Morgunblaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRÍR ráðherrar Likud-flokksins fóru í gær að
fyrirmælum formanns síns og sögðu sig úr rík-
isstjórn Ísraels. Krafa formannsins olli deilum og
Silvan Shalom utanríkisráðherra samþykkti ekki
fyrr en seint í gærkvöldi að leggja fram lausn-
arbeiðni sína, sem hann mun gera í dag. Þrátt fyr-
ir alvarleg veikindi Ariels Sharons forsætisráð-
herra sjást þess nú glögg merki að kosningar eru
skammt undan í Ísrael.
Benjamin Netanyahu, leiðtogi Likud, hafði gef-
ið ráðherrunum bein fyrirmæli þess efnis að þeim
bæri að segja af sér í gær, fimmtudag. Hér ræðir
um þá Silvan Shalom utanríkisráðherra, Limor
Livnat menntamálaráðherra, Israel Katz land-
búnaðarráðherra og Danny Naveh heilbrigðisráð-
herra. Sagði Netanyahu ótækt með öllu að Likud
tæki áfram þátt í stjórnarsamstarfinu þar sem
flokknum myndi þá ekki auðnast að koma fram
sem skýr valkostur í ísraelskum stjórnmálum.
Ráðherrarnir ákváðu hins vegar miðvikudags-
kvöld að hundsa fyrirmæli formannsins og gerðu
það fram eftir degi í gær er þrír þeirra létu undan
þrýstingnum í nafni flokkseiningar. Hald manna
er að ráðherrarnir hafi ekki viljað segja af sér fyr-
ir prófkjör miðstjórnar Likud vegna þing-
kosninganna í Ísrael 28. mars. Sá fundur var hald-
inn í gærkvöldi og gengið frá framboðslista vegna
þingkosninganna. Var því spáð að þeir frambjóð-
endur, sem mesta hörku vilja sýna í samskiptum
við Palestínumenn, ættu góðan árangur vísan.
Ísrelska dagblaðið Haaretz greindi frá því í
gær, að ráðherrarnir fjórir hefðu á fundi á mið-
vikudagskvöld ákveðið að fresta afsögninni til
sunnudags. Netanyahu hefði ekki haft fyrir því að
greina þeim fyrirfram frá því að hann hygðist í
ræðu beinlínis krefja þá um lausnarbeiðni. Mun
þeim hafa þótt þessi framganga Netanyahus nið-
urlægjandi og lýsa yfirgengilegri frekju. „Ráð-
herrar Likud eru ekki starfsmenn formannsins,“
hafði blaðið eftir aðstoðarmanni utanríkisráðherr-
ans.
Afstaða ráðherranna var sögð hafa fallið í grýtt-
an svörð í herbúðum Netanyahus, sem mun telja
að Shalom utanríkisráðherra hafi skipulagt and-
stöðuna. Útvarpið í Ísrael kvaðst í gær hafa heim-
ildir fyrir því að Shalom hygðist í engu hvika frá
fyrri afstöðu og því ekki segja af sér fyrr en á
sunnudag. Þeir Shalom og Netanyahu funduðu
um málið í gærkvöldi og var þá frá því skýrt að
Shalom hefði fallist á að segja af sér í dag, föstu-
dag. Sýnt er að spenna magnast nú innan Likud-
flokksins, sem á í miklum erfiðleikum eftir brott-
hvarf Sharons ef marka má skoðanakannanir.
Afsögn ráðherranna kemur hins vegar ekki á
óvart. Sýnt var er Sharon klauf Likud í nóvember-
mánuði og stofnaði nýjan flokk, Kadima, að ráð-
herrar fyrrnefnda flokksins myndu yfirgefa skip-
ið. Töf varð hins vegar á því þegar Sharon veiktist.
Andstaða við kosningar
í Austur-Jerúsalem
Á miðvikudagskvöld gangsetti Netanyahu á ný
pólitísku mulningsvélina er hann réðst harkalega
að Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra og
líklegum leiðtoga Kadima-flokksins. Sakaði hann
flokksmenn m.a. um að hafa nýtt sér veikindi og
persónu Sharons í pólitískum tilgangi. Netanyahu
vék sérstaklega að þeim áformum ríkisstjórnar-
innar að heimila Aröbum í Austur-Jerúsalem að
taka þátt í þingkosningum Palestínumanna 25.
