni en sé það tekið með
í reikninginn reynist mínútuverðið
ekki það lægsta.
Þessu eru fulltrúar Símans
ósammála. „Við teljum auglýsing-
arnar okkar ekki vera villandi,“
segir Margrét Stefánsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Símans. „Í öllum til-
fellum talar Síminn um lægsta mín-
útuverðið á landinu óháð kerfi sem
er 11,90 krónur. Það kemur skýrt
fram í öllu auglýsingaefni Símans í
blöðum og sjónvarpi og á á vefnum
okkar siminn.is. Samkeppnisaðilar
bjóða hins vegar upp á eftirfarandi
mínútuverð óháð kerfi: Nova 14,5
krónur mínútan, Vodafone 14,80
krónur mínútan og Tal 14,90 krón-
ur mínútan.“
Aðspurð vhort Síminn muni
verða við tilmælum Neytendastofu
og stöðva birtunguna segir hún að
haft hafi verið samband við Neyt-
endastofu í fyrradag og þá fengust
þau svör að ekki væri ástæða til að
banna auglýsingarnar. „Við höfum
óskað eftir rökfærslum fyrir til-
mælum Neytendastofu og bíðum
svara þaðan og munum síðan meta
stöðuna,“ segir hún. - jse
Neytendastofa bregst við kvörtun vegna auglýsingar:
Vill Símaauglýsingu í salt
FRÁ EINNI AF VERSLUNUM SÍMANS Nýjasta auglýsing Símans hefur hreyft við sam-
keppnisaðilunum sem hafa lagt inn kvörtun til Neytendastofu.
FRÉTTAMYND ÁRSINS Myndin var tekin við mótmæli vörubílstjóra síðastliðið vor.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR