Morgunblaðið - 13.01.2006, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
á morgun
Menningar-
vitinn
logar ekki
STJÓRN Sparisjóðs Hafnarfjarðar
sendi í gær frá sér eftirfarandi grein-
argerð:
„Rannsókn FME
Allt frá því í júní sl., þegar fréttir
bárust fyrst af því að hluti stofnfjár í
Sparisjóði Hafnarfjarðar hefði skipt
um hendur, hefur Fjármálaeftirlitið
verið með það til skoðunar hvort virk-
ur eignarhluti sé til staðar í SPH. Í
síðastliðinni viku hóf síðan efnahags-
brotadeild Ríkislögreglustjóra rann-
sókn á viðskiptum með stofnfé í SPH
og er hún sögð liður í fyrrgreindri
rannsókn FME. Í tilefni af því telur
Sparisjóður Hafnarfjarðar nauðsyn-
legt að varpa nokkru ljósi á mála-
vöxtu og skýra þær aðstæður sem til
staðar eru í SPH varðandi stofnfé og
meðferð þess.
Í lögum um fjármálafyrirtæki seg-
ir, að með virkum eignarhlut sé átt
við beina eða óbeina hlutdeild í fyr-
irtæki sem nemi 10% eða meira af
eigin fé, stofnfé eða atkvæðisrétti,
eða aðra hlutdeild sem gerir kleift að
hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkom-
andi fyrirtækis. Hvað sparisjóði varð-
ar lýtur þessi skilgreining að stofnfé
þeirra. Ekki er í lögunum gerður
greinarmunur á stærð sparisjóða eða
skiptingu stofnfjár.
Í bréfum sínum til stofnfjáraðila í
SPH hefur FME byggt á skýringum
á framangreindri reglu sem fram
koma í athugasemdum með frum-
varpi til laganna, en þar segir m.a:
„Um óbeina hlutdeild í stofnfé má
vísa til þess tilviks þegar tveir eða
fleiri stofnfjáreigendur kæmu sér
saman með formlegu eða óformlegu
samkomulagi um samræmda beit-
ingu samanlagðs atkvæðaréttar eða
að samkomulag tækist við annan eða
aðra slíka hópa um beitingu atkvæð-
isréttar. Hvers konar samstilltar að-
gerðir, hverju nafni sem nefnast,
kunna þannig að falla undir virka
eignaraðild.“
Fjöldi stofnfjáreigenda í
stærstu sparisjóðunum
Í þessu sambandi er rétt að bera
saman dreifingu stofnfjár eins og hún
hefur verið í stærstu sparisjóðunum
og er hér miðað við stöðuna í árslok
2002. Markviss þróun hefur átt sér
stað hjá öllum stóru sparisjóðunum,
nema SPH, í þá veru að fjölga stofn-
fjáraðilum. Með því er að sjálfsögðu
ætlun stjórnenda sjóðanna að auka
eigið fé þeirra og styrkja þá þannig í
samkeppninni við viðskiptabank-
anna. Á umræddu tímamarki var
staðan orðin eftirfarandi:
stofnfj.
aðilar
Sparisj. Hafnarfjarðar SPH 45
Sparisj. Reykjavíkur SPRON 1.105
Sparisj. í Keflavík SPKEF 555
Sparisj. Vélstjóra SPV 673
Sparisj. Kópavogs SPK 586
Þetta er athyglisverður samanburður
í ljósi þess að Sparisjóður Hafnar-
fjarðar er næst stærstur þessara
sparisjóða. Það var hins vegar ein-
dregin afstaða þeirra sem fóru með
stjórn SPH síðustu árin og áratugina
að halda fjölda stofnfjáraðila í lág-
marki þess sem lög kveða á um. Sú af-
staða og í raun sú stöðnun sem var
hjá SPH að þessu leyti setur mögu-
leikum sjóðsins takmörk hvað varðar
aukningu eigin fjár með útgáfu stofn-
bréfa, en hefur um leið áhrif á stjórn-
un hans og stjórnarhætti.
Samkvæmt ákvæðum laga um fjár-
málafyrirtæki skal stjórn sparisjóða
skipuð 5 mönnum. Í samþykktum
flestra sparisjóðanna, og þar á meðal
Sparisjóðs Hafnarfjarðar, eru jafn-
framt ákvæði þess efnis að framboð
til stjórnar skuli stutt meðmælum 5
annarra stofnfjáraðila. Ekki er gert
ráð fyrir öðru en listakosningu og því
þurfa 10 stofnfjáraðilar í það minnsta
að standa að framboði til stjórnar í
sparisjóði.
