Morgunblaðið - 13.01.2006, Side 8
Já, en hæstvirtur dómari, þetta er nú bara kvenmaður.
8 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Reiði gætir á meðaltónlistarnema áframhaldsskóla-
stigi þar sem margir nem-
endur sjá ekki fram á að
geta lokið námi sínu
vegna breyttra reglna
sveitarfélaganna um
greiðslur til handa tónlist-
arnemendum. Var reglun-
um breytt síðastliðið
haust þegar ríkið sleit
samstarfi við sveitarfélög-
in og hætti að styrkja tón-
listarnám á framhalds-
stigi, en deilur hafa staðið
á milli ríkis og sveitarfélaga um
það hver eigi að greiða með þessu
námi. Tóku þá sveitarfélögin
ákvörðun um að takmarka
greiðslur til tónlistarnemenda við
25 ára aldur, fyrir utan Reykja-
víkurborg sem auk þess greiðir
með söngnemendum til 27 ára
aldurs.
Böðvar Reynisson, söng- og
gítarnemi við Tónlistarskóla
FÍH, segir að þegar reglunum
hafi verið breytt síðasta haust
hafi verið gefinn tveggja ára að-
lögunartími fyrir nemendur á
þessum hámarksaldri og væri
hann á meðal þeirra. Hann sæi
fram á að þurfa að greiða fyrir
námið úr eigin vasa þegar aðlög-
unartímanum væri lokið og gæti
sú upphæð numið um 800 þúsund
krónum á ári þar sem hann
stundaði tvöfalt nám.
Böðvar telur að sveitarstjórnir
eigi að greiða launakostnað tón-
listarkennara samkvæmt lögum
um fjárhagslegan stuðning við
tónlistarskóla frá árinu 1985.
Ef miðað er við að nemandi
stundi nám í einu tónlistarfagi má
gera ráð fyrir því að skólagjöld
nemi um 400 þúsund krónum á
skólaári og er það kostnaður sem
margir eiga erfitt með að ráða
við. Böðvar benti á að Lánasjóður
íslenskra námsmanna byði ein-
ungis upp á framfærslulán og nú
væri aðeins 7. stig lánshæft en
ekki 6. og 7. eins og áður var.
Þessu hefði einnig verið breytt
síðasta haust og taldi Böðvar því
fráleitt að kalla námið lánshæft.
Aðspurður um svör frá Reykja-
víkurborg sagði Böðvar að lítið
hefði borið á þeim.
Ríkið þarf að leysa hnútinn
Fram hefur komið í tilkynn-
ingu frá Stefáni Jóni Hafstein,
formanni menntaráðs Reykjavík-
urborgar, að á síðasta námsári
hafi aðeins takmarkað samkomu-
lag náðst við ríkið um að það
greiddi fyrir einingabært nám í
framhaldsskólum en annað fram-
haldsnám í tónlist var látið
ósnert. Síðasta haust hafi síðan
óvissa skapast um þátt ríkisins
þrátt fyrir hið takmarkaða sam-
komulag árið áður. Reykjavíkur-
borg hafi engu að síður ákveðið
að greiða með nemendum sem
búsettir voru í borginni upp að 25
ára aldri í hljóðfæranámi og 27
ára aldri í söngnámi. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Stefán Jón
að eðlilegar útskýringar lægju að
baki hámarkinu:
„Aldurshámarkið er þannig til
komið að sveitarfélögin öll hafa
staðið í viðræðum við ríkið frá því
árið 2003 um að það taki við fram-
haldsnámi í tónlist. Það hefur
hvorki gengið né rekið og hefur
verið mjög erfitt að fá ríkið til að
taka þetta að sér. Í þeim viðræð-
um hafa menn rætt um það að
það sé eðlilegt að þar sem fram-
haldsnám sé, á hvers hendi sem
það er, þá sé það á viðmiðunar-
aldri fyrir framhaldsnám yfir-
leitt. Þannig að fullorðinsfræðsla
í tónlist fellur hvorki undir skyld-
ur ríkis né sveitarfélaga.“
Þegar Stefán Jón er spurður að
því hvernig þessi aldur hafi verið
ákvarðaður sagði hann að menn
hefðu viljað miða við tvítugsaldur
eða þegar fólk kláraði stúdents-
próf en fallið hefði verið frá þeirri
hugmynd. Töldu menn að nem-
endur þroskuðust hægar í tónlist
en í öðrum greinum, sérstaklega í
söngnum. Hann sagðist ekki geta
sagt til um hvernig þetta yrði í
framtíðinni en hugsunin á bakvið
þetta fyrirkomulag væri að
„styrkja fólk til náms, alvör-
unáms með alvörunámsfram-
vindu á þeim aldri sem fólk er í
framhaldsnámi en ekki eftir það.“
Honum blöskraði seinagangurinn
í ráðuneytinu og taldi brýnt að
ríkið lyki þessu ferli. Hann benti
ennfremur á að tómstundanám,
fullorðinsfræðsla eða endur-
menntun væru ekki greidd niður
líkt og venjulegt háskólanám.
