Fréttablaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 94
66 21. mars 2009 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. eyja í asíu, 6. frú, 8. skaði, 9. pfn., 11. átt, 12. framvegis, 14. blóm, 16. í röð, 17. sigað, 18. prjónavarningur, 20. rykkorn, 21. einsöngur. LÓÐRÉTT 1. þurrka út, 3. ólæti, 4. lítilsvirða, 5. herma, 7. rauðber, 10. kvk nafn, 13. fóstra, 15. að utan, 16. spíra, 19. ætíð. LAUSN Helgi Páll Þórisson Aldur: 31 árs. Starf: Forritari hjá Nethönnun. Fjölskylda: Trúlofaður Árdísi Jónu Pálsdóttur. Á með henni eitt barn, Hörpu Hrönn Geirdal Helgadóttur. Foreldrar: Þórir Steingrímsson, lögreglumaður og leikstjóri, og Saga Jónsdóttir leikkona. Búseta: Langholtsvegur. Stjörnumerki: Fiskur. Helgi Páll er leikmaður Skautafélags Reykjavíkur sem fækkaði fötum í fjár- öflunarskyni fyrir nýtt dagatal. LÁRÉTT: 2. java, 6. fr, 8. tap, 9. mig, 11. na, 12. áfram, 14. sóley, 16. áb, 17. att, 18. les, 20. ar, 21. aría. LÓÐRÉTT: 1. afmá, 3. at, 4. vanmeta, 5. apa, 7. rifsber, 10. gró, 13. ala, 15. ytra, 16. ála, 19. sí. „Texti lagsins er eiginlega ótrú- legur miðað við aðstæður,“ segir Baldur Guðmundsson, sonur Rún- ars heitins Júlíussonar. Hann er ásamt bróður sínum, Júlíusi Frey, að leggja lokahönd á síðasta lagið sem gefið verður út með föður þeirra. Lagið hefur ekki heyrst áður en það heitir Ég þrái að lifa og er eftir Elmar Sindra Eiríksson. Lagið verður frumflutt í útvarps- þættinum Reykjavík síðdegis á mánudaginn en það er hljómsveit- in Best fyrir sem leikur undir. Að sögn Baldurs er innihald textans hinsta kveðja sögumanns sem setur lagið í nýtt samhengi. Sagan á bakvið upptökuna á laginu er ótrúleg að sögn Bald- urs. Hún átti sér stað fyrir norðan í fyrra, nánar tiltekið á Fiskideg- inum mikla á Dalvík. „Við vorum þarna saman fjölskyldan og það kemur að máli við Rúnar tónlistar- maður að nafni Elmar,“ útskýr- ir Baldur en Elmar þessi var að setja saman plötu með efni eftir sjálfan sig og bað Rúnar um að syngja fyrir sig lag. Að venju tók Rúnar vel í þá bón og söng lagið inn á sunnudeginum. „Hann setti það ekki fyrir sig þótt hann hefði verið að spila og syngja í tjöldum á bæði föstudags- og laugardags- kvöldinu. Elmar kom bara og sótti hann í hádeginu á sunnudeginum og fór með hann í upptökuverið. Við spáðum síðan ekkert meir í þetta,“ útskýrir Baldur. Skömmu eftir fráfall Rúnars hafði Elmar samband við fjöl- skylduna og sendi þeim upptök- una með laginu, bað þau þó að vera ekki mikið að spá í textann. Baldur segir að þau hafi ekki verið í ástandi til að hlusta og því hafi upptakan legið óhreyfð í dágóð- an tíma. „Hann hafði síðan sam- band við okkur aftur fyrir um hálfum mánuði og bað okkur um að hlusta á lagið en hafa smá fyr- irvara á textanum,“ segir Baldur. Textinn er hins vegar ótrúlegur í ljósi aðstæðna því sögumaðurinn er að deyja, lagið er hans hinsta kveðja. Baldur bætir því við að systir Elmars sé listakona, hún hafi málað mynd af Rúnari og þau hafi mælt sér mót helgina sem Rúnar féll frá. „Myndatextinn á myndinni er ótrúlega lýsandi fyrir þessa röð tilviljana; það þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig,“ segir Baldur. Hann bætir því við að þegar fjölskyldan hafi tekið saman síðasta ár Rúnars á