Morgunblaðið - 13.01.2006, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● ÚRVALSVÍSITLALA aðallista Kaup-
hallar Íslands fór í gær í fyrsta skipti
yfir sex þúsund stig, en hún fór yfir
fimm þúsund stig þann 17. nóvember
síðastliðinn. Lokagildi vísitölunnar í
gær var 6.009 stig og hækkaði um
0,9% frá deginum áður. Heildar-
viðskipti í Kauphöllinni í gær námu
14,7 milljörðum króna. Þar af voru
viðskipti með hlutabréf fyrir 6,8 millj-
arða. Mest viðskipti voru með bréf Ís-
landsbanka, eða fyrir liðlega 1,6 millj-
arða. Af úrvalsvísitölufélögunum
hækkuðu bréf SÍF mest, eða um
4,1%, bréf Kögunar um 2,5% og bréf
Íslandsbanka um 2,1%. Mest lækkun
varð hins vegar á bréfum Flögu
Group, eða 1,8%, og þá lækkuðu bréf
Dagsbrúnar og FL Group um 0,9%.
Nýtt met í
Kauphöllinni
● ÞAU mistök urðu við vinnslu sam-
anburðartöflu á nafnávöxtun á
bankareikningum árið 2005, sem
birt var í Viðskiptablaði Morg-
unblaðsins í gær, að tölur yfir ávöxt-
un á reikningum S24 voru rangar.
Réttar tölur eru birtar í meðfylgjandi
töflu.
Þá olli innsláttarvilla því að ávöxt-
un á SPV Þrep reikningi var sögð
vera á bilinu 5,36-8,13%, meðan hið
rétta er að hún er á bilinu 5,36-
8,31%. Er beðist velvirðingar á þess-
um mistökum.
Leiðrétt ávöxtun S24
!
"#$
"#
$
%"# &'
%
%
● SEÐLABANKI Evrópu (ECB) til-
kynnti í gær að stýrivextir í aðildar-
löndum Myntbandalags Evrópu yrðu
óbreyttir, 2,25%, næsta mánuðinn.
Þetta var ekki óvænt en allir þeir sér-
fræðingar sem Bloomberg News
hafði spurt spáðu óbreyttum vöxtum.
Það er mat sérfræðinga að þrátt fyrir
að hagsveiflan á evrusvæðinu sé já-
kvæð sé þenslan ekki svo mikil að
grípa þurfi til aðhaldsaðgerða á
næstunni.
Englandsbanki tilkynnti sömuleið-
is í gær að stýrivextir bankans yrðu
óbreyttir en þeir eru nú 4,5%. Þetta
var einnig í takt við væntingar sér-
fræðinga.
Stýrivextir óbreyttir
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ORKUVEITA Reykjavíkur hefur
samþykkt yfirtökutilboð Atorku
Group í Jarðboranir og selt félaginu
alla hluti sína á genginu 25 krónur
fyrir hvern hlut. Fyrir söluna var OR
næst stærsti hluthafi í Jarðborunum
með 12,98% hlutafjár. Þar með hef-
ur Atorka eignast 80,63% af heildar-
hlutafé Jarðborana sem jafngildir
83,45% af virku hlutafé félagsins.
Fyrir hlut sinn í Jarðborunum fær
OR ríflega 216 milljónir hluta í
Atorku og jafngildir það 7,8% af
hlutafé félagsins. Miðað við hlut-
hafalista frá 29. nóvember síðast-
liðnum verður OR þar með fjórði
stærsti hluthafi Atorku.
OR samþykkir
tilboð Atorku
EVRÓPSKA sjónvarpsfyr-
irtækið Bonnier og kvik-
myndaleyfishafinn SAM fé-
lagið hafa undirritað
samning við Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) um að sjónvarps-
stöðvar Fast TV verði aðgengilegar
íslenskum heimilum sem tengd eru
við ljósleiðaranet Orkuveitunnar.
Fast TV er í eigu Bonnier og sérhæf-
ir sig í að dreifa sjónvarpi um kap-
alkerfi í Skandinavíu.
