Fréttablaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 84
56 21. mars 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Hvað er að frétta? Er að leika Í Ástverki ehf., var
að leikstýra Chicago í FG, skemmti stanslaust sem
annar helmingur gleðiparsins „Viggó og Víóletta“
og er að kenna leiklist sjálfstætt og hjá Leynileik-
húsinu. Þannig að allt er geggjað gott.
Augnlitur: Blágrænn.
Starf: Leikari, leikstjóri, skemmtikraftur og
leiklistarkennari.
Fjölskylduhagir: Fullkomnir. Er giftur Frímanni
Sigurðssyni.
Hvaðan ertu? Frá fallegasta firði Íslands: Tálkna-
firði.
Ertu hjátrúarfullur? Þegar það hentar.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Dýralífsþættir,
South Park, Family Guy og bla bla, svo margir.
Uppáhaldsmaturinn: Humar og sjávarfang.
Fallegasti staðurinn: Tálknafjörður á sumarkveldi.
iPod eða geislaspilari: iPod, var að henda ferða-
geislaspilaranum í vikunni.
Hvað er skemmtilegast? Fíflalæti og hlátursköst.
Hvað er leiðinlegast? Fólk sem er með prik fast
uppi í óæðri endanum á sér.
Helsti veikleiki: Á erfitt með að finna mér frítíma.
Helsti kostur: Traustur.
Helsta afrek: Að lifa af því að vera sjálfstætt
starfandi listamaður síðan ég útskrifaðist fyrir
tveimur árum sem leikari.
Mestu vonbrigðin? Í dag eru það þau að
Selma er ekki enn búin að hringja í mig og
vilja mig í Grease, en það verður búið á
morgun. Það er svo leiðinlegt að staldra of
lengi við vonbrigði.
Hver er draumurinn? Að lifa af listinni.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Anna
Svava Knútsdóttir leikkona og bekkjarsystir úr
leiklistardeildinni.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Hroki.
Hvað er mikilvægast? Heilsan.
HIN HLIÐIN BJARNI SNÆBJÖRNSSON LEIKARI, LEIKSTJÓRI OG SKEMMTIKRAFTUR
Er hjátrúarfullur þegar það hentar
07.07.1978
Sprengjuhöllin fær
góða dóma á blogg-
síðu blaðsins Time
Out Chicago fyrir
tónleika sem hún
hélt á staðnum Opal
Divine´s Freehouse
í Austin í Texas.
Tónleikarnir eru
hluti af tónlistar-
hátíðinni South By
Southwest sem er
haldin um þessar
mundir í Texas.
Gagnrýnandi
blaðsins viðurkenn-
ir í upphafi að hann
eigi erfitt með að bera fram nafn hljómsveitarinnar. Það hafi þó
hjálpað til að aðalsöngvarinn hafi eytt þremur mínútum í að kenna
áhorfendum framburðinn. „Samt sem áður er þetta hljómsveit sem
fólk á eftir að uppgötva,“ skrifaði hann. „Þeir spiluðu upplífgandi,
poppuð lög af svo miklum krafti að hljómsveitarmeðlimirnir urðu
að hoppa hver á annan. Þeir sögðust ætla að verða ríkir og frægir
í Bandaríkjunum og ég sé ekki hvers vegna það geti ekki orðið að
veruleika.“
Erfiður framburður
SPRENGJUHÖLLIN Hljómsveitin Sprengjuhöllin er stödd
í Austin í Texas um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
> ÓTTAST FRÆGÐINA
Duffy segist óttast frægðina sem
hún hefur öðlast að undanförnu. Í
viðtali við ástralska dagblaðið Sid-
ney Morning Herald viðurkennir
söngkonan að sér finnist erfitt
að vera ekki lengur líkt
við söngkonur á borð við
Dusty Springfield og þurfa
nú að standa undir eigin
nafni. Hún segist kunna að
meta það að vera virt fyrir tón-
list sína en ekki vita almennilega
hvað hún vill lengur.
Lagið Þegar þungar þrautir eftir
Begga Dan og Tryggva Má Gunn-
arsson í flutningi höfunda bar sigur
úr býtum í Baráttu- og bjartsýnis-
söngvakeppni hins nýja lýðveldis á
Rás 2.
Alls bárust yfir 100 lög í keppn-
ina og undanfarnar tvær vikur
hefur Rás 2 spilað lögin tólf sem
komust í úrslit, en hugmyndin var
að finna nýtt íslenskt lag sem blæs
þjóðinni bjartsýni í brjóst og fyllir
okkur baráttuvilja til að takast á við
framtíðina. Þjóðin valdi svo á milli
laganna í netkosningu á heimasíðu
Popplands, en í öðru sæti lenti lagið
Sólarylur eftir Þóru Björk Þórðar-
dóttur. - ag
Beggi Dan og
Tryggvi Már sigruðu
BEGGI DAN Lagið Þegar þungar þrautir
sigraði Baráttu- og bjartsýnissöngva-
keppni hins nýja lýðveldis á Rás 2.
Ný barnabók
er komin út
á geisladiski
þar sem vin-
urinn fyrrver-
andi, Jenni-
fer Aniston,
er sögumaður.
Bókin nefnist
Loukoumi´s
Good Deeds
og er sú þriðja í röðinni þar sem
góðverk er umfjöllunarefnið.
Aniston les einnig, ásamt föður
sínum John, aðra sögu sem fylgir
með bókinni. „Jennifer var yndis-
leg. Það var ótrúlega auðvelt að
vinna með þeim og þetta var í
fyrsta sinn sem þau gera eitthvað
þessu líkt saman,“ sagði Nick
Katsoris, höfundur bókarinnar.
Allur ágóði rennur til góðgerðar-
mála.
Aniston les
barnabók
JENNIFER ANISTON