lífi hafi þeim orðið það ljóst að hann skildi eftir sig fáa lausa enda. „Hann var listamaður Reykjanesbæjar, fékk heiðursverðlaun á tónlistar- verðlaununum og náði að gifta sig auk þess að slá síðasta tón Hljóma í Cavern Club,“ segir Baldur. Lagið kemur út á plötu Elmars, Á augna- bliki lokar þú augunum, en mun að öllum líkindum einnig rata á end- urútgáfu fyrstu stóru plötu Rún- ars, Hvað dreymdi sveininn? Bald- ur segir þó ekkert ákveðið hvort lagið muni hljóma í Laugardals- höllinni á minningartónleikunum 2. maí. „Tónleikadagskráin er vel á veg komin og við vitum ekki hvort við komum því að.“ Og það er mikill áhugi á tónleik- unum því uppselt er á A+ og C- svæði og örfáir miðar til á A- og B- svæði. Menn verða að hafa hraðar hendur ef þeir vilja verða vitni að þessum einstaka tónleikaviðburði því hann verður hvorki tekinn upp og gefinn út á DVD-diski né sýnd- ur í sjónvarpi. Þá hefur verið geng- ið frá því að Shady Owens, fyrrum söngkona Trúbrots, fljúgi sérstak- lega til Íslands og syngi á tónleik- unum. freyrgigja@frettabladid.is BALDUR GUÐMUNDSSON: PABBI SKILDI EFTIR FÁA LAUSA ENDA Hinsta kveðja Rúnars Júl Í bókinni Myndir ársins, þar sem getur að líta ljósmyndir frá árinu 2008, er að finna mynd sem ekki hefur komið fyrir augu almenn- ings áður. Hún er tekin að morgni dags þann 8. október 2008 þegar Ingvi Örn Kristinsson, forstöðu- maður verðbréfasviðs Landsbank- ans, stendur uppi á bókaskáp og tilkynnir starfsmönnum sínum að skilanefnd hafi tekið yfir stjórn bankans þá um nóttina. Myndin er tekin á Nokia E65 síma Snorra Ómarssonar sem þá var starfs- maður sviðsins en var sagt upp störfum. Snorri er nú í masters- námi í viðskiptafræði en hann er auk þess menntaður atvinnuflug- maður og bjóst fastlega við því að fara að fljúga einhvern tímann á næstunni. Snorri segir þetta hafa verið sögulega stund. „Það voru í kring- um 100-120 manns sem störfuðu á verðbréfasviðinu og þeir voru eiginlega allir samankomnir um þarna morguninn,“ segir Snorri sem þykir orðið „örlagarík“ lýsa myndinni hvað best. „Þetta var auðvitað mjög sögulegur viðburð- ur og svona hálfgerð Hyde Park- stemning yfir þessu, maður sem stendur upp og segir starfsmönn- um frá örlögum þeirra.“ Snorri segir að útgefandi bók- arinnar, Kristján B. Jónasson, hafi sett sig í samband við hann. „Þetta var svona í gegnum gömlu góðu íslensku aðferðina, maður þekkir mann sem þekkir mann.“ Hann viðurkennir jafnframt að þetta sé mjög skemmtilegt fyrir sig. „Ég þekki blaðamann sem er í félaginu og hefur aldrei fengið mynd birta eftir sig þannig að ég er bara mjög stoltur.“ - fgg Náði mynd af hruni Landsbankans TÓK MYNDINA Á NOKIA Snorri tók myndina á Nokia E65-síma sinn. Hann segist vera ótrúlega stoltur yfir því að fá hana birta í bókinni Myndir ársins. ÖRLAGARÍK Ingvi Örn Kristinsson stendur uppi á bókaskáp og tilkynnir starfsmönn- um verðbréfasviðs Landsbankans að skilanefnd hafi tekið yfir stjórn bankans þá um nóttina. MYND/SNORRI „Við teljum að afeitrun í fögru umhverfi eins og Hvalfirðinum beri mikinn árang- ur, skapi vellíðan og komi í veg fyrir sjúk- dóma,“ segir Edda Sverrisdóttir, ein af aðstandendum heildrænnar detoxmeðferð- ar sem fyrirtækið Krossgötur stendur fyrir. Detoxmeðferðir til