Fréttablaðið - 27.03.2009, Page 12
12 27. mars 2009 FÖSTUDAGUR
MEIRA FYRIR NÁMSMENN! Landsbankinn veitir Námufélögum námsstyrki í tuttugasta sinn. Nánari upplýsingar og
Sjóræningjar taka tvö skip
Sómalskir sjóræningjar tóku í gær
tvö evrópsk skip sem sigldu hundruð
kílómetra undan ströndum landsins.
Annað skipið var 9.000 tonna grískt
tankskip með 19 manna áhöfn. Hitt
var norskt 23.000 tonna tankskip
með 27 manna áhöfn.
SÓMALÍA
HEILBRIGÐISMÁL Fimmtíu MS-
sjúklingar, á mismunandi stig-
um hafa fengið
Tysabri lyfja-
gjöf. Þetta kom
fram í svari
Ögmundar Jón-
assonar heil-
brigðisráðherra
við fyrirspurn
Ástu Möller á
Alþingi á mið-
vikudag. Með-
alaldur þeirra
sem eru í meðferð er 45,5 ár.
Ögmundur sagði að tafir hafi
orðið á því að hefja lyfjagjöf
vegna dauðsfalla eftir Tysabri
notkun erlendis. Þá hafi þrír sýnt
ofnæmisviðbrögð við lyfinu hér á
landi. - ss
Heillbrigðisráðherra:
50 hafa fengið
Tysabri lyfið
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
VINNUMARKAÐUR Atvinnulausir eru
nú meira en 17 þúsund talsins,
samkvæmt nýjustu tölum Vinnu-
málastofnunar. Atvinnulausir á
höfuðborgarsvæðinu eru rúm-
lega 11.500. Næstmesta atvinnu-
leysið er á Suðurnesjum, eða ríf-
lega 1.800 manns. Nýsköpunin
blómstrar meðal atvinnulausra
sem reyna nú að skapa sér vinnu
sjálfir.
Félagsmiðstöðin Deiglan er til
húsa í gamla Lækjarskólanum í
Hafnarfirði en atvinnulausir eru
vel yfir þúsund þar í bæ. Í Lækj-
arskóla hittist reglulega hópur
hönnuða og handverksmanna sem
hefur það að markmiði að búa til
vöru og selja. Ýmsar góðar hug-
myndir eru í Deiglunni; að hanna
minjagripi fyrir erlenda ferða-
menn og koma eigin hönnun í
framleiðslu í samstarfi við hand-
verksmenn.
„Við sem erum hönnuðir vilj-
um komast í samstarf við aðra í
framleiðslu og vinnu þannig að
úr verði atvinnuskapandi verk-
efni, ekki bara fyrir okkur held-
ur líka aðra. Okkur vantar tengsl
við fólk í sem flestum geirum. Nú
er tíminn til að opna skúffurn-
ar og rífa upp hugmyndirnar,“
segir Matthildur Jóhannsdóttir
iðnhönnuður. Hún vinnur meðal
annars að því að koma í fram-
leiðslu umhverfisvænum göngu-
staf sem sáir fræjum um leið og
gengið er.
Brynhildur Barðadóttir er
verkefnisstjóri í Deiglunni. Hún
segir að aðsóknin hafi farið hægt
af stað eins og búist hafi verið við
en nú hafi starfsemin tekið vel við
sér, fjölmörg námskeið séu í boði
og hópar sem hittist reglulega.
Deiglan sé líka samverustaður,
þangað komi margir til að fá sér
kaffi og spjalla við aðra. Þannig
kvikni margar hugmyndir.
„Við erum að aðstoða fólk við að
koma í framkvæmd hugmyndum
til atvinnusköpunar og líka að ein-
angra sig ekki,“ segir Brynhildur
og telur marga koma í Deigluna
af forvitni og til að kanna hvað
sé í boði. Aðrir komi til að ná sér
í sundkort og bókasafnskort fyrir
atvinnulausa. „Sporin hingað inn
eru misjafnlega þung. Sumum
reynist erfitt að koma og öðrum
ekki,“ segir hún.
