Fréttablaðið - 27.03.2009, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Þórgunnar
Oddsdóttur
Í dag er föstudagurinn 27. mars,
86. dagur ársins.
7.03 13.33 20.04
6.46 13.18 19.51
Manneskjan er hugvitssöm skepna. Svo hugvitssöm
reyndar að fréttir af framúrstefnu-
legum tækninýjungum eru löngu
hættar að koma okkur á óvart.
Engu síður hrökk ég í kút um dag-
inn þegar rödd á Rás 2 tilkynnti
mér að fermingarvélarnar væru
komnar í verslanir. „Fermingar-
vélar“ át ég upp eftir útvarpinu og
klóraði mér í höfðinu steinhissa.
Hvernig gat þessi uppfinning hafa
farið fram hjá mér? Ég minntist
þess hvorki að hafa lesið um slíkt
tæki né séð fjallað um það í sjón-
varpinu. Eftir nánari umhugsun
fannst mér þetta þó rökrétt fram-
hald á fermingarbrjálæði þjóðar-
innar. Það hafði auðvitað bara verið
tímaspursmál hvenær við næðum
að vélvæða það eins og annað.
TÆKINU var ekki lýst neitt sér-
staklega í auglýsingunni en ég
var ekki lengi að gefa ímyndunar-
aflinu lausan tauminn. Þetta hlaut
að vera einhvers konar klefi, lík-
astur sturtuklefa eða ljósabekk
sem fermingarbarnið træði sér inn
í. Síðan væri ýtt á takka og beðið
í nokkrar mínútur uns krakkinn
kæmi út nýfermdur. Ég ályktaði að
fermingarvélin væri hlutur sem
stórfjölskyldan kæmi sér saman
um að kaupa, nú eða húsfélögin því
varla þarf slík græja að vera til á
hverju heimili. Þetta hlaut líka að
vera rándýrt apparat svo eflaust
þyrftu þeir efnaminni enn að sætta
sig við gömlu aðferðina, það er að
segja þá að ganga til prestsins og
mæta í þessa hefðbundnu ferming-
arathöfn sem við þekkjum svo vel.
ÁÐUR en ég áttaði mig á mis-
skilningnum var ég farin að velta
fyrir mér ýmsum aukabúnaði sem
koma mætti fyrir í fermingarvél-
inni. Það væri til dæmis hentugt
ef hún væri brúnkuklefi í leiðinni
og svo mætti kannski forrita hana
þannig að hún gæti sett gervinegl-
ur á fermingarstúlkur og plokkað á
þeim augabrúnirnar. Hugsið ykkur
hagræðið. Krakkanum er skellt í
vélina og kemur ekki aðeins kaffi-
brúnn út úr henni með nýplokkað-
ar augabrúnir heldur nýfermdur í
þokkabót. Allur sá tími sem áður
fór í að sitja á hörðum kirkjubekkj-
um nýtist síðan í fermingarundir-
búninginn sjálfan, baksturinn og
skreytingarnar.
ÞAÐ var ekki fyrr en ég fletti blað-
inu daginn eftir og sá þessa sömu
auglýsingu myndskreytta að ég átt-
aði mig á misskilningnum. Ferming-
arvélar eru víst bara ósköp venju-
legar fartölvur sem þykja góðar
fermingargjafir. Ég dauðskamm-
aðist mín fyrir kjánaskapinn en sé
núna að kannski liggja tækifæri í
misskilningnum. Er nýsköpun ekki
töfraorðið þessa dagana?
Örlítill
misskilningur