Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.03.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 27.03.2009, Qupperneq 2
2 27. mars 2009 FÖSTUDAGUR Einar, eru þríhjól ekki meira en nóg fyrir börnin? „Jú, þú þarft ekki bílpróf á þau eins og á fjórhjólin.“ Fyrirtækið SportX á Akureyri býður til sölu vélknúin fjórhjól fyrir börn frá þriggja ára aldri. Einar Magnús Magnússon er upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Skíðabogar EFNAHAGSMÁL Starfsmenn skila- nefnda viðskiptabankanna þriggja hafa fengið að meðaltali um 3,2 milljónir króna í mánuði í verk- takagreiðslur. Þetta kemur fram á minnisblaði sem fulltrúi Fjármála- eftirlitsins (FME) kynnti viðskipta- nefnd Alþingis í gær. Þar kemur fram að kostnaður við uppskipti bankanna stefnir í að ná einum milljarði króna um næstu mánaðamót, segir Álfheiður Inga- dóttir, formaður viðskiptanefnd- ar. Kostnaðurinn fellur á ríkissjóð, ýmist beint eða í gegnum FME. „Mér finnst þetta vel í lagt,“ segir Álfheiður, spurð hvort hún telji verktakagreiðslur til nefndar- manna eðlilegar. Greiðslurnar séu á ábyrgð FME, sem samið hafi við nefndarmenn. Meirihluti kostnaðarins tengist vinnu endurskoðunarfyrirtækja og annarri aðkeyptri vinnu. Verktakagreiðslur til skila- nefndarmanna numu 238 milljón- um króna í lok febrúar. Nefndirn- ar höfðu þá verið að störfum í um fimm mánuði. Fimm eru í hverri nefnd, ýmist lögmenn eða endur- skoðendur. Þeir taka við greiðsl- unum í gegnum fyrirtæki sín. Innifalið í 3,2 milljóna króna greiðslu er 24,5 prósenta virðis- aukaskattur. Þegar hann hefur verið dreginn frá standa eftir um 2,4 milljónir króna. Af því þarf svo að greiða tekjuskatt, tryggingar- gjald, orlof og í lífeyrissjóð. „Þetta er auðvitað í hærri kant- inum,“ segir Gylfi Magnússon við- skiptaráðherra. Sérstaklega sé horft til þess að um langtímaverk- efni sé að ræða. Hann segir greiðslurnar þó ekki út úr korti miðað við vinnu lögfræðinga og endurskoðenda tengda þrota- búum almennt. F y r i r r í k ið skipti meiru hvað komi út úr búinu en greiðslur ti l skilanefndar- manna, enda séu greiðslur til þeirra dvergvaxnar í saman- burði við það sem komið gæti út úr bönkunum. Viðskiptanefnd Alþingis fjall- aði í gær um frumvarp um slit við- skiptabankanna, en náði ekki að ljúka umfjöllun sinni um það. Þar er meðal annars ætlunin að fella kostnað vegna skilanefndanna sem til fellur eftir lagabreyting- arnar á þrotabú bankanna, eins og venjan er í gjaldþrotamálum. Þá verður fellt út lagaákvæði sem bannar málsókn gegn bönk- unum, og er full samstaða um það í nefndinni, segir Álfheiður. brjann@frettabladid.is Nefndarmenn fá 3,2 milljónir á mánuði Kostnaður við uppskipti viðskiptabankanna þriggja verður kominn í milljarð króna um mánaðamót. Hver skilanefndarmaður fær að meðaltali um 3,2 millj- ónir á mánuði í verktakagreiðslur. Í hærri kantinum, segir viðskiptaráðherra. FRUMVARP Ekki tókst að ljúka umfjöllun um frumvarp sem færa mun kostnað við uppgjör viðskiptabankanna í þrotabú þeirra á fundi viðskiptanefndar í gær. Stefnt er að því að frumvarpið