Morgunblaðið - 13.01.2006, Side 19

Morgunblaðið - 13.01.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 19 MINNSTAÐUR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Reykjavík | Umhverfissvið Reykja- víkurborgar stendur þessa dagana fyrir samráði við borgarbúa um sjálfbært samfélag. Hófst það nú á mánudag og stendur í tvær vikur. Í samráðinu felst m.a. að hverjum og einum borgarbúa er boðið að koma á framfæri eigin hugmyndum um hvernig borgaryfirvöld eigi að standa að því að skapa sjálfbært samfélag á næstu árum. Hugmyndir borgarbúa geta fjallað um ólík viðfangsefni, t.d. notkun útivistar- svæða, samgöng- ur, náttúruvernd, landnýtingu, loft- gæði, lýðheilsu, ásýnd borgarinn- ar, umhverfis- fræðslu, hverfin, sorp og umgengni. Þannig er spurt hverju borgarbúar vilji breyta og hvað þeir vilji vernda. Samráð Umhverfissviðs við borg- arbúa er þáttur í endurskoðun á um- hverfisáætlun Reykjavíkur – Staðar- dagskrá 21 og gengur nú undir heitinu Reykjavík í mótun. Samráð með þessum hætti er nýlunda, en hugmyndirnar verða síðan notaðar til að móta stefnu Reykjavíkurborg- ar í umhverfismálum og sjálfbærri þróun. Fyrir þá sem ekki þekkja til Stað- ardagskrár 21 á hún rætur sínar að rekja til umhverfisráðstefnunnar í Ríó árið 1993. Þar var niðurstaða ráðstefnugesta sú að enginn árangur næðist í sjálfbærri þróun nema með öflugu starfi í grasrót og á sveitar- stjórnarstiginu, með náinni sam- vinnu við almenning. Staðardagskrá 21 snýst um það að virkja almenning og einstaklingsframtak með stefnu- mótun og framkvæmdaáætlunum á sveitarstjórnarsviði. Almenningur getur tekið þátt í samráðinu með því að heimsækja slóðina www.hallveigarbrunnur.is, en þar er óskað eftir skriflegum hug- leiðingum undir nafnleynd um um- hverfismál. Einnig má senda hug- leiðingar í tölvupósti á netfangið sd21@reykjavik.is eða bréflega til umhverfissviðs Reykjavíkurborgar, Skúlagötu 19, 101 Reykjavík, merkt „Reykjavík í mótun“. Þá geta borg- arbúar hringt gjaldfrjálst í talhólf í símanúmerið 800-1110. Fjölbreyttar hugmyndir Hallveigarbrunnur er einmitt nefndur eftir Hallveigu Fróðadóttur, konu Ingólfs Arnarsonar landnáms- manns. „Við viljum horfa jafnt til landnemanna, sem mótuðu þetta samfélag, þannig að það er útspil okkar að þau byrjuðu og nú er komið að okkur að hafa áhrif á mótun Reykjavíkur,“ segir Ellý Katrín Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Um- hverfissviðs Reykjavíkurborgar. Ellý segir hafa gengið mjög vel að fá tillögur frá borgarbúum, en í fyrradag hafi borist milli 200–300 til- lögur frá borgarbúum í Hallveigar- brunn. „Við höfum fengið mjög já- kvæð viðbrögð frá fólki og sérstaklega á hana Hallveigu,“ segir Ellý. „Við erum að sjá tillögur um breytta legu Sundabrautar miðað við þær sem hafa verið til skoðunar, til- lögur um nýtingu útivistarsvæða, grenndargáma og betri aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Svo erum við að sjá nýstárlegar hug- myndir um kaffi- og veitingaskála á nýjum stöðum í borginni. M.a. sneri ein tillaga að íþróttasvæði á nýjum stað sem myndi hvetja börn og ung- linga til íþróttaiðkunar og bæta lýð- heilsu.“ Tillögurnar eru ýmist nafnlausar eða með nafni og koma alls staðar að, jafnt úr borginni sem og utan henn- ar. Ellý segir það fyrirtak, enda sé Reykjavík höfuðborg allra lands- manna. „Sem dæmi um tillögur um bættar almenningssamgöngur höf- um við tillögur um endurbætur á bið- skýlum strætisvagna, hvort hægt sé að hita þau upp eða allavega sætin. Þá hefur verið stungið upp á því að hafa útvarp í þeim.“ Ellý segir ljóst að fólk hugsi vítt og mikil fjölbreytni einkenni þær hugmyndir sem séu að koma inn. „Við erum að virkja borgara í því að reyna að sjá framtíðarsýn borgar- anna. Margir horfa sér nær inn í sitt hverfi, sem er mjög gott, því þannig sjáum við hvað brennur á fólki,“ seg- ir Ellý og bætir við að það væri gott að fá líka ábendingar um það sem er gott og vert að halda í, þar sem mik- ilvægt sé að vita hverju sé óæskilegt að fórna. Virkja þarf ímynd- unarafl borgarbúa Morgunblaðið/Kristinn Öldurót á Tjörninni Ætli gestir hins fljótandi kaffihúss á Tjörninni yrðu ekki rambandi af sjóriðu eftir kaffisopann í svona veðri? Ellý K. Guðmundsdóttir ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 2 62 43 10 /2 00 4 debenhams S M Á R A L I N D debenhams útsalan af enn meiri krafti Allar útsöluvörur ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 3 09 21 01 /2 00 6 Nýtt kortatímabil 50 afsláttur%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.