Fréttablaðið - 18.03.2009, Síða 10

Fréttablaðið - 18.03.2009, Síða 10
SVALUR SELUR Baikalvatns-selurinn Billy leikur listir sínar í heitum potti í sædýrasafni í Hakone í Japan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HEILBRIGÐISMÁL Níu karlmenn, af sautján manna hópi, fengu mat- arsýkingu eftir að hafa snætt saman hádegismat á veitinga- húsi á Norðurlandi. Fengu þeir niðurgang, ógleði, uppköst og hita. Einn var lagður inn á sjúkra- hús, en veikindin töldust þó ekki alvarleg. Frá þessu er sagt í Far- sóttafréttum Landlæknisemb- ættisins. Heilbrigðisfulltrúi á Norður- landi tók sýni sem send voru í rannsókn og veitingastaðurinn var skoðaður til að komast að rót sýkingarinnar. Engin skýring hefur hins vegar fundist á veikindum hóps- ins. Ekki hefur frést um frekari veikindi og svo virðist sem sýk- ingin sé liðin hjá. - shá Matarsýking á Norðurlandi: Níu veiktust en engin skýring LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu stöðvaði umfangs- mikla kannabisræktun í íbúð í Kópavogi í fyrrakvöld. Við húsleit fundust um 300 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Íbúð- in var undirlögð af þessari starf- semi. Í kjölfarið var gerð húsleit í íbúð í Breiðholti. Þar fannst tals- vert af marijúana, eða vel á annað hundrað grömm. Tveir karlar á þrítugsaldri voru yfirheyrðir í tengslum við rannsóknina. Lögreglan minnir enn á fíkni- efnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkni- efnamál. - jss Höfuðborgarsvæðið: Kannabisrækt- un í Kópavogi SKIPULAGSMÁL Bandaríkjamenn fá ekki að víggirða sendiráð sitt á Laufásvegi frekar en nú er vegna andstöðu nágrannanna. Sótt var um í fyrrahaust að fá að reisa vegg og hækka girðingu og hlið við sendiráðið á Laufás- vegi 21-23 auk þess að setja rimla fyrir glugga og koma fyrir klifur- hindrun á ljósastaur. Nágrannarnir á Laufásvegi 19 harðneita að sam- þykkja þetta. Að því er kemur fram í umsögn lögmanns skipulags- og byggingarsviðs er umsókn sendi- ráðsins því hafnað. Í tölvupóstsamskiptum kemur fram að sendiráðsmenn telja sig órétti beitta. Nágrannarnir hafi hafnað því að eiga með þeim fund og hafi uppi rangar fullyrðingar. „Ef þetta er vonlaust mál þá vill sendiráðið fá skýrt skjal þar sem fram kemur hvað það er sem ekki fæst leyfi fyrir og hvers vegna – í Bandaríkjunum eru regl- urnar allt aðrar svo það þarf að koma skýrt fram hverjir eigi réttinn. Þetta skjal vilja þeir gjarnan stimplað og á ensku,“ segir í tölvu- pósti Söru Axelsdótt- ur hjá Arkís til skipulags- og bygg- ingar- sviðs. Nágrannarnir segja meðal annars að núverandi hlið hafi aldrei verið samþykkt og að þeir yrðu inn- lyksa kæmi til eldsvoða. „Það ligg- ur því ljóst fyrir að fundur íbúa hússins og sendiráðsins um þetta mál þjónar engum tilgangi,“ segir í bréfi formanns húsfélagsins á Lauf- ásvegi 19, Steinunnar Birnu Ragn- arsdóttur, til borgarinnar. - gar Borgin synjar Bandaríkjamönnum um framkvæmdir í varnarskyni á Laufásvegi: Sendiráðið má ekki hækka girðingu STEINUNN BIRNA RAGNARSDÓTTIR Formaður húsfélagsins á Laufásvegi 19 segir fyrirhugaðar framkvæmdir við sendiráð Bandaríkjamanna myndu loka íbúana í bruna- gildru. