Fréttablaðið - 27.03.2009, Page 37
FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 11geðhjálp ●
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Ástvinur Völu Lárusdóttur sjúkra-
liða veiktist skyndilega árið 2003
og var skömmu síðar greindur
með geðklofa. Við tók innlögn á
geðdeild og löng og ströng endur-
hæfing. Í dag er ástvinur hennar
búinn að ná góðum tökum á sjúk-
dómnum og er virkur þátttakandi
í samfélaginu.
Veikindin höfðu mikil áhrif á
líf Völu og fjölskyldu hennar og
þurfti hún í raun að kynnast ást-
vini sínum upp á nýtt. „Hann fór
tvisvar í afneitun eins og algengt
er, útskrifaði sig af áfangaheim-
ilinu þar sem hann bjó, hætti að
taka lyfin og þess háttar. Ég hef
þó verið svo heppin að ég hef allt-
af getað komist að samkomulagi
við hann um að leggjast inn og því
ekki þurft að svipta hann sjálf-
ræði,“ segir Vala.
Tveimur árum eftir að ástvin-
ur Völu greindist gerði hann sér
fulla grein fyrir því að hann væri
með sjúkdóminn og þá fóru hjól-
in að snúast. „Oft eru sjúklingar
mun lengur í afneitun og það haml-
ar bata svo ég get bara talist hepp-
in og er afskaplega stolt af honum.
Hann hefur verið á réttum lyfj-
um í þrjú ár og finnur ekki fyrir
neinum einkennum,“ segir Vala.
Líf ástvinar hennar er komið í
mjög fastar skorður. Hann leigir
eigin íbúð, vinnur hálfan daginn
og stundar líkamsrækt þrisvar til
fjórum sinnum í viku. Auk þess
hefur hann verið í fjarnámi síðustu
þrjár annir. „Það er ótrúlegt hvað
hann hefur náð miklum árangri.
Hann hefur sýnt það og sannað að
ef sjúklingar vinna í sínum málum
geta þeir náð frábærum bata. Lífið
er ekki búið þó fólk greinist með
alvarlegan geðsjúkdóm. Það þarf
bara að læra réttu tökin og lifa
með honum.“
Vala segir stuðning aðstandenda
og fagaðila skipta miklu en segir
þó talsvert vanta upp á stuðn-
ing við aðstandendur. „Okkur
var ekki boðinn neinn sérstak-
ur stuðningur en sóttum þó nám-
skeið á Kleppi fyrir aðstandendur
geðklofasjúklinga sem var afskap-
lega gagnlegt. Sams konar nám-
skeið mætti halda mun oftar.“ - ve
Þrotlaus vinna og
réttu tökin skila sér
Ástvinur Völu hefur náð góðum tökum á
erfiðum sjúkdómi og er virkur þátttak-
andi í samfélaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
A ðstandendur eiga oft um sárt að binda þegar ættingjar
veikjast með geðröskun. Geðraskanir
hafa ætíð mikil áhrif á fjölskyldulíf og
aðstandendur þurfa mikinn stuðning
til að takast á við breyttar aðstæður.
ALGENG ÁHRIF GEÐRÖSKUNAR Á
FJÖLSKYLDU ERU:
● Reiði
● Ráðleysi
● Skömm
● Ótti
● Sorg
● Vanmáttur
SUMT AF ÞVÍ SEM
GETUR HJÁLPAÐ
AÐSTANDENDUM ER:
● Skýrar og
greinagóðar upp-
lýsingar um
geðraskanir.
● Gott samband
við fagaðila sem
eru í tengslum við þann sem er með
geðröskun.
● Raunhæf hjálp til að halda góðum
tengslum í fjölskyldunni.
● Viðurkenning á eigin tilfinningum
og hjálp við að lesa úr þeim og tak-
ast á við þær.
● Samstarf á milli aðstandenda til
að miðla reynslu og styrkjandi
upplýsingum.
Hjá Geðhjálp er bæði
starfandi sjálfshjálpar-
hópar fyrir aðstandend-
ur og notendur og
Aðstandendahópur
Geðhjálpar sem
vill leggja geð-
sjúkum lið í
baráttu þeirra
fyrir bættri
þjónustu við þá
og aðstandend-
ur þeirra.
Hjálp fyrir aðstandendur
Aðstandendur þurfa mikinn stuðning. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR