Fréttablaðið - 27.03.2009, Side 4

Fréttablaðið - 27.03.2009, Side 4
4 27. mars 2009 FÖSTUDAGUR VEÐURSPÁ heimurinn Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 21° 8° 10° 9° 6° 9° 9° 10° 7° 7° 20° 11° 17° 29° 10° 10° 16° 3° -7 -7 -8 -8 -6 0 1 1 -4 -6 -9 3 4 5 á morgun 5-13 m/s -5 sunnudagur 10-20 m/s 5 6 6 5 6 5 3 3 -6 -4 -4 -1 helgin Í fyrramálið verður komin snjókoma á vesturhelmingi lands- ins samfara vaxandi vindi af suðri. Smám saman gengur úr- komuloftið yfir landið. Þegar líður á daginn hlánar syðst og vest- ast og þar þróast því úrkoman yfir í slyddu eða rigningu. Óvissa ríkir um sunnudags- veðrið. Helst er að sjá hvassa norðanátt nyrðra með éljum norðan og vestan til. Kalt í veðri. -1 -3 -4 03 sigurður Þ. ragnarsson veður- fræðingur KÖnnUn „Ég vaknaði allhressi- lega við lestur Fréttablaðsins í [gær]morgun, eins og, held ég, margir aðrir framsóknarmenn,“ segir Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknar- flokksins, um niðurstöður skoðanakönn- unar Frétta- blaðsins, þar sem flokkurinn mælist með 7,5 prósenta fylgi, sem er það minnsta á árinu. „Þetta er í raun og veru ekki í takt við þá strauma sem ég hef fundið gagnvart flokknum á und- angengnum vikum og mánuðum. Þannig að niðurstaðan er vissu- lega mikil vonbrigði,“ segir Birk- ir, en telur þó að könnunin muni hleypa kappi í flokksmenn. Hann hefur ekki trú á að niðurstaða kosninga verði á þessa leið. - sh Varaformaður Framsóknar: Könnunin er mikil vonbrigði Birkir Jón Jónsson STjóRnmÁl Vigdís Hauksdóttir, oddviti á lista framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi suður, seg- ist ætlar ekki að höfða mál gegn ASÍ fyrir að hafa látið sig velja milli starfsins og þess að taka sæti á framboðslista þegar hún óskaði eftir launalausu leyfi fram yfir kosningar. Vigdís segist þekkja hið sanna í málinu og hún líti svo á að nú sé málinu lokið af sinni hálfu. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, kannast ekki við að neinn starfs- maður ASÍ hafi óskað eftir launa- lausu leyfi vegna framboðs til Alþingis í vor. Ásakanir um að starfsmönnum ASÍ sé mismunað á grundvelli pólitískra skoðana séu úr lausu lofti gripnar. - ghs Oddviti Framsóknar: Málinu lokið af minni hálfu ÍSRAEl, AP Ísraelsher hafnar full- yrðingum Palestínumanna um að meirihluti þeirra sem féllu í átök- um á Gasaströnd í janúar hafi verið óbreyttir borgarar. Í yfirlýsingu frá Ísraelsher í gær kemur fram að 1.166 manns hafi látist í átökunum. Þar af hafi 709 verið vígamenn Hamas-sam- takanna og tæplega 300 hafi verið óbreyttir borgarar. Talsmenn hers- ins gátu ekki gert grein fyrir stöðu 162 manna sem létust í átökunum. Palestínumenn segja 1.417 hafa fallið. Af þeim hafi yfir 900 verið óbreyttir borgarar. - bj Deilt um látna í átökum: Segja meiri- hluta vígamenn særðir Yfir eitt þúsund létust í þriggja vikna átökum í byrjun árs, og þúsundir til viðbótar særðust. FRéttABLAðið/AP STjóRnmÁl Geir H. Haarde, frá- farandi formaður Sjálfstæðis- flokksins, sagði það stærstu mis- tök sjálfstæðismanna sem tengjast bankakerfinu að hafa fallið frá stefnu um dreifða eignaraðild við einkavæðingu bankanna fyrir sex árum. „Ég ber mína ábyrgð á því að svona var búið um hnútana á sínum tíma og á þeim mistökum er rétt að biðjast afsökunar. Geri ég það hér með,“ sagði Geir. Geir varði mestum tíma í að gera upp banka- og efnahags- hrunið í ræðu sinni en horfði til framtíðar í Evrópumálum. Hann vonast til að tillaga Evrópu- nefndar flokksins um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu, annars vegar um aðildarviðræður og hins vegar um niðurstöðu þeirra, verði samþykkt en tillagan verður kynnt í dag. Geir segist hafa íhugað stjórn- arsamstarf við Vinstri græna eftir alþingiskosningarnar árið 2007. Sagðist Geir hafa reynt for- ystumenn VG að orðheldni og heilindum í löngu samstarfi á Alþingi en hins vegar hafi mál- efnalegur ágreiningur reynst of mikill þegar upp var staðið. Geir sagði að peningamálastefna Seðlabankans hafi brugðist; háir vextir hafi dregið að sér erlent fjármagn og aukið á þenslu í stað þess að draga úr henni. Geir fullyrti í ræðunni að strax í janúar hefði Seðlabankinn mælt með lækkun stýrivaxta í ljósi hratt lækkandi verðbólgu en Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn metið óvissu í stjórnmálum með þeim hætti að rétt væri að bíða með lækkun. „Af þessum sökum dróst vaxtalækkun- in um tvo mánuði,“ sagði Geir. Í janúar vildu sjálfstæðismenn ráðast í aðgerðir sem meðal ann- ars fólu í sér endurskoðun pen- ingamálastefnunnar og að efla atvinnusköpun með því að hefja hvalveiðar og ráðast í álversfram- kvæmdir í Helguvík og á Bakka. Geir sagði það mistök að hafa fallist á kröfu Framsóknarflokks um 90 prósenta húsnæðislán að loknum kosningum 2003 og skattalækkanir á þeim tíma megi jafnframt gagnrýna. Geir sagði að árangurstengd ofurlaun innan bankakerfisins hefðu kynt undir áhættusækni bankamanna og til þess mætti rekja fall bankanna að hluta. Hann sagði að Íslendingar, eins og aðrar þjóðir, yrðu að koma í veg fyrir að slíkt endurtæki sig. svavar@frettabladid.is Vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Geir H. Haarde styður tillögu Evrópunefndar um tvöfalda atkvæðagreiðslu um ESB. Hann íhugaði stjórnarsamstarf við Vinstri græna 2007 og segir AGS hafa stöðvað stýrivaxtalækkun í janúar vegna stjórnmálaóreiðu í landinu. Frá landsFundi Fjölmennasti landsfundur Sjálfstæðisflokksins til þessa var settur í gær. Þingmennirnir Kristján Þór Júlíusson og Bjarni Benediktsson munu berjast um formannsstólinn ásamt Snorra Ásmundssyni. FRéttABLAðið/ANtON STjóRnmÁl Bjarni Benediktsson nýtur meira fylgis en Kristján Þór Júlíusson í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Bjarna mælist 47 prósent en 35,9 pró- sent við Kristján Þór. Rétt rúm 17 prósent nefndu aðra. Sé einungis horft til þeirra sem sögðust styðja Sjálfstæðisflokk- inn er munurinn meiri; tæp 58 prósent nefndu Bjarna en tæp 30 prósent Kristján Þór. Tæp þrettán prósent nefndu aðra. Munurinn á tvímenningunum er sáralítill ef litið er til aðspurðra sem búa á landsbyggðinni; stuðn- ingurinn við Bjarna mælist tæp 44 prósent en við Kristján Þór rúm 42 prósent. Aðrir fá rúm fjórtán prósent. Á höfuðborgar- svæðinu er fylgi Bjarna tæp 50 prósent en Kristjáns Þórs rúm 30 prósent. Aðra nefndu 20 prósent svarenda. Þegar spurt var hvaða aðra aðspurðir vildu í formannsemb- ættið nefndu flestir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varafor- mann flokksins. Hringt var í 800 manns mið- vikudaginn 25. mars og skiptust svarendur jafnt eftir kyni og hlut- fallslega eftir búsetu. Spurt var: Hver vilt þú að verði formaður Sjálfstæðisflokksins? 50,5 prósent tóku afstöðu. Kosið verður í embættið á landsfundi Sjálfstæðisflokksins á sunnudag. - bþs Könnun á fylgi frambjóðenda til formannsembættisins í Sjálfstæðisflokknum: Fleiri vilja Bjarna en Kristján BJarni Benediktsson kristJán Þór Júlíusson lAnDbúnAÐUR Kúabændur flykkj- ast til höfuðborgarinnar til lands- fundar sem hefst í dag. Endurnýjun mjólkursamnings- ins við ríkið verður helsta mál fundarins auk þess sem nýr for- maður verður kjörinn. Sigurður Loftsson í Steinsholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Sigurgeir Hreinsson, Hríshóli í Eyjafjarðar- sveit, eru í framboði. Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, segir kosningabaráttuna hvorki hafa verið hatramma né dýra. Fundinum lýkur með árshátíð þar sem nautakjöt verður á mat- seðlinum. - she Landsfundur kúabænda: Nýr formaður verður kjörinn DómSmÁl Karlmaður á fimmtugs- aldri hefur verið ákærður fyrir að ráðast á Guðmund Jónsson, fyrrverandi forstöðumann Byrg- isins, og vinna skemmdir á bíl hans í maí í fyrra. Maðurinn taldi sig eiga harma að hefna, þar sem Guðmundur hafði nýlega verið dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn eiginkonu mannsins og þremur öðrum konum. Maðurinn greindi frá því í Kompási skömmu síðar og greindi þar frá því að hann hafi löðrungað Guðmund. Þá er mað- urinn ákærður fyrir kynferðis- brot gegn viðskiptavini sínum á húðflúrsstofu. - sh Ákærður fyrir líkamsárás: Réðst á Guð- mund í Byrginu gengið 26.03.2009 GJALdmiðLAR KAuP SALA HEimiLd: Seðlabanki Íslands 193,9144 GenGiSVíSitaLa Krónunnar 117,56 118,12 171,06 171,9 159,51 160,41 21,41 21,536 18,142 18,248 14,603 14,689 1,1955 1,2025 177,08 178,14 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SdR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.