þessa mánaðar. Sagði hann Olmert og menn hans
hafa vikið frá stefnu Ísraela að líta á Jerúsalem
sem óskiptanlega höfuðborg ríkis gyðinga. Í hug-
um Palestínumanna er Austur-Jerúsalem höfuð-
borg framtíðarríkis þeirra. Ísraelar hertóku borg-
arhlutann árið 1967 og innlimuðu síðar í ríki sitt.
Formleg staðfesting þess efnis að íbúum Aust-
ur-Jerúsalem verði gert kleift að greiða atkvæði í
þingkosningunum liggur raunar ekki fyrir. Ísra-
elskir ráðamenn hafa á hinn bóginn gefið mjög
ákveðið til kynna að sú verði raunin. Hafa þeir og
sætt þrýstingi af hálfu Bandaríkjastjórnar í þessu
efni. Ehud Olmert hefur lýst yfir því að ríkis-
stjórnin muni formlega afgreiða mál þetta á fundi
sínum á sunnudag. Ráðherrar Likud höfðu lýst yf-
ir eindreginni andstöðu sinni. Með þeirri ákvörðun
Likud að segja sig úr stjórninni er því ljóst að ráð-
herrar flokksins munu ekki koma frekar að fyr-
irkomulagi kosninganna í Austur-Jerúsalem.
Þrír ráðherrar Likud
kveðja Ísraelsstjórn
Utanríkisráðherrann
hundsar bein fyrirmæli
flokksformannsins
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
INDVERJAR halda upp á þjóðhá-
tíðardag sinn eða lýðveldisdaginn
eins og þeir kalla hann 26. þessa
mánaðar og þá er mest um dýrðir í
höfuðborginni, Nýju-Delhí. Hinar
ýmsu deildir hersins verða þá með
skrúðgöngur, til dæmis þessi sem
hér sést, landamæravörðurinn. Þar
er úlfaldinn fararskjótinn en hann
mun víst fær um að spretta vel úr
spori þótt ekki sé hann hlaupalegur
að sjá.
Reuters
Æft fyrir lýðveldisdaginn
ÓEIRÐIR brutust í gær út í Ulan
Bator, höfuðborg Mongólíu, og virt-
ist sem ríkisstjórn landsins væri að
falli komin.
Rúmlega 500 manns söfnuðust
saman á helsta torgi miðbæjarins og
réðust síðan inn í höfuðstöðvar Bylt-
ingarflokks mongólskrar alþýðu til
að mótmæla þeirri ákvörðun flokks-
forustunnar að draga sig út úr rík-
isstjórn landsins. Fullyrti fólkið að
Byltingarflokkurinn hefði reynt
valdarán í landinu. Byggingin
skemmdist en ekki bárust fregnir af
því að menn hefðu slasast eða verið
handteknir.
Byltingarflokkurinn, sem forðum
var útibú Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna, hætti stuðningi við ríkis-
stjórnina á miðvikudag. Þá sögðu af
sér 10 af 18 ráðherrum og var þar
með bundinn endi á tæplega tveggja
ára samstarf við Lýðræðisflokkinn.
Tsakhia Elbegdorj, forsætisráð-
herra, sem fer fyrir Lýðræðisflokkn-
um, var enn við völd síðdegis í gær
og þingheimur ræddi hvort fallast
bæri á afsögn ráðherranna. En þar
sem Byltingarflokkurinn hefur 38 af
76 þingmönnum var sýnt að flokkn-
um myndi takast að þvinga fram
samþykki og þar með ljúka valda-
skeiði forsætisráðherrans.
Veruleg umskipti hafa orðið í
Mongólíu á undanliðnum árum en
landið var áður því sem næst sovéskt
leppríki. Breytingar á efnahagssvið-
inu þykja hafa tekist ágætlega en
hagkerfið mótast mjög af því að um
helmingur þjóðarinnar er hirðingjar.
Spillingarásakanir
Stjórnmálin hafa einkennst af
spennu en verið friðsæl til þessa.
Landið er hins vegar enn einangrað
og þjóðin, sem byggir þetta risastóra
ríki (sem er þrisvar sinnum stærra
en Spánn og 15 sinnum stærra en Ís-
land) er fátæk og raunar fámenn
einnig, því í Mongólíu búa aðeins um
2,7 milljónir manna.
Hið fyrirsjáanlega hrun ríkis-
stjórnar Elbegdorj er komið til sök-
um óánægju með efnahagsstjórnina
en forsætisráðherrann hefur einnig
verið vændur um margvíslega vald-
níðslu, spillingu og að hygla einka-
vinum og flokkshrossum.
