Fréttablaðið - 27.03.2009, Qupperneq 4
4 27. mars 2009 FÖSTUDAGUR
VEÐURSPÁ
heimurinn
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
21°
8°
10°
9°
6°
9°
9°
10°
7°
7°
20°
11°
17°
29°
10°
10°
16°
3°
-7
-7
-8
-8
-6
0
1
1
-4
-6
-9
3
4
5
á morgun
5-13 m/s
-5
sunnudagur
10-20 m/s
5
6
6
5
6
5
3
3
-6 -4
-4
-1
helgin
Í fyrramálið verður
komin snjókoma á
vesturhelmingi lands-
ins samfara vaxandi
vindi af suðri. Smám
saman gengur úr-
komuloftið yfir landið.
Þegar líður á daginn
hlánar syðst og vest-
ast og þar þróast því
úrkoman yfir í slyddu
eða rigningu. Óvissa
ríkir um sunnudags-
veðrið. Helst er að
sjá hvassa norðanátt
nyrðra með éljum
norðan og vestan til.
Kalt í veðri.
-1 -3
-4
03
sigurður Þ.
ragnarsson
veður-
fræðingur
KÖnnUn „Ég vaknaði allhressi-
lega við lestur Fréttablaðsins í
[gær]morgun, eins og, held ég,
margir aðrir framsóknarmenn,“
segir Birkir
Jón Jónsson,
varaformaður
Framsóknar-
flokksins, um
niðurstöður
skoðanakönn-
unar Frétta-
blaðsins, þar
sem flokkurinn
mælist með 7,5
prósenta fylgi,
sem er það minnsta á árinu.
„Þetta er í raun og veru ekki í
takt við þá strauma sem ég hef
fundið gagnvart flokknum á und-
angengnum vikum og mánuðum.
Þannig að niðurstaðan er vissu-
lega mikil vonbrigði,“ segir Birk-
ir, en telur þó að könnunin muni
hleypa kappi í flokksmenn. Hann
hefur ekki trú á að niðurstaða
kosninga verði á þessa leið. - sh
Varaformaður Framsóknar:
Könnunin er
mikil vonbrigði
Birkir Jón
Jónsson
STjóRnmÁl Vigdís Hauksdóttir,
oddviti á lista framsóknarmanna í
Reykjavíkurkjördæmi suður, seg-
ist ætlar ekki að höfða mál gegn
ASÍ fyrir að hafa látið sig velja
milli starfsins og þess að taka sæti
á framboðslista þegar hún óskaði
eftir launalausu leyfi fram yfir
kosningar. Vigdís segist þekkja hið
sanna í málinu og hún líti svo á að
nú sé málinu lokið af sinni hálfu.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
kannast ekki við að neinn starfs-
maður ASÍ hafi óskað eftir launa-
lausu leyfi vegna framboðs til
Alþingis í vor. Ásakanir um að
starfsmönnum ASÍ sé mismunað á
grundvelli pólitískra skoðana séu
úr lausu lofti gripnar. - ghs
Oddviti Framsóknar:
Málinu lokið af
minni hálfu
ÍSRAEl, AP Ísraelsher hafnar full-
yrðingum Palestínumanna um að
meirihluti þeirra sem féllu í átök-
um á Gasaströnd í janúar hafi
verið óbreyttir borgarar.
Í yfirlýsingu frá Ísraelsher í
gær kemur fram að 1.166 manns
hafi látist í átökunum. Þar af hafi
709 verið vígamenn Hamas-sam-
takanna og tæplega 300 hafi verið
óbreyttir borgarar. Talsmenn hers-
ins gátu ekki gert grein fyrir stöðu
162 manna sem létust í átökunum.
Palestínumenn segja 1.417 hafa
fallið. Af þeim hafi yfir 900 verið
óbreyttir borgarar. - bj
Deilt um látna í átökum:
Segja meiri-
hluta vígamenn
særðir Yfir eitt þúsund létust í þriggja
vikna átökum í byrjun árs, og þúsundir
til viðbótar særðust. FRéttABLAðið/AP
STjóRnmÁl Geir H. Haarde, frá-
farandi formaður Sjálfstæðis-
flokksins, sagði það stærstu mis-
tök sjálfstæðismanna sem tengjast
bankakerfinu að hafa fallið frá
stefnu um dreifða eignaraðild við
einkavæðingu bankanna fyrir sex
árum. „Ég ber mína ábyrgð á því
að svona var búið um hnútana á
sínum tíma og á þeim mistökum
er rétt að biðjast afsökunar. Geri
ég það hér með,“ sagði Geir.
Geir varði mestum tíma í að
gera upp banka- og efnahags-
hrunið í ræðu sinni en horfði til
framtíðar í Evrópumálum. Hann
vonast til að tillaga Evrópu-
nefndar flokksins um tvöfalda
þjóðaratkvæðagreiðslu, annars
vegar um aðildarviðræður og hins
vegar um niðurstöðu þeirra, verði
samþykkt en tillagan verður kynnt
í dag.
Geir segist hafa íhugað stjórn-
arsamstarf við Vinstri græna
eftir alþingiskosningarnar árið
2007. Sagðist Geir hafa reynt for-
ystumenn VG að orðheldni og
heilindum í löngu samstarfi á
Alþingi en hins vegar hafi mál-
efnalegur ágreiningur reynst of
mikill þegar upp var staðið.
Geir sagði að peningamálastefna
Seðlabankans hafi brugðist; háir
vextir hafi dregið að sér erlent
fjármagn og aukið á þenslu í stað
þess að draga úr henni.