Í Deiglunni er boðið upp á
margs konar starf og námskeið,
til dæmis klippimyndagerð,
prjónakennslu og margt annað.
Þá er Félagsmiðstöðin Vestur-
götu 7 í Reykjavík öllum opin og
geta ekki síst atvinnulausir not-
fært sér allt það sem þar er í boði.
„Maður er manns gaman,“ segir
Halldóra Guðmundsdóttir, verk-
efnastjóri þar, og skorar á fólk að
kíkja við. ghs@frettabladid.is
Rífa hugmyndirnar
upp úr skúffunum
Atvinnulausir eru nú yfir 17 þúsund talsins. Hugmyndirnar blómstra og ný-
sköpunin sprettur fram. „Nú er tíminn til að opna skúffurnar og rífa upp hug-
myndirnar,“ segir iðnhönnuður sem leiðir nýsköpunarhóp í Deiglunni.
BERA SAMAN BÆKUR SÍNAR Bjarnheiður Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri hjá Impru, María Sjöfn Davíðsdóttir iðnhönnuður, Matt-
hildur Jóhannsdóttir iðnhönnuður, Helgi K. Pálsson innanhússarkitekt og Þóra Ben málari hittast reglulega í Deiglunni til að ræða
hönnun og atvinnusköpun og bera saman bækur sínar. Þau ætla að skapa atvinnu fyrir sig og aðra og vilja komast í samstarf við
handverksfólk. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sporin hingað inn eru
misjafnlega þung.
BRYNHILDUR BARÐADÓTTIR
VERKEFNISSTJÓRI
EFNAHAGSMÁL Sextán húsgrunnar
sem voru sagðir marka tímamót
í byggingarsögu Fáskrúðsfjarðar
þegar framkvæmdir hófust við þá,
hafa nú verið settir á nauðungar-
sölu. Grunnarnir voru skráðir á
Fjárfestingarfélag Austurbyggðar
og lýstar kröfur í þá nema um 10
milljónum króna.
Félagið fékk 26 lóðum úthlutað
árið 2006 og þótti það til marks
um uppbyggingu á Austurlandi.
Í Austurglugganum segir að hús-
næðisframboð á Fáskrúðsfirði sé
fremur lítið og innan við tugur
eigna sé á söluskrá. Fleiri fast-
eignaverktakar sem störfuðu á
Austurlandi séu í vandræðum. - kóp
Fáskrúðsfjörður:
Nauðungarsala
á húsgrunnum
SÖFNUN Um fimmtán milljónir
króna söfnuðust í sameiginlegri
landssöfnun Rauða kross Íslands
og Hjálparstarfs kirkjunnar.
„Við erum sátt við að ná helm-
ingnum af upphaflega markmið-
inu,“ segir Sólveig Ólafsdóttir
hjá Rauða krossinum. Um síma-
söfnun var að ræða þar sem 100
krónur drógust frá símreikningi
við innhringingu. „Við stefndum
á 100 krónur á haus en það náð-
ist ekki alveg. Aðferðin er ekki
sú fljótvirkasta en okkur langaði
til að sem flestir sæju sér fært
að gefa. Það komu um 50 þúsund
símtöl sem okkur þykir harla góð
þátttaka.“ - she
Safnað til innanlandsaðstoðar:
Gáfum fimmtíu
krónur á haus
DÓMSMÁL Byggingarfélag náms-
manna hefur verið dæmt í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur til að greiða
fyrrum rekstrarstjóra ríflega
tvær milljónir króna, auk hálfr-
ar milljónar í málskostnað. Þá er
viðurkennd skylda félagsins til að
greiða fyrrum rekstrarstjóranum
laun, orlofslaun og bifreiðahlunn-
indi, svo og bætur vegna tapaðra
lífeyrisréttinda.