Lögreglu- og herlið voru í gær á
götum Ulan Bator þar sem um þriðj-
ungur þjóðarinnar býr.
Mikil ólga
í Mongólíu
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
Seoul. AFP. | Suður-kóreski vísinda-
maðurinn Hwang Woo-suk bað í gær
þjóð sína fyrirgefningar á að hafa
logið til um mikilvægar uppgötvanir
á sviði stofnfrumurannsókna.
Hann skellti hins vegar skuldinni
á undirmenn sína og vændi þá um
svik og blekkingar.
Hwang fullyrti á fundi með frétta-
mönnum í gær að hann réði yfir
tækni til að búa til fósturvísastofn-
frumur, sem væru erfðafræðilega
sérhannaðar fyrir tiltekna sjúklinga.
Sagðist Hwang geta búið slíkar
frumur til á hálfu ári ef hann fengi
nóg af eggjum.
Þetta er í fyrsta skipti í þrjár vikur
sem Hwang kemur fram opinber-
lega. Á þriðjudag voru birtar niður-
stöður rannsóknarnefndar Þjóð-
arháskólans í Suður-Kóreu, sem
falið var að fara yfir rannsóknir
Hwangs. Niðurstaðan var í stuttu
máli sú að „afrek“ hans öll hefðu ver-
ið tilbúningur en honum hefði að vísu
tekist að einrækta hund af afgönsku
kyni.
Hwang kvaðst beygður af skömm
og sagðist axla ábyrgðina á því að
hafa ekki farið í saumana á þeim
upplýsingum, sem undirmenn sínir
hefðu látið sér í té. „Sem aðalhöfund-
ur [rannsóknanna] verð ég að axla
ábyrgð á því að notuð skyldu gögn,
sem voru uppspuni,“ sagði Hwang.
En hann fullyrti að sjálfur hefði
hann ekki vitað um blekkingarnar,
sem samstarfsmenn hans við rann-
sóknirnar hefðu beitt. Á rannsókn-
arstofu hans hefðu verið búnir til um
eitt hundrað einræktaðir mannafóst-
urvísar, en sjúkrahúsið sem nam úr
þeim stofnfrumur hefði logið til um
niðurstöðurnar. Hwang gat sér þess
til að yfirmaður sjúkrahússins hefði
viljað hefna sín persónulega á hon-
um.
Ýmsir sérfræðingar telja blekk-
ingar Hwangs með stærri svikum
síðari tíma á sviði vísinda.
Hwang biður um fyrirgefningu
Segir undirsáta
hafa svikið sig
Hwang Woo-suk á blaðamannfundi
í Seoul í gær. Síðar um daginn var
gerð leit á heimili hans en í ráði er
að draga hann fyrir dómstóla.
ARMIN Meiwes, sem dæmdur var
í þýskum undirrétti í rúmlega átta
ára fangelsi fyrir að drepa mann
og éta hann síðan, kom aftur fyrir
rétt í Frankfurt í gær. Áfrýjuðu
saksóknarar dóminum og krefjast
þeir þess að Meiwes verði dæmdur
fyrir morð og í lífstíðarfangelsi.
Meiwes auglýsti á síðum á netinu
eftir „manni á aldrinum 18 til 30
ára til slátrunar“ og þannig komst
hann í kynni við þann sem hann
drap, Bernd Jürgen Brandes. Var
hann einn af meira en 200 mönn-
um, sem svöruðu auglýsingunni.
Bendir flest til að Brandes hafi
fúslega samþykkt að vera drepinn
og étinn.
Mannætan
fyrir rétti
AP
Ósló. AP. | Talsmaður norska dag-
blaðsins Magazinet sagði í gær, að
blaðinu hefðu borist margar hótanir,
þar á meðal dauðahótanir, eftir að
það birti danskar myndir af Múham-
eð spámanni.
Myndirnar, sem birtust fyrst í Jyl-
lands-Posten, hafa vakið mikla
gremju meðal múslíma og svo virðist
sem um samræmdar aðgerðir gegn
Magazinet sé að ræða. Hefur tölvu-
póstskeytum rignt yfir það, meðal
annars með myndum af brunnum
líkum, og í einu, sem stílað er á rit-
stjórann, Vebjørn Selbekk, segir
einfaldlega: „Þú er svo gott sem
dauður.“
Blaðamenn
fá hótanir