Fréttablaðið - 27.03.2009, Side 18
18 27. mars 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 216 Velta: 119 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
33 +0,78% 635 +0,14%
MESTA HÆKKUN
ÖSSUR 3,16%
FØROYA BANKI 2,19%
MESTA LÆKKUN
MAREL FOOD SYST. 0,69%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic
Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 260,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,40 +0,00% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 119,50 +1,27% ... Icelandair Group 7,00
+0,00% ... Marel Food Systems 46,60 -3,72% ... Össur 88,90 -0,11%
Útflutningur frá Japan dróst
saman um 49,4 prósent í febrúar
miðað við sama tíma í fyrra, sam-
kvæmt nýbirtum gögnum japanska
viðskiptaráðuneytisins.
Þetta er umfram svörtustu spár
en tölur sem þessar hafa aldrei
áður sést þar í landi. Viðskipta-
ráðuneytið hóf að halda utan um
þessar tölur árið 1980.
Kreppa í helstu viðskiptalöndum
Japans, ekki síst í Bandaríkjunum
og Evrópu, skýrir samdráttinn,
sem hefur komið harkalega niður
á bíla- og raftækjaframleiðendum.
Það hefur svo skilað sér í snörp-
um samdrætti í japönsku hagkerfi
sem dróst saman um 12,1 prósent
á síðasta ársfjórðungi. - jab
Aldrei meiri
samdrátturHvar er hægt að skera?
Ljóst má vera að úr vöndu er að ráða fyrir ríkis-
valdið þegar kemur að sparnaði og niðurskurði
á fjárlögum sem þanist hafa út ár frá ári. Á
Netinu er hins vegar að finna mjög gagnlegt
tól þar sem útgjöld í hverjum málaflokki er
að finna í myndrænni útfærslu (DataMarket,
http://apps.datamarket.net/fjarlog/). Þar er
til dæmis fljótséð að skammt dugar upp í
fjárlagahallann niðurskurður í utanríkis-
ráðuneytinu sem stundum hefur verið
nefndur. Heildarútgjöld þar nema 12
milljörðum króna, þrír til ráðuneyta.
Samkvæmt áætlun verður fjárlagahalli
ársins 153 milljarðar króna. Líklegt má
þó teljast að margt smátt geti gert eitt
stórt þegar lagst er yfir málin og ýmis
gæluverkefni „heima í héraði“ skoðuð
nánar. Fjármálaráðuneytið hlýtur að
fagna öllum tillögum og um að gera
að sem flestir skoði.
Dauðadæmt mál
Það er enda víðar en hér sem leitað er leiða til
að spara í rekstri hins opinbera. Í Bretlandi ná
menn ekki upp í nefið á sér yfir 4.500 punda
styrk ríkisins (um 770 þúsund krónur)
til tveggja miðla sem segjast nýta
féð til að hjálpa syrgjandi fólki að ná
sambandi við látna ástvini. Miðlarnir,
sem raunar eru par, að sögn The
Daily Mail, reka skóla um andleg
málefni og fer styrkurinn, sem er
hluti af áætlun ríkisins um að láta
fé renna í atvinnuuppbyggingu
(Want2Work), í að kenna fólki að
ná sambandi yfir í andaheiminn.
Gagnrýnendur hafa hins vegar
hneykslast mjög á styrkveitingunni,
sér í lagi á tímum þar sem fólk er í
stórum stíl að missa vinnuna. Parið segir
hins vegar 770 þúsund kallinn lítið gjald
ef takist að færa syrgjandi fólki hugarró.
Peningaskápurinn ...
Fjármálafyrirtækið Auður Capi-
tal skilaði 56 milljóna króna hagn-
aði á árinu 2008, en það var fyrsta
rekstrarár félagsins. Fyrirtækið
er skuldlaust, og nemur eigið fé
þess um 1,2 milljörðum króna.
Auður Capital fékk raunar
starfsleyfi í apríl, svo þetta er
afkoman eftir átta mánaða rekst-
ur, segir Þóranna Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri samskipta-
sviðs.
„Í fjárfestingum okkar, bæði til
að ávaxta eigið fé og viðskiptavina
okkar, kom það sér vel að vera
bæði óháður og áhættumeðvitað-
ur,“ segir Þóranna, spurð hvernig
félaginu takist að skila hagnaði
eftir slíkt umbrotaár.
„Við gátum tekið ákvarðanir út
frá okkar bestu sannfæringu, án
þess að þurfa að bíða eftir að ein-
hver sem við höfðum hagsmuni
gagnvart hækkaði eða lækkaði,“
segir Þóranna.
Stjórn Auðar hefur ákveðið að
leggja tíu milljóna króna stofn-
framlag í góðgerðarsjóð sem feng-
ið hefur nafnið AlheimsAuður.
Sjóðnum er ætlað að hvetja konur
til athafna, sérstaklega á vanþróuð-
um svæðum heimsins. Auður Capi-
tal mun leggja eitt prósent af hagn-
aði félagsins í sjóðinn ár hvert. - bj
56 milljóna hagnað-
ur hjá Auði Capital
STJÓRN Ný stjórn Auðar Capital var kjörin á stjórnarfundi í vikunni.
Skipholti 35
105 Reykjavík. sími 511 7010
Gsm: 847-1600
petur@galleriborg.is
Erum að undirbúa
næsta uppboð.
Við tökum lægri
sölulaun.
