Morgunblaðið - 13.01.2006, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Innifali›: Flug báðar leiðir með flugvallarsköttum.
www.icelandair.is/glasgow
Glasgow
Verð frá
20.900 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
30
92
7
0
1/
20
06
HELGI Magnússon, framkvæmda-
stjóri Eignarhaldsfélags Hörpu,
gefur kost á sér sem formaður
Samtaka iðnað-
arins á aðalfundi
samtakanna,
Iðnþingi, sem
fram fer 17.
mars nk. Vil-
mundur Jósefs-
son formaður
gefur ekki kost á
sér til endur-
kjörs en hann
hefur verið formaður síðastliðin
sex ár sem er hámarkstími sam-
kvæmt lögum samtakanna.
Helgi átti sæti í stjórn Samtaka
iðnaðarins á árunum 1995 til 2001.
Hann var framkvæmdastjóri
Hörpu og síðar Hörpu Sjafnar, eft-
ir sameiningu þeirra fyrirtækja,
alls í 12 ár en hann og aðrir hlut-
hafar seldu fyrirtækið til Flügger í
Danmörku fyrir rúmu ári. Helgi er
áfram formaður stjórnar þess fyr-
irtækis á Íslandi. Hann á einnig
sæti í stjórnum þriggja annarra
fyrirtækja sem eiga aðild að Sam-
tökum iðnaðarins og er hluthafi í
þeim í gegnum fjárfestingarfélög
sín. Þar er um að ræða Bláa lónið
hf., Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf.
og Marel hf.
Helgi hefur auk þess átt sæti í
stjórnum margra fyrirtækja og
stofnana, m.a. Lífeyrissjóðsins
Framsýnar, Þróunarfélagi Íslands,
Íslandsbanka, Íslenska lífeyris-
sjóðsins, Átaks til atvinnusköpun-
ar, Íslensks markaðar hf., Snorra
Þorfinnssonar ehf. og Verslunar-
ráðs Íslands.
Helgi segist hafa fengið mjög
ákveðna hvatningu til að gefa kost
á sér til formennsku í Samtökum
iðnaðarins frá mörgum frammá-
mönnum í íslenskum iðnaði.
„Ég átti samleið með mörgu
mjög góðu fólki í Samtökum iðn-
aðarins í nokkur ár, bæði innan og
utan stjórnar, og hef fylgst vel
með starfi samtakanna síðan ég
hætti þar sjálfur stjórnaraðild,“
segir Helgi. „Þessi samtök eru
mikilvæg og merkileg og ég tel það
verðugt viðfangsefni að taka þar
við forystu, ef ég hlýt til þess
stuðning. Það er gríðarlegt umrót í
íslensku atvinnulífi og mikil tæki-
færi sem þarf að nýta áfram. Það
blikka líka viðvörunarljós. En með
réttum vinnubrögðum höfum við
alla möguleika á að framlengja það
góðæri sem staðið hefur yfir um
árabil. Til þess þarf atvinnulífið
skilning og sanngjarnar forsendur
– nú sem endranær,“ segir Helgi.
Eiginkona Helga er Arna B.
Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Þau eiga þrjú börn á aldrinum 9 til
17 ára.
Gefur kost á sér
sem formaður SIEKKI er marktækur munur á fylgi
Stefáns J. Hafstein og Dags B. Egg-
ertssonar ef marka má könnun sem
Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið
heimur.is, á fylgi þeirra Stefáns,
Dags og Steinunnar Valdísar Ósk-
arsdóttur í efsta sæti framboðslista
Samfylkingarinnar fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar í vor. Stein-
unn er samkvæmt könnuninni með
marktækt minna fylgi en þeir báðir.
Samkvæmt könnuninni er fylgi
sjálfstæðismanna í borginni um 50%,
Samfylkingarinnar 37% og Vinstri
grænna um 10%. Fylgi Framsókn-
arflokks og Frjálslynda flokksins er
skv. henni eitt til tvö prósent.
Í könnuninni var spurt: „Hverju
eftirtalinna treystir þú best til að
leiða lista Samfylkingarinnar í
Reykjavík: Degi B. Eggertssyni,
Stefáni Jóni Hafstein eða Steinunni
Valdísi Óskarsdóttur?“ Þegar litið
er á niðurstöðurnar, óháð stuðningi
við flokka, sögðust 40% þeirra sem
tóku afstöðu treysta Stefáni Jóni,
um 36% Degi og 24% Steinunni Val-
dísi. Ef sérstaklega er litið á nið-
urstöður þeirra sem sögðust ætla að
kjósa Samfylkinguna nefndu 40%
þeirra sem tóku afstöðu Dag, 35%
nefndu Stefán Jón og 25% nefndu
Steinunni Valdísi.
