Fréttablaðið - 21.03.2009, Side 4

Fréttablaðið - 21.03.2009, Side 4
4 21. mars 2009 LAUGARDAGUR CLEVERNESSHOME Upplýsingar í síma 618 9080 og clevernesshome@clevernesshome.is Vegna aukinnar eftirspurnar erlendra ferðamanna óskum við eftir fleiri sumarhúsum til leigu. SUMARHÚSAEIGENDUR HEILBRIGÐISMÁL Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra segist opinn fyrir hugmyndum Róberts Wess- man um að fyrirtæki hans, „Salt Investments“, flytji sjúklinga hing- að til lands í samstarfi við banda- rísku heilbrigðisstofnunina Mayo Clinic. Hann segist þó gjalda var- hug við og spyr hvers athafnamenn ætlist til af hinu opinbera í tilvik- um sem þessu. „Ég vil, fyrir hönd skattborgara og sem ábyrgðarmaður fyrir heil- brigðiskerfinu hérna, fá vissu fyrir því að hér sé ekki á ferðinni hug- mynd sem byggist á því að fyrir- tæki ætli að fleyta rjómann en láta okkur um kostnaðinn. Þetta eru spurningar sem ég á eftir að fá svör við. Hvað hangir á spýtunni.“ Hann segir Róbert hafa komið að máli við sig en þeir eigi eftir að funda frek- ar þar sem hann býst við að fá svör við þess- um spurningum sínum. Róbert sagði frá þess- um hugmyndum í Morgunblað- inu í gær og þar kemur fram að samstarf „Salt Investments“ og Mayo Clinic gæti skapað um 300 störf. Það gengur meðal annars út á það að rannsaka samfélagshópa með það að mark- miði að koma í veg fyrir sjúkdóma. Vill Róbert þessu samhliða koma upp sjúkraþjálfun, endurhæfingu og atferlismeðferð fyrir offitusjúk- linga. Hann lýsti yfir áhuga á að leigja skurðstofuaðstöðu í Reykja- nesbæ. „Það er ekkert sem stend- ur í vegi fyrir því að fyrirtækið hefji rannsóknir svo lengi sem vís- indasiðanefnd fellst á það,“ segir Ögmundur. „En það þarf að svara mörgum spurningum í þessu til- felli, þetta er ekki eins einfalt og það kann að hljóma. Þetta er ekki spurning um að leigja eina eða tvær skurðstofur. Þetta er spurning um heilbrigðisþjónustu sem verð- ur að byggja á öryggi. Slíkt fyrir- tæki þarf því að hafa bakhjarl í heilbrigðiskerfinu ef eitthvað fer úrskeiðis. Og ég spyr; hver yrði til- kostnaðurinn við það og skuldbind- ingarnar? Ég minni þá jafnframt á að menn eru ekkert of sælir af sínu hlutskipti á Landspítalanum hafi menn hugsað sér hann sem þenn- an bakhjarl.“ Ekki náðist í Róbert Wessman. jse@frettabladid.is Vill fá að vita hvað hangir á spýtunni Heilbrigðisráðherra spyr til hvers „Salt Investments“ ætlist af hinu opinbera áður en hann blessar hugmyndir þess og Mayo Clinic um innflutning á sjúklingum. RÓBERT WESSMAN ÖGMUNDUR JÓNASSON Heilbrigðisráðherra segist opinn fyrir atvinnuskapandi hugmyndum en vill þó fá að vita hvað hangir á spýtunni hjá athafnamönnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HEILBRIGÐISMÁL Hinn fyrsta apríl næstkomandi munu hin skammlífu dagdeildargjöld heyra sögunni til. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra tilkynnti á ríkistjórnarfundi í morgun að þessi gjöld sem sett voru á í ársbyrjun verði þá afnumin. „Mér þykja þessi gjöld alveg óverjandi,“ segir Ögmundur. „Þau lenda á nýrnasjúkum, sem þurfa í blóðskilun, á geðsjúkum sem þurfa mjög á dagdeildarþjónustu að halda og svo á fólki sem er í stífri endurhæfingu eftir alvarleg slys eða meiriháttar sjúkdóma.“ Kostn- aðurinn við að afnema gjaldið er um tíu milljónir króna á árinu. Áður hefur Ögmundur afnumið nýja tekjustofna og hækkanir sem Guðlaugur Þór Þórðarson forveri hans hafði komið á og verður ríkið þar af 360 milljónum króna. „Ég er ekki á móti niðurskurði það er mikill misskilningur ég vil hins vegar standa allt öðruvísi að honum en forveri minn. Þetta er allt spurning um forgangs- atriði og mér finnst það algjörlega óverjandi að þessir hópar séu látn- ir taka skellinn,“ segir Ögmund- ur aðspurður um hvernig eigi þá að skera niður og hvort ákvörðun hans setji ekki enn meiri pressu á niðurskurð á Landsspítalanum. Hann minnir á að aðgerðir hans við að beina lyfjaneyslu í ódýrari lyf, sem hann gerði með nýlegri reglugerð, spari ríkinu um millj- arð. - jse Dagdeildargjöldin verða afnumin um næstu mánaðamót: Óverjandi gjöld segir ráðherra LANDBÚNAÐARMÁL