Póllands á vegum Jónínu Ben hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár, en meðferðin hjá Krossgötum fer fram á Hótel Glym í Hvalfirði og var kynnt þar fyrir fullu húsi á fimmtudaginn. „Það er mikið af fólki sem stendur á krossgötum núna, sérstaklega eftir það áfall sem þjóðin varð fyrir á haustmánuðum. Margir hafa misst tökin á heilsunni og þetta er ein leiðin til að hjálpa fólki að taka málin í sínar hendur og komast á rétta braut. Ég held að allir sem eru komnir yfir 25 eða 30 ára aldur hafi gott af þessu, líka að afeitr- ast af öllum þeim raftækjum sem eru alltaf í kringum okkur,“ útskýrir Edda. Í detoxmeðferðinni er stuðst við matar- æði dr. Dabrowska sem hún hefur þróað síðastliðna áratugi við góðan orðstír auk þess sem dr. Boris starfar á námskeiðinu, en hann starfar meðal annars á meðferðar- setrinu Uzboja í Póllandi. „Dr. Boris er ótrú- lega magnaður maður sem hefur gríðarlega reynslu. Margir Íslendingar hafa heyrt um hann eða verið hjá honum, en hann hefur þróað aðferð til að afeitra fólk undanfarin níu ár og er sérfræðingur í ristil- og lifr- arhreinsun og höfuðbeina- og spjaldhrygg- smeðferð,“ bætir hún við. Aðspurð segir hún detoxmeðferðirnar í Hvalfirðinum vera mun ódýrari en þær sem fara fram í Pól- landi. „Hótel Glymur er bara 45 mínútur frá Reykjavík svo það þarf ekki að taka tvö flug og það er enginn tímamismunur. Það hlýtur að teljast til bóta og vera freistandi,“ segir Edda, en frekari upplýsingar um námskeið- in má finna á hotelglymur.is undir Kross- götur. - ag Dr. Boris með detoxmeðferðir í Hvalfirði DETOX Í HVALFIRÐI Dr. Boris (aftast í rauðri peysu) verður á námskeiðunum í Hótel Glym sem hefjast 3. maí næstkomandi. HINSTA KVEÐJA HERRA ROKKS Bræðurnir Baldur og Júlíus leggja nú lokahönd á síðasta lagið sem gefið verður út með föður þeirra, Rúnari Júlíussyni. Auglýsingasími – Mest lesið Fréttablaðið greindi frá því að kvartettinn Jógvan, Jónsi, Páll Óskar og Friðrik Ómar muni líklega deila með sér hlutverki í væntan- legu Grease-i. Ekki er víst að það verkefni hafi leitt til fundar þeirra tveggja síðarnefndu í Laugum í gær en sveittir gestir þar veittu því athygli að þeir höfðu margt og mikið að ræða í rækt- inni, svo mikið að þeir gáfu tækjunum lítinn gaum. Íslenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu hefur heillað land og þjóð með glæstum árangri undanfarin misseri. Þjóðin elskar stelpurnar okkar - og þær hver aðra að því er virðist. Þannig hafa Edda Garð- arsdóttir og Ólína G. Viðarsdóttir verið par í áraraðir og á dögunum skaut amor örvum sínum milli þeirra Katrínar Ómarsdóttur og markvarðarins Maríu B. Ágústsdóttur. Allar fjórar léku þær með KR síðasta sumar en Ólína og Edda eru farnar til Svíþjóðar þar sem þær iðka sína íþrótt. Mikill áhugi er á starfi upplýs- ingafulltrúa flugfélagsins Iceland Express sem sjónvarpskonan Lára Ómarsdóttir gegndi áður. Starfið var auglýst í Fréttablaðinu á þriðjudaginn og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. Um 200 manns hafa þegar sótt um og enn er vika eftir af umsóknar- frestinum. - jbg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Hrútseistu. 2 Um eitt prósent. 3 Miranda Richardson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.