Fréttablaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Guðmundar
Steingrímssonar
Í dag er laugardagurinn
21. mars, 80. dagur ársins.
7.24 13.34 19.47
7.09 13.19 19.32
89.900,-
34.900,-
595,-
Nú er svo komið að stór hluti íslenskra heimila getur ekki
borgað af lánunum sínum og skuld-
ar meira en sem nemur eignum.
Það felur í sér að heimilin verða
annað hvort gjaldþrota eða fólk
er dæmt í skuldafangelsi á eigin
heimili. Þá er huggun harmi gegn
að eiga þó flatskjá.
ÚT úr þessum ógöngum virðast
vera tvær leiðir. Önnur leiðin snýst
um greiðsluaðlögun, þar sem fólki
er gefinn kostur á að lengja í lán-
unum, eða að borga bara vexti eða
eitthvað slíkt. Allt eftir hentugleik.
Svona aðlögun hefur vissulega
ýmsa kosti. Hún lækkar greiðslu-
byrðina og getur hjálpað fólki að
lifa sómasamlega frá degi til dags,
en þegar öllu er á botninn hvolft
verður þó tilveran líklega jafn-
nöturleg og áður. Höfuðstóllinn
minnkar varla neitt.
SVONA greiðsluaðlögun gerir
skuldafangelsið kannski aðeins
meira kósí. Og þó. Það er spurn-
ing. Margir dæsa vafalítið við til-
hugsunina um að velta á undan sér
höfuðstól alla ævi, ofan í gröf, og
puða allt sitt líf upp í vextina. Þá
finnst örugglega mörgum betra að
skila lyklunum í bankann, fara á
leigumarkað eða einfaldlega flytja
af landi brott.
HIN leiðin er þess eðlis að
Jóhanna Sigurðardóttir verður
alltaf mjög reið þegar hún heyrir
á hana minnst. Hún snýst um það
að beina sjónum að höfuðstólnum.
Er hugsanlega hægt að minnka
hann? Nú hefur hann vaxið óeðli-
lega mikið undanfarið, og það er
einmitt rót vandans. Um 20% verð-
bólguskot og hrun gjaldmiðilsins
var ekki það sem þorri heimila
gekk út frá í sínum plönum. Hvort
tveggja hefur hækkað höfuðstóla
lánanna upp fyrir mörk allrar
skynsemi.
EINN flokkur hefur skotið því inn
í umræðuna að skynsamlegt gæti
verið í þessari stöðu að afskrifa lán
allra heimila um 20%. Forsenda
fyrir svona aðgerð, og algjört
lykilatriði, er að erlendir kröfu-
hafar afskrifi lánin fyrst. Tvennt
er fengið með þessu, ef vel tekst
til: Stærstur hluti heimilanna losn-
ar úr skuldafangelsi og sér áfram
ástæðu til að greiða, með lækkaðri
greiðslubyrði, af húsunum. Í öðru
lagi kemst fjármagn á hreyfingu í
þjóðfélaginu, neysla eykst og fjár-
festingar, sem aftur vinnur gegn
atvinnuleysi og stuðlar þar með
að því að ennþá fleiri geti greitt af
lánunum sínum.
KANNSKI þarf að fara einhverja
leið sem er útfærsla af öllu þessu,
greiðsluaðlögun og afskriftum. En
eitt er víst: Hrun blasir við. Allar
góðar hugmyndir eru vel þegnar.
Tvær leiðir