Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Þórgunnar Oddsdóttur Í dag er föstudagurinn 27. mars, 86. dagur ársins. 7.03 13.33 20.04 6.46 13.18 19.51 Manneskjan er hugvitssöm skepna. Svo hugvitssöm reyndar að fréttir af framúrstefnu- legum tækninýjungum eru löngu hættar að koma okkur á óvart. Engu síður hrökk ég í kút um dag- inn þegar rödd á Rás 2 tilkynnti mér að fermingarvélarnar væru komnar í verslanir. „Fermingar- vélar“ át ég upp eftir útvarpinu og klóraði mér í höfðinu steinhissa. Hvernig gat þessi uppfinning hafa farið fram hjá mér? Ég minntist þess hvorki að hafa lesið um slíkt tæki né séð fjallað um það í sjón- varpinu. Eftir nánari umhugsun fannst mér þetta þó rökrétt fram- hald á fermingarbrjálæði þjóðar- innar. Það hafði auðvitað bara verið tímaspursmál hvenær við næðum að vélvæða það eins og annað. TÆKINU var ekki lýst neitt sér- staklega í auglýsingunni en ég var ekki lengi að gefa ímyndunar- aflinu lausan tauminn. Þetta hlaut að vera einhvers konar klefi, lík- astur sturtuklefa eða ljósabekk sem fermingarbarnið træði sér inn í. Síðan væri ýtt á takka og beðið í nokkrar mínútur uns krakkinn kæmi út nýfermdur. Ég ályktaði að fermingarvélin væri hlutur sem stórfjölskyldan kæmi sér saman um að kaupa, nú eða húsfélögin því varla þarf slík græja að vera til á hverju heimili. Þetta hlaut líka að vera rándýrt apparat svo eflaust þyrftu þeir efnaminni enn að sætta sig við gömlu aðferðina, það er að segja þá að ganga til prestsins og mæta í þessa hefðbundnu ferming- arathöfn sem við þekkjum svo vel. ÁÐUR en ég áttaði mig á mis- skilningnum var ég farin að velta fyrir mér ýmsum aukabúnaði sem koma mætti fyrir í fermingarvél- inni. Það væri til dæmis hentugt ef hún væri brúnkuklefi í leiðinni og svo mætti kannski forrita hana þannig að hún gæti sett gervinegl- ur á fermingarstúlkur og plokkað á þeim augabrúnirnar. Hugsið ykkur hagræðið. Krakkanum er skellt í vélina og kemur ekki aðeins kaffi- brúnn út úr henni með nýplokkað- ar augabrúnir heldur nýfermdur í þokkabót. Allur sá tími sem áður fór í að sitja á hörðum kirkjubekkj- um nýtist síðan í fermingarundir- búninginn sjálfan, baksturinn og skreytingarnar. ÞAÐ var ekki fyrr en ég fletti blað- inu daginn eftir og sá þessa sömu auglýsingu myndskreytta að ég átt- aði mig á misskilningnum. Ferming- arvélar eru víst bara ósköp venju- legar fartölvur sem þykja góðar fermingargjafir. Ég dauðskamm- aðist mín fyrir kjánaskapinn en sé núna að kannski liggja tækifæri í misskilningnum. Er nýsköpun ekki töfraorðið þessa dagana? Örlítill misskilningur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.