verði að lögum fyrir þinglok. FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND ÁRNI TÓMASSON Formaður skila- nefndar Glitnis. STEINAR ÞÓR GUÐGEIRSSON For- maður skilanefndar Kaupþings. LÁRUS FINNBOGA- SON Formaður skilanefndar Lands- bankans. EFNHAGSMÁL Stjórnvöld í Rússlandi hafa óskað eftir nánari upplýs- ingum vegna 500 milljóna dollara láns sem Íslendingar vilja fá frá Rússum. Þetta kom fram í vefút- gáfu viðskiptatímaritsins Forbes í gær. Er þetta haft eftir Konstan- tin Vyshkovsky, yfirmanni lána- deildar fjármálaráðuneytisins. Vyshkovsky segir þörf á þessum upplýsingum áður en ákvörðun er tekin um lánið sem svarar til um 60 milljarða króna. „Við vilj- um vita hvaða samkomulagi hefur verið náð við aðra lánardrottna,“ segir Vyshkovsky við Forbes. - gar Viðskiptatímaritið Forbes: Ísland vill enn fá Rússalánið MOSKVA Rússar vilja meiri upplýsingar áður en þeir lána 500 milljónir Banda- ríkjadala. KASAKSTAN, AP Geimfar sem bar bandaríska milljarðamæringinn Charles Simonyi af stað til stjarn- anna lagði klakklaust af stað frá Norður-Kasakstan í gær. Somonyi, sem er sextugur hug- búnaðarhönnuður, greiddi um 35 milljónir Bandaríkjadala fyrir ferðina, sem jafngildir um 4,1 milljarði króna. Förinni er heitið til alþjóðlegu geimstöðvarinnar, en um tvo daga tekur að koma geimfarinu að stöðinni. Þetta er önnur ferð Simonyi með rússneskri geim- flaug. Auk hans var einn rúss- neskur geimfari og einn banda- rískur með í för. - bj Geimferðalangur af stað: Geimskotið gekk að óskum GEIMFERÐ Bandaríski geimferðalangur- inn Charles Simonyi virtist klár í slaginn áður en lagt var af stað í langferðina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LONDON, AP Bresk stjórnvöld hafa fyrirskipað lögreglurannsókn á ásökunum fyrrverandi fanga í Gvantanamo-fangabúðunum á Kúbu þess efnis að fulltrúar bresku leyni- þjónustunnar hafi verið viðriðnir pyntingar hans í öðrum löndum. Fanginn, Binyam Mohamed, full- yrðir að hann hafi verið pyntaður um sjö ára skeið í Marokkó, Pak- istan og Afganistan. Það hafi verið gert með fullri vitund að minnsta kosti eins fulltrúa bresku leyni- þjónustunnar MI5 og að leyni- þjónustan breska hafi enn fremur látið kvölurum hans í té spurning- ar sem nota ætti við yfirheyrslur yfir honum. Fulltrúar leyniþjónustunnar hafna því að hafa ógnað honum eða þrýst á að hann talaði. Í yfirlýsingu frá Mohamed seg- ist hann fagna því að málið skuli rannsakað en þó verði að forðast að gera þennan tiltekna fulltrúa leyniþjónustunnar að blóraböggli fyrir möguleg lögbrot stofnunar- innar. Hann hafi aðeins verið að hlýða skipunum. Mohamed var handtekinn í Pak- istan árið 2002 grunaður um að tengjast hryðjuverkastarfsemi. Hann losnaði úr Gvantanamo-búð- unum í janúar á þessu ári og hefur síðan verið að jafna sig á óþekktum stað í Bretlandi. - sh Breska leyniþjónustan sökuð um að eiga þátt í pyntingum: Meintar pyntingar í rannsókn GVANTANAMO Mohamed dvaldi lengi í Gvantanamo-fangabúðum Bandaríkja- manna á Kúbu. SKOÐANAKÖNNUN Alls 46,6 prósent segjast nú vilja að sótt verði um aðild að Evrópusambandinu. 