Vinsamlegast hafi ð
samband við Pétur Þór
í síma 511 7010 eða
847 1600
Kristján Davíðsson
Seld á 1.200.000
J.S.Kjarval
Seld á 456.000
J.S.Kjarval
Seld á 972.000
Kristín Jónsdóttir
Seld á 1.380.000
Ásgrímur Jónsson
Seld á 2.040.000
Gunnlaugur Blöndal
Seld á 612.000
Nýjar tölur Hagstofu
Íslands sýna yfir 50 pró-
senta fjölgun gjaldþrota
milli ára. Fyrstu tvo mánuði
ársins urðu 149 fyrirtæki
gjaldþrota, samanborið við
97 fyrirtæki í fyrra. Grein-
ing Íslandsbanka segir
að gera megi ráð fyrir að
gjaldþrotum haldi áfram
að fjölga á þessu ári. Þrota-
hrina sé fram undan.
Nær þriðjungur gjaldþrota febrú-
armánaðar var hjá fyrirtækjum í
byggingarstarfsemi og mannvirkja-
gerð. Samantekt Hagstofu Íslands
sýnir að gjaldþrot í febrúar voru
36 prósentum fleiri en í sama mán-
uði ári fyrr. Alls voru 76 fyrirtæki
tekin til gjaldþrotaskipta í febrúar,
en það er sex fyrirtækjum meira
en í janúar. Í febrúar í fyrra voru
56 fyrirtæki tekin til gjaldþrota-
skipta.
„Gera má ráð fyrir að gjald-
þrotum fyrirtækja haldi áfram að
fjölga á þessu ári samhliða því sem
mikill samdráttur er fram undan í
hagkerfinu og eftirspurn og fjár-
festingar dragast saman. Spár
sem birtar hafa verið um gjaldþrot
fyrirtækja gera ráð fyrir að þrota-
hrina sé fram undan á árinu,“ segir
í samantekt Greiningar Íslands-
banka um málið.
Af þeim fyrirtækjum sem tekin
voru til gjaldþrotaskipta voru 20
í byggingargeiranum, en það eru
30 prósent heildarfjöldans. Fyrir
ári urðu níu fyrirtæki í sama geira
gjaldþrota. „Fyrstu tvo mánuði árs-
ins hafa 38 fyrirtæki í byggingar-
iðnaði verið tekin til gjaldþrota-
skipta sem er fimmtungur allra
gjaldþrota á árinu“, bendir Grein-
ing Íslandsbanka á og bætir við að
fyrstu tvo mánuði síðasta árs hafi
17 fyrirtæki í byggingariðnaði verið
tekin til gjaldþrotaskipta. „Fjár-
málakreppan hefur komið afar illa
niður á byggingar iðnaði enda hefur
fjárfesting dregist mikið saman,
meðal annars vegna þess að aðgengi
að lánsfé hefur versnað.“
Fyrir utan byggingariðnaðinn
urðu í febrúar 15 gjaldþrot í heild-
og smásöluverslun og viðgerðum
á vélknúnum farartækjum og 12
í rekstri gisti- og veitingastaða.
„Fyrstu tvo mánuði ársins 2009
er fjöldi gjaldþrota 149 en fyrstu
tvo mánuði ársins 2008 voru gjald-
þrotin 97 sem jafngildir tæplega 54
prósenta aukningu milli ára,“ segir
í samantekt Hagstofunnar.
olikr@markadurinn.is
Flest gjaldþrot eru í
byggingargeiranum
Í BYGGINGU Í nýrri samantekt Hagstofunnar kemur fram að á fyrstu tveimur mán-
uðum ársins hafi 54 prósent fleiri fyrirtæki orðið gjaldþrota en á sama tíma í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FJÁRMÁLASTOFNANIR Vel á annan tug
tilboða bárust í ýmsar rekstrarein-
ingar SPRON áður en frestur rann
út klukkan fjögur í gær.
„Það eru margir að horfa á verð-
bréfin og netbankann,“ segir Hlyn-
ur Jónsson, formaður skilanefnd-
ar SPRON, spurður um það hvert
áhugi tilboðsgjafanna beindist
helst.
Skilanefndin hóf í í gærkvöldi
að meta tilboðin til að finna út
hver þeirra væru álitleg og raun-
hæf. Tilboðin eru óskuldbindandi
í þessari umferð. „Við erum meðal
annars að skoða nánar upplýsingar
um fjárhagslegan styrk, framtíð-
arsýn, starfsmannamál og annað
slíkt,“ segir Hlynur.
Einingarnar sem um ræðir eru
útibú, SPRON verðbréf, netbanki
SPRON og Rekstrarfélag SPRON
verðbréfasjóða. SPRON Factoring,
sem annast kröfukaupaþjónustu
fyrir útflytjendur og fleiri, var
ekki boðið til sölu að þessu sinni.
Hlynur sagðist í gærkvöldi
ekkert vilja segja að svo stöddu
um innihald þeirra tilboða sem
bárust. „Við erum bara að fara yfir
þetta núna,“ svarar Hlynur sem
aðspurður kveðst eiga von á því
að ákvörðun verði tekin skjótt um
það við hvaða tilboðsgjafa verður
rætt frekar. „Markmiðið er að það
komi í ljós á næstu dögum.“
- gar
Vel á annan tug tilboða í útibú, netbanka og verðbréfafélag SPRON:
Tlilboð valin á næstu dögum
STARFSFÓLK SPRON Í SPRON við Skólavörðustíg biðu starfsmenn frekari tíðinda af
afdrifum sparisjóðsins fyrr í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA