Fréttablaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 1
HELGARÚTGÁFA
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI21. mars 2009 — 70. tölublað — 9. árgangur
Eiturlyfjastríð í
Mexíkó
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
– helgarferð
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í
3 nætur á Hotel Platanus *** með morgunmat.
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
MARS 2009
Þ
að er hreint ekki skrýtið að ungir
Íslendingar skuli flykkjast til Berlínar,
hvort sem það er í frí eða til þess að
freista þess að búa þar í nokkur ár.
Berlín er næstum orðin nýlenda ungra lista-
manna enda er hún enn með ódýrari borgum
í Evrópu. Það er óneitanlega eitthvað ferskt
og spennandi í loftinu í þýsku höfuðborginni.
Berlín, sem lengi hefur verið tengd við listir og
neðanjarðarkúltúr, hefur öðlast sjálfstraust sitt
á ný og heldur upp á það í sumar að tuttugu ár
verða liðin frá falli múrsins. Hin tuttugu breyt-
ingarár Berlínar eru einmitt þemað í borginni
nú í ár og boðið verður upp á ótal viðburði af
þessu tilefni.
Berlín hefur ávallt verið nátengd listum
og þess má geta að einar mikilvægustu kvik-
mynda- og tónlistarhátíðir eru haldnar í borg-
inni. Raftónlistarsenan í Berlín er heims-
fræg og avant-garde hljómsveitir eins og hin
goðsagnakennda Einsturzende Neubauten
eru nátengdar borginni. Listasenan blómstr-
ar og listamannahverfi eru fjölmörg og barir,
skemmtistaðir og veitingastaðir á hverju horni.
Næturlífið í Berlín stendur alltaf langt fram á
hábjartan daginn.
Hvar á að vera?
Hverfin sem er mest spennandi að eyða tíma í
eru óneitanlega Mitte, Friedrichshain, Prenz-
lauer Berg og Kreuzberg. Mitte er hin gamla
miðja Berlínarborgar þar sem áin Spree rennur
í gegn og var óumdeilanlegur miðbær borgar-
innar fram að annarri heimsstyrjöld. Undan-
48 STUNDIR Í BERLÍN
Hvar á að versla, borða,
drekka og skemmta sér
í svölustu borg Evrópu?
Anna Margrét Björnsson
fann hina fullkomnu
uppskrift.
FRAMHALD Á BLS. 4
Sælkeraborgin San
Sebastian Spænska borgin við
Biscaya-flóann SÍÐA 6
Á skíði um páskana
Bestu skíðasvæðin innanlands
SÍÐA 2
heimili&hönnun
Fermingartilboð 2009
Sjá nánar á www.betrabak.is
LAUGARDAGUR 21. MARS 2009
ASKA Í ÖSKJU
Leirlistafélagið sýn-
ir duftker í Listasal
Mosfellsbæjar.
BLS. 2
Ímyndunarafli hönnuða
VEISLA FYRIR AUGA
OG EYRU Arkitektafé-
lag Íslands stendur fyrir
ýmsum skemmtilegum
uppákomum í tengslum
við HönnunarMarsinn.
BLS. 3
ÚTLÖND 26
VIÐTAL 58
Heimildarmynd
um bankahrunið
VIÐTAL 38
TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG
HLÚIR AÐ FÓTUM
ÚTIGANGSMANNA
Bergdís Þóra Jónsdóttir
smyr og græðir fætur
hjá Hjálpræðishernum
VIÐTAL 30
Sjá nánar á www.betrabak.is
Færðu gesti?
Svefnsófadagar í mars
Mín Borg
ferðablað Icelandair
fylgir með
Fréttablaðinu í dag.
GEYMIÐ BLAÐIÐ
Hártækjadagar
Öll hársnyrtitæki með góðum afslætti en aðeins í nokkra daga.
Sléttujárn, bylgjujárn, vöfflujárn, hárklippur, krullujárn, nefhárasnyrtar, blásarar, hitaburstar,
rakvélar og margt fleira. Vörumerki á borð við Babyliss, Braun, Remington og Philips.
NÍTJÁNDU
ALDAR TÍSKA
HJÁ CHANEL
TÍSKA 54
Hómer er
uppáhald
allra
SJÁVARÚTVEGSMÁL Hafsvalan land-
aði tveimur tonnum af þorski í
Hafnarfjarðarhöfn í gærmorgun.
Úr aflanum verkuðu skipverjar
um 350 kíló af svilum.
Haraldur Þorgeirsson skipstjóri
segir að svilin fari fyrst upp á
Akranes, en þaðan haldi hann að
þau rati í munn Japana. „Þetta á
að vera eitthvað kynörvandi fyrir
þá held ég,“ segir Haraldur. - sh
350 kíló af svilum verkuð:
Svil örva Japani
GIRNILEG SVIL Haraldur Þorgeirsson, skipstjóri á Hafsvölunni, segir að lítið fáist fyrir svilin – ekki nema um þrjátíu krónur á kílóið.
Japönum þyki þau hins vegar góð fyrir kynhvötina. Það hafi hann þó ekki sannreynt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Bjarni Benedikts-
son, þingmaður og formannsefni
Sjálfstæðisflokksins, vill afnema
verðtryggingu og hyggst beita sér
fyrir því. Þetta kemur fram í ítar-
legu fréttaviðtali í dag.
Bjarni leggur til að þessi vinna
hefjist í vor í samráði og sam-
starfi við helstu hagsmunaaðila,
auk þess sem ríkið komi að málum
með afgerandi hætti. Engan tíma
megi missa til að tryggja að hér
myndist húsnæðislánamarkaður
með óverðtryggðum lánum.
Bjarni er efins um að hægt sé
að auka stöðugleika hér á landi
með krónunni og ekki verði leng-
ur umflúið að taka afstöðu til
ESB aðildar. „Rætt hefur verið
um einhliða upptöku annarr-
ar myntar, en ég tel að í gjald-
miðilsmálum sé enginn kostur
jafn sterkur og evran með ESB-
aðild í stað krónunnar,“ segir
hann. Ákvörðun um inngöngu í
ESB verði þó að taka með hlið-
sjón af þeim fórnum sem þarf
að færa. Hann býst við að þetta
verði átakamál innan Sjálfstæð-
isflokksins.
Bjarni telur að fyrrverandi ríkis-
stjórn hafi vanmetið þörfina á pólit-
ísku uppgjöri strax eftir hrun bank-
anna. Sjálfstæðisflokkurinn hafi
hins vegar axlað pólitíska ábyrgð á
efnahagshruninu þegar hann gekk
úr stjórnarsamstarfi við Sam-
fylkinguna og lagði til þjóðstjórn.
Flokkurinn eigi nú brýnt erindi við
kjósendur og bjóði fram með það að
markmiði að komast aftur í ríkis-
stjórn. - bs / Sjá síðu 24
Bjarni vill afnema
verðtrygginguna
Bjarni Benediktsson hyggst beita sér fyrir afnámi verðtryggingar. Langtíma-
stöðugleiki náist ekki með krónunni. Upptaka evru með ESB sterkasti kosturinn.