Fréttablaðið - 18.03.2009, Side 38
18. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
Mitsubishi Outlander - Kraftmikill sportjeppi
Kostir Mitsubishi Outlander eru afgerandi. Hann hefur
mestu veghæð í sínum flokki, stærsta farangursrýmið,
öflugt fjórhjóladrif og frábæra aksturseiginleika.
Komdu í HEKLU - Notaða bíla á Kletthálsi og skoðaðu
næstum nýjan Mitsubishi Outlander, kraftmikinn,
rúmgóðan og ríkulega búinn bíl fyrir alla fjölskylduna,
tilvalinn í ferðalagið.
HEKLA NOTAÐIR BÍLAR KLETTHÁLSI
Opið 10–18 virka daga | Opið 12–16 laugardaga
Kletthálsi sími 590 5044 www.heklanotadirbilar.is
DÆMI ÚR SÖLUSKRÁ
Mitsubishi Outlander Intense, árgerð 2008
ekinn 5.000 km. Sjálfskiptur, bensín.
Verð: 4.280.000 kr.
Yrsa Þöll Gylfadóttir
þræddi sundlaugar höfuð-
borgarsvæðisins og gerði
könnun á skapaháratísku
kvennaklefanna. Eða öllu
heldur hversu algengt það
væri að konur létu fjar-
lægja öll skapahár.
Lausleg niðurstaða var sú að sú
tíska er frekar bundin við hverfi
utan hins gamla kjarna borgar-
innar.
„Ég tók eftir þessari þróun
eftir að ég hafði sjálf verið mikið
í sundi heilt sumar,“ segir Yrsa.
Niðurstöður og grein Yrsu birt-
ust í síðasta tölublaði Stúdenta-
blaðsins. Yrsu segist hafa grunað
að þessi tíska væri mun algeng-
ari eftir því sem fólk byggi í nýrri
hverfum. „Ég hafði tekið eftir því
sjálf og manni virðist sem það
sé ákveðið samasemmerki milli
hugsunarháttar hjá fólki sem vill
til að mynda heimkynni sín öll ný,
há glans, sprautulökkuð og flekk-
laus og að finnast það sjálft eiga að
vera einhver óflekkuð marmara-
stytta. Svo í miðbænum má til að
mynda finna fólk sem vill vernda
gömlu húsin og hallast því kannski
um leið að því að huga að „upprun-
legri“ mynd líkamans.“
Yrsa er sjálf talskona þess að
líkaminn sé ekki skrumskældur
til að þóknast staðalímyndum og
segir að í gríni hafi hún því fengið
leyfi hjá mági sínum, sem sé með-
limur í Torfusamtökunum, til að
kalla sín „samtök“ fyrir verndun
skapahára Torfusamtökin 2.
Þessa dagana er Yrsa í Frakk-
landi að undirbúa sig undir dokt-
orsnám en hún var einmitt á dög-
unum fyrsti nemandinn til að
ljúka meistaraprófi í frönsku við
Háskóla Íslands.
Yrsa segir að það hafi enginn
gert veður út af athugunum henn-
ar enda hafi hún rétt rennt augun-
um yfir svæðið og skráð tölurnar í
huganum – hve margar voru búnar
að fjarlægja öll skapahár og hverj-
ar voru með „mjóa rönd“. „Ég var
nú ekkert að stara en hins vegar
átti litla frænka mín ekki orð yfir
mig og sagði að ég væri perri – hún
hefði séð mig stara á aðra konu í
sturtunni!“
- jma
Kannaði leyndarmál-
in í kvennaklefum
LITLA FRÆNKAN AGNDOFA Yrsa Þöll segir að litla frænkan sín hafi kallað sig perra,
hún hefði séð hana stara á aðra konu í sturtu.
HEIMSÓTTI NÍU SUNDLAUGAR Yrsa Þöll heimsótti sundlaugar höfuðborgarsvæðisins
og rannsakaði skapaháratísku. MYND/SIGURJÓN
folk@frettabladid.is
„Mig langaði til að spyrja
hvort ég mætti sitja með
honum á fyrsta farrými.
Mig hefði aldrei grunað
að ég ætti eftir að hitta
Grammy verðlaunahafa,
hvað þá að vinna tvenn
Grammy verðlaun sjálf.“
ADELE
Um viðbrögð sín þegar
Sir Paul McCartney gaf sig á tal
við hana á flugvelli.
„Mér finnst að mari-
júana ætti að vera
leyft með lögum.
Ekki svo fólk sé í
vímu út um allt,
heldur svo dreif-
ingu þess geti verið
stjórnað.“
RHYS IFANS
um eiturlyfjalög
í Bretlandi.