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMFÉLAGSMÁL Nemendum í tíunda bekk, sem hafa orðið ölvaðir á síðustu 30 dögum, hefur fækkað verulega ef niðurstöður rannsókna fyrirtækisins Rannsóknir og greining eru bornar saman. Árið 1998 hafði tæplega annar hver nemandi orðið ölv- aður síðasta mánuðinn en í fyrra var það innan við fimmti hver tíundabekkingur. Hlutfallslega hefur dregið úr daglegum reykingum nemenda í tíunda bekk ef tölur frá 1998 eru bornar saman við tölur frá því í fyrra. Fyrir ellefu árum reykti fjórði hver nemandi daglega. Í fyrra reykti aðeins tíundi hver nemandi í tíunda bekk daglega. Dregið hefur hlutfallslega úr þeim nemendum í tíunda bekk sem hafa prófað hass. Í kynningu hjá Háskólanum í Reykjavík, sem haldin var nýlega, kemur fram að árið 1998 höfðu innan við fimmti hver nemandi prófað hass en í fyrra var það vel innan við tíundi hver nemandi. Inga Dóra Sigfúsdóttir, deildarforseti við Háskól- ann í Reykjavík, segir að eftirlit foreldra, stuðning- ur og tími sem foreldrar verja með börnum sínum og vinum þeirra dragi úr líkum á vímuefnaneyslu og auki líkur á góðum námsár- angri. Þátttaka í skipulögðu tóm- stundastarfi og íþróttum sé mikil- væg forvörn. Rifrildi og ofbeldi á heimilum eykur líkurnar á þunglyndi og reiði meðal ungmenna. Erjur milli for- eldra geta einnig haft áhrif á vímu- efnanotkun ungmenna. - ghs INGA DÓRA SIGFÚSSON Færri unglingar reykja og prófa hass: Dregur úr unglingadrykkju EFNAHAGSMÁL Ríkisstjórnin ætlar að taka upp kynjaða hagstjórn og stefnir að því að ljúka stefnumót- un og undirbúningi innan eins árs. Með kynjaðri hagstjórn er átt við að skoða hagstjórnarað- gerðir, fjárlagaaðgerðir og aðrar aðgerðir af hálfu hins opinbera með hliðsjón af áhrifum þeirra á stöðu kynjanna. Á ríkisstjórnarfundi í gær- morgun samþykkti ríkisstjórnin tillögu fjármálaráðherra um að skipa verkefnisstjórn til stefnu- mótunar og undirbúnings því að taka upp kynjaða hagstjórn hér á landi. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að óskað verði tilnefninga frá félagsmála- ráðuneytinu, Jafnréttisstofu og Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við HÍ auk þátt- töku jafnréttisfulltrúa frá öllum ráðuneytum. Fjármálaráðuneyt- ið muni leiða verkefnið. Allir hafi tekið því vel að koma að þessari vinnu. Færa megi rök fyrir því að aldrei hafi verið brýnna en nú að horfa til slíkra hluta. „Ég geri ráð fyrir því að þetta komist í gang á næstu dögum,“ segir Steingrímur og telur líklegt að fyrir liggi álit og tillögur um að koma á þessu verklagi innan árs. Hann bendir á að víða erlend- is vinni menn eða séu komnir vel áleiðis í að vinna eftir kynjaðri hagstjórn. Hann segir að þetta sé alþjóðlega viðurkennd aðferð og löngu tímabært að Íslendingar taki hana upp. Ríkisstjórnin kynnti í gær nýtt yfirlit yfir íslenskan þjóðarbú- skap og ríkisfjármál. Þar kemur meðal annars fram að áætlaðar heildarskuldir ríkissjóðs verða um 1.100 milljarðar króna í árs- lok og að vaxtakostnaður verði 87 milljarðar á þessu ári. Óvissa sé hversu mikið falli á ríkissjóð vegna Icesave en samkvæmt nýj- asta mati skilanefndar Lands- bankans verði það 73 milljarðar króna. Steingrímur segir að þetta sé sett fram með fyrirvara um að „jafnvel seinna í þessari viku komi ný gögn frá Seðlabankanum sem breyti þessu í litlum mæli“. Rúmlega þrjátíu mál bíða afgreiðslu í þinginu, þar á meðal eru lög um gjaldþrotaskipti og greiðsluaðlögun, nauðungarsölu og skattaundanskot, hlutabætur og embætti sérstaks saksóknara. „Þannig að við sjáum ekki enn til lands í því hvenær hægt er að fresta þingi,“ segir Jóhanna Sig- urðardóttir forsætisráðherra. ghs@frettabladid.is Kynjuð hag- stjórn tekin upp eftir ár Hagstjórnar- og fjárlagaaðgerðir verða skoðaðar með hliðsjón af áhrifum á stöðu kynjanna þegar kynjuð hagstjórn verður tekin upp. Ríkisstjórnin stefnir að því að ljúka undirbúningsvinnunni innan árs. RÍKISSJÓÐUR SKULDAR 1.100 MILLJARÐA Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kynntu í gær nýtt yfirlit yfir íslenskan þjóðarbúskap og ríkisfjármál. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.