Mál þetta er risið í framhaldi
af meintu fjársvikamáli varð-
andi byggingarfélagið, sem er til
rannsóknar hjá efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra, eins og
Fréttablaðið hefur greint frá.
Í apríl á síðasta ári tilkynnti
lögmaður byggingarfélagsins
rekstrarstjóranum að stjórn
félagsins hefði ákveðið að rifta
ráðningarsamningi við hann
fyrirvaralaust. Hið sama átti við
um framkvæmdastjóra bygg-
ingarfélagsins, sem er bróðir
rekstrarstjórans. Þetta var gert
í kjölfar skoðunar KPMG endur-
skoðunarskrifstofu á innri skoðun
á rekstri félagsins. Þar kom meðal
annars í ljós að þeir bræður áttu
ráðgjafarfyrirtæki saman, sem
aftur vann fyrir verktakafyrir-
tæki sem fengu stór verkefni hjá
byggingarfélaginu án útboða.
Uppsögn rekstrarstjórans gekk
gegn starfssamningi sem gerður
hafði verið við hann og því vann
hann málið. - jss
Byggingarfélag námsmanna dæmt til greiðslu vegna fyrirvaralausrar uppsagnar:
Brottrekinn fær tvær milljónir
STÚDENTAÍBÚÐIR Verktakar höfðu
fengið stór verkefni nokkur undanfarin
ár án útboða.
STÆRSTA EGGIÐ Maður heldur á því
sem talið er vera stærsta egg sem
verpt hefur verið hér á jörðu. Eggið
er frá því snemma á 17. öld úr Stóra
fílafuglinum útdauða. Það verður selt
á uppboði í Lundúnum á næstunni.
Fyrsta boð er um 700 þúsund krónur.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Ráðherrar ríkisstjórn-
arinnar hafa engra fjárhagslegra
hagsmuna að gæta utan þings
og fáir gegna trúnaðarstörfum
utan stjórnmálaflokkanna. Þetta
kemur fram í upplýsingum sem
birtar hafa verið um hagsmuna-
tengsl ráðherra og trúnaðarstörf
utan þings.
Enginn ráðherranna þiggur
fjárhagslegan stuðning, gjafir
eða boðsferðir og enginn þeirra
hefur heldur fengið eftirgjöf
skulda. Aðeins Katrín Jakobsdótt-
ir þiggur laun meðfram ráðherra-
störfum en hún fær greitt fyrir
stöku námskeið og fyrirlestra um
bókmenntir við Háskóla Íslands.
Fjórir ráðherrar gegna stjórnar-
setu eða öðrum trúnaðarstörfum
fyrir hagsmunasamtök eða opin-
berar stofnanir, án þess að þiggja
laun fyrir. - shá
Ríkisstjórnin svarar:
Þiggur ekki fé,
gjafir eða ferðir
STJÓRNIN Enginn tíu ráðherra hefur hags-
munatengsl utan þings. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HÖNNUN Vinningstillaga úr alþjóð-
legri samkeppni í fyrrasumar um
hönnun á nýjum höfuðstöðvum
Landsbanka Íslands verður sýnd
á Háskólatorgi í dag.
Að því er segir í tilkynningu
sigraði tillaga frá BIG frá Dan-
mörku ásamt Arkiteó, Einrúmi
og Andra Snæ Magnasyni. „Þar
sem þörf er á sól dregur bygging-
in sig í hlé – og hleypir birtu inn
á torgið.
Þar sem þörf er á skjóli skýtur
byggingin fram skúta og skapar
líf á Lækjartorgi. Þar sem þjóð-
hátíðardagurinn er haldinn
hátíðlegur á Arnarhóli, myndar
byggingin boga og hvelfingu
sem getur nýst sem svið á tylli-
dögum,“ segir meðal annars um
vinningstillöguna. - gar
Samkeppni um Landsbanka:
Vinningstillaga
loksins til sýnis
VINNINGSTILLAGA Glæstar höfuðstöðvar
sem nú hvíla ofan í skúffu.