Fréttablaðið - 21.03.2009, Page 42

Fréttablaðið - 21.03.2009, Page 42
Nýttu tímann Skráning og nánari upplýsingar í síma 554 6626 eða á www.redcross.is/kopavogur Kópavogsdeild, Hamraborg 11, sími 554 6626, kopavogur@redcross.is námskeið fyrirlestrar samverur Viðburðirnir eru frá kl. 10 - 13 og eru fyrst og fremst ætlaðir atvinnulausum og þeim sem hafa þurft að minnka við sig vinnu, þeim að kostnaðarlausu. Verkefnið er í samvinnu við Kópavogsbæ. Dagskrá 25. mars Fatasaumur 1 - fjögur skipti (biðlisti) 30. mars Hreyfing 2 - Tai chi og jóga 31. mars Fjármálalæsi 1. apríl Fatasaumur 2 6. apríl Hreyfing 3 - Tai chi og jóga 7. apríl Að efla framkomu og virkni 8 8. apríl Fatasaumur 3 5. apríl Hreyfing 4 - Tai chi og jóga 2 . apríl Fatasaumur 4 22. apríl Opið hús - fyrirlestur um heilsufar og matarræði 27. apríl Ræktun kryddjurta 28. apríl Stofnun fyrirtækja 29. apríl Nýsköpun 4. maí Taflkennsla 45. maí Óhagga leg lögmál markaðarins 6. maí Briddskennsla 11. maí Ljósmyndakennsla 12. maí Gerð viðskiptaáætlana 13. maí GPSkennsla - kennsla á GPS-tæki Tr y g g v a g ö t u 19 • 101 R e y k j a v í k S í m i 5 62 5 0 3 0 • w w w . k o l a p o r t i d . i s Kolaportið er OPIÐ laugardaga og sunnudaga frá kl. 1100-1700 Barþjónar keppa um Íslands- meistaratitil um helgina. Íslandsmeistaramót barþjóna 2009 verður haldið á Broadway á morg- un. Mótið ber yfirskriftina Fancy og Flair en keppt verður í fagur- og/eða furðudrykkjum. Keppt verður í þremur flokkum og mun Íslandsmeistarinn taka þátt í heimsmeistaramóti barþjóna í Berlín í ágúst næstkomandi. Þá verður í fyrsta sinn keppt í svo- kallaðri vinnustaðakeppni þar sem vinnustaðir keppa sín á milli um besta „kokkteil næturlífsins“. Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi, verður kynnir á mótinu og fönk- sveitin Glassúr heldur uppi stuði. Nánar á vefsíðunni www.bar.is - sg Hver á besta drykkinn? Fallegir drykkir verða blandaðir á Íslandsmeistaramóti barþjóna um helgina. Sérstakir barnatónleikar verða haldnir í Bústaðakirkju á sunnu- dag þar sem flutt verða lög af nýjum geisladiski fyrir börn. Segja má að ýmis furðufyrirbæri muni gera innrás í Bústaðakirkju næstkomandi sunnudag, þegar haldnir verða sérstakir barnatón- leikar í tilefni af útkomu barna- geisladisksins Æintýraheimur ófétanna. Diskurinnn inniheldur lög Óskar Óskarsdóttur og ljóð Rúnu K. Tetzschner sem helguð eru sér- stökum skáldskaparverum, ófét- unum, sem fyrst var fjallað um í myndskreyttri barnasögu Rúnu K. Tetzschner, en hún mun einnig lesa upp og sýna myndir af ófétun- um og álfum, sem þau minna um margt á. Börn úr barnakórum Bústaða- kirkju syngja ásamt Ósk Óskars- dóttur sem auk þess leikur á píanó. Álfheiður Erla Guðmundsdótt- ir syngur sérstakan Fiðrildasöng ófétanna og Númi Björnsson leikur á gítar. Jóhanna V. Þórhallsdóttir stýrir kórunum. Tónleikarnir eru haldnir við barnamessu Bústaðakirkju og hefj- ast klukkan 11. Séra Pálmi Matthí- asson messar og Bára Elíasdóttir hefur umsjón með barnamessunni. - rve Óður til ófétanna Tónleikarnir fara fram í Bústaðakirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS flytur Pétur og úlf- inn fyrir yngstu tónlistarunnendurna í Háskólabíói í dag klukkan 14. Þetta eru fyrstu tónleikarnir í röð fjölskyldutónleika sem Sinfóníuhljómsveitin ætlar að halda. NÁM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.