Hyggja á aðgerðir
Böðvar Reynisson sagði að
haldinn hefði verið fundur síðasta
mánudag þar sem tónlistarnem-
endur hefðu farið yfir málið. Góð
mæting hefði verið og hefðu nem-
endur úr FÍH ásamt nemendum
úr öðrum skólum mætt. Þar var
sú ákvörðun tekin að annar fund-
ur yrði haldinn á næstunni og
yrði þar krafist svara af hálfu
borgarfulltrúa og fulltrúa ann-
arra sveitarfélaga og ríkis.
Þar yrði einnig þrýst á að sveit-
arfélög og ríkið komist að sam-
komulagi sem ekki bitni á nem-
endum skólanna eins og nú
virðist vera. Auk þess nefndi
Böðvar að farin væri af stað und-
irskriftasöfnun og að einnig væru
í undirbúningi tónleikar til stuðn-
ings málstaðnum.
Fréttaskýring | Jafnrétti til náms skert?
Aldursmörk á
tónlistarnámi
Sveitarfélög hafa sett aldurshámark á
tónlistarnám meðan ríkið semur ekki
Í tónlistarskóla FÍH.
Ekki gert ráð fyrir tónlist-
arnemendum utan af landi
Þegar ríkið hætti að greiða
með tónlistarnemum tók Reykja-
víkurborg að greiða þann hluta
til að tryggja áframhaldandi
nám. Það hafa hins vegar nokkur
nágrannasveitarfélög Reykjavík-
ur ekki gert og nýlega fengu á
annað hundrað tónlistarnem-
endur búsettir utan Reykjavíkur
uppsagnarbréf frá sínum skóla.
Margir hafa brugðið á það ráð að
flytja lögheimili sitt til Reykja-
víkur vegna þessa.
Eftir Sigurð Pálma
Sigurbjörnsson
siggip@mbl.is
BEIÐNI íslenskra yfirvalda
um aðstoð erlendra lögregluyf-
irvalda við rannsókn á meintu
fiskveiðibroti innan íslensku
efnahagslögunnar, kann að
vera sú fyrsta sinnar tegundar
að sögn Dagmarar Sigurðar-
dóttur lögfræðings og upplýs-
ingafulltrúa Landhelgisgæslunnar.
Eins og fram hefur komið var það
flugvél Gæslunnar TF SYN sem stóð
færeyskan togara að ólöglegum veið-
um í síðustu viku en þar sem ekkert
varðskip var nærstatt, var ekki unnt
að færa togarann til hafnar.
