Morgunblaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 12. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Verst klæddu
stjörnurnar
Britney Spears á toppnum
enn og aftur | Menning
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Asískir bílar gefa ekkert eftir í Ameríku Nýir mótorar í
Formúlunni Íþróttir | Viggó einum sigurleik frá metinu Golf-
boltarnir fljúga lengra og lengra Keflavík upp að hlið Njarðvíkur
010101010101010101010101010101010101010101010
10101010101010101010101010
010
10
01010101010101010
10101010
010101010
101010101010
010101010101010
0101010101
0101010101
010101010101010101
1010101010101
01010101010
01010101010
Framtíðin
er í okkar
höndum
tefnumót stjórnmálamanna,
háskólanema og starfsfólks
hátæknifyrirtækja 16. janúar.
Sjá nánar á www.si.is
AÐ minnsta kosti 345 pílagrímar tróðust undir í
mikilli mannþröng á hajj-trúarhátíð múslíma í
Sádi-Arabíu í gær. Fjölmargir til viðbótar slös-
uðust illa en atburðir sem þessir hafa verið al-
gengir á hinni árlegu hajj-hátíð, þrátt fyrir við-
leitni sádi-arabískra stjórnvalda til að tryggja
öryggi pílagríma.
Fólkið tróðst undir á Jamarat-brúnni í Mina,
skammt frá hinni helgu borg Mekka, þar sem
fór fram athöfn þar sem pílagrímar kasta grjóti
í þrjár steinsúlur sem á að tákna að djöflinum sé
í kot vísað og öllum freistingum hafnað.
Sagði Hamad bin Abdullah Al-Maneh, heil-
brigðisráðherra Sádi-Arabíu, að troðningurinn
hefði skapast þegar nokkrir pílagrímar hrösuðu
um farangur trúbræðra sinna á leið að stein-
súlunum; en algengt er að pílagrímar hafi allt
sitt hafurtask meðferðis er þeir fara á milli
staða í Mekka og nágrenni til að framfylgja
þeim helgisiðum sem hajj kallar á.
„Líkin hrönnuðust upp“
Mörg slys hafa orðið á trúarhátíðinni í gegn-
um árin en þó aldrei eins mannskæð og árið
1990, en þá fórust 1.426 skammt frá vettvangi
harmleiksins í gær.
Flestir hinna látnu munu vera frá löndum
Suður- eða Suðaustur-Asíu. Var haft eftir vitn-
um að hörmulegt hefði verið að horfa upp á
troðninginn. „Ég heyrði fólk öskra og … sá
menn stökkva hver yfir annan,“ sagði Suad Abu
Hamada, pílagrímur frá Egyptalandi, í samtali
við AP. „Lögreglan tók að draga lík manna úr
þvögunni. Líkin hrönnuðust upp. Ég hafði ekki
tölu á þeim, þau voru svo mörg.“
Margir lýstu óánægju sinni með að það skuli
ítrekað verða mikið manntjón á hajj. „Þetta ætti
ekki að eiga sér stað ár eftir ár. Þessu þarf að
linna, þetta er hneyksli. Það hlýtur að vera hægt
að skipuleggja hlutina betur,“ hafði AP eftir
Pakistananum Anwar Sadiqi.
2,5 milljónir pílagríma taka þátt í trúarhátíð-
inni að þessu sinni en sem kunnugt er skal hver
heilsuhraustur múslími taka þátt í hajj einu
sinni á lífsleiðinni. Hajj lýkur í dag.
AP
Lík pílagrímanna voru sveipuð hvítum lökum eins og sjá má á myndinni, en hún er tekin af sjónvarpsskjá. Að minnsta kosti 345 týndu lífi.
Á fjórða hundrað
pílagríma tróðst undir
Mesta manntjón á hajj-trúarhátíðinni í Sádi-Arabíu síðan 1990
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Berlín. AP, AFP. | Utanríkisráðherrar
Þýskalands, Frakklands og Bret-
lands mæltust í gær til þess að mál-
um Írana yrði vísað til Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna, en stjórnvöld í
Teheran tilkynntu fyrr í vikunni að
þau hygðust hefja á nýjan leik kjarn-
orkutilraunir sínar. Sögðu ráðherr-
arnir að viðræður við Írana um
kjarnorkuáætlanir þeirra væru í
„blindgötu“ og enginn tilgangur
væri í frekari fundahöldum með
írönskum embættismönnum.
„Við munum fara fram á að hald-
inn verði neyðarfundur hjá stjórn
IAEA [Alþjóðakjarnorkumálastofn-
unarinnar],“ sagði Frank-Walter
Steinmeier, utanríkisráðherra
Þýskalands, að loknum fundi hans,
Frakkans Philippe Douste-Blazy og
Bretans Jack Straw í Berlín. Mælast
þremenningarnir til þess að stjórn
IAEA vísi málinu síðan til Örygg-
isráðsins, en það gæti samþykkt við-
skiptaþvinganir á hendur Íran.
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, tók undir
sjónarmið Evrópumanna og sagði
tíma til kominn að SÞ tækju af festu
á Írönum.
Rice og evrópskir starfsbræður
hennar vísuðu til ítrekaðra tilrauna
Írana til að blekkja umheiminn varð-
andi kjarnorkuáætlanir sínar, en
Vesturveldin saka Írani um að vilja
búa til kjarnorkusprengju. Því neita
írönsk stjórnvöld hins vegar og full-
yrða að aðeins sé ætlunin að fram-
leiða raforku.
SÞ taki af festu á Írönum
ÚRVALSVÍSITALA aðallista Kauphallar
Íslands fór í gær í fyrsta skipti yfir sex þús-
und stig.
Innan við tveir
mánuðir eru síðan
vísitalan fór í fyrsta
skipti yfir fimm þús-
und stig, en það var
fimmtudaginn 17.
nóvember síðastlið-
inn. Þann dag fór
vísitalan hæst í
5.011,96 stig en loka-
gildi dagsins var
4.999,84 stig. Loka-
gildi vísitölunnar í
gær var 6.009,12
stig, og hefur hún því hækkað um 20% á
þessu tæplega tveggja mánaða tímabili.
Frá áramótum hefur úrvalsvísitalan
hækkað um 8,6% og hækkun síðastliðna tólf
mánuði nemur liðlega 74%. | 12
Úrvalsvísitalan
á hraðri uppleið
KONA varð fyrir því óhappi á mánu-
dag að velta bifreið sinni á Öxnadals-
heiði. Ungur maður, Helgi Svein-
björn Jóhannsson, kom henni
fljótlega til hjálpar og reyndu þau að
stöðva nokkra bíla sem fram hjá óku
til að fá frekari aðstoð en enginn
þeirra stoppaði.
„Mér fannst það svolítið skrýtið að
enginn skyldi stoppa fyrir okkur,“
segir Karen Lind Gunnarsdóttir, 23
ára sálfræðinemi við Háskólann á
Akureyri, sem fyrir óhappinu varð.
Hún sagðist meira að segja hafa
reynt að stoppa snjómokstursbíl en
án árangurs.
Samkvæmt lögum ber vegfar-
endum skylda til að stoppa ef þeir
koma að umferðarslysum og veita
alla þá hjálp sem þeir geta.
Höskuldur Eiríksson, varðstjóri
hjá lögreglunni á Blönduósi, segir að
atvik sem þessi komi alltaf upp annað
slagið.
„Ég held að þetta sé orðið þannig
að fólk veigrar sér við að stoppa og
treystir sér hreinlega ekki í það. Það
er hrætt við að ráða ekki við að-
stæðurnar sem mæta þeim,“ segir
Höskuldur. | 28
Aðeins einn
kom til hjálp-
ar þegar
kona velti bíl