Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 3
27. mars 2009
Kæri lesandi,
SEATTLE – NÝR OG SPENNANDI ÁFANGASTAÐUR
Mér er sérstakt ánægjuefni að skýra frá því að 22. júlí mun Icelandair hefja beint
áætlunarflug fjórum sinnum í viku milli Íslands og Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna.
Velgengni Icelandair byggir á stöðugri útsjónarsemi, þróun og aðhaldi. Áætlunarflug til
Seattle gefur félaginu ný og ábatasöm sóknarfæri þar sem hið öfluga og einstaka leiðakerfi
Icelandair, styrkur félagsins og sveigjanleiki, gera okkur kleift að bjóða stystu flugleiðina milli
Skandinavíu og Seattle og hagkvæman kost fyrir farþega frá öðrum áfangastöðum
Icelandair í Evrópu.
ALLT AÐ 100 NÝ STÖRF Á ÍSLANDI
Jafnframt er það mikið ánægjuefni að við gerum ráð fyrir að hundrað nýrra starfsmanna fái
starf hér á Íslandi í tengslum við flug til Seattle auk þess sem aukinn ferðamannastraumur
skapar mikilvæg störf um allt land.
Á erfiðum tímum í efnahagslífi þjóðar skiptir höfuðmáli að snúa vörn í sókn. Þess vegna var
sú ákvörðun tekin að hefja áætlunarflug til Seattle og þess vegna horfum við hjá Icelandair
björtum augum til framtíðarinnar.
Kær kveðja,
Birkir Hólm Guðnason,
framkvæmdastjóri Icelandair
ICELANDAIR
REYKJAVÍKURFLUGVELLI, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 50 50 300, FAX 50 50 766