Fréttablaðið - 21.03.2009, Side 58

Fréttablaðið - 21.03.2009, Side 58
● heimili&hönnun Þú sefur betur í rúmi frá Lúr 10:00 – 18:00m á nf ö s Opnunartímar: 11:00 – 16:00l a u LÚR - BETRI HVÍLD hö nn un : w w w .o rig am i-a rt .n et Ef þú vilt þægindi og góða hvíld eru rúmin frá Passion góður kostur fyrir þig. Passion framleiðir afar vönduð rúm og eru þau tvímælalaust með bestu rúmakaupunum í dag. Dýnan bíður upp á tvo stífleika sem þú getur alltaf breytt á einfaldan hátt. Hægt er að velja um sjö tegundir fóta og fimm mismun- andi áklæði á rúmin. Þá er hægt að velja þrjár tegundir af yfirdýnu, latex-, þrýstijöfnunar- eða svampdýnu. Passion rúmin koma í ýmsum stærðum. Þráðlaus fjarstýring með barnalæsingu fylgir Passion rúmu- num og kraftmiklir en hljóðlátir rafmagnsmótorar gera það að verkum að Passion rúmið færist mjúklega og hljóðlega í hvaða stöðu sem þú velur. Frábærir hvíldarsófar, stólar og tungusófar í miklu úrvali á frábæru verði, þrír litir í boði, alklæddir leðri. Hægt er að velja um vinstri eða hægri tungu, margar stærðir. Einnig góðir vinnustólar sem stuðla að réttri líkamsstöðu við vinnuna. Passion Box Hægt er að velja úr fjölmörgum útgáfum af fótum og áklæði fyrir rúmin frá Passion Passion Continental Passion Slide Back Passion, Góður lúr - gulli betri Þægindin í fyrirrúmi ÓREGLULEG SKÝ Ljósið Kumulus eftir sænska hönnuðinn Peter Nilsson varð til þegar hann nam hönnun við Växjö-háskólann í Svíþjóð. Þar var honum falið að skapa hlut sem hefði enga fyrir- framskilgreinda lögun. Úr varð ljós sem Peter lýsir sem hrærigraut úr gleri. Ljósið sér hann fyrir sér í miðju herbergi eða öðru rými og líkir hann því við óreglulegt ský. Ljósið fæst hjá Belysningsbolaget í Svíþjóð. Sjá nánar á http://www.belysningsbolaget.se/ S tigarnir gerast vart glæsilegri en þessi, sem prýðir hús nokkurt í Kuala Lumpur og er hannaður af hönnunarfyrirtækinu Jouin Manku í París. Húsið, sem er innréttað af fyrirtækinu í samstarfi við arkitekta YTL Design Group, er engin smá- smíði eða 3.000 fermetrar, sem rúma níu svefnherbergi, eldhús, bókasafn, leikherbergi, skrifstofu, borðstofu, sundlaug, tvö gestaherbergi, 21 baðherbergi og kapellu svo fátt eitt sé nefnt. Enda hýsir það hvorki meira né minna en þrjár kynslóðir. Engin smásmíði Stiginn er stór og flókinn að gerð. ● BLÚNDUDÚKUR VERÐ- UR AÐ HJÓLAKÖRFU Með vorinu verður aftur hægt að ferð- ast um á reiðhjóli. Til að hjólið nýtist sem best sem samgöngu- tæki er nauðsynlegt að hafa á því góða körfu. Hjólakarfan Carrie eftir vöru- hönnuðinn Marie Louise Gustafs- son er skemmtilega sumarleg og er framleidd í þremur litum: svörtu, hvítu og grænu. Karfan getur nýst á hjólið en einnig sem innkaupakarfa en axlaról fylgir töskunni. Karfan á einnig að geta nýst sem lítið borð í lautarferð. Hún kemur í flötum pakka og er svo smellt saman framan á hjólið. Hönnuðurinn segir munstur körfunnar sprottið út frá blúndu- dúkum ömmu sinnar sem hún útfærði í plast. Nánar á www.designhouses- tockholm.com. hönnun 21. MARS 2009 LAUGARDAGUR4

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.