Könnunin var gerð dagana 5. til
11. janúar sl. Samtals var 661 spurð-
ur. Um 40% vildu ekkert þeirra
þriggja, voru óviss eða neituðu að
svara.
Stefán og Dagur
með meira fylgi
en Steinunn
„VIÐ fögnum þessum mikla áhuga sem
skipasmíðastöðvar víðs vegar í heiminum
sýna,“ segir Georg Kr. Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, en fimmtán skipa-
smíðastöðvar tóku þátt í forvali vegna smíða
á nýju varðskipi, sem gert er ráð fyrir að
verði afhent fyrir árslok 2008. Umsóknir
vegna forvalsins voru opnaðar í gær. „Um er
að ræða skipasmíðastöðvar allt frá Kína og
til Noregs og við sjáum margar traustar
skipasmíðastöðvar í hópnum,“ segir Georg.
Engin íslensk skipasmíðastöð tók þátt í for-
valinu.
Að sögn Þórhalls Hákonarsonar, verk-
efnastjóra hjá Ríkiskaupum, bárust fleiri
umsóknir en gert hafði verið ráð fyrir. Á
næstunni verði skoðað, út frá þeim gögnum
sem skipasmíðastöðvarnar sendu, hverjar
þeirra teljist hæfar til þess að annast verkið.
„Þær skipasmíðastöðvar sem uppfylla þær
kröfur sem við gerum fá send útboðsgögn og
annað sem til þarf til þess að bjóða í eiginlega
verkið,“ segir Þórhallur.
Hann segir Ríkiskaup áskilja sér rétt til
þess að fækka þeim skipasmíðastöðvum nið-
ur í 5–10 sem fá að taka þátt í lokaða útboð-
inu. Ósennilegt sé að fleiri en tíu skipasmíða-
stöðvar fái að bjóða í verkið.
Þórhallur segir að stefnt sé að því að
samningur um smíði skipsins verði undirrit-
aður í vor eða snemma sumars.
Þessi fyrirtæki sendu inn boð
1. Astilleros Armon S,A. Spánn
2. China Ship Building Trading Company,
Kína
3. Bergen Yards AS, Noregur
4. Navantia S.A., Spánn
5. Simek A/S, Noregur
6. Damen Shipyards Goringchem, Holland
7. Devenport Royal Dockyard Limited,
Bretland
8. Gdansk Stocznia Remontowa im, Pólland
9. Chantiers De’ Atlantique (Alstom
Naval), Frakkland
10. Thyssen Krupp Marine Systems
(TKMS), Þýskaland
11. Fincantieri Cantieri Navali, Ítalía
12. Peene-Werft GmbH, Þýskaland
13. Karstensens Skibsværft A/S, Danmörk
14. Asmar, Chile
15. Aker Brattvaag Skibsverft A.S, Noregur.
15 manns tóku þátt í for-
vali vegna nýs varðskips
„Við fögnum
þessum mikla
áhuga“ÍBÚAR í Grafarvogi eru uggandi yfir skurði
sem verktaki hefur grafið vegna fyrirhugaðra
undirganga undir Hallsveg, en framkvæmdir
við hann eru nú í fullum gangi. Skurðurinn,
sem er rétt norðan við íþróttasvæði Leiknis og
sundlaug Grafarvogs, er djúpur og brattar
brúnir ofan í hann. Þá er talsvert af vatni í hon-
um og á því er þunnur ís sem brotnar auðveld-
lega.
Þorsteinn Jóhannsson, íbúi í Grafarvogi og
þriggja barna faðir, hefur áhyggjur af skurð-
inum, enda segist hann hafa séð börn að leik
við enda hans og hann sé afar freistandi „æv-
intýraland,“ fyrir börnin í hverfinu. „Ég sá
hérna tvær tíu ára stelpur sem voru að leika
sér að labba á ísnum við grynnsta enda gilsins
og ég bað þær um að hætta þessum hættulega
leik,“ segir Þorsteinn. „Þær sögðust alveg
kunna að synda og sögðu að þetta væri ekkert
mál. Þær gerðu sér engan veginn grein fyrir
hættunni sem er þarna á ferð, enda brast ísinn
undan þeim og sem betur fer voru þær á
grunnu og óðu aftur upp. Á öðrum stöðum er
dýptin allt að metri og þar er mun meiri slysa-
hætta. Þá eru bakkarnir brattir og háir og fólk
sér illa ef einhver dettur ofan í.“
Þorsteinn segir hér um að ræða tugmilljón
króna framkvæmd og lítið mál ætti að vera að
dæla upp úr skurðinum, sem er um hundrað
metra langur, girða kringum hann eða vakta.