Virkur eignarhluti í SPH?
Í ljósi þess að stofnfjáraðilar SPH
voru aðeins 45 þá blasir við að stjórn
skipuð 5 mönnum getur ekki annað
en myndað virkan eignarhluta,
þ.e.a.s. ef túlkun FME er lögð til
grundvallar. Framboð til stjórnar
krefst aðildar 5 stofnfjáraðila í viðbót
og þá hefði samkvæmt túlkun FME
myndast virkur eignarhluti í sjóðnum
sem færi með 22% stofnfjár. Þessi
staða hefur verið óbreytt hjá SPH frá
upphafi án þess að FME hafi nokk-
urn tíma gert athugasemdir þar um,
fyrr en nú.
Þessi aðstaða kemur hins vegar
ekki upp hjá þeim sparisjóðum sem
fjölgað hafa stofnfjáraðilum, eins og
sjá má af eftirfarandi samanburði:
(m.v. árslok 2002)
SPH, stofnfjáraðilar 45, framboð 10
manns, hlutfall af stofnfjáraðilum 22%.
SPRON, stofnfj.aðilar 1.105, framboð 10
manns, hlutfall af stofnfjáraðilum 0,9%.
SPV, stofnfjáraðilar 673, framboð 10
manns, hlutfall af stofnfjáraðilum 1,5%.
Í ljósi þessa hefur undanfarna ára-
tugi þurft nær ¼ hluta stofnfjáraðila
til að mynda framboð til kjörs stjórn-
ar í SPH. Því er spurt: Hefur þá verið
virkur eignarhluti við völd í SPH all-
an þennan tíma, óátalið af FME, og
hvað veldur nú hugarfarsbreytingu
embættisins við valdatöku nýrrar
stjórnar hjá SPH?
Viðskipti með stofnfé
í sparisjóðunum
Það hefur verið yfirlýst stefna sitj-
andi stjórnar að standa ekki í vegi
fyrir því að stofnfé í SPH geti skipt
um eigendur, svo fremi sem það fari
ekki í bága við lög. Stjórnin hefur tal-
ið það sparisjóðnum til framdráttar
að eðlileg endurnýjun yrði í hópi
stofnfjáreigenda og inn kæmu aðilar
sem hefðu áhuga á vexti og viðgangi
SPH. Engin slík endurnýjun hafði
verið í langan tíma og voru stofnfjár-
eigendur almennt áhrifalausir um
stjórn SPH og um leið áhugalausir
um hagsmuni sjóðsins. Það var enda
ekki annað að sjá en það væri stefna
þeirra sem þá voru við stjórnvölinn að
afskipti stofnfjáraðila af sjóðnum
væru sem minnst.
Á sama tíma voru fjörug viðskipti
með stofnfé í öllum stóru sparisjóð-
unum. Má sem dæmi nefna að stofnfé
SPRON var sett á opinn markað fyrir
tveimur árum og síðan þá hefur stofn-
fjáraðilum fækkað úr 1105 í 808. Eiga
nú 20 stærstu stofnfjáreigendur í
sjóðnum 62% af stofnfé í SPRON
(sbr. heimasíðu SPRON). Í byrjun
þessa árs skipti 8% stofnfjár SPRON
um eigendur í einu lagi. Kaupverðið
var 1.400 milljónir króna og var kaup-
andinn félag að nafni Tuscon Partn-
ers Corporation. (Fréttablaðið 4. jan-
úar 2006). Þá má að endingu nefna
umfangsmikil kaup MP fjárfestinga-
banka í SpV á síðustu vikum. Ekki er
að sjá að þessi miklu viðskipti með
stofnfé hafi sætt athugasemdum af
hálfu FME.
Nýir stofnfjáreigendur í SPH
Það var nú loks í kjölfar síðasta að-
alfundar SPH sem hreyfing komst á
stofnfé í SPH. Margir nýir og áhuga-
samir stofnfjáraðilar hafa komið inn í
hópinn og má meðal þeirra nefna:
Sjóvá-tryggingarfélag hf.
Magnús Ármann
SPV-fjárfestingar
MP-fjárfestingarbanka hf.
Sigurð Á. Bollason
Íslandsbanka hf.
Sigurð G. Guðjónsson
Björn Þorra Viktorsson
Fjölmargir aðrir hafa óskað eftir
samþykki stjórnar SPH við kaupum
þeirra á stofnfé en meðal þeirra eru:
Saxhóll ehf.
