Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.03.2009, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 21.03.2009, Qupperneq 40
● heimili&hönnun LAGERSALA Á HÚSGÖGNUM OG SMÁVÖRU í lagerhúsnæði okkar að Norðurhellu 10, Hafnarfirði Opið: Virka daga 12–18 – Laugardaga 10–16 – Sunnudaga 12–16 ALLAR VÖRUR MEÐ 50-90% AFSLÆTTI Mikið úrval af gjafavöru frá Bröste og House-Doctor GJAFAVÖRUHORNIÐ Laugavegi 87 • sími: 511-2004 Aska í öskju er yfirheiti duftkera- sýningar Leirlistafélagsins sem haldin verður í Listasal Mosfells- bæjar. Ragnheiður Ingunn Ágústs- dóttir leirhönnuður er ein þeirra átján hönnuða sem sýna duftker sín á sýningunni. „Lítil hefð er fyrir því hér á Íslandi að láta brenna sig í stað- inn fyrir að jarða en það hefur þó færst í aukana á síðustu árum,“ segir Ragnheiður sem lærði í Frakklandi þar sem ríkari hefð er fyrir slíkum útförum. „Þar er mikið úrval af duftkerjum en hér á Íslandi er úrvalið lítið og flest eru þau innflutt,“ segir hún og bætir við að það hafi vakið áhuga henn- ar og félaga hennar í Leirlistafé- laginu að búa til íslensk og falleg duftker. „Við ákváðum að búa til duftkerin burtséð frá trúarbrögð- um og fólk gat því ráðið hvort það hafði sína trú til hliðsjónar eða ekki,“ segir Ragnheiður sem bjó meðal annars til duftker fyrir dýr. „Fólk binst dýrum sínum miklum tilfinningaböndum og er oft í vand- ræðum með hvað eigi að gera við þau þegar þau deyja. Mér fannst því tilvalið að koma til móts við það fólk.“ Ragnheiður býr þó einnig til duftker fyrir fólk en ólíkt mörg- um öðrum eru kerin hennar ekki dökk og drungaleg. „Ég fór þá leið að vera mjög glaðvær enda er ég alltaf glöð sjálf,“ segir Ragnheið- ur sem notar líflega liti í kerin og prýðir þau með ýmsum styttum. En verður hægt að kaupa duft- kerin? „Já, það verður hægt. Reyndar veit ég um eina sem er búin að taka frá sína hönnun fyrir sig og manninn sinn,“ segir Ragn- heiður og hlær. Hún minnist á að helstu útfararstofum höfuðborgar- svæðisins hafi verið boðið og því aldrei að vita nema íslensk duft- ker muni standa aðstandendum til boða á útfararstofum í framtíðinni. Sýningin er í tengslum við Hönn- unarMars á Laugavegi. Þar verða duftker til sýnis í nokkrum búðar- gluggum. Sýningin verður opnuð á laugardag og hljómsveitin Mojio spilar milli 15 og 17. Hún stend- ur til 18. apríl og verður opin á af- greiðslutíma bókasafnsins, frá 12 til 19 á virkum dögum og 12 til 15 á laugardögum. - sg Hanna duftker óháð trúarbrögðum ● Átján hönnuðir standa fyrir sérstæðri sýningu í Listasal Mosfellsbæjar um helgina. Ragnheiður prýðir kerin með ýmsum styttum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir vöruhönnuður frumsýnir stól sinn, Visual Inner Structure, á Íslandi á HönnunarMarsinum. „Stóllinn er gamall stóll sem fær nýtt líf. Hann er framleiddur í takmörk- uðu upplagi, tuttugu númeruðum eintökum. Þetta er ekki ný hönnun en verður sýnd í fyrsta skipti á Ís- landi. Eintakið sem sýnt verður er númer 18 en síðustu þrjú eintökin eru enn óseld. Hinir stólarnir hafa allir selst til útlanda, jafnvel alla leið til Argentínu,“ útskýrir hún. Stóllinn verður sýndur í Kraumi í Aðalstræti en hann hefur hlotið athygli erlendis. „Stóllinn hefur verið sýndur víða um heim en sala á honum fór á skrið eftir einkasýningu mína í Tools galerie í París sem er umboðsaðili verka minna. Ég hef sýnt önnur verk mín á Íslandi, en þótt stóllinn hafi ekki verið sýndur hér áður hefur verið töluvert um hann fjallað í ís- lenskum tímaritum,“ segir Guð- rún Lilja, ánægð með að taka þátt í HönnunarMarsinum. „Þetta skipt- ir máli og er vel að undirbúningi og framkvæmd staðið. Hingað er boðið fjölda blaðamanna sem stuðl- ar að kynningu og vitundarvakn- ingu á íslenskri hönnun hér og er- lendis.“ Guðrún Lilja sýnir líka í sýningarglugga Sævars Karls ásamt hönnuðinum Sruli Recht. „Þar verð ég með fiðrildahillur og verkið Hraunblóm,“ segir hún og bætir við að vöruhönnuðir sýni í tómu rými og gluggum á Lauga- vegi og Bankastræti á Hönnunar- Marsinum. - hs Frumsýndur í Kraumi ● Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttur vöruhönnuður frumsýnir stól sinn Visual Inner Structure á HönnunarMarsinum og sýnir að auki ýmis spennandi verk í búðarglugga Sævars Karls. ● Forsíðumynd: Nordicphotos Getty Images Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is Auglýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlitshönnuður: Kristín Agnars- dóttir kristina@frettabladid.is. „Ég verð með fyrirlestur í Þjóðminjasafninu föstudaginn 27. mars, klukkan 14, þar sem ný verk verða kynnt og ég ræði um framtíðarmöguleika í hönnun. Fleiri áhuga- verðir fyrirlestrar verða þar einnig.“ segir Guðríður Lilja. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETURA heimili&hönnun Fermingartilboð 2009 Sjá nánar á www.betrabak.is ÍSLENSKA PARIÐ Whirlpool AWZ7465 6kg tvíátta barkalaus ÞURRKARI með 6th Sense rakaskynjara, 2 hitastigum og köldum blástri. Íslenskur leiðarvísir. Whirlpool AWOD6730 1400 snúninga og 6kg ÞVOTTA- VÉL með stafrænu kerfisvali, 6th Sense sem skynjar óhrein- indi í vatni og flýtir þvottatíma, rafeinda stýrðum kerfisveljara og hitastilli, stafrænni niður- talningu og ullarkerfi. Íslenskt stjórnborð og leiðarvísir. TILBOÐ FULLT VERÐ 124.995 99.995 TILBOÐ FULLT VERÐ 119.995 89.995 EYRARVEGI 21 SELFOSSI SÍMI 480 3700 - GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK SÍMI 464 1600 - GLERÁRGÖTU 36 AKUREYRI SÍMI 460 3380 - SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK SÍMI 569 1500 ÞVOTTAVÉL MEÐ ÍSLENSKU STJÓRNBORÐI OG ÍSLENSKUM LEIÐARVÍSI LAUGARDAGUR 21. MARS 2009 ASKA Í ÖSKJU Leirlistafélagið sýn- ir duftker í Listasal Mosfellsbæjar. BLS. 2 SÉRSTAKIR STÓLAR Ímyndunarafli hönnuða virðist stundum engin takmörk sett. BLS. 3 VEISLA FYRIR AUGA OG EYRU Arkitektafé- lag Íslands stendur fyrir ýmsum skemmtilegum uppákomum í tengslum við HönnunarMarsinn. BLS. 3 21. MARS 2009 LAUGARDAGUR2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.