Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 GEÐHJÁLP í 30 ár Vöxtur geðheilbrigðisþjón- ustu á Íslandi hefur að mati Sigmundar Sigfússonar geðlæknis verið nokkuð jafn fyrir utan bakslag sem varð við sameiningu í kringum síðustu aldamót og lokun dagdeildar á Akureyri nú í febrúar. „Ef tekin eru þrjátíu ár í þróun geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi þá var nokkuð jafn vöxtur fram undir árið 2000, ef við tölum bæði um geðdeild Landspítalans og hér fyrir norðan. Síðan var farið að skera niður fyrir sunnan og þá beið þjónustan þar töluverða hnekki. Það var þó ekki fyrr en í febrúar að dagdeildinni var lokað tímabundið á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri,“ segir Sigmundur Sigfús- son, forstöðulæknir geðdeildar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri, spurður út í íslenska geðheil- brigðisþjónustu síðustu ára. JAFN VÖXTUR EN SVO BAKSLAG „Þegar geðdeild Borgarspítal- ans var sameinuð geðdeild Land- spítalans fækkaði plássum og var það í raun og veru mikið áfall fyrir þessa þjónustu sem hafði fengið að vaxa jafnt og þétt fram að því,“ segir Sigmundur alvöru- gefinn og heldur áfram: „Við hér fyrir norðan höfum hins vegar alltaf verið nokkuð vel sett. Hér er mun færra fólk og góðir sam- starfsaðilar bæði í félagsþjón- ustu sveitarfélaga og heilsugæsl- unni. Þjónustan er því einfaldari í sniðum og skýrara hvert skal leita aðstoðar. Reykjavík varð langt á eftir í þróun heilsugæslustöðva miðað við landsbyggðina og fólk galt fyrir það.“ Sigmundur starfaði á geðdeild Landspítalans þangað til hann fór norður árið 1984 og fann tölu- verðan mun á starfinu. „Mun ein- faldara var að eiga samstarf við þá aðila sem þjónuðu líka okkar skjólstæðingum hér fyrir norðan og vil ég meina að þar hafi skipu- lagið sitt að segja, en auðvitað fámennið líka. SMÆRRI EININGAR Í ÞJÓNUSTU Fólk kemur fyrr til okkar og hef ég bent á að fyrir sunnan mætti hverfaskipta meira og hafa þjón- ustueiningar til að gera þetta við- ráðanlegra,“ segir hann og nefn- ir að hann þyki stundum sérvit- ur í þessum málum. „Ég myndi vilja fá eins konar samfélagsgeð- heilbrigðisstöðvar tengdar heilsu- gæslunni víðar en í Reykjavík og á Akureyri. Hef ég gert tillögur um að tengja þjónustuna stöðum þar sem eru 15-20.000 manna upptökusvæði og skipta svæð- um þannig niður á höfuðborgar- svæðinu líka. Þetta er fyrirmynd frá Norðurlöndunum og reynd- ar Bretlandi líka, að hafa göngu- og dagdeildir ekki endilega á spít- alalóðum. Auðvitað ætti að byrja Þykir eðlilegt að leita hjálpar Sigmundur Sigfússon forstöðulæknir geðdeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS FRAMHALD Á SÍÐU 6 Viðhorf í garð geðsjúk- dóma hefur batnað að mati Sigmundar. FR ÉT TA BL A Ð IÐ /G VA RÉTTINDI FATLAÐRA Talsmenn flokkanna ræða lög- gjöf um málefni fatlaðra. Síður 8-9 ANDLEG SJÁLFSVÖRN Sigursteinn Másson fer yfir grunnþætti andlegrar heilsu í fyrirlestrum á vegum Geð- hjálpar. Síða 2 ÞROTLAUS VINNA SKILAR SÉR AÐ LOKUM Vala Lárusdóttir segir stuðn- ing aðstandenda geðsjúkra og fagaðila mikilvægan. Síða 11 DÝRMÆTT STARF Valgerður Baldursdóttir, yfir- læknir á Reykjalundi, telur að bráðavinna hafi verið efld undanfarin ár. Síða 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.