Reykjavíkurborg hafi sagst skyldu þrýsta á
verktaka fyrir tveimur dögum, en ekkert hafi
enn gerst. Við stígstæðið er ekki að sjá neinar
viðvaranir og er hvergi varað við hættu á svæð-
inu.
Kalt vatnið getur lamað börn
Herdís L. Storgaard, verkefnisstjóri barna-
slysavarna hjá Lýðheilsustöð, segir bygginga-
reglugerð kveða skýrt á um það hvernig ganga
eigi frá öllum byggingaframkvæmdum. „Það á
að girða það af og sjá til þess að fólk sem á leið
fram hjá og sérstaklega börn, geti ekki slasað
sig á aðstæðum, t.d. með því að detta ofan í,“
segir Herdís.
„Í fimmtán ára starfi hefur þetta ástand
lagast talsvert. Byggingarverktakar hafa tekið
sig talsvert á, en samt sem áður er miklu ábóta-
vant í sambandi við þennan málaflokk. Og það
líður ekki sú vika hjá mér að ég fái ekki eina
eða fleiri ábendingar um sams konar mál og
hér er um að ræða. Það er afar sérkennilegt að
það skuli næstum alltaf þurfa að beita þrýstingi
til að fá verktaka til að fara eftir lögum, að það
skuli ekki vera hægt að byrja á þessu strax og
framkvæmdirnar byrja. Í nágrannalöndum er
það þannig að um leið og menn flytja sig á
svæði þar sem framkvæmdir eiga að hefjast, þá
er byrjað að girða af þótt grunntaka sé ekki
hafin.“
Herdís segir mikilvægt að huga að því að þó
vatnið sé ekki sérstaklega djúpt séu miklar
sveiflur í veðráttu hér á landi. „Þó stærri börn
drukkni kannski ekki svo auðveldlega í svona
grunnu vatni getur kuldinn verið svo mikill að
það tekur ekki langan tíma fyrir barn að lam-
ast af honum og verða þreklaust,“ segir Herdís.
Börn geta átt í erfiðleikum
„Auk þess eru bakkarnir svo brattir að barn
sem dettur ofan í á oft í erfiðleikum með að
komast upp úr. Þá er mikil hætta á að barnið
geti hreinlega orðið undir hlassinu sem losnar
eða að það komist hreinlega ekki upp og við
höfum slík dæmi hér. Ég vil líka minna á það að
lítil börn, undir grunnskólaaldri, geta auðveld-
lega drukknað í mjög grunnu vatni, allt að 2–5
sentimetra grunnu.“
Hjá Mannvirkjaskrifstofu framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar fengust þau svör að rætt
hefði verið um ástandið í fyrradag og þeim til-
mælum komið til verktakans að bæta úr
ástandinu hið fyrsta. Verktakafyrirtækið Há-
fell sér um framkvæmd við Hallsveg. Að-
spurður hvers vegna ekki hafi verið girt fyrir
eða merkt vegna hættu segir Magnús Jónsson,
verkefnisstjóri yfir lagningu Hallsvegar,
dælingu hafa verið alla daga úr stígstæðinu.
„Hér er ekki um að ræða neinn skurð, þetta er
stígstæði og það mun verða svona í framtíð-
inni,“ segir Magnús og bætir við að vinnusvæði
séu alltaf hættuleg fyrir börn og því eigi for-
eldrar að brýna fyrir börnum sínum að leika
sér ekki nálægt þeim.
Hins vegar sé svæðið svo víðfeðmt að ómögu-
legt sé að vakta það. „Þessi framkvæmd heyrir
heldur ekki undir byggingareglugerð, svo það
þarf ekki að girða sérstaklega fyrir, enda er
það næstum ómögulegt þegar unnið er að
vegagerð.“
Magnús segir verkkaupa, Vegagerðina og
Reykjavíkurborg, ekki hafa óskað sérstaklega
eftir því að svæðinu yrði lokað, en hins vegar sé
óskað eftir því að reynt sé að fyrirbyggja slys.
„Við erum að vinna þetta verk eftir útboðs-
gögnum og eftir þeim reglum sem gilda vegna
vegagerðar, sem eru í raun staðalsígildi um
framkvæmdir við vegagerð. Þar gildir m.a. Al-
verk 95, sem er í raun innri lýsing Vegagerð-
arinnar á framkvæmd verkefna af þessu tagi,“
segir Magnús að lokum.
Morgunblaðið/Ómar
Þorsteinn Jóhannsson stingur kústskafti gegnum þunnan ísinn. Dýptin var á bilinu 50–100 cm.
Íbúar í Grafarvogi telja skurð við
Hallsveg geta verið slysagildru
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is