53,4 prósent eru því mótfallin. Vikmörk í nýrri könnun Fréttablaðsins eru 3,9 prósentustig og er því ekki marktækur munur á milli þeirra sem eru fylgjandi og mótfallnir því að sótt verði um. Nánast engin breyting er á afstöðu fólks frá síðustu könnun blaðsins fyrir tveim vikum þegar 45,5 prósent voru fylgjandi því að sækja um aðild og 54,5 prósent voru því mótfallin. Líkt og í síðustu könnun er nánast enginn munur á afstöðu fólks eftir kyni, en íbúar á höfuðborgar- svæðinu eru því heldur meira fylgjandi að sótt verði um aðild. Tæplega 80 prósent kjósenda Samfylkingar eru hlynnt aðildarviðræðum og tæplega 50 prósent kjós- enda Framsóknarflokks. Rúmlega 40 prósent kjós- enda Vinstri grænna og þeirra sem ekki gefa upp stuðning við flokk eru aðildarviðræðum fylgjandi. Minnstur er stuðningur við aðildarviðræður meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins, en tæp 24 prósent eru því fylgjandi nú að sótt verði um aðild. Hringt var í 800 manns miðvikudaginn 25. mars og skiptust svarendur jafnt eftir kyni og hlutfalls- lega eftir búsetu. Spurt var: Á Ísland að sækja um aðild að Evrópusambandinu. 79,4 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar. - ss Könnun Fréttablaðsins um aðildarviðræður við Evrópusambandið: Afstaða til ESB helst stöðug Já Nei Á að sækja um aðild að Evrópusambandinu? fe b. 06 ja n. 07 se p. 07 fe b. 08 ok t.0 8 nó v. 08 ja n. 09 fe b. 09 m ar .0 9 25 .m ar .0 9 80 70 60 50 40 30 34,3 65,7 31,2 68,8 53,9 46,1 46,6 53,4 LÖGREGLUMÁL Piltarnir þrír sem handteknir voru í fyrradag vegna umfangsmikillar kannabisræktun- ar í Þykkvabæ, sættu yfirheyrsl- um hjá lögreglu í gær. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er grunur um að þeir hafi náð að selja eitthvað af ræktuninni áður en lögreglan upprætti hana. Nokkrir þeirra hafa komið við sögu lögreglu áður vegna fíkni- efnamála. Þeir reyndust samvinnu- fúsir við yfirheyrslur í gær. Ekki var gerð krafa um gæsluvarðhald yfir þeim og var þeim sleppt eftir skýrslutökur í gærkvöldi. - jss / sjá síðu 8 Kannabisræktun í Þykkvabæ: Grunaðir um að hafa selt efni Lán fyrir afborgun láns Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í gær að taka hálfan milljarð króna að láni hjá Lánasjóði sveitarfélaga til 15 ára. Lánið er tekið til að greiða afborgun af skammtímaláni sem einnig er hjá Lánasjóðnum. HAFNARFJÖRÐUR IÐNAÐARMÁL Hvalfjarðarsveit og Hafnarfjörður eru efst á blaði varðandi staðsetningu gagnavers eða netþjónabús sem undirbún- ingsfélagið Titan Global hefur í hyggju að reisa hér á landi. Skessuhorn greinir frá þessu. Stefnt er á að framkvæmdir geti hafist í byrjun næsta árs. Jónas Tryggvason, framkvæmda- stjóri félagsins, segir að netþjóna- bú verði risið á báðum stöðum innan fimm ára. Áætlað er að um 100 manns starfi við hvort bú. Staðsetning iðnaðarlóða í Hvalfjarðarsveit og Hafnarfirði ræður mestu um að þessi sveitar- félög eru efst á blaði. - shá Hvalfjörður og Hafnarfjörður: Gagnaver reist í byrjun árs 2010 % SPURNING DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.