Fréttablaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 10
21. mars 2009 LAUGARDAGUR
DÓMSMÁL Benjamín Þór Þorgríms-
son var í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær dæmdur í fjórtán mán-
aða óskilorðsbundið fangelsi fyrir
þrjár líkamsárásir. Ein þeirra laut
að árás á veitingamanninn Ragnar
Ólaf Magnússon, sem fréttaskýr-
ingaþátturinn Kompás myndaði og
sýndi í sjónvarpi.
Dómurinn kemst að þeirri nið-
urstöðu að Ragnar hafi ekki verið
tálbeita Kompáss og starfsmenn
þáttarins hafi ekki egnt gildru
fyrir Benjamín og aflað sönnunar-
gagna á ólöglegan hátt. Fundur-
inn sem leiddi til árásarinnar hafi
verið að frumkvæði Benjamíns og
Ragnar hafi ekki ögrað Benjamín
þannig að það réttlætti á nokk-
urn hátt árásina. Benjamín kýldi
Ragnar ítrekað og sparkaði í höfuð
hans.
Benjamín er einnig dæmd-
ur fyrir að ráðast á viðskiptafé-
laga sinn á Hótel Nordica, þegar
sá síðarnefndi neitaði að endur-
greiða Benjamín 30 milljónir sem
hann hafði látið inn í fyrirtæki við-
skiptafélagans. Benjamín kýldi þá
og sló manninn ítrekað á bar hót-
elsins.
Þriðja árásin var á mann sem
var á hlaupum frá fótsnyrti-
stofu í miðborginni sem hann
hafði rænt. Maðurinn hljóp í veg
fyrir bíl Benjamíns sem varð til
þess að Benjamín gekk í skrokk
á honum.
Dómnum verður áfrýjað til
Hæstaréttar. - sh
Benjamín Þór Þorgrímsson sakfelldur fyrir þrjár líkamsárásir:
Kompáshrotti í 14 mánaða fangelsi
BARINN Kompás tók upp árás Benja-
míns á Ragnar Ólaf Magnússon.
MYND / STÖÐ 2
EFNAHAGSMÁL Stjórnvöld munu
tryggja að Íbúðalánasjóður starfi
áfram þrátt fyrir erfiða stöðu
sjóðsins eftir hrun fjármálakerfis-
ins á síðasta ári, segir Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir, félags- og
tryggingamálaráðherra.
Tap af rekstri Íbúðalánasjóðs
var 6,9 milljarðar króna á síðasta
ári, og eigið fé sjóðsins 13,3 millj-
arðar í árslok, eins og kemur fram
í ársreikningi sjóðsins, sem birtur
var í gær.
Eiginfjárhlutfall sjóðsins var
aðeins 4,6 prósent í lok árs 2008.
Langtímamarkmið sjóðsins er
að halda eiginfjárhlutfallinu yfir
fimm prósentum.
Guðmundur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs,
segir eiginfjárhlutfallið ekki
hættulega lágt. Sjóðurinn sé
með ríkisábyrgð, og því séu
viðmiðunarmörk önnur en hjá
bönkunum, sem þurfi að vera með
átta prósenta eiginfjárhlutfall.
Ásta Ragnheiður segir að vitað
hafi verið að staða sjóðsins væri
erfið, en nú hafi þær upplýsing-
ar sem fram hafi komið í október
síðastliðnum verið staðfestar í árs-
reikningi. Íbúðalánasjóður verði
áfram sterkur, og muni geta sinnt
sínu hlutverki áfram.
Íbúðalánasjóður varð fyrir veru-
legum skakkaföllum vegna banka-
hrunsins. Sjóðurinn átti alls rúm-
lega 16,6 milljarða króna kröfu
á viðskiptabankana þrjá vegna
skuldabréfa og afleiðusamninga,
en skuldaði þeim rúmlega 5,3
milljarða. Sjóðurinn reiknar með
að eiga rétt á skuldajöfnun.
Sjóðurinn hefur afskrifað 7,9
milljarða vegna falls viðskipta-
bankanna, og tekið er fram í árs-
reikningi sjóðsins að tapið geti
orðið enn meira. Sjóðurinn átti um
11,3 milljarða umfram skuldir hjá
bönkunum. Guðmundur segir við-
ræður við skilanefndir bankanna
hafa staðið frá því skömmu eftir
bankahrunið, og vonast til þess að
fljótlega sjái fyrir endann á þeim.
Spurður hvort ekki hefði þurft að
afskrifa strax alla 11,3 milljarð-
ana segir hann það ekki hafa verið
mat sjóðsins, vonir standi til þess
að mismunurinn á þeirri upphæð
og afskriftunum náist út úr bönk-
unum.
Takist það ekki standi það sem
áður hafi komið fram, að tap sjóðs-
ins gæti verið tveimur til fjórum
milljörðum meira en nú hafi verið
afskrifað. brjann@frettabladid.is
Erfið staða staðfest
hjá Íbúðalánasjóði
Tap af rekstri Íbúðalánasjóðs var 6,9 milljarðar króna á síðasta ári. Eiginfjár-
hlutfall sjóðsins var 4,6 prósent í árslok. Ekki ný tíðindi og ekki ástæða til að-
gerða segir félagsmálaráðherra. Stjórnvöld tryggja að sjóðurinn starfi áfram.
FASTEIGNIR Íbúðalánasjóður hefur þegar afskrifað 7,9 milljarða króna vegna eigna
sjóðsins hjá viðskiptabönkunum fyrir bankahrunið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það er allt í lagi. Pappelina vill láta ganga yfir
sig á skítugum skónum. Hún er nefnilega úr plasti.
Pappelina virkar því best þar sem mikið álag er
á gólfinu. Tilvalinn félagi í forstofuna eða eldhúsið.
Svo vill hún líka fara í þvottavél.
Plastmotturnar frá Pappelinu hafa farið sigurför
um heiminn og eru nú loksins fáanlegar á Íslandi.
Kíktu á úrvalið í verslun Kokku eða á kokka.is.
Á skítugum
skónum?