Fréttablaðið - 27.03.2009, Page 62
38 27. mars 2009 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT 2. kerra, 6. í röð, 8. af, 9.
þunnur vökvi, 11. gangþófi, 12.
óhreint vatn, 14. þvílíkt, 16. tveir eins,
17. skordýr, 18. drulla, 20. fæddi, 21.
könnun.
LÓÐRÉTT 1. elds, 3. frá, 4. verkfæri, 5.
til sauma, 7. kökugerð, 10. skaut, 13.
tilvist, 15. fita, 16. skaði, 19. holskrúfa.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vagn, 6. áb, 8. frá, 9. lap,
11. il, 12. skólp, 14. slíkt, 16. tt, 17. fló,
18. aur, 20. ól, 21. próf.
LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. af, 4. gripkló, 5.
nál, 7. bakstur, 10. pól, 13. líf, 15. tólg,
16. tap, 19. ró.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8
1 Í 22 ár.
2 Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool.
3 Spy Next Door.
„Heilsuréttirnir á Nings eða
Maður lifandi þegar ég er í
þeim gírnum. Annars er það
Hamborgarabúllan þegar ég vil
sukka.“
Helga Möller söngkona.
„Jú, hún Mallorca Perla er alveg
mögnuð. Það var ekki bara á sýn-
ingunni núna sem hún var valin
besta húskattarlæðan heldur hefur
hún verið valin besta húskattarlæð-
an tvö ár í röð,“ segir Ragnheiður
Hrefna Gunnarsdóttir, eigandi læð-
unnar sem varð stigahæst í flokki
húskatta á sýningu Kynjakatta á
dögunum. Um 160 kettir tóku þátt
í sýningunni í nokkrum flokkum
en þótt flestir kettir sýningarinn-
ar séu hreinræktaðir eru alltaf
nokkrir afburða „venjulegir“ hús-
kettir sem mæta til keppni.
Mallorca Perla á ekki langt að
sækja snilli sína því afi hennar er
kötturinn Muri sem hefur þótt sýna
ótrúlega leikhæfileika, meðal ann-
ars í Bjarkarmyndbandinu og svo
í hlutverki kattarins sem gleypir
mann í Símaauglýsingunni. Faðir
Mallorcu Perlu, Jökull, er sonur
Mura en þeir kettir eru af Abyss-
iníu-kyni. Móðir Mallorcu Perlu
er hins vegar af hinu stutthærða
Conrix Rex-kyni. Abyssiníu-kett-
irnir sem og síðhærða útgáfan af
þeim, Sómalí, hafa notið mikilla
vinsælda hér á landi undanfarið og
verið eftirsóttir.
„Hún hefur geðslag föðurfjöl-
skyldu sinnar sem og andlitsfall-
ið. Hún er mjög vel gefin,
forvitin, uppátækjasöm og
blíð,“ segir Ragnheiður.
Uppátæki Mallorcu Perlu
geta verið af ýmsum toga
en á sýningunni komst
hún til að mynda yfir
popppoka og þótti
hafa himin hönd-
um tekið að fá
popp til að
gæða sér á.
Hún er ekki
mikið fyrir
aðra ketti
sem stela athygl-
inni frá henni en
finnst gaman að
stríða nágranna-
hundinum. „Mér
þótti nú nóg
komið um daginn og kallaði því á
hana. Nágranninn varð steinhissa
að sjá kött hlýða kalli. Hún er frek-
ar óvenjuleg.“ Ragnheiður segir að
mikið sé dekrað við heimilislæðuna
en henni þyki best ef hún er kjöss-
uð og kölluð „mömmustelpa“. „Hún
er ákaflega kelin og fríð. Maður er
ekkert hissa á því að hún sé valin
besti húskötturinn.“
juliam@frettabladid.is
MALLORCA PERLA: VALIN BESTA HÚSKATTARLÆÐAN TVÖ ÁR Í RÖÐ
Verðlaunaköttur sem elsk-
ar popp og stríðir hundum
MURI Á TÖKUSTAÐ
Kötturinn Muri
með eiganda
sínum, Gunnlaugu
Þorvaldsdóttur.
AF LEIKARAÆTTUM Mall-
orca Perla var stigahæsta
húskattarlæðan á sýningu
Kynjakatta um þarsíðustu
helgi. Henni kippir í kynið
því afi hennar, kötturinn
Muri, átti stórkostlegan
mótleik á móti Björk Guð-
mundsdóttur í tónlistar-
myndbandi hennar, Triumph
of a Heart.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
Einvalalið tónlistarmanna fylgir Jóhönnu Guð-
rúnu til Moskvu og styður við bakið á henni á
stóra sviði Eurovision-keppn-
innar. Meðal þeirra er söngv-
arinn Friðrik Ómar en hann
mun verða í bakröddunum
ásamt Heru Björk og Ernu
Hrönn. „Þetta er þá í annað
skiptið, ég er bara nýgræð-
ingur í þessu,“ segir Friðrik
en svo skemmtilega vill til
að Hera Björk var nálægt því
að tryggja sér sæti í Moskvu
þegar hún lenti í öðru sæti í
dönsku Eurovision-keppninni.