Bygg ehf.
Guðmundur A. Birgisson
Alnus ehf.
Sparisjóður Kópavogs
Stjórn SPH fagnar aðkomu allra
þessara nýju stofnfjáraðila og vonast
til að geta afgreitt umsóknir þeirra
sem allra fyrst.“
Greinargerð frá stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar
Virkur eignarhluti í SPH?
Jón Víkingur Guð-
mundsson á Grænhóli
við Akureyri er látinn.
Hann fæddist 29. maí
1924 á Skeggjastöð-
um á Jökuldal í Norð-
ur-Múlasýslu. For-
eldrar hans voru
Guðmundur Jónsson
bóndi á Mýrarlóni,
Akureyri, og kona
hans Arnbjörg
Sveinsdóttir.
Víkingur lauk
gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Akureyrar og flutt-
ist síðar, 1945, til Reykjavíkur þar
sem hann starfaði sem bifreiðastjóri
í nokkur ár. Víkingur flutti 1948 að
Grundarhóli á Hólsfjöllum og bjó
þar í 14 ár. Hann flutti síðan til Ak-
ureyrar 1962 og hóf búskap á Græn-
hóli, þar sem hann var með hænsna-
og svínabú í nokkur ár. Uppúr 1975
hætti hann að mestu búskap og
keypti sér vörubíl og starfaði með
hann í rúm 20 ár.
Víkingur var virkur í félagsmál-
um. Hann var í stjórn Ungmenna-
sambands Eyjafjarðar, UMSE.
Einnig Ungmennafélagsins Dags-
brúnar um skeið og var
stofnandi bridgedeildar
innan félagsins og var
hann ötull bridgespilari
á meðan heilsan leyfði.
Víkingur var í stjórn
Landsambands vörubif-
reiðastjóra og í stjórn
Vörubifreiðastjóra-
félagsins Vals á Akur-
eyri.
Víkingur lét sig bæj-
armálin og landspólitík-
ina varða og var um tíma
virkur í Sjálfstæðis-
flokknum og starfaði talsvert fyrir
hann.
Víkingur var fréttaritari hjá
Morgunblaðinu um áraraðir, bæði
þegar hann bjó á Hólsfjöllum og
einnig eftir að hann flutti til Akur-
eyrar. Hann var mikill áhugamaður
um íslenskt mál og átti í reglulegum
bréfaskriftum við Gísla Jónsson
menntaskólakennara, sem þekktur
var fyrir pistla sína um íslenskt mál.
Fyrri kona Víkings var Halldóra
Hansen. Þau skildu. Þau áttu 2 börn.
Eftirlifandi kona Víkings er Berg-
þóra Sölvadóttir og eiga þau saman 8
börn.
Andlát
VÍKINGUR
GUÐMUNDSSON
ÞINGMENN Samfylkingarinnar
heimsækja um þessar mundir fyrir-
tæki og stofnanir og sitja fundi með
mörgum Samfylkingarfélögum. Með
þessu vilja þingmennirnir kynna sér
hvað fram fer í fyrirtækjunum, hitta
stjórnendur og starfsmenn og taka
púlsinn á stjórnmálum líðandi stund-
ar. Vikuna hófu þingmenn Samfylk-
ingarinnar í Suðurkjördæmi með
heimsókn á Suðurnes en í gær fóru
þingmenn Reykjavíkur og Suðvest-
urkjördæmis, þau Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, Katrín Júlíusdóttir,
Ágúst Ólafur Ágústsson, Helgi
Hjörvar, Jóhanna Sigurðardóttir,
Mörður Árnason og Ásta Ragnheið-
ur Jóhannesdóttir í heimsóknir í fyr-
irtæki á höfuðborgarsvæðinu. Meðal
þeirra fyrirtækja voru m.a. Mar-
orka, Marel og ORF-Líftækni.
Morgunblaðið/Sverrir
Samfylkingarfólk heimsækir fyrirtæki
Af formúlum,
reyfurum og
bókmenntagreinum
TVEIR steypubílar fuku út af
veginum yfir Fjarðarheiði milli
Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarð-
ar um kvöldmatarleytið í gær.
Gerðist þetta með stuttu
millibili. Annar bíllinn valt en
bílstjórar bílanna sluppu
ómeiddir.
Mikil hálka og hávaðarok var
á heiðinni í gær að sögn lögregl-
unnar á Egilsstöðum. Bíllinn
sem valt er töluvert skemmdur.
Tveir steypubílar
fuku út af í roki