Fréttablaðið - 21.03.2009, Qupperneq 6
6 21. mars 2009 LAUGARDAGUR
RÚSSLAND, AP Henry Kissinger,
fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og fleiri af stærstu
„kanónum“ Bandaríkjamanna í
utanríkismálum frá liðnum árum
hafa síðustu daga átt fundi með
Dmítrí Medvedev forseta og fleiri
af æðstu ráðamönnum Rússa í
Kreml. Til fundanna var efnt af
hálfu Bandaríkjamanna í tilraun til
að bæta samskipti ríkisstjórnanna í
Moskvu og Washington.
Medvedev, sem mun eiga sinn
fyrsta fund með hinum nýja banda-
ríska starfsbróður sínum, Barack
Obama, um komandi mánaðamót,
lét hafa eftir sér að þeir fundir sem
hann hefði átt að undanförnu með
starfandi og fyrrverandi fulltrúum
Bandaríkjastjórnar „endurspegl-
uðu markmið beggja þjóða að bæta
samskipti sín“.
Þó er ekki lengra síðan en fyrr í
þessari viku, sem rússneski varn-
armálaráðherrann, Anatolí Ser-
djúkov, sakaði Bandaríkjamenn
um að byggja upp hernaðarmátt
sinn nærri landamærum Rúss-
lands og seilast þar eftir jarðefna-
auðlindum.
Það eru ummæli af þessum toga
sem hafa skapað andrúmsloft sem
sumir hafa viljað líkja við „nýtt
kalt stríð“ en þeirri óheillaþróun
er ríkisstjórn Obama nú að reyna
að snúa við.
Serdjúkov lét þessi ummæli
reyndar falla með Medvedev sér
við hlið á fundi með háttsettum
herforingjum í Moskvu fyrr í vik-
unni. Þau endurspegla djúpstæða
tortryggni Rússa vegna umsvifa
Bandaríkjamanna á fyrrverandi
áhrifasvæði Sovétríkjanna. Med-
vedev lýsti því yfir á sama fundi,
að stækkun NATO, ásamt alþjóð-
legri hryðjuverkastarfsemi og hér-
aðsbundnum átökum, þýddi að það
væri algjört forgangsatriði fyrir
Rússa að láta verða af gagngerri
endurnýjun hernaðarmáttar lands-
ins. Lykilatriði í þeirri uppbygg-
ingu væri efling kjarnorkuvopna-
búrsins. Medvedev hét því að fylgja
þessu eftir þrátt fyrir minni fjár-
ráð rússneska ríkisins vegna fall-
andi heimsmarkaðsverðs á olíu og
gasi og heimskreppunnar.
Hins vegar sagði Medvedev síðar
í vikunni að hann sæi góða mögu-
leika á að takast mætti að leysa
þann ágreining sem ríkt hefur um
áform Bandaríkjamanna um upp-
byggingu eldflaugavarna í núver-
andi NATO en fyrrverandi Var-
sjárbandalagslöndum í austanverðri
Mið-Evrópu. audunn@frettabladid.is
ÞUNGAVIGTARMENN Henry Kissinger og Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands,
brostu sínu blíðasta er þeir heilsuðust í Moskvu á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Vinna að því að bæta
samskiptin við Rússa
Nokkrir mestu þungavigtarmenn bandarískra utanríkismála sátu í gær á rökstól-
um við Dmítrí Medvedev Rússlandsforseta. Erindið er að reyna að bæta samskipti
Rússa og Bandaríkjamanna fyrir væntanlegan fyrsta fund forsetanna tveggja.
VINNUMARKAÐUR S t j ó r n H B
Granda hefur ákveðið að standa
við launahækkanir, sem áttu að
taka gildi 1. mars, en aðilar vinnu-
markaðarins höfðu áður ákveðið
að fresta þeim fram í júní. Fyrir-
tækið mun því hækka taxtalaun
um 13.500 krónur og laun annarra
um 3,5 prósent og gildir það frá
síðustu mánaðamótum. Sex æðstu
stjórnendur fyrirtækisins hækka
ekki í launum.
Eggert B. Guðmundsson, for-
stjóri HB Granda, átti í gær fundi
með forystumönnum Eflingar og
starfsmönnum fyrirtækisins í
Reykjavík og Akranesi þar sem
hann tilkynnti þessa ákvörðun.
Hann sagði að ákvörðuninni hefði
verið tekið með lófaklappi bæði í
Reykjavík og á Akranesi.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, segir
að þetta sé „gríðarlega jákvæður
endir á erfiðu máli. Ég fagna þess-
ari ákvörðun stjórnar HB Granda
innilega. Þetta er fyrsta fyrir-
tækið sem tekur þá ákvörðun að
koma með áður umsamdar launa-
hækkanir þannig að þetta er mik-
ill sigur fyrir allt og alla,“ segir
hann.
Stjórnendur HB Granda harma
þá neikvæðu umræðu sem hefur
verið um fyrirtækið undanfarna
daga. Það er von þeirra að „þessi
ákvörðun skapi frið um rekstur
fyrirtækisins sem er mikilvægur
fyrir starfsfólkið og þjóðarbúið“.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir að ákvörð-
un stjórnar HB Granda hafi engin
áhrif á önnur fyrirtæki eða starfs-
menn þeirra. Ákvörðun stjórnar
HB Granda sé „algjörlega sjálf-
stætt mál“. - ghs
HB Grandi stendur við launahækkanirnar sem hafði verið frestað fram í júní:
Allir nema sex fá hækkun
LÖGREGLUMÁL Starfsmaður Vallaskóla á Selfossi brást
hratt og rétt við þegar hann kom í veg fyrir að hópur
pilta misþyrmdi yngri unglingspilti í fyrradag.
Starfsmaðurinn veitti því athygli er sautján ára
piltur kom í skólann og gaf sig á tal við sextán ára
nemanda skólans. Sá eldri fékk hinn til að koma
með sér út af skólalóðinni. Þá bar þar skyndilega að
nokkra pilta. Skipti engum togum að þeir réðust á
nemandann. Starfsmaður skólans sem hafði fylgst
með fór þegar á milli og kom í veg fyrir frekari árás
á nemandann, sem slapp með minniháttar meiðsli.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi sýndi skólinn hár-
rétt viðbrögð með því að tilkynna atvikið strax til
lögreglu, sem fór þegar af stað til að leita árásar-
mannanna, sem voru fjórir á aldrinum 16 til 19 ára.
Þetta kemur fram á vefsíðu lögreglunnar.
Árásarmennirnir voru skömmu síðar handteknir á
heimilum sínum og færðir til yfirheyrslu á lögreglu-
stöð. Því til viðbótar voru nokkur vitni yfirheyrð.
Piltarnir fjórir játuðu að hafa lagt leið sína að skól-
anum í þeim tilgangi að ráðast á nemandann. Einn úr
hópnum taldi sig þurfa að koma fram hefndum gagn-
vart honum. Lögreglan vill þakka og hrósa skóla-
stjórnendum fyrir að hafa tilkynnt atvikið strax til
lögreglu sem varð til þess að hraða og auðvelda mjög
rannsókn málsins. - jss
VALLASKÓLI Starfsmaður skólans kom í veg fyrir að nokkrir
piltar misþyrmdu nemanda þar.
Hárrétt viðbrögð starfsmanns í grunnskólanum Vallaskóla á Selfossi:
Kom í veg fyrir árás á nemanda
EKKI ÁHRIF Á AÐRA Fulltrúar Eflingar, Sigurður Bessason og Þráinn Hallgrímsson,
hittu Eggert B. Guðmundsson, forstjóra HB Granda, og Vilhjálm Egilsson, fram-
kvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FJÁRMÁL Lokadagur almenns
frests fyrir skattframtöl ein-
staklinga er á mánudaginn, 23.
mars.
Landinn þarf því að grúfa sig
niður í pappíra um fjármál sín
um helgina hið síðasta.
Mögulegt er að vinna sér
tíma með að sækja um frest til
skýrsluskila á skattur.is. Ef hjón
eiga í hlut er nóg að sækja um
frest fyrir annað hjóna. Sami
frestur gildir þá fyrir þau bæði.
Sama gildir um samskattað sam-
búðarfólk.
Ekki þarf að sækja um frest
fyrir börn yngri en 16 ára, hann
fylgir fresti forráðenda. - shá
Skil á skattskýrslu:
Lokadagur á
mánudaginn
Meltingarfærasýkingar
Þrír greindust með nóróveirusýkingu í
febrúar, sem er fækkun frá fyrra mán-
uði. Tveir voru með astróveirusýkingu,
tveir með adenóveiru og einn með
rótaveiru, að því er kemur fram í Far-
sóttafréttum Landlæknisembættisins.
HEILBRIGÐISMÁL
Fékk byssukúlu í pósti
Anders Borg, fjármálaráðherra Sví-
þjóðar, fékk byssukúlu í pósti í fyrra-
dag. Ekki er ljóst hvort kúlunni fylgdi
skrifleg hótun. Kúlan kann að hafa
verið send frá sænska þinginu eða úr
stjórnarráðinu þar sem bréfið hafði
komist framhjá öryggisvörðunum.
SVÍÞJÓÐ
EFNAHAGSMÁL Nýja Kaupþing yfir-
tók í gær rekstur Pennans. Gert
er ráð fyrir því að rekstur Penn-
ans hér á landi verði að mestu
óbreyttur, en erlendur rekstur
verði aðskilinn, samkvæmt upp-
lýsingum frá Kaupþingi.
Eigendur Pennans áttu í við-
ræðum við Kaupþing um end-
urskipulag fyrirtækisins und-
anfarna mánuði, með það að
markmiði að treysta undirstöður
rekstrarins. Þeim viðræðum lykt-
aði með yfirtöku. - bj
Kaupþing yfirtekur Pennann:
Verslanir verða
opnar áfram
Ert þú sátt(ur) við þá ákvörðun
Seðlabankans að lækka stýri-
vexti í 17 prósent?
Já 31,2%
Nei 68,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú gert upp hug þinn fyr-
ir alþingiskosningarnar í apríl?
Segðu þína skoðun á vísir.is
KJÖRKASSINN