Friðrik segir það eilítið
öðruvísi tilhlökkunarefni en
þegar hann fór með Euro-
bandinu í fyrra. „Þetta verð-
ur bara alveg rosalega gaman
en þetta er náttúrulega fyrst
og fremst vinnuferð. Við
ætlum okkur að ná góðum
árangri og það eru allir í
hópnum sammála um það,“
segir Friðrik sem vill síður en svo gera lítið úr
vægi bakradda. „Við syngjum „live“ á sviðinu og
það er erfitt hlutverk að vera í bakrödd-
unum, við megum ekkert klikka,“
segir Friðrik.
Og hann er ekkert smeykur
við að stela senunni af Jóhönnu
þótt Eurobandið hafi notið tölu-
verðra vinsælda í Serbíu. „Nei,
Jóhanna er frábær söngkona
og það er mikill heiður að fá
að vinna með henni. Og svo
reynum við bara að nýta alla
athygli sem við fáum til
góðs.“ - fgg
Friðrik Ómar með til Moskvu
SAMAN Á SVIÐINU
Jóhanna Guðrún fær að
njóta liðsinnis Friðriks
Ómars á sviði Eurovision-
keppninnar í Moskvu.
Útgáfurisinn Forlagið
treysti sér ekki til að
gefa út væntanlega
bók Bubba Mort-
hens um sögu lax-
veiða í Laxá í Aðaldal,
Nessvæðið, en Bubbi
er ekki maður sem
lætur neitt stoppa
sig. Hann hafði sam-
band við kvennafor-
lagið Sölku og þær
voru meira en fúsar til
að gefa út bókina en
Einar Falur ljósmynd-
ari vinnur verkið
með Bubba. Og
verkefnið bara vex
því nú hefur Bubbi
komist að samkomulagi
við RÚV um að gera heimildar-
mynd sem byggist á sama verkefni
en Vötn og veiði greina frá því að
Bubbi hafi nú þegar undir höndum
gríðarlegt magn af kvikmyndaefni
sem gagnast vel.
Meðan Bubbi vex
eru aðrir refir skornir.
Mörgum brá í brún
þegar fréttist að Sigrún
Stefánsdóttir,
dagskrárstjóri
á Rás 2, væri
búin að slá
út hina
rótgrónu
Spurningakeppni fjölmiðlanna.
Unnendur þáttanna hafa stofnað
Facebooksíðu þar sem skorað er á
forráðamenn RÚV að draga þessa
ákvörðun til baka og á skömm-
um tíma söfnuðust hundrað
og fimmtíu manns á síðuna og
fer vaxandi. Fréttablaðið hefur
heimildir fyrir því að
Ágúst Héðinsson
og Bylgjan vilji
koma til bjargar
og hafi þegar sett
sig í samband
við rithöfundinn
snjalla, Ævar Örn
Jósepsson, sem ann-
ast hefur keppnina
undanfarin fimm
ár. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég hef engar áhyggjur af því að
Spock verði „sænað“. Við erum ein-
faldlega ekki nógu fallegir og ekki
nógu ungir,“ segir Finni, söngvari
hljómsveitarinnar Dr. Spock, og
lætur sér fátt um finnast. En sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
hafa fulltrúar frá Universal-útgáf-
urisanum boðað komu sína á Nokia
on Ice-tónlistarhátíðina sem verð-
ur haldin í Listasafni Reykjavík-
ur og á Sódóma Reykjavík 3. apríl
næstkomandi.
Universal er nú þegar með Bang
Gang innan sinna vébanda, en Bang
Gang spilar þetta kvöld. Þeir hafa
aftur á móti áhuga að skoða önnur
bönd sem koma fram á hátíðinni en
þau eru utan Bang Gang; Jeff Who?,
Dr. Spock, Sometime, Mammút,
Sudden Wether Change, Bárujárn
og Cosmic Call.
„Nei, ég óttast ekki þessa full-
trúa,“ segir Finni. Hans skoðun
er eindregið sú að íslenska tónlist-
arsenan sé miklu betri en sú sem
finna má úti. Það skipti bara ekki
máli. „Bönd í Breiðholti, 13 ára
gaurar, eru að búa til flottari tón-
list en gefin er út þarna úti. Það
dúkka alltaf upp svona agentar öðru
hvoru, lofa öllu fögru en svo verð-
ur ekki neitt úr neinu. Mæta seint
og illa, fullir og enda uppi á Gold-
finger,“ segir Finni og spáir súru
partíi hjá fulltrúum Universal. „Eru
að koma á einhverja brunaútsölu.
En þú getur sagt þeim að Spock sé
ekki til sölu nema fyrir átta millj-
arða – borgað í evrum.“ - jbg
Spock kostar átta milljarða borgað í evrum
FINNI Í DR. SPOCK Óttast ekki agenta Universal sem væntanlegir eru á tónlistarhátð-
ina Nokia on Ice. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
25% AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM FISKI Í DAG
ýsuflök, lúðusneiðar laxaflök, fiskréttir
hörpuskel, humar, rauðmagi og margt fleira.
HUGSUM UM HEILSUNA OG BORÐUM FISK.