Sigurður Jóhannesson, formaður Lands- sambands sláturleyfishafa, segir að ESB-aðild myndi marka enda- lok íslensks landbúnaðar. „Alveg ljóst er að innganga í Evrópusambandið myndi á fáum árum orsaka endalok íslensks landbúnaðar eins og hann er í dag. Þúsundir starfa myndu tap- ast og breyting verða á byggð landsins. Matvælalegt sjálfstæði þjóðarinnar verður ekki tryggt nema með öflugum íslenskum landbúnaði,“ segir í tilkynningu sem Sigurður ritar undir. Aðal- fundur sambandsins var haldinn síðastliðinn fimmtudag. - shá Sláturleyfishafar álykta: ESB gengur frá landbúnaðinum SLÁTURTÍÐ Sláturleyfishafar telja að ESB myndi marka endalok landbúnaðar. LÍFFRÆÐI Hafrannsóknastofnun lýkur árlegri stofnmælingu botnfiska, eða svokölluðu tog- araralli, á Íslandsmiðum um helgina. Verkefnið hófst í byrj- un mars. Rannsóknasvæðið nær yfir allt landgrunnið niður á 500 metra dýpi – alls tæp- lega 600 togstöðvar. Þrír tog- arar taka þátt í verkefninu auk rannsóknaskipanna Bjarna Sæmundssonar og Árna Frið- rikssonar. Helstu markmið verkefnis- ins eru að fylgjast með breyt- ingum á stofnstærðum, aldurs- samsetningu, fæðu, ástandi og útbreiðslu helstu fisktegunda við landið, og hitastigi sjávar. - shá Hafrannsóknastofnun: Togararalli að ljúka þetta árið ATVINNUMÁL Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins hefur úthlutað rúmlega 35 milljónum króna úr starfsmenntasjóði til 35 verkefna vegna ársins 2009. Að þessu sinni var lögð áhersla á verk- efni sem tengjast erfiðri stöðu á vinnumarkaði og nýtast hópum sem misst hafa atvinnu eða er hætt við atvinnumissi. Þá var opinn flokkur fyrir mik- ilvæg verkefni sem féllu utan áherslna. Meðal þeirra sem fengu styrk var IÐAN fræðslusetur vegna verkefnisins „Hannað í málm“. - jss Starfsmenntaráð: Rúmar 35 millj- ónir í verkefni DANMÖRK, AP Ný kínversk haf- meyja mun hafa vistaskipti við Litlu hafmeyjuna, sem setið hefur á steini við Löngulínu í Kaupmannahöfn í 96 ár, meðan á Heimssýn- ingunni stend- ur í Sjanghæ í sumar. Kínverskir fjölmiðlar höfðu í gær eftir John Hansen, sýn- ingarstjóra Dana, að fjórar tillögur að kín- versku hafmeynni hefðu nú bor- ist í hönnunarkeppni þar eystra, og von væri á fleirum. Upprunalega Litla hafmeyj- an er höfundarverk Edvards Eriksen, sem var hálfur Íslend- ingur. Fyrirmyndin að henni er sótt í ævintýri H.C. Andersens. - aa Heimssýningin í Kína: Litla hafmeyjan fer í langferð LITLA HAFMEYJAN LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS Dag- deildargjöld heyra sögunni til eftir næstu mánaðamót. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEÐURSPÁ Alicante Bassel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° 13° 10° 10° 10° 11° 7° 8° 8° 21° 14° 15° 13° 22° 7° 12° 15° 3° Á MORGUN 6-15 m/s Hvassast sunnan til. MÁNUDAGUR Víða hægur vindur. 10 11 7 8 4 5 6 8 4 11 9 6 5 5 4 5 6 7 6 4 8 0 3 2 3 2 2 2 1 -1 4 -1 SKÚRIR Í dag verð- ur heldur þungbúið og skúrir vestantil en nokkuð bjart eystra. Á morgun verður nokkuð stíf vestlæg átt um sunnanvert landið og slydda eða él á stöku stað, síst þó allra austast. Vorið lætur enn bíða eftir sér því það kólnar heldur næstu daga. Soffía Sveinsdóttir Veður- fréttamaður STJÓRNMÁL Fólkið brást en ekki þau grunngildi sem Sjálf- stæðisflokkurinn starfar eftir, segir í endurskoðunarskýrslu Sjálfstæðisflokksins. Hún kom út í gær, en áður höfðu drög hennar verið sett á vefinn. Í skýrslunni er sagt að efna- hagsvanda Íslendinga megi vissu- lega skýra að einhverju leyti með alþjóðakreppu. Framhjá því verði þó ekki litið að hann sé heimatil- búinn að nokkru leyti. Of seint hafi verið brugðist við mikilli stækkun bankakerfisins og menn hafi einblínt um of á að gera Ísland að alþjóðlegri fjármála- miðstöð og ekki sést fyrir. - kóp Skýrsla Sjálfstæðisflokksins: Grunngildin eru óbreytt GENGIÐ 20.03.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 186,9614 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 113,44 113,98 163,93 164,73 153,85 154,71 20,645 20,765 17,840 17,946 13,923 14,005 1,1874 1,1944 171,36 172,38 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.