Samkvæmt upplýsingum Gæsl-
unnar skilaði yfirstýrimaður í áhöfn
Sýnar skýrslu um málið að kvöldi 5.
janúar og var ákveðið að óska eftir
aðstoð lögregluyfirvalda í Færeyjum
við rannsókn málsins með milli-
göngu ríkislögreglustjórans. Óskað
var eftir því að færeyska lögreglan
færi um borð í togarann við komu til
Færeyja og yfirheyrði skipstjórann
og aðra hlutaðeigandi, afli yrði rann-
sakaður sem og skipsbækur og
fleira. Málið var sent til Færeyja að-
faranótt 6. janúar sl. fyrir milligöngu
alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra og
er til rannsóknar hjá lögreglunni í
Þórshöfn.
Óvenjulegt mál
„Þetta er óvenjulegt mál og það
hefur aldrei, svo mér sé kunnugt um,
verið óskað eftir aðstoð lög-
reglu í fánaríki skips, þannig
að það verður að sjá til hvernig
gengur með framhald máls-
ins,“ segir Dagmar. „Ef rann-
sóknargögn gefa tilefni til
munu íslensk lögregluyfirvöld
væntanlega gefa út ákæru á
hendur skipstjóranum og jafn-
vel stjórnendum útgerðarinn-
ar en síðan mun koma í ljós
hvort ákærðu komi inn í íslenska lög-
sögu svo hægt verði að rétta yfir
þeim. En ég tel að þetta mál sé ekki
þess eðlils að hægt sé að óska fram-
sals.“
Sagt er frá því á fréttavef Fiski-
frétta skip.is eftir heimild frá fær-
eyska útvarpinu að færeyska lög-
reglan hafi farið um borð í togarann
þegar hann kom til hafnar á Þver-
eyri seint á mánudagskvöld. Afla-
dagbók skipsins hafi verið skoðuð og
sömuleiðis hve mikinn afla skipið var
með.
Líklega í fyrsta skipti sem beðið er um aðstoð útlendrar
lögreglu vegna fiskveiðibrota við Ísland
Ekki krafist framsals
en ákæra möguleg
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
LÖGREGLAN í Vestmannaeyjum
hefur til rannsóknar hugsanlegt pen-
ingaþvætti karlmanns sem nýlega
var látinn laus úr sjö daga gæslu-
varðhaldi vegna umfangsmikils
fíkniefnamáls í bænum. Í málinu
hafa fundist um 1,3 kíló af hassi og 20
grömm af amfetamíni.
Auk þess var lagt hald á tæplega
eina milljón króna í peningum, bæði í
íslenskum krónum og bandarískum
dollurum.
Vegna efnahagsbrotahluta máls-
ins, eða peningaþvættisins, hefur
lögreglan haft til skoðunar þrjár
húseignir mannsins í Eyjum með til-
liti til þess hvort grunur er um að
þær hafi verið keyptar fyrir
fíkniefnaágóða. Að auki hefur farið
fram athugun á bankareikningum
mannsins.
Efnin flutt með Herjólfi
Flutningsleið meginhluta fíkni-
efnanna er talin hafa verið með Vest-
mannaeyjaferjunni Herjólfi milli
lands og Eyja. Hefur lögreglan vitn-
eskju um að ýmsir aðilar sem tengj-
ast flutningunum hafi fylgst með
hvenær lögreglueftirlit var í Vest-
mannaeyjahöfn til að greiða fyrir
smyglinu.
Ljóst er að tekist hefur að upp-
ræta flutningsleiðina, en afrakstur
rannsóknar lögreglu er rakinn til
vitneskju hennar um umtalsverða
fíkniefnaneyslu í bænum í haust.
Fylgst var með neytendum og hugs-
anlegum fíkniefnasölum og var unn-
ið að því að þrengja hringinn með
þeim árangri sem nú hefur náðst.
Ekki hefur þó verið gripið til þess
úrræðis að kyrrsetja eignir eða
frysta bankareikninga að sögn lög-
reglu.
Lögreglan í Vestmannaeyjum upprætir smyglhring
Grunur um peningaþvætti
vegna fíkniefnamáls