Í tilkynningu frá þessum aðilum
segir að Fast TV hafi að undanförnu
unnið að því að stækka þjónustu-
svæði sitt í Skandinavíu og komi nú
inn á íslenskan markað fyrir tilstuðl-
an samstarfsaðila síns, SAM félags-
ins. „Samningurinn felur í sér miðl-
un á sífellt vaxandi vöruframboði
Fast TV og SAM félagsins
sem samanstendur af sjón-
varpsrásum og kvikmyndum
sem hægt verður að leigja á
gagnvirkan hátt í gegnum
sjónvarp með einfaldri aðgerð á fjar-
stýringu,“ segir í tilkynningunni.
OR á og rekur ljósleiðaranet sem
nú þegar þjónar fyrirtækjum og
stofnunum á orkuveitusvæði fyrir-
tækisins. Í tilkynningunni segir að
OR muni tengja öll heimili í Reykja-
vík, Seltjarnarnesi, Akranesi og
Hveragerði við netið og reka það
sem opið net. Tenging heimila við
opin net geri þjónustuaðilum kleift
að veita margvíslega þjónustu yfir
netið, þar með talið síma, internet,
sjónvarp, myndefni, öryggisvöktun
og fleira.
Fast TV á
ljósleiðaraneti OR
MIKILVÆGT er fyrir íslensk fyrir-
tæki sem hyggja á útrás að kanna
hvernig greiðsluáhætta í viðskipta-
landinu er. Þetta var meðal þess sem
kom fram á fundi sem Intrum Justitia
stóð fyrir í gær.
Intrum hefur, með hjálp könnunar
á greiðsluhegðun í 23 Evrópulöndum,
reiknað út svokallaða greiðsluhegð-
unarvísitölu Evrópulanda. Sam-
kvæmt henni er afskriftahlutfall við-
skiptakrafna misjafnt eftir löndum og
einnig innheimtutími eða veltuhraði
krafna.
Stefan Schär, sérfræðingur frá
Intrum Justitia í Sviss, sagði á fund-
inum að greiðsluáhætta viðskipta-
krafna væri minnst í Finnlandi og
Svíþjóð, en mest í Portúgal og Tékk-
landi. Á Íslandi sé tiltölulega lítil
áhætta, eða sú fimmta minnsta í
könnuninni.
Sigurður A. Jónsson, forstjóri Intr-
um á Íslandi, sagði að menning í
hverju landi fyrir sig væri mjög stór
þáttur í öllu sem tengdist innheimtu.
Sem dæmi megi nefna að flytji fyr-
irtæki vöru út til Suður-Evrópu séu
líkur á því að innheimtutími sé þar
lengri, þ.e. að gert sé ráð fyrir því að
fyrirtæki taki sér lengri tíma til að
gera upp kröfur. Þá geti íslensk fyr-
irtæki staðið frammi fyrir því að
þurfa að gera upp við sína birgja áður
en greitt hafi verið fyrir vöruna, því
hérlendis sé meðalinnheimtutími
krafna um 35 dagar en hann geti verið
rúmlega 100 dagar í sumum löndum.
Því geti lausafjárstaða fyrirtækja
versnað á skömmum tíma og það leitt
til þess að fjármagn skorti.
Á fundinum í gær kom einnig fram
að á næstu vikum verði sambærileg
könnun gerð hér á landi. Fyrirtækj-
um gefst um leið og tekið er þátt í
könnuninni kostur á að fá senda sam-
anburðaskýrslu þar sem hægt er að fá
samanburð við önnur fyrirtæki á Ís-
landi eða í hinum 23 Evrópulöndun-
um sem tekið hafa þátt í könnuninni.
Greiðsluáhætta
skiptir máli fyrir
útrásarfyrirtæki
SKARPHÉÐINN Berg Steinars-
son, stjórnarformaður FL Group,
segir að það væri gott ef í boði væri
ráðgjöf til minnihluta hluthafa í fé-
lagi ef einhver stór hluthafi gerir yf-
irtökutilboð í félagið. Það sé hins
vegar varla hægt að ætlast til þess
að sá sem gerir yfirtökutilboðið veiti
minnihluta ráðgjöf. Slík ráðgjöf
verði að koma annars staðar frá.
Kom þetta fram á fundi sem Félag
viðskiptafræðinga MBA frá Háskóla
Íslands (MBA-HÍ) stóð fyrir um
stöðu hluthafa í hlutafélögum.