Geir fullyrti í ræðunni að strax
í janúar hefði Seðlabankinn mælt
með lækkun stýrivaxta í ljósi hratt
lækkandi verðbólgu en Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn metið óvissu
í stjórnmálum með þeim hætti að
rétt væri að bíða með lækkun. „Af
þessum sökum dróst vaxtalækkun-
in um tvo mánuði,“ sagði Geir.
Í janúar vildu sjálfstæðismenn
ráðast í aðgerðir sem meðal ann-
ars fólu í sér endurskoðun pen-
ingamálastefnunnar og að efla
atvinnusköpun með því að hefja
hvalveiðar og ráðast í álversfram-
kvæmdir í Helguvík og á Bakka.
Geir sagði það mistök að hafa
fallist á kröfu Framsóknarflokks
um 90 prósenta húsnæðislán
að loknum kosningum 2003 og
skattalækkanir á þeim tíma megi
jafnframt gagnrýna.
Geir sagði að árangurstengd
ofurlaun innan bankakerfisins
hefðu kynt undir áhættusækni
bankamanna og til þess mætti
rekja fall bankanna að hluta. Hann
sagði að Íslendingar, eins og aðrar
þjóðir, yrðu að koma í veg fyrir að
slíkt endurtæki sig.
svavar@frettabladid.is
Vill þjóðaratkvæði
um aðildarviðræður
Geir H. Haarde styður tillögu Evrópunefndar um tvöfalda atkvæðagreiðslu um
ESB. Hann íhugaði stjórnarsamstarf við Vinstri græna 2007 og segir AGS hafa
stöðvað stýrivaxtalækkun í janúar vegna stjórnmálaóreiðu í landinu.
Frá landsFundi Fjölmennasti landsfundur Sjálfstæðisflokksins til þessa var settur í
gær. Þingmennirnir Kristján Þór Júlíusson og Bjarni Benediktsson munu berjast um
formannsstólinn ásamt Snorra Ásmundssyni. FRéttABLAðið/ANtON
STjóRnmÁl Bjarni Benediktsson
nýtur meira fylgis en Kristján
Þór Júlíusson í embætti formanns
Sjálfstæðisflokksins, samkvæmt
skoðanakönnun Fréttablaðsins og
Stöðvar 2. Stuðningur við Bjarna
mælist 47 prósent en 35,9 pró-
sent við Kristján Þór. Rétt rúm
17 prósent nefndu aðra.
Sé einungis horft til þeirra sem
sögðust styðja Sjálfstæðisflokk-
inn er munurinn meiri; tæp 58
prósent nefndu Bjarna en tæp 30
prósent Kristján Þór. Tæp þrettán
prósent nefndu aðra.
Munurinn á tvímenningunum er
sáralítill ef litið er til aðspurðra
sem búa á landsbyggðinni; stuðn-
ingurinn við Bjarna mælist tæp
44 prósent en við Kristján Þór
rúm 42 prósent. Aðrir fá rúm
fjórtán prósent. Á höfuðborgar-
svæðinu er fylgi Bjarna tæp 50
prósent en Kristjáns Þórs rúm 30
prósent. Aðra nefndu 20 prósent
svarenda.
Þegar spurt var hvaða aðra
aðspurðir vildu í formannsemb-
ættið nefndu flestir Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur, varafor-
mann flokksins.
Hringt var í 800 manns mið-
vikudaginn 25. mars og skiptust
svarendur jafnt eftir kyni og hlut-
fallslega eftir búsetu. Spurt var:
Hver vilt þú að verði formaður
Sjálfstæðisflokksins? 50,5 prósent
tóku afstöðu.
Kosið verður í embættið á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins
á sunnudag. - bþs
Könnun á fylgi frambjóðenda til formannsembættisins í Sjálfstæðisflokknum:
Fleiri vilja Bjarna en Kristján
BJarni
Benediktsson
kristJán Þór
Júlíusson
lAnDbúnAÐUR Kúabændur flykkj-
ast til höfuðborgarinnar til lands-
fundar sem hefst í dag.
Endurnýjun mjólkursamnings-
ins við ríkið verður helsta mál
fundarins auk þess sem nýr for-
maður verður kjörinn. Sigurður
Loftsson í Steinsholti í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi og Sigurgeir
Hreinsson, Hríshóli í Eyjafjarðar-
sveit, eru í framboði. Baldur Helgi
Benjamínsson, framkvæmdastjóri
Landssambands kúabænda, segir
kosningabaráttuna hvorki hafa
verið hatramma né dýra.
Fundinum lýkur með árshátíð
þar sem nautakjöt verður á mat-
seðlinum. - she
Landsfundur kúabænda:
Nýr formaður
verður kjörinn
DómSmÁl Karlmaður á fimmtugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
að ráðast á Guðmund Jónsson,
fyrrverandi forstöðumann Byrg-
isins, og vinna skemmdir á bíl
hans í maí í fyrra. Maðurinn taldi
sig eiga harma að hefna, þar sem
Guðmundur hafði nýlega verið
dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn
eiginkonu mannsins og þremur
öðrum konum.
Maðurinn greindi frá því
í Kompási skömmu síðar og
greindi þar frá því að hann hafi
löðrungað Guðmund. Þá er mað-
urinn ákærður fyrir kynferðis-
brot gegn viðskiptavini sínum á
húðflúrsstofu. - sh
Ákærður fyrir líkamsárás:
Réðst á Guð-
mund í Byrginu
gengið 26.03.2009
GJALdmiðLAR KAuP SALA
HEimiLd: Seðlabanki Íslands
193,9144
GenGiSVíSitaLa Krónunnar
117,56 118,12
171,06 171,9
159,51 160,41
21,41 21,536
18,142 18,248
14,603 14,689
1,1955 1,2025
177,08 178,14
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SdR