Fréttablaðið - 27.03.2009, Qupperneq 50
26 27. mars 2009 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Er þér
illt í
bakinu,
ha?
Það er ótrúlegt hvað
maður getur gert
með þangi...
... og
gömlu
dekki af
traktor!
Er þér illt í
bakinu, ha?
Erfiður
dagur? Ójá.
Ég og Stanislaw
horfðum á alla Star
Wars-trílógíuna.
Tvisvar!
Stuna!
Mikið
hlakka ég
til þegar
þú full-
orðnast.
Hvað á
þetta nú
að þýða?
Krabbi! hér er listi
yfir orð sem þú mátt
ekki nota!
Jæja, hvað finnst
þér?
Ég er orðlaus!
Mmmmm Mmmmm Vá! Eftir öll þessi ár fæ ég
enn gæsahúð yfir þessu!
Þetta var reyndar
símboðinn minn
sem fór í gang.
Ég veit, hvað
hélstu að ég væri
að meina?
Vöðvabúnt hf.
Herrar mínir og frú, það
gleður mig að tilkynna ykkur
að fyrirtækið er alltaf að
styrkjast.
Hvílík dýrindis gósentíð sem vorið er fyrir kappleikjanörda. Þegar spennan sem hleðst upp hægt og rólega yfir
veturinn vellur skyndilega upp á yfirborðið
eins og djúsí graftarbóla og keppnislið og
áhorfendur ýmist uppskera árangur erfiðis
síns eða gráta grimm örlög.
Úrslitakeppnin í körfuknattleik er mál
málanna þessa dagana og stefnir allt í
hörku úrslitarimmu milli KR og Grinda-
víkur. Það eina sem pirrar mig við að
horfa á þessa íþróttaveislu í sjónvarpi
er sú óskiljanlega ákvörðun, sem verið
hefur við lýði í nokkur ár, að heimila
sjónvarpsfólki að reka myndavél og
hljóðnema framan í þjálfara liðanna í
leikhléum.
Ég er á þeirri skoðun að samband
þjálfara við leikmenn sína sé jafn
heilagt og hjónabandið. Þegar tekið er
upp á þessum óskapnaði í hita leiksins
líður mér þess vegna dálítið eins og ég hafi
rambað inn á fólk í ástarleik, eða gengið inn
á einhvern á klósettinu. Hvaða erindi hef ég
í þær innilegu og alvöruþrungnu samræður
sem með réttu ættu að eiga sér stað á vara-
mannabekknum? Þessar aðstæður geta
orðið afar vandræðalegar, svo ekki sé meira
sagt.
Þessi árátta hlýtur líka að vera afskaplega
óþægileg fyrir sjálfa þjálfarana. Eiga þeir
ekki rétt á því að koma því sem þeim liggur
á hjarta til skila til leikmannanna án þess
að alþjóð sjái og heyri? Ef ég væri þjálfari
myndi ég hreinlega áskilja mér þann rétt að
geta kallað leikmenn mína bölvaða bjöllu-
sauði og veimiltítur þegar þeir óhlýðnast
skipunum mínum, án þess að amma gamla
þurfi að verða vitni að ósköpunum í beinni
útsendingu. Ég kalla eftir afturhvarfi til
fortíðar, þegar þjálfarar gátu húðskammað
leikmenn í öruggu vari fyrir fjölmiðlum.
Óþægindi í úrslitakeppninni
NOKKUR ORÐ
Kjartan
Guðmundsson
Sett upp í samstarfi við
Frumsýning
í kvöld
á Nýja sviðinu
Miðasala er í síma 568 8000
og á borgarleikhus.is