Þeir Skarphéðinn og Vilhjálmur
Bjarnason, viðskiptafræðingur og
aðjunkt við viðskipta- og hagfræði-
deild Háskóla Íslands, voru frum-
mælendur á fundinum og vék Vil-
hjálmur í máli sínu að launakjörum
Hannesar Smárasonar, forstjóra
FL Group. Hann sagði undarlegt að
háar launagreiðslur til handa for-
stjóranum væru réttlættar með því
að hann væri stór hluthafi í félaginu.
Skarphéðinn sagði málið hins
vegar snúast um nauðsyn þess að
launakjör Hannesar Smárasonar
séu gagnsæ og liggi ljós fyrir þar
sem hann sé stór hluthafi í félaginu.
Tók hann fram að fyrir utan mán-
aðarlegar launagreiðslur fær Hann-
es engin önnur fríðindi, tekjur eða
kaupréttarmöguleika.
Hagsmunir stórra og
smárra fara saman
Vikið var að stöðu óháðra stjórn-
armanna í hlutafélögum og sagðist
Skarphéðinn í raun ekki skilja hvað-
an áhugi manna á óháðum stjórn-
armönnum kæmi né hvaða vanda-
mál þeir ættu að leysa. Sagði
Skarphéðinn að smærri hluthafar
keyptu hluti í fyrirtækjum af því að
þeir treystu stóru hluthöfunum til
að ávaxta fé sitt.
Hagsmunir stórra og smárra
hluthafa færu þar saman og því
mætti allt eins líta á fulltrúa stórra
hluthafa í stjórn sem fulltrúa þeirra
smærri líka. Lagareglur kæmu í veg
fyrir að stjórnir tækju ákvarðanir
sem hygluðu ákveðnum hluthöfum á
kostnað fyrirtækis eða annarra
hluthafa og ætti sá varnagli að
nægja.
Laun forstjóra FL Group
þurfa að vera gagnsæ
Morgunblaðið/Golli
Frummælendur Skarphéðinn Berg Steinarsson og Vilhjálmur Bjarnason.
Launakjör forstjórans voru rædd á fundi um stöðu hluthafa í félögum
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ÍSLANDSBANKI gerði í fyrradag
kaupréttarsamninga við þá fram-
kvæmdastjóra bankans sem sitja í
framkvæmdastjórn hans. Í til-
kynningu til Kauphallar Íslands
segir að markmið samninganna
sé að tengja saman hagsmuni
hluthafa og stjórnenda.
Samningarnir veita hverjum
framkvæmdastjóra rétt til kaupa
á 10 milljón hlutum í Íslands-
banka á meðalverði hlutabréfa í
bankanum eins og það var í
fyrradag, eða 19,34 krónur á
hlut. Hver framkvæmdastjóri get-
ur því keypt hlutabréf í Íslands-
banka fyrir samtals 193,4 millj-
ónir króna. Samningarnir eru til
þriggja ára.
Þeir framkvæmdastjórar sem
um ræðir eru: Finnur Reyr Stef-
ánsson, Haukur Oddsson, Jón
Diðrik Jónsson, Tómas Krist-
jánsson og Frank Ove-Reite.
Morgunblaðið/Ásdís
Stjórnendur ÍSB með
193 milljóna kauprétt
! "# #
!"#$
% !"#$
&%%' !"#$
()*+#$
,-( !"#$
,. !"#$
/-+0)+%#$
1!"2+(&+%#$
1'(!+#$
.+0)+%/-+0#$
34-#$
3 ,# +#$
/,#$
!5!6&!78,98$)+%#$
:!#$
,%5%7!/-+0#$
+0#$
;5"79+#$ <4-+0 !"#$
7) +#$ =#49#$
>?,
-+>4 -4!5
@A((+(57'7+#$
++-!'7+#$
!"
#
,%4-0A9$97#$
-8!$B-(!7!-+0$
"$%& <C E7
7%47
6
6
6
6
6
6
6
6
6
&4A+($8
$A7%47
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
F
F F F6 F6 F6 F F
F
F 6
F6
F F F 6
6
6
6
6
6
F 6
6
6
6
6
;4-07%"
0(+
@-) 7E- %0(H
1!"-
6
6
6
6
6
6
6
6
6
7%"E2*%
@;I
#!(!+- ,9'-0
7%"
6
6
6
6
6
6
6
6
6
0J
K>
%
$ $
,@
L
%
C
C
M3L
$
M3L1#'$+
%%4
%
<CL
N +4
$